Dagur - 29.10.1998, Side 1
M
g\!
Er draugurmn bara segulorka?
Einhverjum kann að
þykja reimleikar auðga
mannlífið - en dr. Roll
rekur slíkfyrírbrígði
meira og minna til seg-
ulsviðs jarðar.
Dr. William Roll er virtur dansk-
ur dulsálarfræðingur og hefur
varið starfsævinni í að kanna
draugagang og önnur dulræn fyr-
irbrigði. Heimsóknir ærsla-
drauga, reimleikar og svipsýnir
eru hins vegar afar sjaldgæf fyrir-
brigði og því örðugt að stunda
stöðugar vettvangsrannsóknir.
Aðeins fréttist af örfáum tilvikum
á ári í Bandaríkjunum og vildi
RoII gjarna koma því áleiðis að
hann heldur fyrirlestur í Deigl-
unni á Akureyri kl. 20.30 á föstu-
dagskvöld og ef einhveijir hafa
upplifað dulræn fyrirbrigði þá er
þeim velkomið að hafa samband
við hann þar eða við Erlend Har-
aldsson í Háskóla Islands.
Dmvatnsflaska á loft
I mars árið 1964 rannsakaði dr.
Roll reimleika sem orðið höfðu á
bænum Saurum skammt frá
Skagaströnd tveimur mánuðum
áður og voru allmennt raktar til
afturgöngu sjómanna. Húsgögn
höfðu oltið og færst til og til að
ganga úr skugga um að ekki væri
nein skjálftavirkni í jarðskorp-
unni mældu jarðskjálftafræðing-
ar svæðið með jarðskjálftarita en
engin hreyfing fannst. „Við höf-
um ekki fundið neinar sannanir
um tilvist anda eða drauga en í
svona tilvikum eru iðulega erfið
og langvarandi vandamál innan
fjölskyklunnar. Það voru slík átök
innan þessarar fjölskyldu. Þetta
voru eldri hjón og dóttir þeirra,
Dr. Roll hefur frá barnæsku haft brennandi áhuga á dulrænum fyrirbrigðum en á unglingsárum sínum varð hann
fyrir þeirri reynslu að fara út úr líkamanum en þá var móðir hans nýlátin. Talið er að um tíundi hver maður verði fyrir
einhvers konar dulrænni reynslu á ævinni og oft er það tengt tilfinningalegu áfalli.
hún vildi flytja til Reykjavíkur og
konan vildi líka bregða búi. Mál-
ið leystist þegar maðurinn lét
undan konunni og reimleikarnir
enduðu.“
- Hefur þú sjálfur orðið vitni að
ærsladraug?
„Já, nokkrum sinnum. Eg var
til dæmis einu sinni staddur í
svefnherbergi í Kentucky.
Skömmu áður höfðu allir hlut-
irnir á snyrtiborðinu hrunið nið-
ur á gólf en ég hafði ekki orðið
vitni að því. Eg setti allt aftur á
sinn stað, kannaði hvort ein-
hverjir seglar væru þarna eða
borðið blautt en allt virtist eðli-
legt. Þá tekst skyndilega ilm-
vatnsflaska á loft af snyrtiborð-
inu og færðist um einn og hálfan
metra inní herbergið og lenti á
gólfinu.“
Sálarspenna og segulsvið
jarðar
- En hvernig hafa menn innan
dulsálarfræðinnar reynt að skýra
þessi fyrirbrigði ?
„Við erum að eiga við tvær teg-
undir fyrirbrigða. Annars vegar
hluti sem hreyfast. Við höfum
ekki náð að útskýra hreyfinguna -
en við vitum að hún tengist sál-
fræðilegri spennu og jarðsegul-
truflunum og tengist ávallt ein-
staklingum. Það eru yfirleitt 1-2
manneskjur sem verða að vera
viðstaddar og vakandi þegar svona
fyrirbrigði birtast. Ein tilgátan er
að þetta fólk virki sem eins konar
linsur sem fókusera þessa raf-
segulorku á hluti inni í húsum.
Hin tegundin eru endurtekinn
draugagangur og hann er alltaf
tengdur stað en ekki manneskju.
Og við höfum komist að því að
þessir staðir hafa rafsegulorku
yfir meðallagi. Þessi orka leysist
úr læðingi þegar segulsvið jarðar-
innar er raskað en líka þegar til
dæmis misgengi verður undir yf-
irborði jarðar eftir jarðskjálfta.
Misgengið framkallar rafstraum
sem ferðast um neðanjarðar þar
til hann kemst upp á yfirborð.
Dulræn fyrirbrigði verða oft þeg-
ar svona truflanir eiga sér stað.
Orkan getur framkallað ýmis raf-
ræn fyrirbrigði, einsog fljótandi
ljós og svipi sem með smá ímynd-
unarafli verða að draugum. En
svo getur rafsegulsviðið, og hér
fer þetta að verða undarlegt, haft
áhrif á heilann og framkallað ým-
iss konar skrýtnar upplifanir, þar
á meðal að upplifa nærveru ein-
hvers þótt enginn sé á staðnum,
hátfðnihljóð, undarlega lykt og
ofsjónir."
Draugagangur að aukast?
- Þú segir draugagang vera að
aukast vegn aukinnar rafsegul-
mengunar. Hvemig er það með
landa þtna, Dani, eru þeir mjög
andatrúaðir?
„Ónei - einu andarnir sem
Danir trúa á er vínandinn sem þú
setur í glas!“
- Þér sem vtsindamanni er skilj-
anlega umhugað að útskýra þessi
fyrirbrigði en finnst þér ekki að
heimurinn yrði snauðari ef hægt
verður að útskýra draugagang að
fullu?
„Ja, það eru ýmis fleiri ókönn-
uð svið í heiminum. Og þó við
getum sett vísindaleg nöfn á fyr-
irbrigðin,“ sagði Roll og brosti,
„þá segir það okkur í raun ekki
svo mikið...“
- LÓA
4