Dagur - 26.11.1998, Qupperneq 5

Dagur - 26.11.1998, Qupperneq 5
FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998 - 21 LÍFIÐ í LANDINU Glaðir samferða- menn Ut er komin sjö- unda bókin eftir Þóri S. Guð- bergsson, sem ber heitið Lífs- gleði - minn- ingar og frá- sagnir. Þar rifja þekktir Islend- ingar upp lífsreynslu sína og liðnar stundir. I þeirri bók sem nú kemur út er rætt við séra Halldór Grön- dal, Jónu Rúnu Kvaran, rithöf- und og sjáanda, Rannveigu Böðvarsson, ekkju Sturlaugs Böðvarssonar útgerðarmanns á Akranesi, Róbert Arnfinnsson leikara og Sigríði Þorvaldsdótt- ur leikkonu. Alls hefur 41 Islendingur riíjað upp endurminningar sín- ar í þessum bókaflokki. Hollt og gott Gott og grænt er matreiðslu- bók sem í eru uppskriftir af rúmlega sextíu réttum þar sem grænmeti er í aðalhlutverki en kjöt og fisk- ur er fremur haft sem meðlæti. Bókin er eftir Ing-Mari Rowg, sem er dönsk en hefur verið kokkur á skipum og í fínum veitingahúsum í Kaupmanna- höfn og London. Gott og sterkt er önnur bók í sama flokld, sem í eru upp- skriftir af réttum víðs vegar að úr heiminum. Mikið er um krydd og eru sumar tegundir gamalkunnar en aðrar fram- andi. Höfundur er Annika Tidehorn, sem kynnt hefur sér matreiðslu í mörgum löndum. Báðar bækurnar eru mikið myndskreyttar. Þýðandi er Helga Guðmundsdóttir. Mislöng ljóð og mislæg Kópavogsskáldið Eyvindur er að senda frá sér ljóðabókina VERTU, sem í eru 36 mislöng ljóð í íjórum að- alþáttum, svo og rúnakviðu í þrisvar sinnum átta erindum, eða þrem ættum hins upp- runalega rúnastafrófs nor- rænna þjóða, ný Völustef. Þá eru í bókinni þýðingar á ljóðum fjögurra helstu skálda Fielstea og Drúsa, merkilegra þjóða Palestínu, sem nú búa við grimmilegt hernám. Fullt nafn skáldsins er Ey- vindur P. Eiríksson, sem skrifað hefur skáldsögur, leikþætti og ljóðabækur. Utgefandi er And- blær, sem lætur prenta á vist- vænan pappír. Hárfínar athugasemdir Þursaútgáfan hefur gefið út aðra ljóðabók Halldóru Thoroddsen og heitir bókin Hár- fínar athuga- semdir en sú fyrsta kom út árið 1990 og hét Stofuljóð. Hall- dóra er Reykvíkingur, fædd um miðja öldina og skrifar um allt milli himins og jarðar. Bókin er til sölu í bókabúðum Máls og menningar. Háskólaútgáfau Háskólaútgáfan sendir stöðugt frá sér nýjar bækur af ýmsum toga og hafa nú nýlega komið út fjórar bækur. Fyrsta er að telja leikrit Ragnars Arnalds, Solveigu, sem verið er að sýna á fjölum Þjóðleikhússins um þessar mundir. Þá hefur Bók- menntafræðistofnun gefið út í samvinnu við Háskólaútgáfuna bókina Fjóskona fór út í hehn. Sjálfsmynd, skáldskapur og raunveruleiki í ferðasögum Onnu frá Mold- núpi, sem Sig- þrúður Gunn- arsdóttir vann upp úr BA-rit- gerð sinni. Bók- ___ in segir frá al- þýðukonunni Onnu frá Moldnúpi (1902-1979) sem gaf út fimm bækur um ferðalög sín um meginland Evrópu og Bandaríkin. Bókin kostar kr. 1790. Fimmtugasta og fimmta bindi Studiu Islandicu, ritröð Bókmenntafræðistofnunar, er einnig komið út og er það eftir Eirík Guðmundsson bók- menntafræðing. Bindið nefnist Gefðu mér veröldina aftur - Um sjálfsævisöguleg skrif íslendinga á átjándu og nítjándu öld með hliðsjón afhugmyndum Michels Foucault og fjallar hún um ólík viðhorf til sjálfs og heims eins og þau birtast í íslenskum sjálfsævisögum og bréfum. Bókin kostar kr. 2100. Að lok- um er komin út Ljóð Þorsteins Valdimarssonar, sem er sú tólfta í rauðu-fjaðraseríu (öðru nafni ritröðin Islensk rit) Bók- menntafræðistofnunar en Þor- steinn (1918-1977) sendi frá sér 8 Ijóðabækur og þýddi auk þess fjöldan allan af ljóðum, óperutextum og öðrum söng- textum. Eysteinn Þorvaldsson, prófessor við Kennarháskóla Is- lands, skrifar ítarlegan inngang. Verðkr. 3180. Smásmíðar Bókaforlagið Bjartur hefur gefið út „Smá- smíðar - Tilraun- ir um bóklist og myndmenntir" eftir Gunnar Harðarson heimspeking. Bókin er safn tíu greina Gunnars sem flestar varða sjónmenntir eða bóklistir með einhverjum hætti. Bókinni er skipt í tvo megin- hluta og er fjallað um bókagerð íslenskra myndlistarmanna í bækurH fyrri hlutanum „með það fyrir augum að veita lesendum þokkalega innsýn í þessa list- grein,“ eins og segir í formála. I seinni hlutanum eru nokkrir smærri þættir þar sem rætt er vítt og breitt um list; bóklist, nýlist, abstraktlist og nýstefnur í byggingarlist „með viðkomu í huglægara myndmáli skáld- skapar og heimspeki. Að baki umfjölluninni í mörgum þess- ara greina búa tvenn eða þrenn heimspekileg hugðarefni." Bókin er 128 blaðsíður. Bjartur gefur út í samvinnu við Nýlistasafnið. Æviþætttr og maimlýsingar Kappar og kvenskörungar, ævi- þættir ís- lenskra forn- manna, er heiti á nýrri bók sem Gísli Jónsson ís- lenskufræð- ingur á Ak- ureyri hefur tekið saman. I kjarnmiklum og hnitmiðuðum texta dregur hann upp ógleym- anlega mynd af 49 fornmönn- um, konum og körlum. I efti- mála eru tekin saman fleyg orð og ummæli. Fjöldi teikninga myndlistarmannsins Kristins G. Jóhannssonar prýða bókina. Bókin er 160 blaðsíður. Bókaútgáfan Hólar gefur út. V Battnir og kjöt SVOJMA EBURÐ Þeir sem hætta að borða kjöt þurfa að gæta sín á því að missa ekki af mikilvægum næringarefnum og þá sér- staklega D-vítamínum og B12. Hnetur og baunir margar hverjar innihalda nauðsynleg næringarefni og grænt grænmeti er ríkt af járni. Mjólk og egg ásamt sojavörum innihalda eitt- hvert magn B-12, þannig að gamla reglan um að best sé að hafa hóf á öllu og borða Ijölbreyttan mat er i fullu gildi. Það að gerast græn- metisæta þýðir ekki bara að maður hættir að borða kjöt, heldur að hugsa verður mat- seðilinn upp á nýtt. Erfitt með svefn Yigdís svarar í símann! Ertu með ráð, þarftu að spyrja, viltu gefa eða skipta? Vigdís svarar í símann kl. 9—12. Síminn er 563 1626 (beint) eða 800 7080. Póstfang: Þverholt 14 Rvk. ;ða Strandgötu 31 Akureyri. Netfang: ritstjori@dagur.is Sæl Vigdís. Mig langar til að athuga hvort eitthvað er hægt að gera við svefnleysi því ég sef svo illa á nóttunni og er dauðþreyttur all- an daginn fyrir vikið. Eg er að vakna þetta 6-8 sinnum og á stundum erfitt með að festa svefninn aftur því þá heyri ég hljóð úr umhverfinu sem trufla mig. Ég er orðinn 53 ára gamall og þetta er í fyrsta sinn sem ég á við svona vandamál að stríða því ég hef alltaf sofið eins og steinn. Konan segir þetta mál vera tengt því að ég sé stressaður og hafi áhyggjur en mér finnst ég ekki hafa neitt meiri áhyggjur en ég hef haft. Líklega hefur kon- an þín rétt fyrir sér og eitthvað er að plaga þig þó svo þú gerir þér ekld grein íyrir því. Á þínum aldri verða oft breyting- ar hjá fólki, börn- in eru farin og vinnan hefur stundum breyst. Skoðaðu vel líf þitt og athugaðu hvort þú sérð eitthvað sem getur orsakað þetta. Kannski er samband ykkar eitt- hvað brösótt eða þá að þú hefur verið undir álagi lengi og það er að koma niður á þér nú.En heimatilbúin ráð eru nokkur. Fara í gönguferðir á kvöldin, drekka heitt kakó eða jurtate, borða kolvetnaríkan mat eins og t.d. brauð- sneið fyrir svefn eða gera jógaæfingar. Svo má alltaf fara á fætur og þrífa, sú tilhugsun svæfir mann oft hratt og vel ■ HUflÐ ER Á SEYDI? ITC - FÉLAGAR FAGNA Á „DEMANTSÁRI" I tilefni 60 ára afmælis ITC og þess að liðin eru 25 ár frá stofnun fyrstu deildarinnar hér á landi, standa Landssamtök ITC á íslandi fyrir afmælishá- tíð á Broadway föstudaginn 27. nóvember kl. 19.00. Þangað hafa m.a. boðað komu sína tveir góðir gest- ir, sem eru forseti alþjóðasamtakanna E.Jean Turner og Vilna Wilkinson varaforseti III. svæðis, sem Landssamtökin heyra til. Veislan er í umsjá ITC - deildarinnar Isafoldar sem stofnuð var í Reykjavík á fyrra ári. Þar eru kon- ur sem starfað hafa í samtökunum árum saman og eru margar þeirra fyrrverandi félagar, sem aftur hafa komið til leiks. Að öðru leyti eru ITC - samtökin opin bæði körlum og konum, og á þessu tvöfalda afmælisári er Vilhjálmur Guðjóns- son forseti Landssamtakanna, lyrstur karla. Enn er hægt að tilkynna þátttöku á afmælisfagnaðinn, hjá:Fanneyju, s: 588 9328, Helgu s: 557 8441, og Hildi s: 553 2799. HOFUDBORGABSVÆÐIÐ Upplestur á Súfistanum Bókakynningin á Súfistanum í kvöld er helguð fimm rithöfundum sem fyrir þessi jól senda frá sér sín fyrstu skáld- verk. Aðgangur er ókeypis og allir vel- komnir. Lestur rithöfundanna er túlkað- ur á táknmáli um leið og lesið er. Félag eldri borgara í Ásgarði. Margrét H. Sigurðardóttir verður til við- tals í dag, panta þarf tíma í síma 588 211. Bridge í dag kl. 13. Bingó í kvöld, kl. 19.45, góðir vinningar. Norðurljós Laugardaginn 28. nóvember verða þriðju og síðustu tónleikar Norðurljósa, Tón- listarhátíðar Musica Antiqua haldnir í Langholtsldrkju kl. 17. LANDIÐ Tjarnarkvartettinn á Akureyri Um síðustu helgi hélt kvartettinn út- gáfutónleika fyrir fullu húsi í Reykjavík, nú á að endurtaka leikinn norðan heiða og verða tónleikarnir haldnir í Sam- komuhúsinu á Akureyri á föstudags- kvöldið kl. 21. Eirikur Smith á Húsavík Listmálarinn Eiríkur Smith opnar sýn- ingu í Safnahúsinu á Húsavík laugardag- inn 28. nóvember kl. 16. Sýningin stend- ur til 6. desember og er opin daglega frá kl. 14-20. Ráðstefna á Dalvík Föstudaginn 27. nóvember verður haldin ráðstefna um málefni ungs fólks í Víkur- röst á Dalvík. Undirbúningur og fram- kvæmd hefur verið í höndum nemenda- ráðs Dalvíkurskóla. Ungir sem aldnir eru kvattir til að mæta. Skemmtun að ráð- stefnu lokinni. Tónleikar í Reykholtskirkju Fyrstu tónleikar Tónlistarfélags Borgar- íjarðar á þessu starfsári verða í Reyk- holtskirkju, laugardaginn 28. nóvember kl. 16. Þar koma fram Karlakór Reykja- víkur og Drengjakór Laugarneskirkju undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar og undirleik Onnu Guðnýjar Guðmunds- dóttir. Einsöngvari er Signý Sæmunds- dóttir.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.