Dagur - 21.11.1998, Blaðsíða 7

Dagur - 21.11.1998, Blaðsíða 7
LÁUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1998 - T XW«ir. RITS TJÓRNARSPJALL „Þrátt fyrir aðild ad ríkisstjórn í langþráðu góðæri hefur Framsóknarflokknum ekki tekist jafnvei og Sjálfstæðisflokknum að nýta sér uppsveiftuna í efnahagslífi og lífskjörum til að hagnast á því pólitískt, “ segir í ritstjórnarspjalli helgarinnar. - mynd: pjetur Á miðjumiðum í stjórnmálunum er þetta helgi Framsóknarflokksins. A flokks- þinginu, sem hófst í gær, verður væntanlega fyrst og fremst horft fram á veginn. Formaður flokks- ins, Halldór Asgrímsson, orðaði það svo í viðtali við Dag á Fimmtudaginn að hann vildi sækja fram á hinni pólitísku miðju inn í nýja öld. Þótt flokks- forystan muni vafalaust bíða með hina eiginlegu kosningastefnu- skrá þar til nær dregur kjördegi, hljóta meginlínur málefnanna að verða lagðar á flokksþinginu. Þrátt fyrir aðild að ríkisstjórn í langþráðu góðæri hefur Fram- sóknarflokknum ekki tekist jafn vel og Sjálfstæðisflokknum að nýta sér uppsveifluna í efnahags- lífi og Iífskjörum til að hagnast á því pólitískt. Sjálfstæðismenn sigla með himinskautum í skoð- anakönnunum, en Framsóknar- menn ekki. Á þessu eru ýmsar skýringar. Þrátt fyrir dágott samstarf á stjórnarheimilinu hafa ráðherrar Framsóknarflokksins fengið á sig mestu gusurnar vegna þess sem miður hefur farið, en sjálfstæðis- menn sloppið. Hafa þeir þó for- sætisráðherrann sem ber meginá- byrgð á ríkisbúskapnum, og fjár- málaráðherrann sem mestu ræð- ur um niðurskurð. Verður ekki annað séð en ráðherrar sjálfstæð- ismanna hafi látið framsóknar- menn, einkum Finn Ingólfsson og Ingibjörgu Pálmadóttur, að mestu um það að taka við gagn- rýni og skömmum fyrir aðgerðir eða aðgerðarleysi ríkisstjórnar- innar í viðkæmum málum. Það hlýtur að vera forgangs- verkefni framsóknarmanna að finna leiðir til þess að láta góðær- ið skila sér líka til þeirra á kjör- dag. KLofvega á miðjuimi Ekki er við því að búast að fram- sóknarmenn verði uppteknir af pólitískri tilvistarkreppu á þessu flokksþingi. Það verða engar deil- ur um það hvort Framsóknar- flokkurinn sé til vinstri eða hægri. Víðtæk samstaða virðist um það innan flokksins að hann sé og verði næstu árin klofvega á miðjunni. Satt best að segja voru flestir búnir að gleyma því að Fram- sóknarflokkurinn hafi í eina tíð talið sig til vinstri í íslenskum stjórnmálum. Þess vegna hrukku margir við þegar fyrrverandi for- maður flokksins, Steingrímur Hermannsson, fór að minna á horfna félagshyggjustefnu flokks- ins fyrir skömmu í \dðtölum við fjölmiðla. Kannski líka vegna þess hvaðan sú ádrepa kom. Með tilliti til fortiðarinnar þótti ýms- um það merk tíðindi að Stein- grímur væri orðinn vinstrisam- viska framsóknarmanna. Auðvitað er það ekki í tísku nú- orðið að tala um \anstristefnu í Framsóknarflokknum. Hann hef- ur margítrekað það á undanförn- um árum að hann sé miðjuflokk- ur og hagað sér í fullu samræmi við þá stefnumörkun. Hugmyndir um annað eru aðeins gamall arf- ur frá viðreisnarárunum þegar Framsóknarflokkurinn breyttist á fáum árum í einn róttækasta vinstriflokk landsins, undir for- ystu Eysteins Jónssonar. Það tímabil leið endanlega undir lok þegar framsóknarmenn gengu til samstarfs við sjálfstæðismenn um stjórnarmyndun árið 1974. Á krataslóðum Það voru augljósar pólitískar for- sendur fyrir því að Framsóknar- flokkurinn færðist rækilega til vinstri á viðreisnarárunum. AI- þýðuflokkurinn var læstur í lang- tíma samstarfi við Sjálfstæðis- flokkinn og skildi því eftir rúm „vinstra megin við miðju" eins og það var seinna kallað. A sama hátt Iiggja augljósar pólitískar ástæður að baki þeirri ákvörðun framsóknarmanna að reyna að gera miðjuna í íslenskum stjóm- málum að sínum heimagarði - enda hefur það skilað flokknum stjómaraðild mestan þann langa tfma sem Iiðinn er frá því við- reisnin leið undir lok. Fyrir þá sem hafa áhuga á sér- kennilegheitum stjórnmálanna er auðvitað bráðsniðugt að minn- ast þess að þá, það er á viðreisn- arárunum, eins og nú er Fram- sóknarflokkurinn að hasla sér völl á því pólitíska svæði þar sem íslenskir jafnaðarmenn ættu að vera. Eftir kosningasigur Harold Wilsons og breska Verkamanna- flokksins árið 1964 var Eysteinn Jónsson ófeiminn við að lýsa þeirri skoðun sinni að hlutverk Framsóknarflokksins í íslenskum stjórnmálum væri af sama toga og bresku og skandinavísku al- þýðuflokkanna. Og núna getur Halldór Asgrímsson vísað til þess að Tony Blair, Gerhard Schröder og fleiri krataforingjar í Evrópu séu einmitt á fullri ferð inn á hina pólitísku miðju þar sem Framsóknarflokkurinn hefur búið um sig. Já, eins og kallinn sagði; hún er skrítin tík þessi pólitík. Gaxnli ilraumuriiin I gamla daga Ieit Framsóknar- flokkurinn gjarnan á sig sem höf- uðandstæðing Sjálfstæðisflokks- ins í íslenskum stjórnmálum. Nú orðið er sjaldgæft að heyra á slíkt minnst, enda flokkurinn í nánu stjórnarsamstarfi með sjálfstæð- ismönnum og ber vart hnífinn á milli. Auðvitað eru þessir flokkar keppinautar um atkvæði kjós- enda, en málefnalega er vart hægt að líta á stefnuskrár þeirra sem andstæða póla. Þau drög að ályktunum flokksþings framsókn- armanna sem lesa hefur mátt á netinu síðustu daga gefa það að minnsta kosti ekki til kynna. Það hefur lengi verið draumur pólitískra andstæðinga Sjálfstæð- isflokksins að hér yrði myndaður stór flokkur sem gæti veitt sjálf- stæðismönnum verðuga keppni. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til sameiningar flokka og flokks- brota hefur þessi gamli draumur ekki ræst. Einu sinni var draumurinn stór. Hræðslubandalagið á sjötta áratugnum var tilraun til að koma á bræðralagi Alþýðuflokksins og Framsóknarflokksins og ná hrein- um meirihluta á Alþingi. A fyrri hluta áttunda áratugarins var leitast við að ná saman í eina fylk- ingu ekki aðeins A-flokkunum, eða mestum hluta þeirra, heldur framsóknarmönnum líka. I þeirri sameiningarhrinu sem nú gengur yfir var hins vegar „aðeins" lagt upp með Alþýðuflokkinn, Alþýðu- bandalagið, Þjóðvaka og Kvenna- listann. En jafnvel slík sameining reyndist of stór draumur. Þeir sem undanfarin misseri hafa unnið að myndun samfylkingar- innar hafa orðið fyrir hverju áfall- inu á fætur öðru. Alþýðubanda- lagið hefur klofnað, ekki síst þingflokkurinn. Kvennalistinn hefur klofnað og smám saman orðið að engu sem pólitískt afl. Aðeins Alþýðuflokksmenn, með Þjóðvakaþingmenn í samfloti, hafa komist í gegnum þetta gjörningaveður án meiriháttar áfalla. Kynningin á málefnaskrá samfylkingarinnar klúðraðist líka. Og nú síðast hefur kröfuharka Kvennalistans og ágreiningur um fyrirkomulag framboðsmálanna skemmt pólitískum andstæðing- um vikum og mánuðum saman. Enn möguleild Með þetta allt að baki má segja að samfylkingarmenn standi á krossgötum. Það yrði pólitfskt sjálfsmorð að snúa til baka úr því sem komið er. Það væri einfald- lega pöntun á hörmulegum kosn- ingaúrslitum að ætla að berja saman framboðslista í fjölmenn- ustu kjördæmunum í lokuðum herbergjum nokkurra flokksfor- ingja. Ef samfylkingarmenn ætla að eiga von um góðan árangur í kosningunum næsta vor þurfa þeir að vanda næstu skref. Þeir verða að Ieggja fram framsýna og metnaðarfulla kosningastefnu- skrá sem er um leið raunsæ og vel undirbyggð kostnaðarlega. Og þeir verða að bjóða kjósendum sínum í stærstu kjördæmunum að raða frambjóðendum á lista í almennu prófkjöri. Með því að fara þessa leið eiga samfylkingarmenn ennþá mögu- leika á að ná árangri næsta vor. En eitt er víst: Klúðurkvóti þeirra er löngu uppurinn.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.