Dagur - 28.11.1998, Qupperneq 8

Dagur - 28.11.1998, Qupperneq 8
8- LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998 FRÉTTASKÝRING i. Svikari með sorgn Hann kynntist fómar- lombuniun með sorg í augum og stanslaus- um orðaflaumi, loforð- um og heitstrenging- um. Hanu talaði fólk- ið til, laug og blekkti. Fékk meira að segja konu á lokaðri geð- deild tH að gefa veð- leyfi - með aðstoð starfsstúlkna. Fyrrum tengdamóðir hans flúði norður í land undan rukkurum vegna svika hans. „Hann átti svo auðvelt með að tala að maður ruglaðist bara,“ sagði eitt fórnarlambanna í skýrslu fyrir dómi, tæplega fimm- tug kona, sem rak verslun en missti hana að hluta til vegna svika Stefáns Sigurðssonar, 54 ára fyrrum leigubílstjóra. Stefán var í vikunni dæmdur af Hæsta- rétti í tveggja ára óskilorðsbundið fangelsi fyrir fjölbreytt safn ijársvika gagnvart 12 einstakling- um, 10 konum og tveimur karl- mönnum, á tímabilinu 1991-94. Hæstarétti þótti brot Stefáns stórfelld og í héraðsdómi þótti sannað að Stefán „hafi með kerf- isbundnum blekkingum og svik- samlegum hætti fengið tiltekna einstaklinga til þess að taka á sig fjárskuldbindingar... og með því stefnt fjárhagslegum hagsmunum þeirra í hættu“. Þótti atferli Stef- áns og „viðhorf til brotaþola bera vott um ófyrirleitni og eindreginn brotavilja auk þess sem ákærði virtist kæra sig kollóttan um af- leiðingar verka sinna". Fóriiarlönibin 12 Akæruliðir ákæruvaldsins á hend- ur Stefáni voru alls 29. I héraðs- dómi var hann sýknaður af fyrstu fimm ákæruliðunum í tímaröð og dæmdur í 15 mánaða fangelsi. I Hæstarétti var hann enn fremur sýknaður af fjórum síðustu ákæruliðunum í tímaröð og þvf að lokum sakfelldur fyrir „aðeins" 20 ákæruliðanna. Þrátt fyrir það þyngdi Hæstiréttur dóminn í tveggja ára fangelsi. Aður en lengra er haldið er rétt að gera grein fyrir fórnarlömbum Stefáns: 1. Karlmaður, 49 ára, óvirkur alkóhólisti sem Stefán kynnt- ist í AA-samtökunum,' býr einn með móður sinni, lág- launamaður hjá Eimskip. 2. Kona, 50 ára, sem dvalið hafði á spítala eftir slys, auk þess sem dóttir hennar var sjúklingur. 3. Kona, 63 ára, sem Stefán kynntist í AA-samtökunum. 4. Kona, 38 ára, sem átti við geðræn vandamál að strfða, öryrki sem lifði á bótum. Hann átti að því er virðist ákaflega auðvelt með að tala konur til, höfðaði til sorgarsögu sinnar og vonar um bjarta framtíð. Fórnarlömbin eins og dáleiddust og v Bankastjórnendum virtist sama; svo fremi sem einhver með eignir taeki ábyrgðina á 5. Ekkja, 74 ára, sem hafði að- eins ellilífeyri sér til fram- dráttar. 6. Karlmaður, 49 ára, meðlimur í trúarfélaginu Veginum, sem Stefán kynntist í AA-samtök- unum. 7. Kona, 48 ára, meðlimur í trú- arfélaginu Veginum. 8. Kona, 40 ára, þunglynd, flogaveik og meira og minna lokuð á geðdeild á tímabilinu. 9. Kona, 54 ára, þá nýlega frá- skilin, í augljósri leit að lífs- förunaut. 10. Kona, 49 ára, verslunareig- andi, en við skerta andlega heilsu, þunglynd og nú 75% öryrki. 11. Kona, 53 ára, einstæð móðir á lágum launum, þá nýlega frá- skilin og „slæm á taugum“ og „ekki í andlegu jafnvægi". 12. Kona, 46 ára, einstæð móðir á hálfum atvinnuleysisbótum en í hlutavinnu á lágum Iaun- um. Sorg í augimum og 16 miUjónir í höndunum Stefán þótti sannur að því að hafa beitt þetta fólk blekkingum til að hafa af því fé. Af málavöxtum er ljóst að hann nánast talaði fólkið í að gera hvað sem er - og þá fýrst og fremst með þvf að spila inn á samúð þess og láta það vorkenna sér. Sú saga sem hann notaði í tíma og ótíma er eftirfarandi. Hann missti móður sína tveggja ára, al- inn upp á stofnunum í Reykjavík til 6 ára aldurs, þá sendur á eitt- hvert heimili vestur á Barða- strönd fram á unglingsár. Síðan kom sagan um eigið bílslys, um að hann hefði misst konuna sína og rúsínan í pylsuendanum var sviplegt fráfall dóttur hans í bíl- slysi í maí 1992. Ofan á þetta bættist frásögn af því að hann hefði verið í rugli, en farið í með- ferð og væri að reyna að ná sér út úr skuldasúpu og að vinna sig út úr gjaldþroti. Auk þess talaði hann gjaman um trúna og vonina um bjarta framtíð. Sléttgreiddur, snyrtilegur, edrú og blíður á manninn. Með mikla sorg í aug- unum. Með þessi vopn í hendi tókst honum að véla fólkið til að skrifa undir skuldabréf og víxla, sem greiðendur eða ábyrgðaraðilar, eða lána sér peninga beint. Aður en yfir lauk taldist hann sam- kvæmt ákæruliðunum 29 hafa vélað alls 15,8 milljónir króna út úr samúðarfullu og hrekklausu fólkinu. Flúði uiidan rukkuriinuiii Hvernig fór hann að því? Flest af þessu fólki átti sjálft í persónuleg- um erfiðleikum; hafði farið í meðferð, var andlega veikt eða stóð höllum fæti að öðru Ieyti. Og hann kjaftaði það til - talaði og talaði, laug og blekkti. Itrekað sagðist hann ætla að greiða allt og nefndi oftast að hann ætti von á fjögurra milljón króna bótum frá tryggingafélagi vegna andláts dóttur sinnar. Sem var bull. Eftir að hafa blekkt aldraða konu (hún var 74 ára) ítrekað til að skrifa undir íjárskuldbindingar kom að því að hún varð að flýja heimili sitt. Sér hafi „ekki verið orðið vært í íbúð sinni... fyrir rukkurum og mönnum sem voru að ganga að henni eða íbúðinni vegna skulda, sem hún hafði skrifað uppá fyrir ákærða og hann hafði ekld staðið við að greiða af‘. Stefán bar að kæra gömlu kon- unnar væri „kjaftæði frá A til Ö“. Notfærði sér geðræn vandamál fómarlamba Tvær kvennanna „pikkaði" hann upp á dansleikjum. Onnur þeirra, sem hann hitti á gömli dönsun- um í Artúni, dáleiddist nánast af sorgarsögusafni Stefáns og vissi ekki fyrr en hann var búinn að kjafta hana til að Iána sér pening alloft, alls 1,8 milljónir króna - á liðlega einum mánuði. Hún trúði

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.