Dagur - 29.12.1998, Page 2
2 - ÞRIDJUD AG V R 29. DESEMBER 1998
FRÉTTIR
Talsvert hefur borið á „lélegum" jólasveinum fyrir þessi jól og segir Ketill Larsen að margir virðist telja það nóg að setja mann í
búning tii að þeir verði jólasveinar.
Jólasveinar þurfa
líka að læra
Leiðinlegir jólasveinar virt-
ust óvenjulega áberandi fyr-
ir þessi jól svo jafnvel böm-
nmleiddist bullið.
Eftir óvenju dapra frammistöðu margra
jólasveina fyrir jólin - þar sem börn
hreinlega hröðuðu sér í burtu frá bull-
andi og hrútleiðinlegum sveinum, t.d. í
stórmörkuðum - vaknar óhjákvæmilega
sú spurning hvort hér vanti ekki orðið
jólasveinaskóla. „Jú, ætli það væri ekki
upplagt. Þetta er leiklist og fólk þarf að
læra hana. Það er ekki sama hvernig
þetta er gert“, sagði einn af okkar gam-
alreyndustu jólasveinum; Ketill Larsen,
sem sjálfur var 5 ár f leiklistarskóla.
Hann kannast Iíka við að heyra kvart-
að um lélega jólasveina. Að þeir geti
ekki sungið og gerðu flest óttalega illa.
Og að of margir virtust halda að það
væri nóg að setja mann í búning og þá
væri hann orðinn jólasveinn.
Ódýrt oft aðalatriðið
- Hefur kannski slaknað ú kröfunum
vegna meiri eftirspurnur?
„Nei, ég held að þetta sé eiginlega
óviljandi, að þetta hafi bara æxlast
svona. Að einhveijir skarfar hafi bara
tekið upp á því að gera út með hópa af
lélegum jólasveinum og komist upp með
það, þvf þeir hafa undirboðið svo mikið.
Þeim flnnst þetta allt í langi - og líka
þeir sem ráða þá. „Þú varst svo ódýr, að
þetta var allt í fína lagi“, segja þeir sem
finnst það aðalatriðið að jólasveinninn
sé ódýr“.
En þetta sé oft hæpinn sparnaður,
segir Ketill. Fæstir mundu til dæmis
kaupa úldið kjöt í jólamatinn, þótt það
fengist ódýrt. Eins sé með tónlistina.
„Það getur verið fín hljómsveit, eða þá
einn kátur og íjörugur harmóníkuleikari
sem getur sungið með lítilli stelpu, til að
halda uppi ljörinu á jólaballinu. En svo
er líka hægt að fá eitthvert rusl, ein-
hverja sem kunna hvorki að spila né
syngja. Það er ódýrara, en hins vegar
ósköp Iítið í það varið“.
Margir „gervijólasveinar“
Ketill hefur þó haft nóg að gera. „Ég
hef farið nánast á hverjum degi allan
desembermánuð. Reyndar hefur þetta
breyst heilmikið. Aður fyrr var minna
um jólasveina í heimahús og á litlujól,
en meira á jólaböllum. Núna hef ég far-
ið minna á jólaböll - því á böllin er kom-
ið svo mikið af „gervijólasveinum“, sem
ég kalla, þ.e. einhveijir sem eru bara
komnir f búning og eru svo bara eitt-
hvað að hoppa og vesinast í kringum
tréð, og kunna þetta ekki“.
Blekkja með ólátum
Halda menn kannski að bömin hafi ekki
vit á hver er góður eða ekkir1 ,/Etli það
ekki - og þeir hafa heldur ekki nógu
mikla dómgreind sjálfir". Almennt segir
Ketill ekki svo auðvelt að blekkja börn.
„En stundum er það samt hægt, ef
jólasveinninn lætur nógu illa. Börnum
finnst oft gaman að áflogum og vesini,
einhveijum sem er spinnigal og hoppar
upp um öll borð og jafnvel brýtur og
bramlar. Og þetta getur verið hlægilegt,
en það getur líka verið hættulegt; krakk-
arnir meiði sig jafnvel f öllum látunum".
- HEI
í pottinum var verið að rifja
upp sögur af þingmönnum
vexti þeirra og stærð. í þing-
flokki framsóknar eru tveir
menn sem ekki er hávaxnir
þeir íslólfur Gylfi og Ólafur
Öm. Guðni Ágústsson mun
hafa verið mcð þeim á fundi á
Suðurlandi fyrir nokkru og
kynnt þá fyrir fundarinönnuin
þannig að þetta væra drengir góðir en það
myndi hins ekki mikið gerast þótt þeir stæðu
upp af stólunum...
í pottinum ræða menn nú um
hvort Ástþór Magnússon hafi
ckki endanlega farið yfir strik-
ið í umræðuþætti í Ríkisút-
varpinu á sunnudag þegar
hami sakaði Halldór Ásgrims-
son um aó hafa komið akandi á
bíl sínuin drukkinn heim til
sín á aðfangadag, en ráðherr-
ann mun hafa verið að koma
úr hehnsókn í kirkjugarðinn. Þykir mönnum
ljóst að virðulegri útvarpsstöðvar muni í fram-
haldinu athuga sinn gang varðandi það hvort
Ástþóri verði hleypt i beinar útsendingar á ný...
Á Norðurlandi vestra lylgjast
mcnn spenntir með prófkjörs-
baráttunni lijá framsókn þar
sem þau takast á um annað
sæti listans þau Árni Gunnars-
son, Herdís Sæmundardóttir
og Elín Líndal. Eins og áður
hefur komið fram hætti Ámi
sem aðstoðarmaður Páls Pét-
urssonar þegar hann ákvað að
gefa kost á sér en það sem hafði
ekki komið fram í pottinum fyrr var að Ámi er
nú fluttur til Sauðárkróks þar sem hami býr og
rekur kosningabaráttu sína...
Árni Gunnars-
son.
Meiri bóksala fyrír þessi jól en í fyrra
Sigurikir
Svavarsson
formaðtir Félags bókaútgefenda
Bóksala virðisthafa verð
meðbesta móti fyrirjólin og
fleiri bækurseldust í stórum
upplögum en oftáður. Ungt
fólk virðist líkafarið að sækja
meira í bækur en áður.
- Voru þetta bókajól?
„Já, þetta voru bókajól. Þeir útgefendur
sem ég hef haft samband við láta allir vel af
sölunni. Það Iiggja engar tölur fyrir en það
er almennt tilfinning manna að bóksala hafi
aukist þegar á heildina er Iitið og hafi verið
meiri en fyrir jólin í fyrra. Það virðast líka
vera fleiri bækur að seljast í góðum upplög-
um heldur en til dæmis í fyrra. Það er meiri
dreifing."
- Gagnrýnendur töluðu margir um
óvenjumikið úrval afgóðum þýddum bók-
um fyrir þessi jól og svo var einnig úrval
af ævisögum eins og venjulega en hvers
konar bækur eru vinsælastar núna?
,/Evisögurnar voru færri en stundum
áður en það var mikið af góðum íslenskum
skáldskap. Það var góð hreyfing á barnabók-
um yfir heildina. Margar bækur almenns
eðlis, handbækur og fræðibækur, seldust
einnig vel. Það er alveg rétt að það kom út
mikið af góðum þýðingum úr heimsbók-
menntunum en salan á þeim var kannski
ekki eins góð og hún þyrfti að vera. Kannski
■vegna þessrað íslenski skáídskapurinn er
tekinn fram yfir. í allri umfjöllun fyrir jólin
er ósköp eðlilegt að það sem kemur erlend-
is frá sé Iátið mæta afgangi og dómar og
önnur umíjöllun birtist mjög seint. Það er
alla vega almennt tilfinning manna að er-
Iendi skáldskapurinn sé ekki að seljast eins
vel og hann á skilið.“
- Hver er helsta skýringin á þvt að bók-
sala er að aukast? Er verð á bókutn hag-
stæðara nú en áður?
„Verð á bókum er mjög hagstætt þegar
gengur á með þessum tilboðum. Oll um-
ræða um tilboðin og auglýsingarnar í tengsl-
um við þau hefur auðvitað jákvæð áhrif á
söluna. Svo fannst mér áberandi núna að
það er mjög mikið af ungum höfundum og
mjög mikil bókmenntaáhugi hjá fólki á aldr-
inum 18 til 25 ára. Það er það ánægjuleg-
asta um þessi jól. Þetta eru lesendur sem
eru okkur svo mikilvægir og kannski er þetta
vegna þess að það eru svo margir ungir
frambærilegir rithöfundar. Þeir voru mikið á
ferðinni, það voru margir upplestrar og
margir í tengslum við tónleika. Eg heyri það
máli en oft áður.“
- Það eru sem sagt engin merki þess að
vinsældir bókarinnar séu að dala eitis og
margofl hefur verið spáð?
„Alls ekki.“
- Minni bóksalar hafa gjaman borið sig
illa yfir verðstríðinu við stórmarkaðina.
Hvemig heldurðu að þeir hafi kotnið út úr
þessu núna?
„Ég held að það sé hægt að fullyrða Jrað
að aukningin í bóksölunni er fyrst og fremst
að skila sér til allra stærstu verslananna og
stórmarkaðanna. Ýmsir smærri bóksalar
bera dálítið skarðan hlut frá borði. Það er
reyndar ýmislegt sem hefur þar áhrif. Það
hefur til dæmis verið góð færð eiginlega all-
an desember og fólk hefur ef til vill verslað
meira í Reykjavík en oft áður.
Það er áhyggjuefnið í þessu að heilsárs-
bókaverslanir um allt land eru kannski ekki
að njóta nægilega góðs af þessari aukningu
sem virðist vera í bóksölunni. Þeir eru bóka-
útgáfu í landinu svo óhemjulega mildlvægir
því þeir eru þarna alltaf.“ — vj
i AiOl
.IIZZUH