Dagur - 29.12.1998, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 29. desember 1998
Verð í lausasölu 150 kr.
81. og 82. árgangur - 245. tölublað
Nýsköpunarsj óður
vill í kvikmyitdimar
Nýsköpimarsjóður á í
viðræðum við Kvik-
myudasamsteypu
Friðriks Þórs Frið-
rikssonar iim kaup á
allt að fjórðungshlut í
fyrirtækinu.
„Hugmyndin um að fjárfesta í
þessu félagi byggir á því að þetta
sé leiðandi fyrirtæki í því að
framleiða leiknar kvikmyndir fyr-
ir alþjóðlegan markað,“ segir Páll
Kr. Pálsson, framkvæmdastjóri
Nýsköpunarsjóðs, en sjóðurinn á
í viðræðum við Kvikmyndasam-
steypuna um hugsanleg kaup á
allt að 25% hlut í fyrirtækinu.
Friðrik Þór Friðriksson kvik-
myndagerðarmaður á og rekur
Kvikmyndasamsteypuna.
„Við viljum gjarnan sjá hvort
hægt er að efla þessa starfsemi
með því að koma inn sem hlut-
hafar í fyrirtækinu sem er aug-
sýnilega komið langlengst í þess-
um geira þótt því sé auðvitað
ekki að neita að það eru aðrir að
gera ágæta hluti,“ segir Páll.
Hann segir að það hafi vantað
fjármálafagmennsku í kvik-
myndaiðnaðinn en fjármálageir-
inn hafi verið dálítið hræddur við
þetta umhverfi. „Við viljum líka
með þessu gera tilraun til að
færa þetta nær mönnum í fjár-
magnsgeiranum.“
Heimild með skHyrðum
Stjórn Nýsköpunarsjóðs sam-
þykkti í haust heimild til þess að
fjárfesta í allt að 25% hlut í Kvik-
myndasamsteypunni en að upp-
fylltum ákveðnum skilyrðum.
Páll segir að meðal annars þurfi
Friðrik Þór Friðriksson og fyrirtæki hans Kvikmyndasamsteypan er áhuga-
verð fjárfesting að mati Nýsköpunarsjóðs. mynd: teitur
að fara yfir samninga og skuld-
bindingar fyrirtækisins en vill að
öðru leyti ekki tjá sig um skilyrð-
in enda séu þau trúnaðarmál.
Það sem máli skipti sé að kanna
hvort grundvöllur sé fyrir því að
byggja upp og reka fyrirtæki sem
framleiði leiknar kvikmyndir til
útflutnings og sölu á alþjóðleg-
um markaði þannig að það skili
arði. Til þess þurfi ákveðnar upp-
lýsingar og gögn og í því sé verið
að vinna. Búist má við að niður-
staða fáist í mars-apríl á næsta
ári.
Páll segir ekki tímabært að
svara því hvað fjórðungshlutur í
Kvikmyndasamsteypunni kosti.
Eigandi fyrirtækisins hafi sínar
hugmyndir um andvirði félagsins
og sjóðurinn einnig. „Og við eig-
um eftir að ná saman um þær
viðmiðanir. Það er hluti af þessu
samningsferli." - vj
Víkmga-
sveit færð
Forræði og rekstur sérsveitar lög-
reglunnar hefur verið fært til rík-
islögreglustjóra samkvæmt nýrri
reglugerð dómsmálaráðuneytis-
ins.
Samkvæmt lögreglulögum á að
starfrækja sérstaka sveit lög-
reglumanna til að takast á við
vopnuð lögreglustörf og öryggis-
mál þegar þörf krefur hvar sem
er á landinu. Sérsveitin eða vík-
ingasveitin eins og hún er gjarn-
an kölluð hefur til þessa heyrt
undir lögreglustjórann í Reykja-
vík en það breytist um áramótin.
' Gert er ráð fyrir að stjórnendur
sérsveitarinnar geti verið í fullu
starfi hjá ríkislögreglustjóra en
aðrir í sveitinni komi til starfa frá
öðrum lögregluliðum vegna
þjálfunar eða verkefna hverju
sinni, eins og segir í tilkynningu
frá ríkislögreglustjóra.
Þar segir einnig að markmið
breytinganna sé að auðvelda
framkvæmd viðfangsefna sem
eðli máls samkvæmt eða að-
stæðna kalli á miðstýringu eða
samhæfingu lögregluliða á
landsvísu og gera yfirstjórn sveit-
arinnar skýrari.
Áramótin nálgast með tilheyrandi áramótaflugeldum og áramótabrennum. Í gær voru menn að safna í brennu á
Ægissíðunni í Reykjavík og virtist ganga vel. Á myndinni er Viggó Jónsson starfsmaður borgarinnar að girða
brennusvæðið. Sjá einnig á bls. 3. mynd: pjetur
Gosið í Grímsvötnum nú er þegar
orðið lengra en gosið 1983.
Gosinu
að ljúka
Eldgosið í Grímsvötnum er mjög
í rénun þótt ekki sé því alveg
lokið. Samkvæmt upplýsingum
frá Veðurstofunni mældist lítill
sem enginn órói á gosstöðvun-
um í gær og þegar flogið var yfir
þær um miðjan dag var engan
gosmökk að sjá. Gosið hófst 18.
desember og hefur staðið rúma
ellefu daga en þegar síðast gaus
í Grímsvötnum 1983 stóð það
aðeins í tæpa viku. Almanna-
varnir ríkisins telja þó ástæðu til
að viðhalda 5 km nálgunar-
banni við eldstöðina og verður
því banni ekki aflétt enn sem
komið er.
mmmmmmmmmmmmmmmm
WORLDWIDE EXPRESS ~~~~ EITT NÚMER AÐ MUNA l| Toblerohe
5351100 !j! ‘íCátindur
cuid^j Liiiáuir
Venjulegirog
demantsskomir
trúlofunarhringar
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI ■ SÍMI 462 3524