Dagur - 29.10.1998, Side 5
FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1998 - 2Í
r LÍFIÐ í LANDINU
Kj arval launar glópsku ritstj órans
Sögur afKjarval eru sívin-
sælar. Verk sem nú er til sýn-
is á Listasafninu áAkureyri
ber með sér eina slíka sögu.
Síðastliðinn laugardag var opnuð sýning í
Listasafninu á Akureyri þar sem sýnd eru
verk í eigu safnsins og ber sýningin yfir-
skriftina „Fimm ár“. Meðal verkanna er
málverk eftir Kjarval - að vísu ekki eitt af
hans betri verkum - en sagan í kringum
það verk gerir það sérstakt.
„Glópska“ rit-
stjórans
Verkið var í eigu
Braga Sigurjóns-
sonar og Helgu
Jónsdóttur á Ak-
ureyri. Bragi sat í
bæjarstjórn Akur-
eyrar fyrir Alþýðu-
flokkinn á árun-
um 1950-1954 og
1958-1970 og var
forseti bæjar-
stjórnar 1967-
1970. Nú hafa
börn þeirra,
Hrafn, Þórunn,
Gunnhildur,
Ragnhildur og
Úlfar, ákveðið að gefa Listasafni Akureyr-
ar verkið í minningu foreldra sinna.
Á árunum 1943-1949 ritstýrði Bragi
tímaritinu Stíganda sem gefið var út á
Akureyri. Eitt sinn birti hann myndir af
nokkrum verka Kjarvals og mynd af Kjar-
val sjálfum. Tímaritið hætti síðan að
koma út en myndmótin urðu eftir í vörslu
Braga. Á árunum 1947-1964 var hann
ritstjóri Alþýðumannsins, sem var mál-
gagn Alþýðuflokksins á Akureyri. Rit-
stjórastarfið var aukastarf Braga, unnið
að miklu leyti í sjálfboðavinnu og gat þess
vegna komið fyrir að hann yrði nokkuð
seinn fyrir með öflun efnis.
Þegar kom að því að gefa út jólablað
Alþýðumannsins 1958 varð honum það
hendi næst að grípa til gömlu myndmót-
anna úr Stíganda. Eftir að blaðið kom út
vaknaði hann við vondan draum því hon-
um hafði láðst að biðja Kjarval um leyfi
til birtingarinnar. Hann skrifaði lista-
manninum, sendi honum jólablaðið og
baðst afsökunar á þessari
glópsku sinni.
Teiknaði frímerki
Viðbrögð Kjarvals urðu eft-
irminnileg. Hann tók
þessu af stakri Ijúf-
mennsku, hríngdi í Braga,
hældi honum fyrir hve vel
verkin kæmu út í blaðinu
og kvaðst mundu senda
honum málverk.
í október 1959 kom
bréf frá Kjarval þar sem
hann tilkynnti að Bragi
ætti brátt von á mynd og
nokkru síðar barst tilkynn-
ing frá flugafgreiðslunni að
kominn væri torkennilegur
strangi til Braga. Þar reyndist málverkið
komið. Utan um það hafði verið slegið
umbúðapappír og teiknað þar á stærðar
frímerki. Ekkert hafði verið greitt fyrir
pakkann og ekki þurftu viðtakendur að
inna neitt af hendi til að fá hann í hend-
ur. Þegar umbúðapappírinn hafði verið
Utan um málverkið hafði verið slegið um-
búðapappír og teiknað þar á stærðar frí-
merki.
Listamaðurinn hafði merkt sér verkið í vinstra horninu en þvertyfir myndina að neðanverðu hafði
hann málað nafn viðtakanda, Braga Sigurjónssonar, stórum stöfum. myndir: brink
tekinn af blasti við mynd úr Heiðmörk og
fjöllunum þar austur af. Listamaðurinn
hafði merkt sér verkið í vinstra horninu
en þvert yfir myndina að neðanverðu
hafði hann málað nafn viðtakanda, Braga
Siguijónssonar, stórum stöfum. Málverk-
inu fylgdu fyrirmæli listamannsins um
innrömmun. Farið var með málverkið til
innrömmunar og í leiðinni þótti við hæfi
að klippa frímerkið af umbúðunum og
ramma það inn til minningar um send-
ingarmátann.
Málverkið var hengt upp á vegg í stofu
Helgu og Braga í húsi þeirra við Bjarkar-
stíg. Hefur það verið þar síðan og sett
svip sinn á heimilið. Þegar börn þeirra,
kunningjar og vinir líta þessa mynd sjá
þau fyrir sér stofuna og húsráðendur.
Hann með bók eða penna í hönd og hana
að sauma út í veggteppi, dúka, klukku-
strengi, stólsetur og púða handa heimil-
inu, börnunum og barnabörnunum.
Og nú er myndin til sýnis á Listasafn-
inu á Akureyri, ásamt frímerkinu og bréfi
Kjarvals til Braga. - Hi/HIH
SveMeysi
SVOJMA
ER LIFIÐ
Vigdís
svarar
í símann!
Ertu með ráð,
þarftu að spyrja,
viltu gefa eða
skipta?
Vigdís svarar í
símann kl. 9—12.
Síminn er
563 1626 (beint)
eða 800 7080.
Svenfnleysi er leiðindamál
og getur orðið vandamál ef
það stendur lengi yfir. Oft er
þrautaráðið að fara til læknis
og fá svefnlyf ef venjuleg ráð
eins og gönguferðir og
drekka heitt kakó bregðast.
En móðir náttúra lumar á
ráðum hvað þetta snertir
eins og annað og alltaf gott
að fylgja hennar ráðum.
Fyrst er gott að fá sér
brauðsneið með salatblaði
því sú samsetning virðist
virka mjög svæfandi.
Kamillute eða Iimete virkar
einnig vel og lavenderolía í
baðvatnið hefur mjög slak-
andi áhrif. Þeim sem þjást af
langvinnu svefnleysi er ráð-
lagt að nota ilmjurtir eða
ilmolíu með lavender sem
upp á íslensku heitir Lofnar-
blóm.
í sumum heilsubúðum
fæst náttúrulyf sem vinnur
gegn þunglyndi og kvíða og
er unnið úr jurt sem heitir
hypericum en lyfið heitir
Kira og er í töfluformi. Ann-
að slíkt jurtalyf er kallað
Valerina Nightime og virkar
það vel til að sofna af.
Rúm og málverk
Hingað hringdi kona sem
vildi vita hvort einhver lum-
aði á rúmi, helst 1.40 x 2 á
stærð úr tekki, en annars er
það ekkert skilyrði að það sé
úr tekki. Rúmið má alveg
vera dýnulaust því dýnan er
til. Sama kona sagðist eiga í
fórum sínum nokkur óinn-
römmuð málverk eftir Sig-
urð Ben. sem hún vildi
gjarnan koma af sér. Einnig
vantar skrifborð, rúm,
kommóðu og einhverjar
hilllur í herbergi tánings ef
einhver býr svo vel að eiga
aukalega húsgögn.
Síminn er: 552 3768 eða
552 7712 eftir hádegi,
Ragnheiður.
Takið nú til í geymslunni
og finnið hlutunum sama-
stað. Það er alltaf einhver
sem getur notað það sem
manni sjálfum er ónýtanlegt
og betra að láta einhvern
njóta þess en ekki. Hér í
dálkinum er hægt að aug-
lýsa ókeypis hluti sem fólk
vill losna við og gefa eða ef
það vantar hluti en á lítinn
pening.
■ HVAD ER Á SEYOI?
BÆNDAHÁTÍÐ í ÝDÖLUM
Búnaðarsambandið og Héraðssamband
S.-Þingeyinga ætla að skemmta sjálfum
sér og öðrum að gömlum og góðum sið
á laugardagskvöldið nk.
Ræðumaður kvöldsins er sr. Magnús
Gamalíel Gunnarsson og kynnir er Frið-
finnur Hermannsson. Þá munu koma
fram söngnemendur Tónlistaskólans á
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Indversk tónlist í KafRleikhúsinu
I kvöld kl. 21 eru tónleikar með sarod-
leikaranum Bruce Hamm, tablaleikar-
anum Steingrími Guðmundssyni og
bassaleikaranum Birgi Bragasyni.
Frítt í bíó
Islenska kvikmyndasamsteypan býður
frítt í bíó nk. laugardag og sunnudag.
Það er íslenska myndin Stikkfrí sem
sópar að sér verðlaunum þessa dagana
sem sýnd verður í Háskólabíói báða
dagana kl. 13.00.
LANDIÐ
Davíð og draugagangur í Deiglunni
I kvöld Id. 21 er Davíðsvaka í Deiglunni
á Akureyri og gefst fólki tækifæri á að
drekka í sig skáldskap Davíðs úr ljóð
um, tónlist og bókum, og verða yfirfullt
af áhrifum skáldsins.
Húsavík, félagar í Kveðanda láta fljóta í
kviðlingum og Tjarnarkvartettinn tekur
lagið. Hljómsveitin Iris leikur fyrir
dansi. Að sjálfsögðu er boðið uppá
sveitakaffi og pönnukökur að góðum ís-
lenskum sið. Aðgangseyrir aðeins tveir
ljólubláir.
Á föstudagskvöldið verður annað uppi á
teningnum. Þá verður boðið uppá
draugagang og má búast við að hús-
gögn verði á ferð og flugi. Það er dr.
Roll sem ætlar að koma inná sjaldgæfar
sögur af draugum. Dagskráin byrjar kl.
20.30.
Tónlist fyrir alla í Árborg
Hafin er skólatónleikasyrpa í grunn-
skólum Árborgar og Árnessýslu. Það er
Ingveldur Yr Jónsdóttir, mezzósópran
og píanóleikararnir Gerrit Schuil og
Bjarni Jónatansson sem flytja grunn-
skólanemum fjölbreytta tónlist. 1 kvöld
kl. 20.30 verða tónleikar í Fjölbrautar-
skóla Suðurlands og á föstudagskvöld
kl. 20.30 í Hveragerðiskirkju.
Veturnætur á Isafirði
Föstudaginn 30. október í Framhalds-
skóla Vestíjarða halda nemendur rokk-
hátíðina Menntstock og í lsaíjarða-
kirkju verða lokatónleikar Veturnátta
þar sem fjöldi tónlistarmanna kemur
saman og flytur verk eftir vestfirsk tón-
skáld.