Dagur - 28.11.1998, Síða 7

Dagur - 28.11.1998, Síða 7
LAUGARDAGUR 28. NÓVEMRER 1998 - 7 XWmi-. RITSTJÓRNARSPJALL „Svartmimkar“ í Hveragerdi BIRGIR GUÐMUNDS- SON SKRIFAR Ég minnist þess að hafa sem ungur og róttækur menntaskóla- nemi flutt margar ræður um hversu ómanneskjuleg uppfinn- ing einkunnir væru. Við félag- arnir töldum menntun snúast um allt annað en einkunnir og töluðum okkur hása fyrir því að einkunnakerfi yrði aflagt í Hamrahlíðinni og skólakerfinu í heild, en raunveruleg menntun innleidd þess í stað. Sérstaklega minnisstæð eru rök sem við not- uðum gjarnan í þessu samhengi, um að einkunnakerfið hafi verið innleitt af svartmunkum þegar þeir sáu að hýðingar dyðgu ekki lengur til að troða staðnaðri heimsmynd sinni inn í nemend- ur. Hvort þetta er sagnfræðilega rétt eða ekki veit ég satt að segja ekki, enda skiptir það ekki öllu máli - hugmyndin var augljós: Einkunnir voru teknar upp til að brýna bitið í því kerfi refsinga (og umbunar) sem menn höfðu áður stuðst við, kerfi sem byggði á því að nemendur lærðu ekki síður fyrir tilstilli utanaðkom- andi aðhalds en af eigin áhuga eða löngun. Undanfarin misseri hefur átt sér stað gríðarleg breyting í íslenskum grunnskóla. Góðnr og vondur skóli Aldarfjórðungi síðar hefur þessi menntaskólaróttækni dofnað talsvert þó enn sé ég þeirrar skoðunar að gildi einkunna sem námsmats eða menntunarmats, sé stórlega ofmetið í þjóðfélag- inu almennt. Sérstaklega held ég þó að varasamt sé að setja samasem merki milli meðalein- kunna nemenda í einhveijum til- teknum grunnskóla annars vegar og yfirlýsinga um hvort viðkom- andi skóli er „góður“ eða „vond- ur“ hins vegar. Að sjálfsögðu eru tengsl þar á milli, en svo margt annað íeikur þar líka stórt hlut- verk. Samsetning nemenda og ýmsar félagslegar aðstæður geta t.d. verið þannig að meðaleink- unn er lág þrátt fyrir frábært skólastarf. Nemendur geta verið að fá fjölbreytta menntun í skól- anum þó svo að það mælist ekki endilega á einhverju skriflegu prófi eins og til dæmis sam- ræmdu prófi. Sumir skólar eru meira að segja sagðir ýta frá sér „óæskilegum“ nemendum til þess að þeir dragi ekki niður meðaltalið á meðan aðrir bjóða slíka nema velkomna. A hinn bóginn geta meðaleinkunnir að sjálfsögðu líka verið vísbending um slakt skólastarf. Mikil breyting Undanfarin misseri hefur átt sér stað gríðarleg breyting í íslensk- um grunnskóla. Tvennt gefur til- efni til að taka upp þessa gömlu umræðu um gildi einkunna. I fyrsta lagi er það yfirfærsla grunnskólans til sveitarfélaga. Sú staðreynd að grunnskólinn er nú rekinn af sveitarfélögunum þýðir að líkur hafa aukist á mis- mun milli skóla. Öll aðstaða, kjör kennara, námstilboð og sér- kennsla er nú ólík eftir því hvar á landinu menn eru. Þetta skapar sumum sveitarfélögum ákveðinn vanda vegna þess hve dýr fræðslumálin eru. En þetta skap- ar sveitarfélögum líka mjög mikilvæg sóknarfæri og gæti auðveldlega orðið eitthvert öfl- ugasta stýritæki raunhæfrar byggðastefnu. Meðalstórt sveit- arfélag á landsbyggðinni, sem nær með afgerandi hætti að skapa sér nafn fyrir góða skóla mun sjálfkrafa stækka og blómg- ast. Þangað flytur hugsandi ungt barnafólk, sem vill hvoru tveggja í senn barnvænt umhverfi og góðan skóla fyrir krakkana sína. Birting einkunna Hin breytingin sem orðið hefur er útvíkkun á samræmdum próf- um í grunnskóla og ákvörðunin um að birta opinberlega ein- kunnir einstakra skóla á þessum prófum. Viðstöðulaust og nánast án umhugsunar hefur hinn al- menni Islendingur dregið skól- ana í dilka og sett þá í fyrsta, .annan, þriðja og fjórða flokk. Óþarfi er að minna á að skólar á höfuðborgarsvæðinu hafa lengi komið best út úr þessum próf- um. Einkunnabirtingar á sam- ræmdum prófum hafa því haft heilmikil fælingaráhrif á fólk sem annars hefði hugsanlega getað hugsað sér að búa úti á landi (eða í ákveðnum borgar- hlutum í Reykajvík). Fólk vill einfaldlega ekki fara með börnin sín inn í slík menntunar „gettó“. Bæjarstjórn Hveragerðis Frétt um að bæjarstjórn Hvera- gerðis hafi samþykkt tillögu um að gefa 10. bekkingum 250 þús- und krónur í sjóð, ef þeir næðu því að vera yfir meðallagi á sam- ræmdu prófunum í vor, hefur vakið verðskuldaða athygli. Sum- ir eru hneykslaðir en aðrir hrifn- ir. Eðlilega. Mér sýnist bæjar- stjórnarmenn vera með þessari tillögu að reyna að bregðast við fyrrnefndum breytingum á grunnskólanum. Þetta er eins konar framhald af „svartmunka- heimspekinni" - bitið í ein- kunnagjöfinni var eitthvað farið að slævast þannig að það er brýnt með því að bæta við pen- ingaverðlaunum. Umbunin verð- ur stærri ef vel tekst til, en refs- ingin að sama skapi þungbærari ef krakkarnir missa af peningun- um - ekki síst fyrir þá ógæfu- sömu einstaklinga sem draga meðaltalið niður. Um leið og þetta er aðgerð, sem gæti hækk- að einkunnir barnanna, þá er þetta aðgerð til að auka aðdrátt- arafl Hveragerðis fyrir ungt barnafólk. Ef skólinn í bænum kemur vel út á samræmdu próf- unum verður bærinn álitlegri valkostur að búa í. Að þessu leyti er viðleitni bæjarstjórnar- innar fullkomlega rökrétt og skiljanleg. Hitt verð ég þó að segja að það er óneitanlega frek- ar ógeðfellt að þurfa að kaupa börnin til að gera það sem ætti að vera sjálfsagður hlutur. Hvaða skilaboð er verið að senda til barnanna1? Það á þó eftir að koma í ljós hvernig þessi tilraun er útfærð í skólanum sjálfum og erfitt að fella dóma yfir henni áður en það liggur fyrir. Pissað í skóinn En jafnvel þó þetta fari allt á besta veg og kennarar og skólayf- irvöld nái að spila þannig úr mál- inu að tilraunin heppnist og verði gagnleg, hlýtur maður að spyrja hvort svona lausn sé ekki svipuð því og að hlýja sér með því að pissa í skóinn. Hlýtt fyrst, en skelfilega kalt og miklu verra eftir smá stund. Sannleikurinn er sá að tillagan kann að ná upp meðaleinkunn í einhvern tíma, en hver veit hversu lengi bitið helst í þessari peningalegu umbun? Það hefur ekki heyrst að samhliða því að setja verð- launafé í nemendasjóð standi til að bæta aðstöðu, auka náms- framboð, sérkennslu eða styrkja kennslufræðilega þætti í skólan- um. Þetta er patentlausn, og þó Islendingar séu yfirleitt yfir sig hrifnir af sh'kum lausnum, þá eru þær þess eðlis að menn eru að svindla dálítið á sjálfum sér. Bæjarstjórnin er að fara stuttu leiðina að því að gera bæinn eft- irsóknarverðan fyrir barnafólk með því að ná góðu skori á sam- ræmdu prófunum. TómleiM Það er hins vegar ekki verið að styrkja eða bæta skólastarfið sjálft með því að byggja það upp umfram það sem verið hefur eða það sem tíðkast annars staðar. Þetta er þvert á móti aðgerð sem undirstrikar takmarkanir þess og tómleika að einblína bara á eink- unnir. Þó maður gangi ekki svo langt að segja að einkunnir eigi ekki rétt á sér, eins og mennta- skólaróttæknin hélt fram á sín- um tíma, þá stendur það engu að síður, að einkunnir eru ekki það sama og menntun eða gott skóla- starf. Það er hægt að brýna bitið í umbuninni og refsingunni að hætti svartmunka í einhvern tíma, en það kemur að þ\á að skynsamlegast er að skipta alveg um verkfæri. Ef bæjarstjórn Hveragerðis samþykkti að fara út í metnaðarfulla uppbyggingu á skólastarfinu sjálfu og aðbúnaði öllum með álíka frumlegum hætti og þeir hafa gert varðandi þessi verðlaun, þá yrði útkoman næstum örugglega betri útkoma á samræmdu prófunum. Það væri líka miklu varanlegri leið. Hún yrði að vísu margfalt dýrari, seinfarnari og krefðist miklu meiri vinnu. En það yrði alvöru leið. Það er raunar sú leið sem bæjarfélög á landsbyggðinni hljóta að fara og verða að fara - fyrr en síðar.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.