Dagur - 29.12.1998, Blaðsíða 3
X^MT-
ÞRIÐJUDA GUR 29. DESEMBER 1998 - 3
FRÉTTIR
k. A
Generalprufa fyrir
aldamotaskotin
Á risaflugeldamarkaði Landsbjargar í Reykjavík. F.v. Oddur Eiríksson, Kristinn Örn Kristjánsson, Hafþór Helgi
Helgason og Víðir Reynisson. - mynd: pjetur
Flugeldasalar búa sig
undir að margir noti
nu gamlárskvöld til
æfinga fyrir alda-
mótaskotin.
Flugeldasala byrjaði af fullum
krafti í gær. Landsbjörg ásamt
nærri tug annarra björgunar- og
hjálparsamtaka hefur Ieyfi til
innflutnings flugelda að þessu
sinni. Mörg þeirra eru síðan með
fjölmarga sölustaði. Þannig eru
flugeldar Landsbjargar seldir á
40 stöðum um land allt.
Meira af risakukum
„Já, við bjuggum okkur undir
aukna flugeldasölu. Við eigum
von á að fólk kaupi núna vel og
mikið, m.a. til að búa sig undir
að sprengja virkilega vel um ár-
þúsundamótin, ákveða hvað það
eigi þá að nota til að fagna nýrri
öld,“ sagði Björn Ragnarsson hjá
Landsbjörg. Segir hann þennan
undirbúning m.a. felast í því að
skoða nýjar vörur í enn meira
mæli en venjulega. „Við bætum
t.d. úrvalið af „risakökum". I
fyrra var eiginlega fyrsta alvöru-
söluárið á þessum risakökum og
við bætum nú enn við úrvalið af
þeim. Við aukum líka úrvalið í
flestu öðru; bjóðum t.d. nýja
millistærð af kökum og nýjar teg-
undir af rakettum.“
Pakkinn 1.500 tU 6.800
krónur
Megnið af flugeldunum segir
Björn koma frá Kína. Verðið sé
mjög sambærilegt og í fyrra.
Fjölskyldupakkarnir kosti frá
1.500 krónum og upp í 6.800
krónur. Spurður hvort slæm veð-
urspá geti ekki haft áhrif á söl-
una svaraði Björn að bragði: „Við
erum bjartsýnir á veðrið - erum
búnir að semja við veðurguðina.
Jú, auðvitað getur veðrið haft
einhver áhrif, en við horfum
bara á björtu hliðarnar."
Miklar öryggiskröfur
Aætlanir um sölutölur segir
Björn ekki gefnar upp, fremur en
sölu undanfarinna ára. „Margir
halda að þetta sé einhver voða-
lega auðveld vinna og mikið út
úr þessu að hafa. En það eru
heilmildar kröfur gerðar á öllum
sviðum, m.a. um eldvarnir, sölu-
staði og lagerhúsnæði og einnig
miklar kröfur varðandi merking-
ar á vörum. Hefðum við ekki
allt þetta hjálparsveitarfólk í okk-
ar röðum, sem er tilbúið að
vinna sjálfboðavinnu í kringum
þetta þá væri þetta hreint ekki
eins góð tekjulind,11 sagði Björn
Ragnarsson. — HEI
Frá blaðamannafundi verkefnisstjórn-
ar um barnaslys. Sólveig Guðmunds-
dóttir, Ólafur GísliJónsson læknir,
formaður ráðsins, og Herdís Stor-
gaard, framkvæmdastjóri ráðsins.
- mynd: pjetur
Mjög mörg
bamaslys
Hér á landi slasast mun fleiri
börn en í nágrannalöndum okk-
ar, en orsakirnar eru óljósar.
Skráningu slysa hefur að sumu
leyti verið ábótavant, en áætlað
er þó að allt að 22 þúsund börn
lendi í slysum á ári hverju þann-
ig að ástæða sé til þess að leita á
sjúkrahús. Kostnaður skiptir
tugum milljóna króna árlega, en
er þó stórlega vanmetinn.
Þetta kom fram á blaða-
mannafundi í gær þegar kynnt
var verkefnisstjórn sem stofnað
hefur verið til á vegum heil-
brigðis- og tryggingaráðherra,
sem ætlað er að vinna að ýmis-
konar slysavörnum barna
Verkefnisstjórnin hefur ráðið
Herdísi Storgaard sem fram-
kvæmdastjóra sinn og tók hún
til starfa um síðustu mánaða-
mót. Áður hefur hún starfað um
margra ára skeið að sambærileg-
um verkefnum hjá SVFI. Verður
hún með skrifstofu á Heilsu-
verndarstöðinni í Reykjavík
þangað sem til hennar verður
hægt að Ieita með ýmis erindi
þessu viðvíkjandi. — SBS
Vasapelafyllerí á
dansleik í Olafsfiröi
Töluverðir pústrar á
„sveitaballi“ í Ólafs-
firði.
Fjörugu balli í félagsheimilinu
Tjarnarborg á annan dag jóla
lauk með töluverðum pústrum
og þurfti lögreglan að skakka
leikinn og fengu þeir órólegustu
að gista fangageymslurnar með-
an mesti stríðshamurinn rann af
þeim. Guðný Ágústsdóttir er
húsvörður í Tjarnarborg en fé-
lagsheimilið er rekið af Iþróttafé-
laginu Leiftri. Guðný segir að
dansleikurinn hafi verið fjTÍr 16
ára og eldri og því ekki vínveit-
ingar. Gestirnir hafi því komið
„nestaðir" og því verið mikið fyll-
erí í Tjarnarborg.
- Var utn átök að ræða milli
Ólafsfirðinga og Dalvihinga eins
og stundum fyrr á árum, eða milli
Lerida og kartaflna eins og
heimamenn kalla það, en Dalvtk-
ingar kalla Ólafsfirðinga Lerida
en Ólafsfirðingar Dalvikinga
kartöflur?
„Nei, nei, en þarna voru ein-
hverjir gaurar sem voru mjög
„tens“ enda þarf lítið til þegar
fólk er orðið svona ofurölvi. Það
er engin nýlunda þegar ekki er
vínveitingaleyfi, þetta var heil-
mikið vasapelafyllerí og ekta
sveitaballastemmning. Ballið á
annan í jólum er hins vegar orð-
ið eina ballið á árinu sem er fyr-
ir 16 ára aldurinn. Þarna rann
hins vegar ekkert blóð þó ein-
hver hópur æsingamanna fengi á
kjaftinn en lögreglan fjarlægði
þá æstustu áður en allt yrði vit-
laust. Það kom mér hins vegar á
óvart hversu margir komu frá
Dalvík og Akureyri vegna þess að
veðrið var búið að vera fremur
leiðinlegt,“ segir Guðný Ágústs-
dóttir.
I kvöld er í Tjarnarborg herra-
kvöld Leifturs, sem „Veðdeild
Blíðfara" stendur fyrir, en það fé-
lag er einn styrktaraðili Leifturs.
Ekki er búist við miklu fylleríi
þar vegna þess að það er
skemmtun með vínveitingaleyfi
og lágmarksaldur gesta 18 ár.
- GG
Neytendakömum ekki birt
Neytendasamtökin hafa ákveðið
rað birta ekki niðurstöður úr
verðkönnun á bökunarvörum
sem fram fór á höfuðborgar-
■ svæðinu, Vestfjörðum og Eyja-
firði í byrjun desember. Jóhann-
es Gunnarsson, formaður Neyt-
endasamtakanna, segir að helstu
ástæður þessa séu af fleiri en
einum toga. Úrtakið hafi verið
fullknappt, eða aðeins bökunar-
vörur á tilboði, en að auki hafi
töluvert ósamræmi verið milli
verðmerkinga í hillum og á
kassa.
„Ég er búinn að gera sam-
komulag við verslanir um breytt
vinnubrögð í framtíðinni hvað
varðar verðkannanir. Ég var ekki
ánægður með vinnubrögðin
núna. Ymsar leiðréttingar þurfti
að gera eftir á, kassaverð og
hilluverð passaði ekki saman og
ég hef í kjölfarið tilkynnt búðar-
keðjum að í framtíðinni fari fólk
með lista frá mér, tíni ofan í
körfurnar en kassaverðið muni
gilda. Ég hef á tilfinningunni að
verðmunurinn sé í báðar áttir, en
fólk er frqkpr qnipjað yið, k^sspnn
og þess vegna tel ég eðlilegt að
kassaverðið gildi einnig í verð-
könnun," segir Jóhannes.
Heilt )fir telur Jóhannes að
ekki hafi verið unnið til einskis
því ágæt heildarmynd hafi feng-
ist af markaðnum þótt niður-
stöðurnar verði ekki birtar. Jó-
hannes segir kostnað við gerð
svona könnunar lítinn og ákveð-
inn lærdómur verði dreginn af
því sem gerðist. — BÞ
itíjéi 'V' SRÍÍ *’ 1 i'i'Tihá. i i:
Kaupa í Rekstrarfélaginu og Regiu
Gengið nefur verið frá lánasamningi milli Landsbankalslands og ís-
lenskra aðalverktaka og dótturf\TÍrtækja þess að fjárhæð allt að tveimur
milljörðum króna. Nýlega var gengið frá samningi um kaup íslenskra
aðalverktaka á 80% hlut í Rekstrarfélaginu og Regin. Lánafyrirgreiðsl-
an er bæði til fjármögnunar þeirra kaupa og einnig til frekari viðskipta
á fasteignamarkaði. Rekstrarfélagið og Reginn voru í eigu Hamla sem
mun áfram eiga 20% hlut. Stefnt er að þvf að stórefla starfsemi Rekstr-
arfélagsins, sem nú ber nafnið Landsafl, á sviði fjármögnunar, eignar og
reksturs fasteigna og skrá það á Verðbréfaþingi Islands.
Ölfushreppur vill heita Ölfus
Örnefnanefnd hefur hafnað ósk sveitarstjórnar Ölfushrepps um að
sveitarfélagið fái að heita Ölfus og ríkir mikil óánægja með ákvörðun
nefndarinnar. Sveitarstjórnin vill losna við viðskeytið -hreppur þar sem
það standi almennt fyrir eitthvað sem sé bæði lítið og smátt í sniðum og
fæli fólk m.a. frá búsetu og við það vilji íbúarnir ekki una. í undirbún-
ingi er að senda félagsmálaráðherra sams konar beiðni.
Viudur úr stigum í metra
Veðurstofa íslands hefur ákveðið að í marsmánuði á næsta ári verði far-
ið að segja frá vindstyrk í metrum á sekúndu í stað vindstiga. Þetta er
gert til samræmingar við aðrar veðurstofur á Norðurlöndum. I flestum
veðurmælingastöðvum Veðurstofunnar eru mælar sem mæla hraða-
aukningu í vindi í metrum og jafnframt augnabliksvindhviður. í gær
klukkan 18.00 var vindhraðinn á Akureyri 7 hnútar eða 3,4 metrar á
sekúndu, sem er gola.
Ásdís Halla hættir
Ásdís Halla Bragadóttir hefur látið af störfum sem að-
stoðarmaður Björn Bjarnasonar menntamálaráðherra
og tekur Jónmundur Guðmarsson við því starfi en
hann hefur unnið að verkefnastjórn innan ráðuneytis-
ins við endurskoðun á námskrám gunn- og framhalds-
skóla. Ásdís Halla fer í barnseignarleyfi en síðan í
framhaldsnám til Bandaríkjanna. Hún er formaður
Sambands ungra sjálfstæðismanna en engar breyting- .
a,r erp fvrjrhugaðariþar ínVsinni. raga ottir.
Ásdís Halla