Dagur - 26.11.1998, Page 2

Dagur - 26.11.1998, Page 2
18 - FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBF.R 1998 ro^ir LÍFIÐ í LANDINU SMÁTT OG STÓRT UMSJÓN: SIGURÐUR BOGI SIGURÐSSON Oddur og naívisniinn Oddur Helgi Halldórsson, bæjarfulltrúi á Ak- ureyri, hefur almennt ekki verið talinn besti vinur listarinnar eftir að hann lagði til hér um árið að keyptur yrði skemmtari til tón- leikahalds frekar en rándýr konsertflygill. Oddur ávarpaði ásamt fleiri bæjarfulltrúum Oddur Helgi menningarsamkomu Gilfélagsins á dögunum Halldórsson. og sagði í Iok ræðu sinnar að hann vissi að ------- mönnum þætti hann oft mála sterkum litum og segja hlutina beint út. Fyrir listamennina á staðnum og menningarelítuna útskýrði Oddur síðan að þetta væri það sem menn kölluðu „naívisma"!... „Ef einkahags- munir verða settir í forgrunn þá springur þetta allt í Ioft upp. Menn eiga ekki að knýja fram lausnir sem henta þeim sjálf- um, burt séð frá því hvað hentar öðrum.“ Svavar Gestsson í Degi um framboðs- mál Samfylkingar- innar. Hrúturimi og geldingurinn Það gerðist í sveitum Suðurlands að bóndi nokkur er Magnús hét fékk til sín um áramót- in aflmikinn hrút til þess að sinna ám sínum er blæsma voru orðnar. Einsog venja er til í sveitum átti síðan að teyma ærnar undir hrút- inn og var af því tilefni mikið um dýrðir. En þegar í fjárhúsið kom voru góð ráð dýr. Hrút- urinn var alls ekki hrútur heldur geldingur, sem búið var að kippa úr sambandi. - Saga þessi varð fræg og var svo ort í orðastað konu hrútseigandans vísa sem vel þekkt er í héraði. Undirvöxt ég engan finn, ekki fær hann lofið, veistu ekki að veslinginn, vantar pung í klofið. Ef svona væri hann Magnús minn, meira gæti ég sofið. Krossaprófið Fram kom í Degi ekki alls fyrir Iöngu ályktun um að Ieysa ætti upp Brunabótafélagið og láta eigendur fá það sem þeim bæri. Vestmanna- eyjabær taldi sig eiga þarna um 140 milljónir. Akveðið var að skrifa þingmönnum og Ieita eftir þeirra afstöðu og var það gert í formi krossaprófs þar sem spurt var í nokkrum spurningum hvort menn styddu þetta eða ekki. Eitthvað munu þingmenn hafa brugðist misjafnlega við því að fá krossaprófið og sumir jafnvel brugðist illa við og þótt þeim stillt upp við vegg. Þeir endursendu prófið óútfyllt.... Haukur Þorsteins- son, formaður Eikar. „íþrótta- og keppnisandinn er mjög mikill. Þau vilja vinna eins og allir aðrir og leggja hart að sér við það. Okkar kjörorð er númer eitt að vera með - stærsti sigurinn er að vera með.“ íþróttafélagið Elk 20 ára íþróttafélagið Eik á Akureyri heldur upp á tuttugu ára afmæli sitt á laugardaginn en félagið var stofnað 16. maí 1978 og var fyrsta íþróttafélagið hér á landi sem sérstaklega var stofnað fyrir þroskahefta íþróttamenn. Stofn- félagar voru 86 en félagsmenn eru nú um 140. Starfið f dag er mikið og fjölþætt, reglulegar æf- ingar og mörg mót sem félags- menn taka þátt í. Tilgangur með stofnun félagsins var að veita þroskaheftum einstaklingum möguleika á þátttöku í íþróttum en fáum hafði hugkvæmst á þeim tíma sem fé- lagið var stofnað að þroskahefitr ættu erindi í íþróttir, hvað þá að taka þátt í mótum. Haukur Þorsteinsson er formaður Eikar. „Það er mjög mikið af mótum hjá okkur og talsvert starf að skipuleggja mótin yfir veturinn. Til dæmis fórum við á samtals sjö mót í fyrravetur. Mótin eru orðin mjög stór og það er að verða svo að það eru ekki nema örfá hús í landinu sem rúma þann fjölda sem kemur á rnótin," seg- ir Haukur. Fjölþætt gildi - Hvert er gildi þess fyrir þroskahefta að hafa tækifæri til að taka þátt og keppa í íbróttum? „Það er mjög mikið og margþætt. Iþróttir styrkja fatlaða bæði Iíkamlega og andlega og skapa gleði, bæta heilsu, einbeitni og áræðni. Þátttakan leggur grundvöll að vináttu og sam- heldni. Á heildina litið hefur þetta mikið félags- legt gildi. Starfið eykur hæfni félagsmanna til dæmis til að ferðast, búa á hótelum og gisti- heimilum og fara í mannfagnaði. Almennt séð gefur þetta þeim ákaflega mikið. Það sýnir sig bara í ástundun þeirra og áhuga. Iþróttirnar eru númer eitt og það má ekki sleppa æfingum. Iþróttamótin eru þeim feikilega mikils virði og þau spyrja í Iok hvers móts hvenær næsta mót verði, þannig að þetta er mjög margþætt og þau hafa geisilega ánægju af þessu." Stærsti sigurmn að vera með - Ófatlaðir íþróttamenn gætu lært ýmislegt um íþróttaanda af þroskaheftum íþróttamönnum? „Iþrótta- og keppnisandinn er mjög mikill. Þau vilja vinna eins og allri aðrir og leggja hart að sér við það. Þau geta að vísu verið svolítið tapsár en það jafnar sig fljótt og okkar kjörorð er númer eitt að vera með - stærsti sigurinn er að vera með. Það er þeirra hugsun á bak við þetta.“ Haukur segir kjarnann sem heldur utan um starfið ekki stóran og alltaf vanti meiri liðsstyrk frá ófötluðum. „Við erum félítil og höfum ekki miklar fjáröflunarleiðir því það er ekki mikill mannskapur til að taka þátt í þeirri vinnu. Eina fjáröflunin sem við únnum sjálf er að selja jóla- kort sem við fáum frá Iþróttasambandinu. Síðan lifum við á gjöfum og styrkjum." Helstu styrkt- araðilar eru Akureyrarbær sem styrkir félagið með því að það þarf ekki að . reiða leigu fyrir þá íþróttaaðstöðu sem notuð er. Kiwanisklúhhur- inn Kaldbakur hefur stutt félagið í mörg ár, að- stoðað við jólakortasöluna og gefið íþróttabún- inga á alla keppendur. Þroskahjálp á Norður- Iandi eystra hefur einnig styrkt félagið mikið. Félagsmenn og velunnarar ætla að koma sam- an í Húsi aldraðara á Akureyri klukkan 15.00. „Ahnennt séð gejur þettn þeim ákaflega mikið. Það sýnirsig baraíástundun þeirra og áhuga. “ SPJflLL FRÁ DEGI TIL DAGS Svefn, ríkidæmi og heilbrigði verður, eigi þeirra að verða notið til fulls, að rjúfa endrum Og eins. Jean Paul Richter Þetta gerðist 26. nóv. • 1594 tók gildi tilskipum um að Grallar- inn skyldi notaður sem messusöngbók. • 1793 tók lýðveldisdagatal byltingar- stjórnarinnar við af gregorska tímatal- inu í Frakklandi. • 1865 kom Lísa í Undralandi eftir Lewis Carroll út. • 1934 ákváðu stjórnvöld í Tyrklandi að fjölskyldunöfn skyldu tekin upp. • 1942 var bíómyndin Casablanca frum- sýnd í Hollywood. Þau fæddust 26. nóv. • 1857 fæddist svissneski málvísinda- maðurinn Ferdinand de Saussure. • 1910 fæddist írski leikarinn Cyril James Cusack. • 1922 fæddist í Bandaríkjunum Charles Schulz, sem skapaði teiknimyndaserf- una um Smáfólkið (Peanuts). • 1925 fæddist bandaríska leikkonan Linda Hunt. Merkisdagurinn 26. nóv. I dag er Konráðsmessa en Konráð biskup í Kontstanz í Þýskalandi var kirkjusmiður og pílagrímur og fór þrisvar til Iandsins helga. Eitt sinn er hann bergði á sakra- mentinu hljóp ofan í hann eitruð könguló en Konráði varð ekki meint af og er tákn hans nú köngurló yfir kaleik Suga dagunna. Vísa dagsins Vísan í dag er eftir Auðun Braga Sveins- son. Við lifum í köldu landi, við litla mengun - sem kunnugt er. En oftast er einhver vandi, sem okkur að höndum her. Afmælisbam dagsins Rokkdrottningin Anna Mae Bull- ock, öðru nafni Tina Turner, er 59 ára í dag. Sú gamla fæddist í bæn- um Nutbush í Tennessee, Banda- ríkjunum, sunnudaginn 26. nóvem- ber árið 1939. Þótt hún eigi aðeins eitt ár eftir í sextugt hefur aldurinn ekki hingað til komið í veg fyrir að hún troði upp á tónleikum og gefi út plötur af meiri fítonskrafti en flestir sem yngri eru. Ætli hún haldi því ekki áfram enn um stund. Engin innstæða Ungur athafnamaður, afar upptekinn, kemur askvaðandi inn í banka og segir við afgreiðslumann: „Eg verð að stofna nýjan reikning hjá ykkur. Og það strax.“ Af- greiðslumaðurinn fer sér að engu óðslega, pikkar eitthvað á lykiaborðið og rýnir í skjáinn á tölvunni sinni. Segir síðan: „Þú ert nú þegar með reikning hjá okkur, næg- ir það ekki?“ „Já, ég veit,“ segir sá ungi óþolinmóður, „en það er engin innistæða á honum.“ Veffang dagsins Ef einhverjir skyldu vera orðnir leiðir á „Yahoo“ ættu þeir kannski að prófa að kíkja á „NewHoo" á www.newhoo.com, sem er sambærileg þjónusta og ekki síðri. vffYf v? j wmi'

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.