Dagur - 28.11.1998, Side 6
6 -LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998
ÞJÓÐMÁL
Útgáfufélag:
Útgáfustjóri:
Ritstjórar:
Aðstoöarritstjóri:
Framkvæmdastjóri:
Skrifstofur:
Símar:
Netfang ritstjórnar:
Áskriftargjald m. vsk.:
Lausasöluverð:
Grænt númer:
Símbréf auglýsingadeildar:
Simar auglýsingadeildar:
Netfang auglýsingadeildar:
Símbréf ritstjórnar:
DAGSPRENT
EYJÓLFUR SVEINSSON
STEFÁN JÓN HAFSTEIN
ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
BIRGIR GUÐMUNDSSON
MARTEINN JÓNASSON
STRANDGÖTU 31, AKUREYRI,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
460 6100 OG 800 7080
ritstjori@dagur.is
1.800 KR. Á MÁNUÐI
150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ
800 7080
A60 6161
(REYKJAVÍK)563-1615 Ámundi Ámundason
(AKUREYRI)460-6191 G. Ómar Pétursson
OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir
omar@dagur.is
460 6171(AKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK)
Skrípíilcikur
í íyrsta lagi
Þau öfl sem ætluðu að leggja sameiginlega til atlögu við kvóta-
kónga landsins og kollvarpa núverandi fískveiðistjórnunarkerfi
hafa sundrast í frumeindir síðustu dagana. Ekki er langt síðan
bandalag Sverris Hermannssonar og Samtaka um þjóðareign
var kynnt opinberlega sem tilhugalíf ástríkra elskenda. En allt
fór í bál og brand áður en brúðkaupið fór fram. Heiftúðugar
yfirlýsingar falla á báða bóga í þessum hatramma skilnaði og
má ekki á milli sjá hvor fylkingin hefur betur í stóryrðum. Ætli
fullyrðing Bárðar Halldórssonar um að stjórnmálaflokkurinn
sem Sverrir Hermannsson stofnaði heima í stofu í vikunni sé
„fasistaflokkur'1 lendi þó ekki í efsta sæti fúkyrðalistans.
1 öðru lagi
Fyrst eftir að Sverrir Hermannsson blés til orrustu gegn sæ-
greifunum og hugðist sameina andstæðinga kvótakónganna í
eina fylkingu, var honum spáð tiltölulega góðu gengi í kom-
andi kosningum. Og þótt skoðanakannanir hafi síðan bent til
þess að hann væri fylgislítill, mátti þó alltaf afsaka það með því
að ekki væri enn búið að stofna flokkinn sem átti að bjóða
fram. Eftir skrípaleik síðustu daga virðist hins vegar fátt benda
til annars en að stjórnmálasamtök hans hafí þegar siglt í
strand. A þessari stundu er björgun af strandstað ekki í aug-
sýn.
í þriðja lagi
Ekki blæs byrlegar fyrir binum nýja flokknum sem stofnaður
verður um helgina á rústum bandalags Samtaka um þjóðar-
eign og Sverris Hermannssonar. Hingað til hefur þessum sam-
tökum ekki tekist að kveikja mikla elda með þjóðinni. Maka-
lausar uppákomur síðustu daga hafa ekki orðið til að auka
traust almennings á þeim sem þar fara með forystu, frekar en
á Sverri Hermannssyni. Hjá báðum þessum stríðandi íylking-
um hefur áherslan á málefni verið látin víkja fyrir valdapoti og
pólitískum fjandskap einstaklinga. Það er ekki vænlegur
grunnur til að byggja á ný stjórnmálasamtök.
Elías Snæland Jónsson
IlSverrir
Fátt hefur vakið meiri athygli í
íslenskum stjórnmálum síð-
ustu daga en stofnun fastista-
flokks Sverris Hermannssonar.
Það var þjóðfélagsrýnirinn og
hugsuðurinn Bárður Halldórs-
son hjá Frjálslynda lýðræðis-
flokknum sem uppgvötaði að
Fijálslyndi flokkurinn þeirra
Sverris og Grundartanga-Jóns
væri fasistaflokkur. Þessi vís-
indalega greining Bárðar bygg-
ist að því er best verður séð á
þvf að Sverrir vildi vera foring-
inn í nýja flokknum. Bárður er
sögufróður maður og veit að
að foringinn og foringjahug-
takið er og var mikilvægt í
flokkum fasista.
Ergó: Flokkurinn
hans Sverris er fas-
istaflokkur. Sam-
kvæmt því er Sverrir
hinn íslenski „II
Duce“, hann er „II
Sverrir".
Tveir
flokkar
„II Sverrir' lýsti því yfir í sjón-
varpi í fyrrakvöld að það væri
fyrir neðan virðingu sína að
fara að slást við Bárð Halldórs-
son um formennsku í nýjum
flokki. Það hefur nú meðal
annars leitt til þess að stofnað-
ir verða tveir flokkar. Annar er
leiddur af „II Sverri" og hinn af
„Atil Bárði“ eins og menn eru
nú farnir að kalla þessa miklu
stjórnmálaforingja. Garri get-
ur ekki annað en tekið ofan
fyrir „Aul Bárði“ og því hvern-
ig hann með analýtískum
röntgenaugum hefur nú skil-
greint Frjálslynda flokkinn
sem fasistaflokk. Það þarf
snerpu og snilli til að sjá
hvernig þessi fasíski foringja-
dans brýtur sér braut með yfir-
gangi Sverris. Það er auðvitað
Sverrir
Hermanrtsson.
algjört aukaatriði þótt engum
hafi áður dottið f hug að setja
sjálfkrafa samasemmerki milli
sterks foringja og fasisma -
Bárður er frumkvöðull í þjóð-
félagsvísindum.
Fasistaforingi
líka
En Bárður er ekki bara frum-
kvöðull hann er sjálfur foringi.
Og það veldur Garra satt að
segja nokkrum áhyggjum.
Bárður er nefnilega svo mikill
foringi í sínum flokki að það
hefur nánast enginn annar
komið þar til greina sem for-
mannsefni. Nú, eftir
að fram kom að
stofnaðir verða tveir
flokkar er þetta orðið
enn augljósara, „Aul
Bárður" hefur alls
ekki ósvipaða stöðu í
sínum flokki og „II
Sverrir" f sínum. Þeir
eru sams konar for-
ingjar í sams konar
flokkum. Og ef annar
er fasískur foringi í fasista-
flokki, þá hlýtur hinn að vera
það líka. „Aul Bárður" hefur
því með þjóðfélagsrýni sinni
og skilgreiningu á Sverri sem
fasista verið að senda þjóðinni
þau skilaboð að hann væri nú
sjálfur ekki minni fastistafor-
ingi. Garra þykir ekki dónalegt
fyrir íslenska þjóð að hafa
þarna eignast tvo fasistafor-
ingja á einu bretti. Eini gallinn
við þetta allt er hve erfítt er að
verjast þeirri hugsun, að
kannski séu þetta ekki alvöru
fasistaforingjar eftir allt sam-
an, heldur bara tveir menn,
sem gleymdu að taka meðölin
sfn. GARRI
STEFÁNJÓN
HAFSTEIN
skrifar
Kumomoto. Þá var nú gaman að
Iifa. Einhvern veginn var það nú
svo að ekki var hátt á okkur risið
eigendum „strákanna okkar“
þegar heimsmeistarakeppninni
hér heima lauk vansællar minn-
ingar. Við vorum einhver kart-
öflupoki út í horni í handbolta-
veislu heimsins. Svo kom auka-
leikur í Danmörku upp úr þurru
rétt eins og eitthvert skrif-
stofuslys hefði orðið hjá alþjóða
handboltaráðinu, okkar menn
hrukku í stuð og voru komnir
með farseðil til Japans og.runnu
í gegnum mótið með bravúr. Þá
var nú gaman að lifa.
Aftur á barmmn
Að vera stuðningsmaður íslenska
handboltaliðsins er að lifa á
barmi taugaáfalls. Ástandið er
eins og á heimili þar sem óút-
reiknanlegur unglingur heldur
öllum í Ijölskyldunni á ystu nöf,
en samt þykir öllum svo undur
I ystu inyrkur?
vænt um hann fyrir hvað hann
getur verið góður. Þetta er í
meira lagi brothætt ástand. Nú
er maður enn einu sinni búinn
að naga neglurnar upp í kviku. A
morgun ræðst hvort
við verðum með í
næstu veislu eða liggj-
um bara eins og gaml-
ar spíraðar kartöflur út
í homi meðan matar-
ilmur fyllir hús ná-
granna. Norðmenn og
Danir eru búnir að
tryggja sér þátttökurétt
á næsta heimsmeist-
aramóti í Karíó.
Við megum ekki
tapa
Það er orðið viðkvæði í hand-
boltaheiminum: við verðum
alltaf að vinna okkur hlutina eins
erfíða og hægt er. Á morgun
skoppa strákarnir okkar inn á
einhvern ókunnan völl í Ung-
verjalandi þar sem trylltur múg-
ur veifar rauðum og grænum
fánum. Og þeir mega ekki tapa.
Ungveijarnir þurfa helst að mala
okkur stórt svo þeir missi ekki
Sviss fram úr sér. Við
vitum því að þeir koma
eins og grenjandi Ijón.
Það er smá huggun að
okkur nægir jafntefli
til að komast áfram til
keppni f landi
pýramídanna. Ef við
töpum erum við að öll-
um líkindum lentir í
þriðja sæti í riðlinum
með hinum kartöflu-
liðunum f heiminum.
Engin heimsmeistara-
keppni, engir Ólympíuleikar,
ekkert fjör.
Við verðum að vinna.
Liðið
Liðið sem fór frekar illa með
Ungverja hér heima í vikunni er
ekki draumalið. Vörnin og mark-
varslan þó í góðu lagi og nú þarf
maður að krossa fingur fyrir
Guðmund Hrafnkelsson. Hann
getur unnið Ieikinn fyrir okkur.
Sóknin var vægast sagt afleit, og
myndi þó enginn kvarta yfir að
skarta mönnum eins og Óla
Stef., Degi, Valdimari, Bjarka og
Patreki. Þorbjörn hefur bara ekki
náð að skerpa þennan odd nógu
vel. Það er eitthvert bölvað úr-
ræðaleysi í gangi. Langtímum
saman er engin ógn hægra meg-
in í sókninni, sem auðveldar
andstæðingunum full mikið lífíð.
Þess vegna situr maður ögn
skelfdur við tækið á morgun.
Unglingurinn á heimilinu á það
nefnilega til að vera dálitíð
breyskur þótt ágætur sé inn við
beinið. Við vitum aldrei upp á
hveiju hann tekur. Þetta er deja
vu einu sinni enn.
Þorbjörn Jensson: Nú
liggur lífið við...
svárað
Hefurþú trú á því :ið ís-
land vinni landsleikinn
í handknattleik við Ung-
verja í dag - og komist á
HM1999?
Þorgerður Giumarsdóttir
þingtmnnsefni og yfirmaðurdægur-
máladeildar RÚV.
við vinn-
um Ieikinn ekki
26-24. Það
verða ágætar
varnir og hraða-
upphlaup ein-
kennandi í þess-
um leik, þar
sem Bjarki Sigurðsson skorar
sirkusmark í Iokin. Það er mikil
stemmning meðal strákanna fyr-
ir þennan leik og ég held að þeir
geri allt til þess að komast til
Egyptalands á næsta ári.“
Atli HLLmarsson
þjálfari KA í handbolta.
„Mér finnst það
mjög ólíklegt, ég
held að sigurinn
hér heima hafi
ekki verið nógu
stór. Eg held að
erfiðara sé að
eiga við Ung-
verjana á þeirra heimavelli, en
var í Laugardagshöll á miðviku-
dagskvöldið. Mjög slæmt verður
fyrir íslenskan handbolta ef liðið
kemst ekki á HM á næsta ári - og
ég er svo sem ekkert að útiloka
heldur að við getum ekki unnið
leikinn á morgun. Við höfum
sýnt áður að við höfum staðist
svona álag, einsog leikirnir við
Dani haustið 1996 sýndu.“
Þorbergur Aðalsteinsson
jv. landsliðsþjálfari og nú þjálfari
ÍBV.
„Það er erfitt að
spá fyrir um
lyktir leiksins,
jafntelfi gasti
orðið niðurstaða
og þá 25 mörk.
Ef við bætum
okkur sóknar-
lega og höldum þeim varnarleik
sem leikinn var á miðvikudags-
kvöldið var eigum við að geta
haldið þessu. En auðvitað verður
þetta gríðarlega erfitt dæmi, og
það er enginn tilviljun að Ung-
verjar velji leikstað austast í
Ungveijalandi. Þar eru aðstæður
mjög erfiðar, léleg aðstaða í alla
staði og grimmir áhorfendur."
Þorgils Óttar Mathiesen
fv. handboltamaðurogforstöðimiaður
hjá íslandsbanka.
„Já, ég hef trú á
því. Þetta verð-
ur mjög erfiður
Ieikur, en þegar
mikið liggur við
hefur íslenska
landsliðið ævin-
lega staðið sig.
Þeir hafa líka að undanförnu oft
verið betri í leikjum erlendis en
hér heima, þá er minni pressa á
þeim. En þetta verður þungt og
leikurinn nokkuð jafn, þeir vinna
ekki með nema tveimur til þrem-
ur mörkum."