Dagur - 28.11.1998, Side 10
10- LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998
LEIKFELAG
^REYKJAVÍKUR
BORGARLEIKHÚSIÐ
Stóra svið kl. 14.00
Pétur Pan
eftir Sir J.M. Barrie
Frumsýning 26. desember
2. sýn. sun. 27/12
ATH. SALA GJAFAKORTA ER
HAFIN - TILVALIN JÓLAGJÖF TIL
ALLRA KRAKKA
Stóra svið kl. 20.00
Mávahlátur
eftir Kristínu Marju Baldursdóttur
í leikgerð Jóns J. Hjartarsonar
sun 29/11
Lau. 5/12 og lau.12/12 kl. 19:00
Jólahlaðborð að lokinni sýningu,
leikarar hússins þjóna til borðs!
Síðustu sýningar
fyrir jól
Stóra svið
Grease
eftir Jim Jacobs og Warren Casey
í dag 28/11, kl. 15:00 uppselt
í kvöld. 28/11, kl. 20:00 uppselt
sun. 29/11, kl. 13:00 uppselt
lau. 5/12, kl.15:00, uppselt
70. sýn. sun. 6/12, kl. 13:00
örfá sæti laus
lau. 12/12, kl. 15:00
örfá sæti laus
Síðasta sýning
Stóra svið kl. 20.00
Sex í sveit
eftir Marc Carmoletti
fim. 3/12, örfá sæti laus
fös. 4/12, uppselt
sun. 6/12, örfá sæti laus
fim. 10/12 laus sæti
fös. 11/12, örfá sæti laus
Síðasta sýning fyrir jól
Ósóttar pantanir seldar daglega
Litla svið kl. 20.00
Ofanljós
eftir David Hare
sun. 29/11
Síðasta sýning
Miðasalan er opin daglega
frá kl. 13 - 18 og fram að
sýningu sýningadaga.
Símapantanir virka daga frá kl. 10.
Greiðslukortaþjónusta.
Sími 568 8000 fax 568 0383
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sýnt á Stóra sviði kl. 20.00
Sólveig
- Ragnar Arnalds
í kvöld, Id. nokkur sæti laus
- Id. 5/12.
Síðustu sýningar fyrir jól
Tveir tvöfaldir
Ray Cooney
7. sýn. fid. 3/12, nokkur sæti laus
8. sýn. föd. 4/12 uppselt
Síðustu sýningar fyrir jól
Bróðir minn
Ijónshjarta
- Astrid Lindgren
Á morgun sud. kl. 14.00,
örfá sæti laus
á morgun kl. 17.00, örfá sæti laus
sud. 6/12, kl. 14:00, nokkur sæti laus
sud. 6/12, kl. 17:00,
nokkur sæti laus
Síðustu sýningar fyrir jól
Sýnt á Smíðaverkstæði kl. 20.30
Maður í mislitum sokk-
um
i kvöld Id. uppselt
á morgun sud. uppselt
- fid. 3/12 uppselt
- föd. 4/12 uppselt - Id. 5/12 uppselt
- fid. 10/12 uppselt -
föd. 11/12 uppselt - Id. 12/12 uppselt
Síðustu sýningar fyrir jól
Sýnt á Litla sviði
Gamansami
harmleikurinn
- Hunstadt/Bonfanti
I kvöld kl. 20.30 - Id. 5/12 kl. 20.30.
Síðustu sýningar fyrir jól
Abel Snorko býr einn
- Eric Emmanuel Schmitt
Á morgun sud. kl. 20.00
- föd. 4/12
Síðustu sýningar fyrir jól
Ath. ekki er hægt að hleypa ges-
tum inn í salinn eftir að sýning
hefst.
Sýnt í Loftkastalanum
Listaverkið
- Yasmina Reza
Id. 28/11 - síðasta sýning
Listaklúbbur Leikhúskjaliarans
mád. 30/11
Kenjarnar/Guðbergur og Goya
Skáldið varpar frumlegu Ijósi á
„Los caprichos" meistaraverk Goya.
Pétur Jónasson fléttar spænskri
gítartónlist inn í dagskrána.
Húsið opnað 19.30 - dagskrá hefst kl.
20.30. - Miðasala við inngang.
Miðasalan er opin mánud. - þriðjud.
13-18, miðvikud. - sunnud. 13-20.
Símapantanir frá kl. 10 virka daga.
Sími 551-1200.
HJÚKRUNARHEIMILI
Sjúkraþjálfarar
Spennandi og fjölbreytt starf í björtu og rúmgóðu húsnæði.
Sjúkraþjálfara vantar í 50% stöðu frá og með 1. janúar
1999 á endurhæfingardeild hjúkrunarheimilisins Eirar í
Grafarvogi.
Upplýsingar gefur Lárus Jón Guðmundsson, yfirsjúkraþjálf-
ari, og Birna Kr. Svavarsdóttir, hjúkrunarforstjóri, í síma
587 3200.
FRÉTTIR
Þrír vilja 2. sætið á
N or ðurlandi-vestra
Þrír sækjast eftir 2. sæti á lista
framsóknarmanna á Norðurlandi
vestra við alþingiskosningarnar
8. mai nk. en framboðsfrestur til
prófkjörs rennur út nk. mánu-
dagskvöld svo enn má eiga von á
framboðum. Það eru Arni Gunn-
arsson frá Flatatungu í Skaga-
firði, aðstoðarmaður félagsmála-
ráðherra, Elín Líndal, oddviti
sameinaðs sveitarfélags í Vestur-
Húnavatnssýslu og Herdís A.
Sæmundardóttir, formaður bæj-
arráðs Skagafjarðar, sem sækjast
eftir 2. sætinu. Magnús B. Jóns-
son, sveitarstjóri á Skagaströnd,
hefur lýst því yfir að hann ætli
ekki í prófkjörið en Sverrir
Sveinsson, rafveitustjóri á Siglu-
fírði, mun hafa hug á 3. sætinu.
Elín Líndal, sem skipaði 3.
sæti á B-lista við síðustu kosn-
ingar, segir búsetu alltaf hafa
haft mikið vægi í kjördæminu en
hún óttist ekki að það skaði
hennar framboð að vera Húvetn-
ingur eins og félagsmálaráð-
herra, sem sækist eftir því að
halda 1. sætinu.
„Það kemur sú stund að það
skiptir ekki máli hvaðan úr kjör-
dæminu frambjóðendur eru, en
ég veit ekki hvort hún er runnin
upp nú. Eg hef verið þrjú kjör-
tímabil í 3. sætinu og ég tel það
eðlilegt framhald þegar 2. sætið
losnar að kanna þá stöðu,“ segir
Elín Líndal.
„Það leggst ágætlega í mig að
etja kappi við Herdísi Sæmund-
ardóttur og Elínu Líndal um 2.
sætið á lista framsóknarmanna
og þetta vekur athygli á listanum
sem er gott mál meðan allar leik-
reglur eru virtar. Eg á allt eins
von á að fleiri muni bítast um
þetta sæti en það er erfitt að spá
um framhaldið fyrr en fresturinn
er útrunninn 1. desember nk.,“
segir Arni Gunnarsson. Ekki
náðist f Herdísi Sæmundardótt-
ur. - GG
Árni Gunnarsson:
Sækist eftir öðru sæti.
Elín Líndal:
Sækist eftir öðru sæti.
Herdís Sæmundard:
sækist eftir öðru sæti.
Hafnarkráin á ekki að vera vettvangur „erfiðleikafólks" heldur Wiskeykarla, sem hafa gaman af fatafellusýningum.
Hafnarkráin stækkar
Hið umdeilda veitingahús Hafn-
arkráin í Hafnarstræti er lokað
þessa dagana vegna stækkunar
staðarins, en eftir breytingar get-
ur gestafjöldinn tvöfaldast, farið
úr 30-35 í 60-70. Fyrr á árinu
mótmæltu ýmsir fasteignaeigend-
ur og fyrirtækjarekendur í Hafn-
arstræti stækkuninni harðlega, en
árangurslaust.
Meðal þeirra sem mótmæltu
stækkuninni kröftuglega var Eim-
skipafélag íslands og kemur það
Asgeiri Davíðssyni Hafnarkráar-
verti á óvart. „Við erum nýbúnir
að gera leigusamning við Eim-
skipafélagið, sem lætur okkur fá
aukahúsnæði. Annars skil ég ekki
að verið sé að mótmæla, því það
hefur ekki þurft að kalla lögregl-
una hingað f rúmt hálft ár og við
höfum reynt að halda erflðleika-
fólki frá staðnum."
Aðspurður segir Asgeir að hann
ætli að ráðast í breytingar sem
eigi að leiða til meiri friðar í göt-
unni. „Eg stefni að því að hafa
bara opið á kvöldin og þá ætti
skrifstofufólkið ekki að verða fyrir
ónæði.“ Hann viðurkennir að til
greina komi að hafa fatafellusýn-
ingar. „Eg stefni að því að hafa
uppákomur á hveiju kvöldi og vil
gjarnan fá hingað Wiskeykarlana,
því ég er með um 300 tegundir í
boði,“ segir Asgeir - FÞG
Kolmuimaskreið
Fiskþurrkunarfyrirtækið Klofn-
ingur á Suðureyri við Súganda-
fjörð hefur verið að gera tilraun-
ir með að þurrka hausaðan og
slógdreginn kolmunna. Guðni
Einarsson, framkvæmdastjóri
Klofnings, segir að Klofningur
hafi fengið eitt bretti af frystum
kolmunna frá Danmörku til
reynslu og um framhald geti orð-
ið að ræða. Markað fyrir
kolmunnaskreið segir Guðni
með öllu ókannaðan, en hélst sé
horft til Nígeríu í því sambandi
til að koma afurðinni til neyslu.
„Við erum mest að þurrka
þorskhausa sem við kaupum af
fiskvinnslustöðvum hér í kring,
t.d. á Isafirði, Bolungarvík og
Flateyri en það eru einhverjar
hlikur á lofti í markaðsmálum á
skreið. Það hefur verið mjög góð-
ur afli hjá bátum á Suðureyri að
undanförnu en 'Segja má að við
séum komnir fram til ársins
1958 aftur sé tekið tillit til
stærða á bátum. Hingað kom 60
tonna bátur, Súgfirðingur, sem
Básafell gerir út, bátur svipaðrar
stærðar og var hér fyrir 40 árum,
en eftir mánaðamótin verður
fiskverkunin Freyja rekin undir
nafni Básafells. I þróuninni
bökkuðum við því um tíma alveg
aftur til aldamóta þegar hér voru
engin fiskiskip nema trillur," seg-
ir Guðni Einarsson. - GG