Dagur - 22.12.1998, Page 4
4 - ÞRIÐJVDAGUR 22. DESEMBER 1998
AKUREYRI NORÐURLAND
Stórsigur
Tindastúls
Tindastóll vaim góðan
sigur á nágrönnuin
sínum frá Akureyri í
DHL-deildinni á
fmuntudag. Þeir spil-
uðu mjög góðan vam-
arlerk sem var lykill-
inn að sigri.
Leikmenn Tindastóls í körfu-
boltanum voru ekki i miklum
vandræðum með slaka Þórsara.
„Við sáum ekki til sólar,“ eins og
þjálfari Þórsara, Ágúst Guð-
mundsson orðaði það. Leikur-
inn fór fram á Sauðárkróki á
fimmtudagskvöld og voru það
heimamenn sem skoruðu mun
fleiri stig en gestirnir, eða 91 á
móti 50 stigum gestanna. Fjör-
tíu og eins stiga sigur staðreynd.
Staðan í hálfleik var hreint ótrú-
leg. Tindastóll 41 en Þór aðeins
24 stig. Svo lágt stigaskor eins
og Þórsara, hefur ekki sést lengi
í úrvalsdeildinni í körfuknatt-
leik. Tindastóll þótti sýna alveg
glimrandi leik og þá aðallega í
vörninni. Það þykir gott að
halda liðum í fimmtíu stigum.
Þetta var fyrsti sigur Tinda-
stóls í DHL-deildinni í langan
tíma og því kærkominn. Þórsar-
ar hafa dalað aðeins eftir góða
byrjun en hafa verið að leika
gegn sterkum liðum undanfarið.
Þeir voru búnir að tapa síðustu
þremur leikjum í DHL-deildinni
fyrir leikinn gegn Tindastóls-
mönnum.
„Við lékum frekar illa, það er
lítið annað hægt að segja.
Tindastóll var að spila mjög góð-
an vamarleik og við að sama
skapi slæman sóknarleik. Er-
lendi leikmaðurinn okkar,
Loronzo Orr, gekk ekki heill til
skógar og gerði okkur minna
gagn en meira. Það voru mistök
að láta hann spila. En nú verður
ekkert slakað á. Það verður æft
af fullum krafti yfir jólin. Við
eigum mjög erfiða tvo útileiki
strax eftir áramót. Á móti KR og
Snæfellingum. Þessi lið eru í
toppbaráttunni og eiga mjög erf-
iða heimavelli. En þeir eru ekki
ósigrandi þó að þeir eigi góða
heimavelli. Við ætlum okkur að
ná stigunum fjórum úr þessum
leikjum, sagði Ágúst Guð-
mundsson, þjálfari Þórsara.
- GS
Þórsarar hafa dalað aðeins eftir góða byrjun en hafa verið að leika gegn
sterkum liðum undanfarið.
Þórsarar eiga nú raunhæfa möguleika á að komast upp í efstu deiid enda tekur liðið stöðugum framförum.
Þórsarar vaxa
í hverjiun leik
Matar-
hátíð
Nú eru að koma jól. Það fer ekki
fram hjá nokkrum manni. Flest-
ir eiga eftir að innbyrða ósköpin
öll af góðum mat og öðrum sæt-
indum. Svo fara allir að hugsa
um aukakílóin. Hvað hefur Sig-
urður Gestsson í Vaxtarræktinni
á Akureyri að segja um þá miklu
matarhátíð sem nú fer í hönd?
„Fólk á ekkert að „passa“ sig.
Hátíðirnar standa nú bara yfir í
nokkra daga og fólk á að njóta
þeirra. Það þarf að innbyrða
mikið af hitaeiningum á
nokkrum dögum svo fólk bæti á
sig einu kílói af fitu. Það er eng-
in hætta á því. Svo hef ég enga
trú á að fólk sé mikið í einhverj-
um sætindum um jólin. Fólk
borðar kannski eitthvað magn af
góðu kjöti. En það sakar engan.
Svo er bara að mæta á æfingar
eftir hátíðirnar og hrista sig ei-
lítið. Það er líka opið hjá mér
alla daga nema aðfangadag og
jóladag, sagði Sigurður Gests-
son hjá Vaxtarræktinni.
Nú er bara að hafa það gott
með sjálfum sér og sínum og
borða nóg af góðum og hollum
mat. Nú, því allt er gott í hófi.
- GS
Ragnar
sigraði
Jólamót bogfimideildar Akurs
var haldið á dögunum. Ragnar
Hauksson sigraði í karlaflokki,
Gunnlaugur Björnsson varð í
öðru sæti og Mike John Ryan í
þriðja sæti. Guðlaug Elsa
Björnsdóttir sigraði í kvenna-
flokki, Ester Steindórsdóttir varð
í öðru sæti og Halla Bára Gests-
dóttir varð í því þriðja. Óvenju
góð þátttaka var á mótinu og
færri komust að en vildu. Mikil
gróska er í bogfiminni á Akureyri
og eru þátttakendur ekki færri
en í höfuðborginni. - GS
Góður sigur hjá Þórs-
urum í haiidboltammi
og mikilvæg tvö stig
staðreynd í barátt-
unni uin að komast í
efstu deild að ári.
Þór vermir efsta sætið í annarri-
deildinni í handbolta. Þórsarar
sigruðu Fjölni úr Grafarvogi 27-
22 í Iþróttahöllinni á föstudags-
kvöld. Lið Þórs vex með hverjum
leiknum og á góða möguleika á
að komast upp í fyrstu deild. Þeir
sýndu það og sönnuðu að þeir
komast langt á baráttunni eins
og gegn hinu sterka fyrstudeild-
arliði KA á dögunum í bikar-
keppninni. En sigurinn var ekki
auðkeyptur því mótstaðan var þó
nokkur. Fjölnismenn eru með
gott lið í framför þar sem gamall
kappi úr Gróttu, Ólafur Sveins-
son, fer fremstur í flokki.
„Þetta var erfið fæðing. En sig-
ur vannst. Leikmenn áttu erfitt
með að rífa sig upp eftir orust-
una við KA en við verðum að
sigra í deildinni. Það er okkar
brauð og smjör. Fjölnismenn eru
baráttuhundar og gáfu Iítið eftir.
Þeir hætta aldrei en tvö stig í hús
og við ætlum upp. Það skal
takast hvað sem tautar og raular.
Við ætlum að æfa mjög vel um
jólin. Við mætum Völsungi frá
Húsavík þann 5. janúar. Það er
lið sem ekki skal vanmeta því
þeir eru á miklu flugi og í mikilli
framför," sagði hinn fjörmikli
fjöllistamaður og liðsstjóri Þórs-
ara, Gunnar Níelsson.
Þór er með sextán stig eftir tíu
umferðir og er í efsta sæti. I öðru
sæti er hið fornfræga hand-
boltalið Víkings með þrettán
stig, eftir aðeins sjö Ieiki. Eins og
áður hefur komið fram á Þór
milda möguleika á að fara upp í
efstu deild. En ef það á að takast
verða menn að halda einbeitingu
út allt tímabilið. Tvö lið fara upp
og engin er úrslitakeppnin þetta
leiktímabilið. - GS
Enn tapa
KA/Þórs
stuLkur
KA/Þórs stelpumar í
haiidboltanum eru
með tvö stig eftir
fyrri umferðina á ís-
landsmótinu.
Grótta/KR burstaði KA/Þórs
stelpurnar 29-17 á fimmtudags-
kvöld. Staðan í hálfleik var 15-
10 gestunum í vil. Lögð var mik-
11 áhersla á að vinna þennan leik
en stelpurnar voru langt frá tak-
markinu. Best heimamanna var
Arna Pálsdóttir og skoraði hún
ein sex mörk. Þóra Ottesen
markvörður var mjög góð í fyrri
hálfleik og varði þrettán skot og
þar af þrjú víti. Það er örugglega
ekki gaman að vera markvörður
og verja svo vel í einum hálfleik
og fá á sig samt fimmtán mörk.
Betri varnarleik stelpur.
„Þetta var lang lélagasti leik-
urinn okkar til þessa. Stelpurnar
voru metnaðarlausar og áhuga-
lausar. Einhver jólagleði í þeim.
Við ætluðum okkur að vinna
þennan leik því að Grótta/KR er
ekki með neitt sérstakt lið.
Svona fór það nú. Við erum búin
að senda litháenska leikmann-
inn okkar hana Jolanto heim þvf
við vorum ekki nógu ánægð með
hana. Okkur gæti þó bæst liðs-
styrkur fyTÍr átökin eftir áramót.
Eiginkona Lars Walter ætlar að
reyna æfa með okkur. Hún er
fyrrverandi atvinnumaður og var
víst geysigóð. Það væri gaman ef
hún gæti æft með okkur en hún
lenti f slysi fyrir skemmstu sem
gæti sett strik í reikninginn,"
sagði Hlynur Jóhannsson þjálf-
ari.
Nú er bara að nota jólafríið vel
og æfa. Stelpurnar hafa getu og
vilja til að hala inn fleiri stig en
bara tvö. -GS