Dagur - 21.11.1998, Side 5

Dagur - 21.11.1998, Side 5
 LAUGARDAGUR 21.NÓVEMBER 1998 - 5 FRÉTTIR Klaga annait odd- vitann fyrir hinirni Nokkrir yfirmeim heilsugæsluimar í Hafnarfirði kvarta við bæjarstjóra, aunan tveggja oddvita meiri- hlutasamstarfs uiidan hugmyndum Þor- steins Njálssonar læknis og hins odd- vita meirihlutans. Yfirmenn Heilsugæslustöðvar- innar að Sólvangi hafa sent Magnúsi Gunnarssyni bæjar- stjóra Hafnarfjarðar bréf vegna viðtals við Þorstein Njálsson, heilsugæslulækni og bæjarfull- trúa Framsóknarflokksins, í blaðinu Hafnfirðingur, en yfir- læknar og hjúkrunarforstjóri heilsugæslustöðvarinnar vara í bréfinu við slæmum og varhuga- verðum hugmyndum Þorsteins samstarfsmanns síns. Þorsteinn vill meðal annars flytja heilsu- gæsluna á þrjár hæðir í miðbæj- arhúsið Fjörður. Sérstök nefnd er starfandi um endurskipulagningu á heilsu- gæslumálum bæjarins í tengsl- um við reynslusveitarfélagaverk- efnið. Þorsteinn hefur áður orð- að róttækar breytingar og er búið að taka af borðinu einkavæðing- ar- og akkorðshugmyndir hans. En í blaðinu Hafnarfjörður greinir hann frá hugmyndum um að flytja heilsugæsluna í Sól- vangi á þrjár hæðir í miðbæjar- húsinu og um að slíta heima- hjúkrun úr tengslum við heilsu- gæsluna og flokka hana undir öldrunarmál. Þessum hugmynd- um hafna yfirlæknarnir á Sól- vangi, Jóhann Agúst Sigurðsson og Jón Bjarni Þorsteinsson og Kristín Pálsdóttir hjúkrunarfor- stjóri, með öllu og kvarta í bréf- inu til bæjarstjóra undan því að fá ekki upplýsingar um málið og undan samráðsleysi. „Slæmar“ og „varhugaverö- ar“ hugmyndir Yfirmenn heilsugæslunnar telja hugmynd Þorsteins um flutning heilsugæslunnar í miðbæjarhús- ið slæma og að þetta myndi skerða þjónustuna verulega, auk þess að fela í sér mikið óhagræði fyrir sjúklinga. Þorsteinn telur hins vegar til kosta staðsetning- una, almenningssamgöngurnar og aðgengið. Yfirmennirnir telja hugmyndina um tilfærslu heimahjúkrunarinnar „varhuga- verða“. Yfirmönnunum á Sólvangi finnst miður að „verið sé að skipuleggja innra starf stöðvar- innar og hugsanlega flutninga án samvinnu við starfsfólk stöðvar- innar eða þeirra sem hafa verið í forsvari fyrir faglegri þróun heilsugæslunnar á svæðinu." Málið hefur ekki komið til kasta bæjarstjórnar, en bæjar- fulltrúar minnihlutans töldu ekki ólíklegt að það yrði tekið upp á næsta bæjarstjórnarfundi. - FÞG Hallgrímur Snorrason. Leiguvísi- tala felld úr gildi Frumvarp sem ríkisstjórnin hef- ur samþykkt að leggja fram gerir ráð fyrir að Hagstofan skuli reik- na breytingu meðallauna, sem ræður verðbótahækkun húsa- leigu, í síðasta sinn miðað við mánuðina október-desember 1998 og tilkynna í síðasta sinn um verðbótahækkun húsaleigu frá og með 1. janúar 1999. „Það er samningsfrelsi um húsaleigu", svaraði Hallgrímur Snorrason hagstofustjóri, spurð- ur hvort ætlunin sé að afnema vísitölubindingu á húsaleigu. Samkvæmt húsaleigulögum sé mönnum frjálst að semja um hvaða viðmiðun sem þeim sýn- ist, þannig að allt sé til í þessu. I stöðluðum húsaleigusamning- um sem margir notist við sé mönnum bent á ýmsa mögu- leika til verðtryggingar og þetta sé bara einn þeirra. „Hér á Hag- stofunni verðum við vör við að fólk hefur verið að verðtryggja húsaleigu m.v. vísitölu neyslu- verðs, m.v. byggingarvísitölu og þó nokkuð margir samningar eru til sem miðast við gömlu lánskjaravísitöluna". Andstaða við lög gegn uppsögnum Davíð Oddsson for- sætisráðherra hoðar lagasetningu gegn fjöldauppsögnum fólhs. Stjómarand- staðan snýst öndverð gegn frumvarpinu. Davíð Oddsson forsætisráðherra hefur boðað lagafrumvarp, þar sem á að koma í veg fyrir hópupp- sagnir fólks til að bæta kjör sín. I vinnulöggjöfinni, sem samþykkt var í fyrra, eru hópuppsagnir starfsfólks bannaðar. En meina- tæknar, kennarar og fleiri hópar, sem sagt hafa upp störfum til að bæta kjör sín segjast hafa gert það hver fyrir sig en ekki sem hópur. Greinilegt er að mikil and- staða verður við þetta lagafrum- varp á Alþingi ef marka má orð Sighvats Björgvinssonar, for- manns Alþýðuflokksins, og Og- mundar Jónassonar, alþingis- manns og formanns BSRB. Hörð átök „Mér þykir nú stjórnarsinnar vera nokkuð tvísaga í þessu máli. Öðr- um þræði talar ríkisstjórnin um nauðsyn sveigjanlegs vinnumark- aðar, sem er bara annað orð yfir hreyfanlegan vdnnumarkað. Fólk á að geta flutt sig á milli án hind- rana. Ef boðuð lög forsætisráð- herra verða samþykkt er verið að vinna gegn sveigjanlegum vinnu- markaði og gegn því að gera fólki kleift að flytja sig til í störfum," sagðí Sighvatur Björgvinsson, formaður Alþýðuflokksins. Sighvatur Björgvinsson er sanfærður um átök effrumvarpið kemur fram Hann segir að hægt sé að setja lög um stéttir sem eru nauðsyn- legar vegna öryggis borgaranna, svo sem lögreglumenn og slökkvi- liðsmenn, svo dæmi séu tekin og hann spyr hvar menn ætli að draga línuna í þessum efnum? „Er það nauðsynlegt borgar- anna vegna að meinatæknar megi ekki segja upp störfum eða að sjó- menn geti ekki lagt niður störf ef aflahrota stendur yfir. Menn eru þarna komnir út á hálan ís og af- farasælast væri að grípa ekki til slíkrar Iagasetningar. Eg er alveg sannfærður um að ef frumvarp þessa efnis kemur fram á Alþingi verða höfð átök urn það,“ sagði Sighvatur Björgvinsson. Óframkvæmanlegt „Þetta mál hefur ekki verið rætt í þingflokki Framsóknarflokksins en ég vil benda á að í vinnulög- gjöfinni, sem samþykkt var í fyrra, eru ákvæði sem banna hóp- uppsagnir. Hins vegar verður að skoða þetta mál mjög vel og ég á von á því að það komi til umræðu Ögmundur Jónasson teluraö lagasestning af þessu tagi sé út i hött í þingflokknum í næstu viku,“ sagði Valgerður Sverrisdóttir, for- maður þingflokks Framsóknar- flokksins. „Mér þykir það út í hött að ætla sér að setja svona lög vegna þess að í raun er það óframkyæman- legt að banna fólki að segja upp störfum. Það væri ekki hægt nema með slíkri valdbeitingu að ótrúlegt er að menn leggi í slíkt. Þar fyrir utan á ekki að leysa ágreining um kjör og réttindi með valdi. Þvert á móti er mikilvægt að um þann farveg sem slíkum deilum er beint inn í ríki sátt. Það er hlutverk stjórnvalda að finna slíkan farveg en ekki beita hótun- um um lögþvingunum, hvað þá að fylgja slíkri hótun eftir í fram- kvæmd. Eg er sannfærður um harða andstöðu í þinginu komi frumvarpið fram. Hún mun koma úr tveimur áttum. Þeirra sem vilja veija mannréttindin og hin- um sem kunna að hugsa á praktískan máta,“ sagði Ögmund- ur Jónasson, alþingismaður og formaður BSRB. - S.DÓR Stemgrímur sáttur Steingrímur J. Sigfússon alþing- ismaður segist ekki ósáttur þrátt fyrir að Vinstri hreyfingin Grænt framboð hafi aðeins mælst með 3% fylgi í nýlegri skoðanakönnun Dags og Ak- sjón. Steingrímur segir Ijóst að hann fari fari fram á Norður- landi eystra en orðrómur hefur gengið um að skorað hafi verið á Steingrím að fara fram á Reykjanesi. „Allar mælingar núna, hvort sem eru á okkar fylgi eða ann- arra, held ég að segi afar tak- markaða sögu. Eg hef áþreifan- lega orðið var við að margir eru ekki vissir í sinni sök en auðvit- að hefði ég viljað sjá hærri tölur. Þetta urðu engin vonbrigði. Við erum að mælast með 2-3% fylgi á landsvísu og það er eðlilegt að félagslega þenkjandi kjósendur séu óvissir í sinni sök,“ segir Steingrímur. Hann er sann- færður um að stuðningur við hreyfingu hans verður miklu meiri en nú er. Sígandi lukka sé best og hann telji raunhæft að stefna að nokkrum þingsætum. - BÞ Stálu demants- hring fyrir 1,2 millfónir Þjófar brutust inn í Gullsmiðju Óla í Kópavogi í fyrrinótt og höfðu með sér skartgripi fyrir hátt á aðra milljón. Þar á meðal var demantshringur sem metinn er á 1,3 milljónir króna. Um leið og þjófarnir brutu rúðu til að komast inn, fór viðvörunar- kerfi í gang og var lögreglan komin á staðinn rúmri mínútu síðar. Þjófarnir hafa verið snöggir að athafna sig því þeir voru á bak og burt og hafði ekk- ert til þeirra spurst í gær. Órói við Grímsey Jarðskjálftaórói varð norðan við land í fyrrinótt skammt frá Grímsey án þess að stórskjálftar yrðu. Stærsti skjálftinn var um 2 á Richter en hann fannst ekki í byggð. Jarðeðlisfræðingur á skjálftadeild Veðurstofunnar sagði ekki óalgengt að titringur yrði á þessu svæði. Hrinan stóð yfir í um 9 klukkustundir en í gær var óróinn að mestu dottinn niður. Að sögn jarðeðlisfræð- ingsins var allt eins búist við að skotinu væri lokið þegar rætt var við hann í gærkvöld. Prófkjör samfylk- ingar? Á fundi samráðsnefndar sam- fylkingar A-flokka og Kvenna- lista á Húsavík í dag verða fram- boðsrhál í Norðurlandi-eystra rædd. Dagur hefur góðar heint- ildir fyrir því að lögð verði frarn tillaga um prófkjör. Fullyrt er að Alþýðubandalagsmenn í kjör- dæminu og fleiri séu þessa fýsandi. Þá hefur Dagur einnig heimildir fyrir því að nokkuð sé rætt um sömu leið í Norður- Iandskjördæmi-vestra. - HEI

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.