Dagur - 29.10.1998, Page 2
18 — FIMMTUDAtíUH 29. OKTÓBER 1998
Thypr
LÍFIÐ t LANDINU
SMÁTT OG STÓRT
UMSJÓN:
SIGURDÓR
SIGURDÓRSSON
Steingrím J.
Sigfússon
„Nú þegar
Kvennalistinn er
klofinn og brotin
úr stélinu á hon-
um hafa dottið
annað hvort í
blönduna af súr-
um sósíalistum
eða fylkt Iiði sem
Iéttgleiðum
krötum er ekki úr
vegi að athuga
gripinn."
Guðbergur Bergs-
son rithöfundur í
DV.
Alveg' salla rauðum
Hið nýja vinstri framboð hefur í gamni verið
kallað rautt og grænt framboð. Hér í Smáu og
stóru á miðvikudag var verið að fjalla um
Steingrím J. Sigfússon, foringja þessa fram-
boðs og hann kallaður Steimgrímur „græni"
Sigfússon. Eg hefði heldur kallað hann Stein-
grfm „rauða“ Sigfússon og það af tveimur
ástæðum. I fyrsta lagi stendur hann fyrir það
sem einu sinni voru kallaðar rauðar stjórn-
málaskoðanir og í öðru Iagi er Steingrímur
með mikið eldrautt skegg og hárkraga og rauð-
an skalla. Mér dettur í þessu sambandi í hug
sá frægi prentari og íslenskusérfræðingur hér
á árum áður, Hallbjörn Halldórsson, sem
Halldór Laxnes kallaði mestan íslensku mann
sinnar samtíðar. Hann var eins og Steingrímur
J. með rauðan skalla og hárkraga. Hallbjörn
mætti ævinlega í kaffi með menntamannaelítu
sem sótti hið gamla Hótel ísland í miðborginni
í byrjun aldarinnar. Kunnur hagyrðingur orti
eina vísu um hvern mann í hópnum og vísan
um Hallbjörn var svoan:
Þar sat Hallbjörn heljar karl
og hampaði dalli snauðum.
Otaði skalla eins ogfjall
alveg salla rauðum.
Utanbæjarugla
Þeir Akureryingar eru fljótir að geta þess að
um utanbæjarmann sé að ræða ef slíkur
óknyttamaður er handtekinn á Akureyri. Svo
rammt kveður að þessu að ef afbrotafrétt frá
Akureyri er lesin upp í útvarpi eða sjónvarpi
bíða menn fréttalokanna til að fá að vita hvort
um aðkomumann var að ræða. I Degi í gær var
frétt um uglu sem ræðst að hundum og kött-
um í Eyjafirði og hefur raunar Ieikið kattargrey
mjög illa. Þegar þeir kollegar okkar á Akureryi
voru að segja frá þessu á morgunfundi frétta-
manna blaðsins gall við í einum fréttamann-
anna syðra. „Þetta hlýtur að vera að-
komuugla"!
Sveitakratar
Á dögunum Iýsti Guðmundur Lárusson, bóndi
og fyrrum formaður kúabænda, því yfir að
hann væri genginn úr Alþýðubandalaginu
vegna þess að hann gæti ekki farið fram á það
við bændur að þeir styddu krata. Þegar Olafur
Stefánsson á Syðri -Reykjum heyrði fréttina
varð honum á orði:
Fylking riðlast, fúna stofnar,
færa leið er naumt að rata.
Gvendur Lár. þeim gæðum hafnar
að geta stutt í sveitum krata.
„Gaman að velta
fyrir sér álitamál-
um þjóðfélagsins
út frá sjónarhóli
laga og heim-
speki," segir Hall-
dór B. Backman,
nýbakaður
héraðsdómslög-
maður. Hann er
framar á þessari
mynd. Aftar
stendur félagi
hans Guðmundur
Ó. Björgvinsson,
lögfræðingur.
MYND: - TEITUR
Að hugsa lögfræðilega
„Starf lögfræðingsins heillaði
mig strax í æsku og ég var korn-
ungur ákveðinn í að mennta mig
sem slíkur,“ segir Halldór B.
Backman, héraðsdómslögmaður.
Hann opnaði fyrr í þessum mán-
uði lögmannsstofu að Lágmúla 7
í Reykjavík ásamt félaga sínum
Guðmundi O. Björgvinssyni.
Halldór reisir hér að nýju merki
föður síns, Armundar S. Back-
man, lögmanns, sem féll frá fyrr
í haust eftir langvarandi veikindi.
Skrifstofa þeirra Halldórs og
Guðmundar er á sama stað og
stofa Arnmundar var.
Útvarpsmaðurí
lögfræði. HalldórB.
við sinna alhliða lögfræðistörfum
rétt einsog til fellur, innheimtu,
ráðgjöf, álitsgerðum og allskonar
málflutningstörfum," segir Hall-
dór.
A fjóriun og hálfiun vetri
„Eg lauk laganáminu á Ijórum og
hálfum vetri og var líka fljótt far-
inn að vinna á stofunni hjá föður
mínum. Málflutningsréttindi
fékk ég 10. september í haust,
eða um það Ieyti sem faðir minn lést. Ég ákvað
að taka upp merki hans og nú í byrjun október
opnuðum við Guðmundur þessa stofu," segir
Halldór.
I laganámi sínu lagði Halldór áherslu á vinnu-
og skaðabótarétt, en það voru einmitt þau svið
lögfræðinnar sem faðir hans starfaði mildð við.
Lokaritgerð Halldórs fjallaði um bótarétt starfs-
manna við vinnuslys. Guðmundur, félagi hans,
Iagði áherslu á ekki ósvipaðar greinar í sínu
námi, en hann er sérmenntaður í vátryggingum
og sjórétti frá Osló. Lokaritgerð hans fjallaði um
björgun á sviði sjóréttar. „En auðvitað munum
lögmaður, opnarlög-
mannsstofu við ann-
an mann. Leggja
áherslu á hótamál og
vinnurétt.
Backman, nýbakaður að vinna útvalr,.
^ Jatnhliða mennta- og siðar ha-
skólanámi hefur Halldór starfað
við dagskrárgerð í útvarpi. „Ég
hóf störf á Stjörnunni 1989 og
síðan er ég búinn að vera á Aðal-
stöðinni, FM 957 og síðustu ár á
Bylgjunni. Mér þykir gaman að
vinna við útvarp og er að mörgu
leyti háður því, finnst gaman og
gott að koma víðar við en bara á
skrifstofunni. Síðan gaf útvarpið
Iíka ágætlega í aðra hönd og með
launum fyrir útvarpsvinnu gat ég
fjármagnað háskólanámið. Mikið
er gott nú að þurfa ekki að vera
að borga niður margra milljóna
króna bagga námslána," segir Halldór.
Halldór kveðst eiga fjölmörg áhugamál, svo
sem ferðalög, veiðiskap og íþróttir. Segist hann
verja dágóðum tíma til að sinna þeim, en síðan
sé lögfræðin líka áhugamá’ „Maður þarf að
temja sér að hugsa lögfræðilega og það er gam-
an að velta fyrir sér álitamálum þjóðfélagsins á
hverjum tíma út frá sjónarhóli laga og heim-
speki. Þar nefni ég til dæmis kvótamál og mál er
varða persónuvernd og erfðavísindi. Ég ver
miklum tíma í að kynna mcr slík mál og rök-
ræða þau við góða menn," segir Halldór B.
Backman. — SBS.
SPJALL
FRÁ DEGI TIL DAGS
Grunntónn tilverunnar er meinlaust
grín.
Þórbergur Þórðarson
Þetta gerðist 29. október
•1894 voru haldnar fyrstu lýðræðislegu
kosningarnar á Hawai.
•1914 lýstu Rússar yfir stríði á hendur
Tyrkjum.
•1919 kom Alþýðublaðið út í fyrsta sinn,
og var þá undir ritstjórn Ólafs Friðriks-
sonar.
•1922 tók elliheimili til starfa í húsinu
Grund við Kaplaskjólsveg í Reykjavík, en
flutti átta árum síðar í nýtt hús við Hring-
braut.
•1954 hófust tilraunaútsendingar sjón-
varps í Svíþjóð.
•1958 neitaði Boris Pastemak móttöku
Nóbelsverðlauna í bókmenntum.
Þau fæddust 29. október
•1897 fæddist áróðursmeistari Hitlers,
Jósef Göbbels.
• 1910 fæddist breski heimspekingurinn
Alfred Jules Ayer.
•1917 fæddist gamli töffarinn Eddie
Constantine, sem lék í fjölmörgum kvik-
myndum í Frakklandi og Bandaríkjunum.
•1924 fæddist pólska skáldið Zbigniew
Herbert.
•1947 fæddist bandaríski leikarinn Ric-
hard Dreyfuss.
•1971 fæddist bandaríska Ieikkonan
Winona Ryder.
Vísa dagsins
Ágætis heilræði er að finna í þessari þjóð-
vísu:
Þegar lundin þtn er lirelld,
- þessum hlýddu orðum,
gakktu með sjó og sittu við eld,
svo kvað völvan forðum.
Afmælisbam dagsins
Edmund Halley er eiginlega ekki
þekktur fyrir neitt annað en hala-
stjörnuna sem skýrð er í höfuðið á
honum og heimsækir okkur á 76
ára fresti. Eðlisfræðingar vita
reyndar heilmikið um hann Iíka.
T.d. var það hann sem fékk Newton
til að skrifa höfuðrit sitt, Principia,
sem kom út 1687. Sjálfur skrifaði
Halley einnig fjölmargar bækur um
stjörnufræði og fleira. Hann fædd-
ist árið 1656 og lést 1742.
Þegar biskup fór til hinma
Biskup nokkur hafði verið fáeina daga í
himnaríki, og hafði heldur betur fundið
ástæðu til að kvarta undan aðbúnaðinum.
„Hvernig stendur eiginlega á þessu,“
segir hann við Pétur, „ég fæ bara lftinn
klefa til að hírast í en lögfræðingurinn á
móti býr í vellystingum í tíu herbergja
íbúð. Þetta hljóta að vera einhver mistök!“
„Ja, sko,“ svarar Pétur. „Það á sér allt
sínar skýringar. Við erum með miklu meira
en nóg af biskupum hérna, en ekki nema
einn lögfræðing."
Veffang dagsins
„Ask Jeeves" (Spyrjið Jeeves) er óhemju
sniðug tilraun til að gefa mönnum færi á
að leita upplýsinga á Netinu með nýstár-
legum hætti. Og virkar merkilega vel. Not-
andinn skrifar spurningu (á ensku) og síð-
an leitar Jeeves að s\örum. Slóðin er
www.askjeeves.com/index.asp