Dagur - 18.11.1998, Qupperneq 1
Endurreisn
hjartans
Fyrir um þremur árum tók Ron að berast tölvupóstur frá Michael Pollock, en þar sem hann vissi
ekkert um manninn, og tölvupósturinn skipti hundruðum bréfa á dag, svaraði hann ekki í fyrstu.
„Hann var farinn að senda mér tölvupóst daglega um tíma og ég fór að hugsa, hver í andsk. er
þetta eiginlega." Forvitnin rak hann til að lesa bréfin og upp úr því varð ýmiss konar samvinna
Michaels, Ron, Birgittu Jónsdóttur og fleiri. Framundan er geisladiskur, tónleikar, upplestrar
o.s.frv. mynd: pjetur.
Ron Whitehead segistekki vem
and-kapítalisti en þykirþó efnis-
hyggjan heldursterk í nútíman-
um og hejurhelgað lífsittheims-
friði - með hjálp hókmennta.
The literary renaissance (hin bókmennta-
lega endurfæðing) heitir útgáfufyrirtæki
Rons Whiteheads, ljóðskálds, sem staddur
er hér á landi um þessar mundir. Hann
hefur gefið út um 150 titla og eru á út-
gáfulistanum að finna hina aðskiljanleg-
ustu höfunda, s.s. Dalai Lama, Jimmy
Carter, Knut Hamsun, Bono, Seamus
Heaney fyrir utan langa runu höfunda af
Beat-kynslóðinni, Allen Ginsberg, William
S. Burroughs o.fl. Bráðlega bætast tveir ís-
lenskir höfundar í hópinn, Birgitta Jóns-
dóttir og Michael Pollock.
Ron stofnaði fyrirtækið, sem er ekki rekið
í hagnaðarskyni, árið 1992 til að þjóna
markmiðum sínum, sem segja má að séu í
stuttu máli að stuðla að friði í heiminum.
Háleitt markmið - en eins og hann segir - ef
ekki má beijast fyrir friði og mannkyni, hvað
er þá þess virði að berjast fyrir? Þar sem
markmið fyrirtækisins er ekki síst að ná til
fólks, en ekki eingöngu koma bókum yfir
söluborðið, hefur hann ekki bara gefið út
bækur heldur og plaköt, svokallaðar kafla-
bækur, staðið fyrir um 300 upplestrum, tón-
Ieikum og maraþonupplestrum, haldið íyrir-
lestra víða um Evrópu og Bandaríkin. Enda
er „undirtitiir fyrirtækisins: ...til stuðnings
bókmenntasamfélagi alheimsins. Og nú er
hann hér og er Birgitta Jónsdóttir, sem
stendur fyrir Margmiðlunarhátíðinni sem
haldin verður í Reykjavík árið 2000, búin að
ráða hann til að lokka hingað bandaríska
listamenn á hátíðina.
Útilokar ekki hvíta karlinn
„Eg stofnaði fyrirtækið m.a. til að Ijá
minnihlutahópum og konum rödd - en án
þess að útiloka hinn hvíta karlmann sem
hefur drottnað yfir vestrænni menningu
öldum saman. En hið endanlega markmið
er að leggja okkar af mörkum til friðar í
heiminum. Eftir því sem valdaelítan nær
meiri völdum í heiminum þá krefst það
meira hugrekkis af minnihlutahópum að
tjá sig. Sjálfsmorð eru að verða plága hjá
ungu fólki og ég ákvað að beina aílri minni
orku það sem eftir væri ævinnar í að gera
allt sem ég gæti til að gefa fólki tilgang
með þessu jarðlífi. Um leið og fólk fer að
trúa því að ein manneskja geti skipt máli
þá er okkur borgið. Jafnvel þó við töpum
baráttunni. Vestræn menning einblínir á
hugann en ekki hjartað. Fyrir mér er hjart-
að mikilvægasti hluti tilverunnar.
Sumir vilja kalla þetta byltingu, ég vil
kalla þetta endurfæðingu því byltingu
fylgir of oft dauði, þörfin til að drepa það
gamla svo hið nýja fái notið sín. En ég
held því fram að ef þú skapar eitthvað svo
fagurt, aðlaðandi, dýnamískt og kraftmik-
ið þá mun fólkið koma og þörfin til að
drepa hið gamla hverfur.
Sprottið úr öreigahefðmni
Það er því ekki ótti um afdrif bókmennt-
anna sem knýr Ron áfram, heldur áhugi
fyrir endurreisn mannkyns, mennsku og
tilfinninga. Bókmenntirnar eru aðeins
tæki. „Þegar ég var lítill hélt ég að allir
sæju heiminn eins og ég en komst síðar að
raun um að svo væri ekki. Fyrir mér er
Ijóðagerðin tæki til að koma markmiðum
mínum í framkvæmd.11
Draumur einyrkja í bókaútgáfu er að
komast á núllið en yfirleitt segist Ron vera
skuldugur upp fyrir haus. Ein leiðin til að
afla meiri peninga, koma boðskapnum á
framfæri og markmiðunum í framkvæmd er
að gefa út á fleiri miðlum en bókinni. Ungt
fólk sem ekki hefur efni á listaverkum vegg-
fóðrar oft herbergi sín með plakötum og því
hefur Ron gefið út plaköt með ljóð og mynd.
„Þannig get ég gefið út fleiri höfunda og
dreift þeim víðar,“ og reyndar hafa plakötin
ekki bara verið límd með kennaratyggjói um
allan heim, heldur og komist í ýmis listasöfn
og eru raunar uppi um alla veggi á skrifstofu
Dalai lama í Indlandi. „Kaflabækurnar"
svokölluðu eru sprottnar upp úr „bæklinga-
útgáfuhefð bóhema og öreiga,1' segir Ron en
þar er prentaður samþjappaður texti ákveö-
inna höfunda og er markmiðið að kynna
höfundana fyrir fleiri lesendum til að halda
boðskapnum gangandi.
- Það eru sex dr síðan þú stofnaðir fyrir-
tækið - finnst þér þú hafa núlgast loka-
markmið þitt?
„Já. Það hefur myndast grasrótarhreyf-
ing. Það er eldur þarna úti. Það er ný vit-
und og nýtt hugrekki hjá ungu fólki á öll-
um aldri að tjá sig gegn kyrrstöðunni, gegn
kerfinu, gegn kapítalískri menningu. Eger
ekki antí-kapítalisti en ég tel að við höfum
gefið allt of mikið í efnishyggjuna. Við
þurfum að „fókusera" orku okkar, tfma og
athygli á aðra hluti." LÓA
Bflavarahlutlr
TRIDONtíL
Bflavarahlutir
-Juftn
Bflaperur
Verkfæri, efnavara og rekstrarvörur Rafmagnsvörur
Verslun
Hjólalegur
Hosuklemmur
Kúplingsbarkar og
og strekkjarar undirvagnsgormar.
Bensíndælur Topa vökvafleygar
Bensínlok vigtabúnaður
Bensínslöngur Þurrkublöð
Álbarkar Rafmagnsvarahlutii
Oliusiur
Vinnuvelar
Vatnshosur
Tímareimar
Ljósabúnaður
Kveikjuhlutin
varahlutir
...i miklu úrvali
Þjdnustumiðstöð íhjanta borgarinnar
BRÆÐURNIR
Lágmúla 9 • Sími: 533 2800 • Fax: 533 2820
ÐOSCH verkstæðið aðkeyrsla frá Háaleitisbraut