Dagur - 18.11.1998, Page 5
MIÐVIKUD AGU R 18. NÓVEMBER 1998 - 21
LÍFIÐ í LANDINU
Frakklandssaga Sölva
Sá landsþekktiförumaður,
Sölvi Helgason, dýrkaði
Napóleon og skrifaði á flakki
sínu samfellda sögu Frakk-
lands...
Sölva hefur sennilega dreymt um að fá
Frakklandssögu sína gefna út og vitað er
að hann setti upp hátt verð fyrir hana en
af útkomu hennar varð þó ekki fyrr en á
þessu ári - 103 árum eftir að hann lést.
Sölvi, sem skrifar undir Frakklands-
söguna með því höfðinglega nafni Sölvi
Sókrates Helgafóstri Hegel Islandus, var
landsfrægur flakkari, ferðaðist um landið
með heimatilbúið vegabréf og var dæmd-
ur oftar en einu sinni fyrir flakk og þjófn-
að. Jón Oskar, rithöfundur, sem lést nú
fyrir skömmu var helsti sérfræðingur
landsins í Sölva en fyrir andlátið hafði
hann gengið frá sögunni, sem hann kallar
„eitthvert sérkennilegasta fyrirbrigði í ís-
lenskri menningarsögu", til prentunar.
Hvatamaður verksins var hins vegar Ólaf-
ur Jónsson, sem rekur sögulega ferða-
þjónustu í Skagafirði, að Lónkoti í Sléttu-
hlíð, fæðingarsveit Sölva.
Stuðningsmaður byltingarinnar
Sagan tekur yfir sögu Frakka frá því Júlí-
us Sesar Ieggur undir sig Gallíu (“Frakk-
Iand“) og allt til loka Napóleonsstyijald-
anna árið 1815. „Sölvi er auðvitað þekkt-
astur fyrir blómamyndir sínar,“ segir
Ólafur, „en það er til töluvert af öðrum
handritum en Frakklandssagan. Þau eru
hins vegar ekki sérlega
aðgengileg. Bæði er skrift
hans einstaklega smágerð
og handritin ekki heilleg
eins og Frakklandssagan
er þó. Sölvi var alltaf í
pappírshraki þannig að
hann reyndi að koma
miklu fyrir á hverri síðu
enda eru engar spássfurn-
ar.“
- Er vitað hvað fékk Sölva
til að skrifa þessa sögu?
„Sölvi var utangarðsmað-
ur og í raun uppreisnar-
maður í samfélaginu og í
skrifum sínum fjallaði
hann oft um frelsi og
kúgara. Hann hefur orðið
fyrir miklum áhrifum af
frönsku stjórnarbylting-
unni frá 1789. Hann lítur
á hana sem frelsun þjóð-
anna og Napóleon sem
frelsara þegnanna undan
kúgun harðstjórnarinnar.“
Sölvi samþykkti aldrei að hlíta vistarbandinu
nema hann mætti sitja yfir bókum sínum og
blöðum allan veturinn segirJón Óskarm.a. í
formáia en „fáir munu hafa viljað ganga að
þessu." Einhver höfðinginn hlýtur þó að hafa
gertþað, telurJón Óskar, því öðruvísi hefði
Sölvi vart getað skrifað Frakklandssögu sína.
Ólafur Jónsson
er útgefandi
Frakklands-
sögunnar.
Einstætt afrek
- Flvaðan hefur Sölvi alla þessa vitneskju
um sögu Frakklands?
„Það er allt hið furðulegasta mál. Jóni
Óskari hefur ekki tekist að finna hin
sagnfræðilegu rit sem Sölvi hefur vænt-
anlega stuðst við þótt hann hafi leitað
mjög nákvæmlega eftir þeim. Það finnst
engin dönsk Frakklandssaga frá þessum
tíma - orðalag bendir þó sums staðar til
þess að hann hafi engu að síður stuðst
við danskar sögubækur. En sagan hans er
kórrétt í öllum aðalatriðum. Hér er
greinilega ekki um þurra þýðingu hjá
Sölva að ræða. StíII hans er alltof Iifandi
og 'höfundareinkennin of sterk til að svo
geti verið."
Það kemur greinilega í Ijós í bókinni
hve mikið dálæti Sölvi hafði á Napóleon,
m.a. í þessum texta undir lok bókarinnar
stuttu áður en Napóleon tapar orrustunni
við Waterloo: „Nú gekk undir hann strax
múgur og margmenni, og réð hann til
Parísar, rak burt konunginn til Niður-
landanna og setti allt aftur á nýjan fót og
í nýtt frelsi og frömuð með visku sinni og
sjallráðum.“
- Hvt segir Jón Óskar þetta vera sér-
kennilegt fyrirbrigði í menningarsögunni?
„Vegna þess að höfundur var fátækur,
ómenntaður förumaður og aðstæður hans
því allar hinar ömurlegustu. Þó skrifar
hann þarna sérstæða sagnfræði sem í öll-
um meginatriðum er rétt. Það er einstætt
afrek af manni í hans sporum að geta
unnið slfkt nákvæmnisverk sem ætti ekki
að vera á færi annarra en fræðimanna."
LÓA
SVOjMA
ffiUFSÐ
Vigdís
Stefánsdóttir
skrifar
Vigdís
svarar
í símann!
Ertu með ráð,
þarftu að spyrja,
viltu gefa eða
skipta?
Vigdís svarar í
símann kl. 9—12.
Síminn er
563 1626 (beint)
eða 800 7080.
Póstfang:
Þverholt 14 Rvk.
eða Strandgötu 31
Akureyri.
Netfang:
ritstjori@dagur.is
100%
Maður á alltaf að skila 100% starfi ef það er nokkur mögu-
leiki á því og til að gera auðveldara fyrir er best að skipu-
Ieggja það vel.
12% á mánudögum
23% á þriðjudögum
40% á miðvikudögum
20% á fimmtudögum
5% á föstudögum
sem gefur nákvæmlega 100% vinnuafköst!
Púðar handa
ölhun
Það er auðvelt að búa til púða handa öllu heimilisfólkinu í
jólagjöf og merkja þá hveijum og einum. Hör hentar vel í
púða þar sem náttúrulegir litir passa inní og það tekur ekki
langa stund að búa slfka púða til. I hvern púða þarf efni sem
er að minnsta kosti 45 sm á lengd og 90 sm á breidd. Gyllta
snúru, 3 metra, tvinna, tróð eða innri púði, nál og skæri.
KJippið efnið í tvo búta, 45x45 sm. Saumið snúruna niður
að framanverðu í þá lögun sem skreytingin á að vera, til
dæmis staf viðkomandi og gætið þess að hnýta hnút á báða
enda. Setjið réttu á móti réttu og saumið saman, en skiljið
eftir smá op. Snúið púðaborðinu við og troðið í það eða setjið
tilbúinn innri
púða.
Saumið fyrir
opið og
saumið svo
snúru niður
meðfram
kantinum og
smá
eða
í horn-
in.
gerið
slaufu
boga
■ HVAO ER Á SEYÐI?
ERU PABBAR ÓÞARFIR?
Fjölmörg börn á íslandi líða fyrir hömlur á um-
gengni þeirra við föður sinn. Ekkert barn á það
skilið!
Vegna skilnings- og aðgerðaleysis yfirvalda
og ríkjandi hugarfars í landinu er þörf á um-
ræðu um stöðu barna sem búa ekki hjá báðum
foreldrum. Laugardaginn 21. nóvember gefst
nú öllum tækifæri til að taka þátt í málþinginu:
Eru pabbar óþarfir?
Félag Abyrgra Feðra stendur fyrir málþing-
inu á Hótel Loftleiðum og hefst dagskráin kl. 10.00 og stendur til ld. 12.00 f.h.
Fundarstjóri er Súsanna Svavarsdóttir. Framsögumenn eru: Ólafur Ingi Ólafsson,
form. FÁF, Ragnar Ragnarsson, Fél. ísl. Ieikskólakennara, Hólmfríður Sveinsdóttir,
Kvenréttindafél Isl. og sr. Bragi Skúlason.
Búum börnunum betri heim!
nýrra. Allir velkomnir ásamt mökum eða
HOFUÐBORGARSVÆÐIÐ gestum.
Að búa ein/einn
Fræðslukvöld verður í safnaðarsal Hall-
grímskirkju ld. 20.30 í kvöld. Efni kvölds-
ins verður: Að búa ein/einn. Sr. Anna Sig-
ríður Pálsdóttir flytur erindi um þann
vanda sem fólk þarf að horfast í augu við
eftir skilnað, dauðsfall eða annarra or-
saka, að því loknu verða fyrirspurnir og
umræður. Jón Bjarnason tónlistarnemi
leikur einleik á píanó eftir fyrirlesturinn.
Nýtt sjónarhorn á sögu sjávarútvegsins
Málþing verður haldið í dag kl. 16 í stofu
101 í Odda húsi H.I. Frummælendur
verða tveir kanadískir sjávarútvegsfræð-
ingar, James Candow og Mark Kurlansky
ásamt Jóni Þ. Þór sagnfræðingi. Mark
Kurlansky er vel þekktur fyrir metsölubók
sína „Þorskurinn - Ævisaga, Fiskurinn
sem breytti heiminum11. Fundurinn er öll-
um opin.
ITC, afmælisfagnaður
Á þessu ári eru liðin 60 ár frá því að ITC
samtökin voru stofnuð í Bandaríkjunum
og 25 ár síðan þau voru stofnuð hér. Af
því tilefni boða Landssamtök ITC til af-
mælisfagnaðar föstudaginn 27. nóv. kl.
19 á Broadway. Þetta er kjörið tækifæri
fyrir fyrri og núverandi ITC félaga að
koma og rifja upp kynni og stofna til
Breiðfirðingafélagið
Tónlistardagskrá hefst kl. 20 í kvöld í
Breiðfirðingabúð. Kórsöngur, dúett, lcvart-
ett og djass.
Félag eldri borgara Þorraseli
Opið í Þorraseli í dag frá kl. 13-17. Spil-
að og kennt gömlu spilin Lomber og al-
kort kl. 13.30. Handavinna kl. 13.30.
Kaffi og meðlæti kl. 15-16.
Félag eldri borgara Glæsibæ
Almenn handavinna kl. 9. Línudans hjá
Sigvalda kl. 18.30. Bingó fimmtudaginn
19. nóv. kl. 19.45.
Lesið úr skáldverkum á Súfistanum
Fimmtudaginn 19. nóv. kl. 20.30 verður
lesið úr fimm íslenskum skáldverkum og
einni þýðingu á Súfistanum, bókakaffi
Máls og menningar við Laugaveg.
LANDIÐ
Sigurhæðir Akureyri
Ljóðlist öll miðvikudagskvöld á Sigur-
hæðum - Húsi skáldsins.
Börn og bænir
Kynslóðamorgnar í Glerárkirkju alla
fimmtudagsmorgna kl. 10-12. Sr. Gunn-
laugur Garðarsson, sóknarprestur.