Dagur - 30.10.1998, Qupperneq 4

Dagur - 30.10.1998, Qupperneq 4
20-FÖSTVDAGUR 30. OKTÓBER 1998 D^ur LÍFIÐ í LANDINU UMBUDA- LAUST lllugi Jökulsson skrifar Vofa gengur nú ljósum logum um íslenskt sam- félag, Iesendur góðir, vofa Brunabótafélagsins. Það er komið í Ijós að það var Brunabótafélagið sem stóð á bak við kaup verð- bréfasalans Vilhjálms Bjarnasonar á stórum hlut í Landsbanka Is- Iands - hlut sem að vísu telur ekki nema tvö komma eitthvað prósent, en mun færa Brunabóta- félaginu miklu meiri áhrif í stjórn bank- ans en sem því nemur vegna þess að þetta er samt sem áður Iangstærsti hlut- inn, fyrir utan hlut ríkisins. Vilhjálmur þessi laug því blákalt þegar tilboð hans í Landsbankahlutann var kynnt að hann gerði tilboðið fyrir hönd einstaklinga með svolítið sparifé afgangs, og þessi blekk- ingarleikur hans virðist nú alveg eitur- snjallt bragð í viðskiptalífinu; verður sjálf- sagt kennt með aðdáun í viðskiptafræð- inni í Háskólanum í framtíðinni, þó sjálf- ur væri hann svo hógvær að segja þetta vera gamalkunnugt trix, að þegar stórkall- ar þyrftu að kaupa sér pening á góðu verði þá notuðu þeir gjarnan sem skálka- skjól einhvern smákall eins og hann, með barnalegt andlit, eins og hann kaus sjálf- ur að komast að orði. Lyginn verðbréfasali I fyrsta Iagi má gera hér þá athugasemd að þótt ýmis brögð og brellur kunni að tíðkast í bissniss, þá virðist það einhvern veginn ekki alveg sæmandi að félag eins og Brunabótafélagið, sem telst alla vega í einhverjum skilningi vera að minnsta kosti hálfopinbert, skuli beita fyrir sig ljúgandi verðbréfasölum, hvort sem þeir eru með barnalegt andlit eður ei. En í öðru lagi, og það sem ennþá einkenni- legra hlýtur að teljast, þá er Brunabótafé- lagið í rauninni alls ekki til. Það er aftur- ganga sem nú mun setjast í stjórn Lands- bankans háeff og ráða þar ráðum sínum með Finni Ingólfssyni; afturganga sem á sér í raun engan tilverugrundvöll, ekkert markmið, nema það að halda áfram að vera til, einhvern veginn, og græða fullt af pening. Vissulega var Brunabótafélagið einu sinni tryggingafélag, í nánum tengslum við ríkið og þó einkum sveitarfélög, en fyrir þó nokkrum árum rann það saman við eitthvert annað tryggingafélag og hét eftir það Vátryggingafélag Islands. Svo gerðist það að Vátryggingafélag Islands var selt Landsbankanum af einhverjum ástæðum; ég hef að vísu aldrei skilið af hverju banki í eigu ríkisins var að kaupa sér tryggingafélag á almennum markaði en látum það liggja milli hluta. Altént heyrði ég þá skýringu á einhverri útvarps- stöðinni í gær að Vátryggingafélagið hefði selt sig Landsbankanum af því svo gott verð hefði verið í boði. Bankanum virðist þvf hafa verið nokkuð í mun að eignast tryggingafélagið. Blórastrar á miðilsfundum En nú þegar Vátryggingafélagið var kom- ið í eigu Landsbankans, þá hefði maður náttúrlega haldið að þar með væri saga Brunabótafélagsins endanlega öll, eig- endur þess fengju sína peninga og sneru sér að einhveiju öðru. En það var nú öðru nær. Síðan hefur Brunabótafélagið beinlínis blómstrað og gengur nú aftur á hveijum miðilsfundinum á fætur öðrum, eða réttara sagt hluthafafundum hjá öðr- um fyrirtækjum. Brunabótafélaginu var sem sé breytt í eignarhaldsfélag en eignarhaldsfélög hafa þann eina tilgang að eiga eitthvað. Og Brunabótafélagið - tryggingafélagið sem var orðið svo þreytt lífdaga og kaus því að leggja sig niður með því að ummyndast í Vátryggingafélagið og gekk síðan endan- lega frá sér með því að selja sig Lands- bankanum, bersýnilega orðið dauðupp- gefið á lífinu og einkum og sér í lagi tryggingabransanum - það á sér nú þann tilgang, samkvæmt lögum félagsins, að eiga meðal annars hluti í - tryggingafé- lögum! Og félagið sem seldi sig Lands- bankanum kaupir svo Landsbankann fyr-‘ ir peningana sem það fékk frá Lands- bankanum. frumvarp þar sem þeir fara fram á að fé- lagið verði leyst upp og eignir þess sendar fyrrverandi tryggingatökum - Iíklega í pósti, en Pétur Blöndal hefur lengi barist íyrir þeirri einföldu aðferð við „sölu“ á eignum ríkisins, og er vissulega margt vit- lausara. En tillaga þingmannanna virðist reyndar vera næstum því sjálfsagt mál, í ljósi þessara síðustu frétta, þar sem þetta hálfopinbera en þó eigendalausa félag eða fyrirtæki er að verða risaveldi á ís- lenskum Ijármálamarkaði - af því bara. En þá er líka réttast að Ieysa félagið upp sem allra fyrst - skipta eignum þess milli þeirra sem helst verða sldlgreindir eigendur - því einhvern veginn virðist ekkert mjög mikið réttlæti í því fólgið að þeir sem einhvern tíma álpuðust til að tryggja hjá Brunabótafélaginu, frekar en einhveiju öðru tryggingafélagi, skuli fyrr eða síðar eiga von á fullt af pening, sem aðrir fá ekki, bara út af vílíngum og dílíngum einhverra Matador-kalla með peninga hálfopinbers draugafélags. Hver á þetta draugafélag? Þetta getur ýmist bljómað eins og tóm þvæla, eða þá kannski eins og stórsnjallir viðskiptahættir, en hvernig maður lítur á það hlýtur í rauninni að ráðast af því hveijir eiga Brunabótafélagið. En þá kemur babb í bátinn, því það virðist ekki gott að segja almennilega til um hver á þetta ágæta draugafélag, sem nú er allt útlit fyrir að verði sannkallaður stórlax í íslensku fjármálalífi. Þegar félagið var selt Landsbankanum, í formi Vátrygg- ingafélagsins, þá reyndi ríkið að krækja í gróðann - sagði Pétur Blöndal að minnsta kosti í sjónvarpinu í gærkvöldi - væntan- lega á þeim forsendum að Brunabótafé- lagið hefði að minnsta kosti verið hér um bil opinbert fyrirtæki, en þegar það tókst ekki reyndu sveitarfélögin að ná pening- unum, en eitthvað vafðist það fyrir mönnum, enda einhver reiðubúinn að benda á að svona hálfopinbert trygginga- félag, eða hvað á að kalla það, hlyti í rauninni að vera að stórum hluta í eigu þeirra sem hefðu tryggt hjá því og lagt þar inn alla þá peninga sem félagið hafði umleikis. Því sat félagið að endingu sjálft uppi með alla peningana frá Landsbankanum og hefur síðan, eins og hver annar alkó- hólisti sem er nýkominn úr meðferð, helgað sig því að hugsa vel um sjálft sig, gera eitthvað fyrir sig. Og það hefur eign- arhaldsfélag Brunabótafélagsins gert svona ljómandi vel, og er nú - með hjálp þessa með barnalega andlitið - búið að kaupa þennan stóra hlut í Landsbankan- um, sem átti það áður, og á nú þannig stóran hlut í Vátryggingafélagi Islands á ný. Þetta er eins og ef fyllibytta sem ætlar að hætta að drekka og selur brennivínið sitt kaupir sér fyrir peningana hlut i brugghúsi. 2000-kall fyrir að vera til Og þetta eignarhaldsfélag Brunabótafé- Iagsins þenst sífellt út og verður um- fangsmeira, án þess að nokkur virðist eiga það í alvörunni, eða það hafi ein- hvern tilgang, annan en að vera til fram í rauðan dauðann og sýsla með peninga, Iíklega helst stjórnarmönnunum til skemmtunar. Stjórnarmennimir í eignar- haldsfélagi Brunabótafélagsins virðast vera í risastórum Matador-leik og fá alltaf 2000-kaIl þegar þeir fara yfir byrjunar- reitinn. Nokkir þingmenn Sjálfstæðisflokksins (fyrrnefndur Pétur Blöndal, Einar Oddur Kristjánsson og fleiri) hafa lagt fram „Kaupið ykkur brunabila, strákar!“ En Brunabótafélagið vill í löngstu lög halda áfram að vera til og í þeim tilgangi sendi það svolitla dúsu til sveitarfélag- anna um daginn, hundrað og eitthvað milljónir, og sagði: „Kaupið ykkur fyrir þetta brunabíla, strákar!" Þessi dúsa var mjög vel tímasett, því allir sveitarstjórnar- mennirnir - sem ella kynnu kannski að velta fyrir sér hvað þeir ættu að hafa með að gera félag sem hefði bersýnilega þann eina raunverulega tilgang að leyfa stjórn- armönnunum að vera í Matador - þeir tóku náttúrlega fegins hendi við þessum peningum fyrir brunabílum, og hugsa nú hlýlega til Brunabótafélagsins í stað þess að láta sér blöskra þessi einkennilegu uppátæki félagsins. En kannski er þetta allt saman afar eðlilegt. Kannski skil ég bara ekki undra- heima hlutabréfamarkaðarins. Kannski eiga svona félög að halda áfram að vera til útí það óendanlega og víla og díla bara af því tækifæri eru til. En altént sýna þessi skemmtilegu kaup vofunnar Bruna- bótar, þessa dauða félags, á hlut í Lands- bankanum að þá fyrst fer líklega að vera gaman að lifa þegar maður er dauður. Pistill Illuga varfluttur á Rás 2 í gærmorgun.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.