Dagur - 21.11.1998, Blaðsíða 4

Dagur - 21.11.1998, Blaðsíða 4
I 4 - LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1998 Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs erginmanns míns, föður, tengdaföður og afa ODDS JÓNSSONAR, bónda, Gili, Dýrafirði. Guð blessi ykkur öll. Ingunn Jónsdóttir, Valgerður Jóna Oddsdóttir, Sævar Ari Finnbogason, Kristín Berglind Oddsdóttir, Kristján Andri Guðjónsson, Ingunn Rós Kristjánsdóttir. Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi SVEINN TÓMASSON Laugargötu 3, Akureyri, járnsmiður og fyrrverandi slökkviliðsstjóri, lést að dvalarheimilinu Hlíð að kvöldi 7. nóvember sl. Jarðsett verður fimmtudaginn 12. nóvember kl. 13.30 frá Akureyrarkirkju. Helga Gunnlaugsdóttir, börn og fjölskyldur. SJONAUKAR * Algjörlega ryk- og vatnsþéttir. * Engin móða við -40°C til 80° C og við allt að 95% raka. * Með eða án innbyggðs áttavita. * Lífstíðareign með allt að 30 ára ábyrgð. * Einstaklega bjartir og skarpir (“auto focus") Brlmrún hf Hólmaslóð 4, sími 561 0160 -Ðagur FRÉTTIR Fyrsta upplýsta skíðagöngubrautin Akureyringar ríða á vaðið með fyrstu göngubrautina sem uppfyllir alþjóðlega staðla. Gífurleg sjálf- boðaviuua að baki. Fyrsta upplýsta skíðagöngubraut landsins verður opnuð við hátíð- lega athöfn á morgun í Hlíðar- fjalli á Akureyri. Brautin er 3,5 km á lengd og uppfyllir alþjóð- lega keppnisstaðla. Fjöldi manns hefur unnið við verkið í sjálf- boðavinnu, en ef allt væri reikn- að til fjár myndi kostnaður við brautina hlaupa vel á annan tug milljóna. Hörður Blöndal er einn þeirra sem barist hafa ötullegast fyrir verkefninu. Hann segir að lýs- ingin hafi átt sér nokkurn að- draganda. Þrír staurar voru sett- ir niður fyrst næst sérstöku gönguhúsi sem er við brautina en núna séu um 20 staurar þannig að göngumenn geti geng- ið upplýstir allan hringinn. „Það má líkja þessu við meiriháttar jólaseríu,“ segir Hörður. Skíða- ganga hefur átt vaxandi vinsæld- um að fagna á Akureyri og á Hörður von á góðri aðsókn. Ekk- ert kostar að nýta sér aðstöðuna en ætlunin er að koma upp klukku sem stýrir ljósabúnaðin- um. Líklegt er að brautin verði opin til um kl. 10 á kvöldin. Þegar Hörður er spurður um heildarkostnað svarar hann: „Það veit enginn nákvæmlega, en fjöldi fólks hefur lagt þessu málefni Iið. Þetta er mest allt unnið í sjálfboðavinnu og menn hafa safnað peningum með öllu mögulegu móti.“ Gönguhúsið eitt og sér kostar um fimm millj- ónir króna og efniskostnaður, vinna við undirlag og annað hleypur á mörgum milljónum að sögn Harðar. — BÞ í „ PRENTUN??? JA OLL ALMENN PRENTUN * REIKNINGAR * KVITTANIR * NÓTUR * AÐGÖNGUMIÐAR * FRÉTTARRÉF * BÆKLINGAR * UMSLÖG * BRÉFSEFNI * NAFNSPJÖLD *JÓLAKORT *OFL. OFL. OG LIMMIÐARNIR LIKA ALLAR STÆRÐIR OG GERÐIR LÍMMIÐA NÚ ER RÉTTI TÍMINN TIL AÐ HUGAAÐ MERKINGUM ÁJÓLAVÖRUM!!! Leitvð tilboða LIMMIÐAR NORÐURLANDS Hjalteyrargötu 2 • 600 Akureyri Sími 462 4166 • Fax 461 3035 Netfang: limnor@est.is iBfta LAGGOTT INNLENT Frá opnunarhátíð Tæknivals á Akureyri í gær. Tæknival á Aknreyri Tæknival hóf rekstur sér- s takrar Akureyrardeildar félagsins í gær. Tölvutæki hf. á Akureyri sameinaðist Tæknivali um sl. áramót en verslun félagsins að Furuvöllum 5 var þó rekin áfram undir nafni Tölvu- tækja þar til fyrr í þessum mánuði. Um hádegi í dag verður verslunin opnuð að nýju eftir gagngerar breyt- ingar og endurbætur og mun eftirleiðis bera nafn Tæknivals. Fyrirtækið er í hópi stærstu og framsæknustu fyrirtækja hér á landi í þróun, sölu og þjónustu upplýsingakerfa og er langstærsta fyr- irtæki sinnar tegundar á landsbyggðinni. — GG Menningarborgiii kostar sitt Fyrirhugað 85 milljóna króna framlag til menningarborgarráðs og 30 milljóna hækkun á framlagi Reykjavíkurborgar til Leikfélags Reykjavík- ur eru tvær helstu ástæður fyrir nær 150 milljóna króna (23 prósenta) hækkun á íjárhagsramma fyrir menningarmál milli áranna 1998 til 1999, samkvæmt fundargerð menningarmálanefndar Reykjavíkur 2. nóvember og bókunar borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins viku síð- ar. Samkvæmt þessu virðist fyrirhugað að borgin veiji hátt í 800 millj- ónum til menningarmála árið 1999. - HEl Hiuidrað miUjóna hækkun Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, gerir sér vonir um að nýr útgjaldarammi bæjarins muni halda. Frá fyrstu drögum hefur verið ákveðið að hækka útgjöld um tæpar hundrað milljónir og vega fræðslu- mál þar þyngst að sögn bæjarstjóra. Nýtt rammafyrirkomulag verður til bóta í þessari áætlun, að mati bæj- arstjóra. „Forstöðumenn stofnana og nefndir vakta nú betur sína mála- flokka í stað þess að bæjarráð sé alltaf með stríðsexina yfir öllum rekstri bæjarins. Við erum að gefa stofnunum bæjarins aukið svigrúm en ger- um kröfur á móti um að þær haldi sig innan sinna fjárheimilda. Svig- rúmið er aukið til þess að stofnanirnar auki rekstrarábyrgð sína frá því sem var og rými til endurskipulagningar er þá jafnframt meira,“ segir Kristján Þór. — BÞ

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.