Dagur - 28.11.1998, Qupperneq 11
Xfc^ur
LAUGARDAGUR 28.NÓVEMBER 1998 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Jiang Zemin, forseti Kína og Keizo Obuchi, forsætisráðherra Japans takast í hendur.
Fortíðin er
Japönum erfíð
Kínverjar eru mjög
ósáttir við tregðu Jap-
ana til þess að biðjast
afsökunar á framferði
sínu í stríðinu.
Á fimmtudaginn samþykktu leið-
togar Kína og Japans að hefja
„nýtt tímabil" sem á að einkenn-
ast af nánari tengslum ríkjanna í
efnahags-, umhverfis- og félags-
málum, þrátt fyrir að sögulegur
fundur leiðtoga ríkjanna hafi
einkennst af harðvítugum deil-
um um það hvernig best væri að
Japanir bæðu Kínveija afsökunar
á framferði sínu í stríðinu.
Japan dró fram rauða dregilinn
til að bjóða Jiang Zemin velkom-
inn í sex daga heimsókn, en
hann er fyrsti lunverski þjóðhöfð-
inginn sem kemur til Japans.
Akihito keisari tók á móti Ji-
ang, og síðar átti hann tveggja
klukkustunda langan fund með
Keizo Obuchi forsætisráðherra.
Á þeim fundi hét Obuchi því að
lána Kínverjum sem svarar 225
milljörðum króna til ýmissa verk-
efna, þar á meðal til skógræktar
sem á að koma í veg fyrir víðtækt
tjón af því tagi sem varð vegna
fíóðanna miklu í sumar.
Erfiður fundur
Til þess að Iétta að nokkru
áhyggjum af Kínverjum vegna
væntanlegs öryggissamkomulags
milli Japans og Bandaríkjanna
voru þeir fullvissaðair um að
stefna Japana sé sú að Kína sé
eitt ríki og Tafvan sé hluti af því.
En það var fortíðin, það sem
gerðist fyrir sex áratugum, sem
vakti mesta athygli af því sem
farið hefur á milli leiðtoganna.
Klukkutímum saman stóðu deil-
ur um orðalag á afsökunarbeiðni
frá Japönum fyrir framferði sitt í
Kína í styrjöldinni sem þá geisaði
milli ríkjanna.
Niðurstaðan fullnægði ekki
vonum og kröfum Kínveija, en
þeir höfðu farið fram á skriflega
afsökunarbeiðni hliðstæða þeirri
sem Japanir létu Suður-Kóreu í
té í síðasta mánuði. Þar er vísað
beint til grimmilegs hernmáms
Japana á Kóreuskaga árin 1910-
1945.
Hafa aldrei gert upp
fortíðina
Tang Jiaxuan, utanríkisráðherra
Kína, sagði í síðustu viku að
„Japanir hafi aldrei alveg skilið
við herskáa fortíð sína með sama
hætti og Þjóðverjar hafa gert
með nasistana. Ef þeir gerðu
það, þá þyrftu Kína og önnur
Asíuríki ekki að minna Japani á
söguna jafn oft.“
Japanir komust hins vegar að
þeirri niðurstöðu að þeir hafi
þegar beðið Kínveija um fyrir-
gefningu í sameiginlegri yfírlýs-
ingu árið 1972, sem kom sam-
bandi þjóðanna tveggja í „eðlilegt
horf“. Sú yfirlýsing er undirrituð,
og þar segjast Japanir vera „ákaf-
Iega með%dtaðir um ábyrgð á
þeim alvarlega skaða sem Japan
olli kínversku þjóðinni áður fyrr,
með stríði, og ávíta sjálfa sig
harðlega."
Þá vísa Japanir í þriggja ára
gömul ummæli þáverandi for-
sætisráðherra síns, Tomiichi
Murayama, sem Iýsti „iðrun“
sinni og baðst „innilega afsökun-
ar“ á framferði þjóðar sinnar í
stríðinu.
Varfæmislega orðuð
yfirlýsing
Nokkrum klukkustundum eftir
fund Jiangs og Obuchis kom
fram óundirrituð „sameiginleg
yfirlýsing,“ orðuð af varfærni þar
sem Japan lýsir yfir „viðurkenn-
ingu og iðrun“ vegna innrásar
sinnar í Kína og þeim þrenging-
um sem kínverska þjóðin varð
lyrir vegna hennar. En beina af-
sökunarbeiðni var ekki að finna í
þessu skjali.
„Raunsönn viðurkenning
gagnvart sögunni er afar mikil-
vægur grunnur undir þróun tví-
hliða sambands,11 segir í skjalinu.
„Japanir lýstu því yfir í sameigin-
legri yfirlýsingu frá 1972 og um-
mælum forsætisráðherrans frá
15. ágúst 1995 að þeir finni til
mikillar ábyrgðar vegna þeirra
gífurlegu erfiðleika og skaða sem
kínverska þjóðin varð fyrir vegna
innrásar þeirra á ákveðnu tíma-
bili í fortíðinni, og Japan hefur
Iýst yfir djúpri eftirsjá vegna þess
hátternis."
Þetta var í fyrsta skiptið sem
Japanir nota orðið „innrás" í op-
inheru milliríkjaskjali.
Á fundi sínum með Jiang ítrek-
aði Obuchi munnlega „iðrun“
Japana og „innilega afsökunar-
beiðni“ vegna athafna sinna í
stríðinu, að því er talsmaður jap-
anska utanríkisráðuneytisins,
Sadaaki Numata, sagði.
Óttast skriflegar yfirlýs-
ingar
Numata var spurður hvers vegna
væri ekki hægt að hafa það skrif-
legt. „Sumt er best að segja
munnlega," var svarið.
Sú staðreynd, að skjalið var
ekki undirritað af stjórnvöldum
beggja ríkjanna „hefur litla þýð-
ingu fyrir gildi og mikilvægi
skjalsins," sagði Numata.
Sumir sérfræðingar segja ,að
Japanir láti stjórnast af ótta'við
að yfirlýsingar um iðrup' geti
hrundið af stað nýjum .kröfum
um skaðabætur til handa fórnar-
lömbum Japana í stríðinu.
Obuchi ítrekaði það, í eyru Ji-
angs, að Japan hafi „statt og
stöðugt fetað stig friðsamlegrar
þróunar á eftirstríðsárunum, og
það er viðhorf mikils meirihluta
Japana að Japan eigi aldrei aftur
að halda út á braut herveldis.“
Fara í taugamar á nágrauna-
ríkjum
Ymis ummæli sumra japanskra
embættismanna, sem enn neita
að horfast í augu við athæfi Jap-
ana í styrjöldinni, vekja þó reglu-
Iega upp reiði meðal íbúa ann-
arra Asíuríkja.
Nú síðast í maí fullyrti jap-
anski þingmaðurinn Masahiro
Koga að hann gæti ekki sagt til
um hvort glæpir hafi verið
framdir í Nanjing, þar sem jap-
anskir hermenn myrtu 300.000
karla, konur og börn árið 1937.
Sun Zhaiwei, sagnfræðipró-
fessor í Kína og höfundur bókar
um fjöldamorðin í Nanjing, segir
að Japanir þyrftu að undirrita
skriflega yfirlýsingu sjálfra sín
vegna, en ekkert endilega Kín-
verja vegna.
„Skjalið skiptir ekki svo miklu
máli fyrir kínversk stjórnvöld og
kínversku þjóðina,“ sagði hann.
„Það er mikilvægara fyrir ríkis-
stjórn og íbúa í Japan. Það myndi
þýða að Japanir gangist fyllilega
við sögu sinni.“
- Los Angeles Times
Netanjahu hættir Evrópuför
ISRAEL - Benjamin Netanjahu, forsætisráðherra Israels, hætti við
Evrópuför sína í miðju kafi í gær vegna ástandsins í Suður-Líbanon.
Tveir ísraelskir hermenn létu þar lífið á fimmtudag og telur Netanja-
hu að í kjölfar þess verði að endurmeta ástand öryggismála á landa-
mærum Israels og Líbanons.
Piuochet sagður stressaður
BRETLAND - Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra í Chile,
er sagður hafa fundið illa fyrir því andlega álagi sem handtakan og
málaferlin í kringum framsalsbeiðni á hendur honum til Spánar hef-
ur valdið honum. Lögfræðingar hans hyggjast reyna að fá hann laus-
an úr haldi vegna þessa og kreíjast þess að ekkert verði úr réttarhöld-
um vegna heilsufars Pinochets. Jack Straw, utanríkisráðherra Bret-
lands, þarf að taka ákvörðun um það á næstu dögum hvort breskir
dómstólar fjalli um framsalsbeiðinina. Hann getur meðal annars
hafnað framsali á þeim forsendum að heilsufar sakbornings leyfí það
ekki.
Algjörlega ryk- og vatnsþéttir.
Engin móða við -40°C til 80° C og við allt að 95% raka.
Með eða án innbyggðs áttavita. n
Lífstíðareign með allt að 30 ára ábyrgð. O
Einstaklega bjartir og skarpir (“auto focus“) FURUNO
Brlmrón hf
Hólmaslóð 4, sími 561 0160
Hunting og Navigator II
STEINER
SJÓNAUKAR
D I G I T A L
EcreArbic