Dagur - 30.10.1998, Page 5
uvvit uað'fiii. ,oe HijuAauTHöH-OS.
TIMSflRÍQr___
tk^wr----------
FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1998 - 21
LEIKHÚS
KVIKMYNDIR
TÓNLIST
SKEMMTANIR
„Jökull sker sig úrþessari kynslóð leikskálda að því leyti til að hann naut gíf-
urlegra vinsælda sem leikritahöfundur. Hann hafði einhvern þann tón sem
náði eyrum almennings," segir Árni, sem heldur inngangserindið á málþingi
um Jökul Jakobsson á Litla sviði Borgarleihússins á sunnudaginn.
Leikfélag Reykjavíkur
stendurfyrir málþingi
á sunnudaginn um
Jökul Jakobsson og
kemurMagnús Magn-
ússon meistarahugur
til landsins afþví til-
efni...
Kl. 15 á sunnudaginn hefst mál-
þing LR um Jökul og verk hans
og verða þar bæði fyrirlestrar og
pallborðsumræður. Þeir sem
vilja meira eftir að málþinginu
Iýkur kl. 18.30 geta þá farið á
Sumarið ‘37 kl. 20 um kvöldið
en þá verða teknar upp að nýju
sýningar á verkinu sem frumsýnt
var í leikstjórn Kristínar Jóhann-
esdóttur á síðasta leikári. Fyrir-
lesarar á málþinginu eru Arni
Ibsen, Oddur Björnsson, Jón
Viðar Jónsson og Magnús
Magnússon sem lengi vel stýrði
Mastermind hjá BBC en hann
kemur sérstaklega til landsins til
að halda þar fyrirlestur um „Jök-
ul - manninn sjálfan".
Landflótta á muliimi
Arni Ibsen opnar málþingið og
ætlar þar að gefa yfirlit um leik-
rit Jökuls og setja þau í sam-
hengi við ritunartímann en Jök-
ull skrifaði Ijölda Ieikrita, hið
fyrsta var sett upp 1961, og sum
urðu geysivinsæl. „Mér finnst
nánast hægt að nota Jökul,“ seg-
ir Árni, „sem tákn um tímann og
þær breytingar sem áttu sér
stað. Hann kemur úr samfélagi
sem er ennþá bændasamfélag og
persónurnar í fyrstu leikritunum
eru margar hveijar eins og land-
flótta á mölinni." Á þversagnar-
kenndan máta má segja að Jök-
ull hafi bæði fallið vel og illa að
sínum tíma, telur Arni. „Þegar
hann er á sínum hátindi er ákaf-
lega sterk krafa á rithöfunda að
þeir taki beina pólitíska afstöðu
í sínum verkum. Eg held að Jök-
ull hafi liðið önn fyrir þessa ein-
strengingslegu kröfu. En eftir
1970 er eins og hann finni betra
jafnvægi gagnvart þessari kröfu
og leikritin fari, á mjög eðlilegan
hátt, að verða eins og sniðin upp
úr umræðu tímans.“
- Þú myndir þá ekki segja að
hann hafi látið undan þessum
kröfum?
„Jú, í sjálfu sér. En umræðan
breytist þarna eftir ‘68, menn
hætta að velta vöngum yfir af-
stöðu til Víetnamstríðsins og
fara frekar að tala um Iíf og Iffs-
stíl einstaklinganna og hann
finnur sig vel í þeim tíðaranda
enda er hann í öllum sínum
verkum að lýsa samskiptum ein-
staklinga við sitt samfélag."
Fyrsta „sérmenntaða“
kynslóð leikskátda
Sú kynslóð leikskálda sem Jökull
tilheyrði var, segir Arni, í raun
fyrsta sérmenntaða kynslóð leik-
skálda. „Þessi kynslóð Jökuls á
meðal leikskálda er fjári merki-
leg, Guðmundur Steinsson,
Oddur Björnsson, Jökull og Agn-
ar Þórðarson sem er aðeins
eldri. Eftir 1960 verður hrein-
lega bylting í íslenskri leikritun
og ég held að absúrd leikritunin
svokallaða út í Evrópu hafi leyst
íslenska leikritun, sem var orðin
dálítið stöðnuð, úr læðingi,"
sagði Árni.
Að lokinni sýningu á sunnu-
dagskvöldið mun svo Jón Viðar
stýra umræðum um leikritið að
viðstöddum leikurum og Ieik-
stjóra en næstu sýningar á Sum-
arið ‘37 verða 8. og 14. nóvem-
ber.
Stuð gegn vímu
Real Flavez. Slagorð tónleikanna er „Stuð gegn vímu" merkingin er tvíþætt;
hægt að skemmta sér án efna og með vímuefnalausri skemmtun er hægt að
vega að notkun þeirra.
haldnir tónleikar í Miðgarði í
Skagafirði þar sem fram koma
hljómsveitirnar Skítamórall, Sól-
dögg, Súrefni og Real Flavez.
Sent verður beint út frá tónleik-
unum á Mono FM.
Á milli þess sem skipt verður
um hljómsveitir áj sviði verður
happdrætti á staðnum, fimmtíu
vinningar, geisladiskurinn
SVONA er sumarið 98 frá Skíf-
unni. Skemmtiatriði verða frá
tveimur skólum, þar sem ungl-
ingar skemmta unglingum, þar á
meðal verður atriði frá Gagn-
fræðaskóla Sauðárkróks þar sem
fram koma fjórir stálhressir
strákar úr tíunda bekk.
Fjórir árgangar
Nemendum í fjórum árgöngum
stendur til boða að sækja þessa
tónleika, sjöunda til tíunda
bekk. Reiknað er með því að allt
að 700 unglingar mæti á staðinn
og eigi góðar stundir saman.
Skólarnir sem eiga kost á að
koma að þessu eru átján; Lauga-
bakki, Hvammstangi, Barnaskóli
Staðahrepps, Vesturhópsskóli,
Húnavellir, Blönduós, Skaga-
strönd (Höfðaskóli), Steins-
staðaskóli, Akraskóli, Sauðár-
krókur, Varmahlíðarskóli, Barna-
skólinn að Hólum i Hjaltadal,
Grunnskólinn Hofsósi, Siglu-
Qörður, Ólafsfjörður, Dalvík,
Þelamerkurskóli og Hrafnagils-
skóli.
Hægt án eiturefna
Myndarlegir litbældingar eiga að
hafa borist til nemenda í þess-
um fjórum árgöngum en í bækl-
inginn skrifar forseti íslands
Herra Ólafur Ragnar Grímsson
ávarpsorð til nemendanna, og
auk þess rita í bæklinginn
menntamálaráðherra, heilbrigð-
is- og tryggingarmálaráðherra,
vígslubiskup Hólastiftis Herra
Bolli Gústafsson sem er vernd-
ari tónleikanna, Gísli Gunnars-
son forseti sveitarstjórnar
Skagafjarðar, Björn Björnsson
skólastjóri Grunnskólans á
Hofsósi, Lára S. Baldursdóttir
frá alþjóðasviði Ungs Fólks í
Evrópu - á Islandi og skipuleggj-
endur tónleikanna hjónin Hlín
Bolladóttir og Egill Örn Arnar-
son.
Forvarnatónleikarnir bera yfir-
skriftina „Ungt fólk í Evrópu -
íslensk æska gegn vímu". Slag-
orð þeirra er „Stuð gegn vímu“,
merkingin tvíþætt; hægt að
skemmta sér án efna og með
vímuefnalausri skemmtun er
hægt að vega að notkun þeirra í
þessum aldurshópum. Tilgangur
þeirra er að sýna unglingum
fram á að hægt sé að eiga góðar
stundir og kynnast nýju fólki án
eiturlyfja. - Hl
IIM HELGINA
Ókeypis á Stikkfrí
I tilefni af viðurkenningunum
sem barnamyndin Stikkfrí
Kristins-
son hefur
fengið og
geysilegri
eftirspurn
alþjóð-
Iegra
kvik-
mynda-
hátíða
eftir myndinni ákvað íslenska
Kvikmyndasamsteypan að
bjóða frítt í bíó (Háskólabíó)
á morgun og sunnudag ld. 13
báða dagana. Allir fá að koma
inn svo lengi sem húsrúm
Ieyfir og hvetur Kvikmynda-
samsteypan foreldra og for-
ráðamenn til að horfa á
myndina með börnunum.
Meira bíó
Það er af nógu að taka fyrir
börn sem ekki tekst að plata
bíópeninga út úr foreldrun-
um um helgina. I Norræna
húsinu verður einnig boðið til
kvikmyndasýninga á morgun
frá kl. 10.00 til klukkan
15.00, en í tilefni af Norrænu
barnamyndahátíðinni sem
lauk um síðustu helgi fékk
húsið leyfi til að sýna nokkrar
myndanna sem voru með á
hátíðinni. Þ. á m. er norska
myndin Maja steinhjarta sem
sést hér að ofan, sænska
stuttmyndin Binke getur ekki
flogið og danska stuttmyndin
Upp með hendur. Myndirnar
eiga að hæfa börnum á öllum
aldri og er ókeypis aðgangur
fyrir alla meðan húsrúm leyf-
ir.
Sunnudaginn 1. nóvember
halda Sigrún Valgerður
Gestsdóttir og Sigursveinn
Magnússon ljóðatónleika í
Ólafsljarðarkirkju. Á efnis-
skránni eru meðal annars lög
eftir Jórunni Viðar, Jón Þórar-
insson, Sigursvein D. Krist-
insson, Árna Thorsteinsson,
Hjálmar H. Ragnarsson, Carl
Nielsen, Peter Heise og Luci-
ano Berio. Tónleikarnir hefj-
ast klukkan 17.00.
V________________________________/