Dagur - 21.11.1998, Page 4
I
4 - LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1998
Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför elskulegs erginmanns míns, föður,
tengdaföður og afa
ODDS JÓNSSONAR,
bónda,
Gili, Dýrafirði.
Guð blessi ykkur öll.
Ingunn Jónsdóttir,
Valgerður Jóna Oddsdóttir, Sævar Ari Finnbogason,
Kristín Berglind Oddsdóttir, Kristján Andri Guðjónsson,
Ingunn Rós Kristjánsdóttir.
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi
SVEINN TÓMASSON
Laugargötu 3, Akureyri,
járnsmiður og fyrrverandi slökkviliðsstjóri,
lést að dvalarheimilinu Hlíð að kvöldi
7. nóvember sl. Jarðsett verður fimmtudaginn 12. nóvember
kl. 13.30 frá Akureyrarkirkju.
Helga Gunnlaugsdóttir,
börn og fjölskyldur.
SJONAUKAR
* Algjörlega ryk- og vatnsþéttir.
* Engin móða við -40°C til 80° C og við allt að 95% raka.
* Með eða án innbyggðs áttavita.
* Lífstíðareign með allt að 30 ára ábyrgð.
* Einstaklega bjartir og skarpir (“auto focus")
Brlmrún hf
Hólmaslóð 4, sími 561 0160
-Ðagur
FRÉTTIR
Fyrsta upplýsta
skíðagöngubrautin
Akureyringar ríða á
vaðið með fyrstu
göngubrautina sem
uppfyllir alþjóðlega
staðla. Gífurleg sjálf-
boðaviuua að baki.
Fyrsta upplýsta skíðagöngubraut
landsins verður opnuð við hátíð-
lega athöfn á morgun í Hlíðar-
fjalli á Akureyri. Brautin er 3,5
km á lengd og uppfyllir alþjóð-
lega keppnisstaðla. Fjöldi manns
hefur unnið við verkið í sjálf-
boðavinnu, en ef allt væri reikn-
að til fjár myndi kostnaður við
brautina hlaupa vel á annan tug
milljóna.
Hörður Blöndal er einn þeirra
sem barist hafa ötullegast fyrir
verkefninu. Hann segir að lýs-
ingin hafi átt sér nokkurn að-
draganda. Þrír staurar voru sett-
ir niður fyrst næst sérstöku
gönguhúsi sem er við brautina
en núna séu um 20 staurar
þannig að göngumenn geti geng-
ið upplýstir allan hringinn. „Það
má líkja þessu við meiriháttar
jólaseríu,“ segir Hörður. Skíða-
ganga hefur átt vaxandi vinsæld-
um að fagna á Akureyri og á
Hörður von á góðri aðsókn. Ekk-
ert kostar að nýta sér aðstöðuna
en ætlunin er að koma upp
klukku sem stýrir ljósabúnaðin-
um. Líklegt er að brautin verði
opin til um kl. 10 á kvöldin.
Þegar Hörður er spurður um
heildarkostnað svarar hann:
„Það veit enginn nákvæmlega,
en fjöldi fólks hefur lagt þessu
málefni Iið. Þetta er mest allt
unnið í sjálfboðavinnu og menn
hafa safnað peningum með öllu
mögulegu móti.“ Gönguhúsið
eitt og sér kostar um fimm millj-
ónir króna og efniskostnaður,
vinna við undirlag og annað
hleypur á mörgum milljónum að
sögn Harðar. — BÞ
í „
PRENTUN???
JA OLL ALMENN PRENTUN
* REIKNINGAR
* KVITTANIR
* NÓTUR
* AÐGÖNGUMIÐAR
* FRÉTTARRÉF
* BÆKLINGAR
* UMSLÖG
* BRÉFSEFNI
* NAFNSPJÖLD
*JÓLAKORT
*OFL. OFL.
OG LIMMIÐARNIR LIKA
ALLAR STÆRÐIR
OG GERÐIR LÍMMIÐA
NÚ ER RÉTTI TÍMINN TIL
AÐ HUGAAÐ MERKINGUM
ÁJÓLAVÖRUM!!!
Leitvð
tilboða
LIMMIÐAR NORÐURLANDS
Hjalteyrargötu 2 • 600 Akureyri Sími 462 4166 • Fax 461 3035
Netfang: limnor@est.is
iBfta
LAGGOTT
INNLENT
Frá opnunarhátíð Tæknivals á Akureyri í
gær.
Tæknival á Aknreyri
Tæknival hóf rekstur sér-
s takrar Akureyrardeildar
félagsins í gær. Tölvutæki
hf. á Akureyri sameinaðist
Tæknivali um sl. áramót
en verslun félagsins að
Furuvöllum 5 var þó rekin
áfram undir nafni Tölvu-
tækja þar til fyrr í þessum
mánuði. Um hádegi í dag
verður verslunin opnuð að
nýju eftir gagngerar breyt-
ingar og endurbætur og
mun eftirleiðis bera nafn
Tæknivals. Fyrirtækið er í hópi stærstu og framsæknustu fyrirtækja hér
á landi í þróun, sölu og þjónustu upplýsingakerfa og er langstærsta fyr-
irtæki sinnar tegundar á landsbyggðinni. — GG
Menningarborgiii kostar sitt
Fyrirhugað 85 milljóna króna framlag til menningarborgarráðs og 30
milljóna hækkun á framlagi Reykjavíkurborgar til Leikfélags Reykjavík-
ur eru tvær helstu ástæður fyrir nær 150 milljóna króna (23 prósenta)
hækkun á íjárhagsramma fyrir menningarmál milli áranna 1998 til
1999, samkvæmt fundargerð menningarmálanefndar Reykjavíkur 2.
nóvember og bókunar borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins viku síð-
ar. Samkvæmt þessu virðist fyrirhugað að borgin veiji hátt í 800 millj-
ónum til menningarmála árið 1999. - HEl
Hiuidrað miUjóna hækkun
Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, gerir sér vonir um að nýr
útgjaldarammi bæjarins muni halda. Frá fyrstu drögum hefur verið
ákveðið að hækka útgjöld um tæpar hundrað milljónir og vega fræðslu-
mál þar þyngst að sögn bæjarstjóra.
Nýtt rammafyrirkomulag verður til bóta í þessari áætlun, að mati bæj-
arstjóra. „Forstöðumenn stofnana og nefndir vakta nú betur sína mála-
flokka í stað þess að bæjarráð sé alltaf með stríðsexina yfir öllum rekstri
bæjarins. Við erum að gefa stofnunum bæjarins aukið svigrúm en ger-
um kröfur á móti um að þær haldi sig innan sinna fjárheimilda. Svig-
rúmið er aukið til þess að stofnanirnar auki rekstrarábyrgð sína frá því
sem var og rými til endurskipulagningar er þá jafnframt meira,“ segir
Kristján Þór. — BÞ