Dagur - 21.11.1998, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR 21.NÓVEMBER 1998 - 5
FRÉTTIR
Klaga annait odd-
vitann fyrir hinirni
Nokkrir yfirmeim
heilsugæsluimar í
Hafnarfirði kvarta við
bæjarstjóra, aunan
tveggja oddvita meiri-
hlutasamstarfs uiidan
hugmyndum Þor-
steins Njálssonar
læknis og hins odd-
vita meirihlutans.
Yfirmenn Heilsugæslustöðvar-
innar að Sólvangi hafa sent
Magnúsi Gunnarssyni bæjar-
stjóra Hafnarfjarðar bréf vegna
viðtals við Þorstein Njálsson,
heilsugæslulækni og bæjarfull-
trúa Framsóknarflokksins, í
blaðinu Hafnfirðingur, en yfir-
læknar og hjúkrunarforstjóri
heilsugæslustöðvarinnar vara í
bréfinu við slæmum og varhuga-
verðum hugmyndum Þorsteins
samstarfsmanns síns. Þorsteinn
vill meðal annars flytja heilsu-
gæsluna á þrjár hæðir í miðbæj-
arhúsið Fjörður.
Sérstök nefnd er starfandi um
endurskipulagningu á heilsu-
gæslumálum bæjarins í tengsl-
um við reynslusveitarfélagaverk-
efnið. Þorsteinn hefur áður orð-
að róttækar breytingar og er búið
að taka af borðinu einkavæðing-
ar- og akkorðshugmyndir hans.
En í blaðinu Hafnarfjörður
greinir hann frá hugmyndum um
að flytja heilsugæsluna í Sól-
vangi á þrjár hæðir í miðbæjar-
húsinu og um að slíta heima-
hjúkrun úr tengslum við heilsu-
gæsluna og flokka hana undir
öldrunarmál. Þessum hugmynd-
um hafna yfirlæknarnir á Sól-
vangi, Jóhann Agúst Sigurðsson
og Jón Bjarni Þorsteinsson og
Kristín Pálsdóttir hjúkrunarfor-
stjóri, með öllu og kvarta í bréf-
inu til bæjarstjóra undan því að
fá ekki upplýsingar um málið og
undan samráðsleysi.
„Slæmar“ og „varhugaverö-
ar“ hugmyndir
Yfirmenn heilsugæslunnar telja
hugmynd Þorsteins um flutning
heilsugæslunnar í miðbæjarhús-
ið slæma og að þetta myndi
skerða þjónustuna verulega, auk
þess að fela í sér mikið óhagræði
fyrir sjúklinga. Þorsteinn telur
hins vegar til kosta staðsetning-
una, almenningssamgöngurnar
og aðgengið. Yfirmennirnir telja
hugmyndina um tilfærslu
heimahjúkrunarinnar „varhuga-
verða“.
Yfirmönnunum á Sólvangi
finnst miður að „verið sé að
skipuleggja innra starf stöðvar-
innar og hugsanlega flutninga án
samvinnu við starfsfólk stöðvar-
innar eða þeirra sem hafa verið í
forsvari fyrir faglegri þróun
heilsugæslunnar á svæðinu."
Málið hefur ekki komið til
kasta bæjarstjórnar, en bæjar-
fulltrúar minnihlutans töldu
ekki ólíklegt að það yrði tekið
upp á næsta bæjarstjórnarfundi.
- FÞG
Hallgrímur Snorrason.
Leiguvísi-
tala felld úr
gildi
Frumvarp sem ríkisstjórnin hef-
ur samþykkt að leggja fram gerir
ráð fyrir að Hagstofan skuli reik-
na breytingu meðallauna, sem
ræður verðbótahækkun húsa-
leigu, í síðasta sinn miðað við
mánuðina október-desember
1998 og tilkynna í síðasta sinn
um verðbótahækkun húsaleigu
frá og með 1. janúar 1999.
„Það er samningsfrelsi um
húsaleigu", svaraði Hallgrímur
Snorrason hagstofustjóri, spurð-
ur hvort ætlunin sé að afnema
vísitölubindingu á húsaleigu.
Samkvæmt húsaleigulögum sé
mönnum frjálst að semja um
hvaða viðmiðun sem þeim sýn-
ist, þannig að allt sé til í þessu.
I stöðluðum húsaleigusamning-
um sem margir notist við sé
mönnum bent á ýmsa mögu-
leika til verðtryggingar og þetta
sé bara einn þeirra. „Hér á Hag-
stofunni verðum við vör við að
fólk hefur verið að verðtryggja
húsaleigu m.v. vísitölu neyslu-
verðs, m.v. byggingarvísitölu og
þó nokkuð margir samningar
eru til sem miðast við gömlu
lánskjaravísitöluna".
Andstaða við lög
gegn uppsögnum
Davíð Oddsson for-
sætisráðherra hoðar
lagasetningu gegn
fjöldauppsögnum
fólhs. Stjómarand-
staðan snýst öndverð
gegn frumvarpinu.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
hefur boðað lagafrumvarp, þar
sem á að koma í veg fyrir hópupp-
sagnir fólks til að bæta kjör sín. I
vinnulöggjöfinni, sem samþykkt
var í fyrra, eru hópuppsagnir
starfsfólks bannaðar. En meina-
tæknar, kennarar og fleiri hópar,
sem sagt hafa upp störfum til að
bæta kjör sín segjast hafa gert
það hver fyrir sig en ekki sem
hópur. Greinilegt er að mikil and-
staða verður við þetta lagafrum-
varp á Alþingi ef marka má orð
Sighvats Björgvinssonar, for-
manns Alþýðuflokksins, og Og-
mundar Jónassonar, alþingis-
manns og formanns BSRB.
Hörð átök
„Mér þykir nú stjórnarsinnar vera
nokkuð tvísaga í þessu máli. Öðr-
um þræði talar ríkisstjórnin um
nauðsyn sveigjanlegs vinnumark-
aðar, sem er bara annað orð yfir
hreyfanlegan vdnnumarkað. Fólk
á að geta flutt sig á milli án hind-
rana. Ef boðuð lög forsætisráð-
herra verða samþykkt er verið að
vinna gegn sveigjanlegum vinnu-
markaði og gegn því að gera fólki
kleift að flytja sig til í störfum,"
sagðí Sighvatur Björgvinsson,
formaður Alþýðuflokksins.
Sighvatur Björgvinsson er sanfærður um átök
effrumvarpið kemur fram
Hann segir að hægt sé að setja
lög um stéttir sem eru nauðsyn-
legar vegna öryggis borgaranna,
svo sem lögreglumenn og slökkvi-
liðsmenn, svo dæmi séu tekin og
hann spyr hvar menn ætli að
draga línuna í þessum efnum?
„Er það nauðsynlegt borgar-
anna vegna að meinatæknar megi
ekki segja upp störfum eða að sjó-
menn geti ekki lagt niður störf ef
aflahrota stendur yfir. Menn eru
þarna komnir út á hálan ís og af-
farasælast væri að grípa ekki til
slíkrar Iagasetningar. Eg er alveg
sannfærður um að ef frumvarp
þessa efnis kemur fram á Alþingi
verða höfð átök urn það,“ sagði
Sighvatur Björgvinsson.
Óframkvæmanlegt
„Þetta mál hefur ekki verið rætt í
þingflokki Framsóknarflokksins
en ég vil benda á að í vinnulög-
gjöfinni, sem samþykkt var í
fyrra, eru ákvæði sem banna hóp-
uppsagnir. Hins vegar verður að
skoða þetta mál mjög vel og ég á
von á því að það komi til umræðu
Ögmundur Jónasson teluraö lagasestning af
þessu tagi sé út i hött
í þingflokknum í næstu viku,“
sagði Valgerður Sverrisdóttir, for-
maður þingflokks Framsóknar-
flokksins.
„Mér þykir það út í hött að ætla
sér að setja svona lög vegna þess
að í raun er það óframkyæman-
legt að banna fólki að segja upp
störfum. Það væri ekki hægt
nema með slíkri valdbeitingu að
ótrúlegt er að menn leggi í slíkt.
Þar fyrir utan á ekki að leysa
ágreining um kjör og réttindi með
valdi. Þvert á móti er mikilvægt
að um þann farveg sem slíkum
deilum er beint inn í ríki sátt. Það
er hlutverk stjórnvalda að finna
slíkan farveg en ekki beita hótun-
um um lögþvingunum, hvað þá
að fylgja slíkri hótun eftir í fram-
kvæmd. Eg er sannfærður um
harða andstöðu í þinginu komi
frumvarpið fram. Hún mun koma
úr tveimur áttum. Þeirra sem
vilja veija mannréttindin og hin-
um sem kunna að hugsa á
praktískan máta,“ sagði Ögmund-
ur Jónasson, alþingismaður og
formaður BSRB. - S.DÓR
Stemgrímur
sáttur
Steingrímur J. Sigfússon alþing-
ismaður segist ekki ósáttur þrátt
fyrir að Vinstri hreyfingin
Grænt framboð hafi aðeins
mælst með 3% fylgi í nýlegri
skoðanakönnun Dags og Ak-
sjón. Steingrímur segir Ijóst að
hann fari fari fram á Norður-
landi eystra en orðrómur hefur
gengið um að skorað hafi verið á
Steingrím að fara fram á
Reykjanesi.
„Allar mælingar núna, hvort
sem eru á okkar fylgi eða ann-
arra, held ég að segi afar tak-
markaða sögu. Eg hef áþreifan-
lega orðið var við að margir eru
ekki vissir í sinni sök en auðvit-
að hefði ég viljað sjá hærri tölur.
Þetta urðu engin vonbrigði. Við
erum að mælast með 2-3% fylgi
á landsvísu og það er eðlilegt að
félagslega þenkjandi kjósendur
séu óvissir í sinni sök,“ segir
Steingrímur. Hann er sann-
færður um að stuðningur við
hreyfingu hans verður miklu
meiri en nú er. Sígandi lukka sé
best og hann telji raunhæft að
stefna að nokkrum þingsætum.
- BÞ
Stálu demants-
hring fyrir 1,2
millfónir
Þjófar brutust inn í Gullsmiðju
Óla í Kópavogi í fyrrinótt og
höfðu með sér skartgripi fyrir
hátt á aðra milljón. Þar á meðal
var demantshringur sem metinn
er á 1,3 milljónir króna. Um
leið og þjófarnir brutu rúðu til
að komast inn, fór viðvörunar-
kerfi í gang og var lögreglan
komin á staðinn rúmri mínútu
síðar. Þjófarnir hafa verið
snöggir að athafna sig því þeir
voru á bak og burt og hafði ekk-
ert til þeirra spurst í gær.
Órói við Grímsey
Jarðskjálftaórói varð norðan við
land í fyrrinótt skammt frá
Grímsey án þess að stórskjálftar
yrðu. Stærsti skjálftinn var um
2 á Richter en hann fannst ekki
í byggð. Jarðeðlisfræðingur á
skjálftadeild Veðurstofunnar
sagði ekki óalgengt að titringur
yrði á þessu svæði. Hrinan stóð
yfir í um 9 klukkustundir en í
gær var óróinn að mestu dottinn
niður. Að sögn jarðeðlisfræð-
ingsins var allt eins búist við að
skotinu væri lokið þegar rætt
var við hann í gærkvöld.
Prófkjör samfylk-
ingar?
Á fundi samráðsnefndar sam-
fylkingar A-flokka og Kvenna-
lista á Húsavík í dag verða fram-
boðsrhál í Norðurlandi-eystra
rædd. Dagur hefur góðar heint-
ildir fyrir því að lögð verði frarn
tillaga um prófkjör. Fullyrt er
að Alþýðubandalagsmenn í kjör-
dæminu og fleiri séu þessa
fýsandi. Þá hefur Dagur einnig
heimildir fyrir því að nokkuð sé
rætt um sömu leið í Norður-
Iandskjördæmi-vestra. - HEI