Dagur - 29.12.1998, Qupperneq 4
4- ÞRIDJUDAGUR 29. D F, S E M B E R 1998
FRÉTTIR
Xk^MT'
Ekki alvarleg óhöpp
Jólahátíðin var að mestu tíðindautil fyrir lögreglumenn á höfuðborgar-
svæðinu. Utköll fremur fá eins og gjarnan á þessum árstíma en verk-
efni mörg hver þó erfið viðfangs. Um helgina var Iögreglu tilkynnt um
43 umferðaróhöpp en ekki er vitað um alvarleg slys á fólki.
Bifreið var ekið á ljósastaur á Holtavegi við Sæbraut að morgni að-
fangadags. Okumaður kenndi til í hálsi og brjósti og var fluttur á slysa-
deild.
Lögreglu barst tilkynning um miðjan dag á aðfangadag að bifreið
hefði verið ekið út af Hafravatnsvegi. Er lögregla kom á staðinn kom í
ljós að ökumaður sem grunaður er um ölvun við akstur hafði misst
stjórn á bifreiðinni með fyrrgreindum afleiðingum.
Þá var bílvelta á Hringbraut við Landspítalann að kvöldi Iaugardags.
Engin slys urðu á fólki.
Bruni í Rauðagerði
Að morgni laugardags var Iögreglu
tilkynnt um Iausan eld í bílskúr í
Rauðagerði. Er lögreglan kom á
staðinn var mikill eldur í skúrnum
og hafði eldurinn Iæst sig í bifreið
sem stóð þar fyrir utan. Slökkvilið
kom á staðinn og náði að slökkva
eldinn en auk framangreinds voru
skemmdir á íbúarhúsi við skúrinn.
Vökul augu Iögreglu á vettvangi urðu síðan til þess að lagt var hald á
um 4 kíló af ætluðum kannabisefnum og var einn húsráðanda hand-
tekinn vegna málsins. Kemur það til viðbótar miklu magni slíkra efna
sem haldlagt hefur verið á síðustu dögum.
Þá var lögregla og slökkvilið kallað að fjölbýlishúsi í austurborginni
vegna reyks. I ljós kom að kveikt hafði verið í rusli í anddyri hússins.
Dyravörður á slysadeild
Talsvert fjölmenni sótti skemmtistaði í borginni eftir opnun þeirra að
kvöldi laugardags. Að mestu gekk það skemmtanahald ágætlega fyrir
sig þótt alltaf sé eitthvað um samskiptaerfiðleika milli gesta. Einn dyra-
vörður varð að leita aðstoðar á slysadeild eftir að hafa slasast í átökum
við gest.
Þá var karlmaður stöðvaður af dyravörðum eins skemmtistaðar er
hann var á leið út af staðnum með fangið fullt af fötum og handtösku.
Hann var handtekinn og fluttur á lögreglustöð.
Reyndar urðu Iögreglumenn að hafa afskipti af tveimur veitingastöð-
um sem höfðu opið aðfaranótt laugardags sem ekki er heimilt sam-
kvæmt lögum um helgidagafrið.
15 innbrot
Um helgina var tilkynnt um 15 innbrot á heimili, ökutæki og fyrirtæki.
I einu þeirra var brotin rúða í sýningarglugga í verslun á Laugavegi og
þaðan stolið nokkrum verðmætum.
Markaðsviröiö 600 milliarðar
Markaðsvirði allra skráðra verðbréfa á Verobréfaþingi íslands fór yfir
600 milljarða króna í nóvember þegar hlutabréf í Fjárfestingarbankan-
um voru skráð á þinginu. Þar með var markaðsvirði bréfa á þinginu
orðið meira en áætluð landsframleiðsla á þessu ári, sem er samkvæmt
spám Þjóðhagsstofnunar um 581 milljarður.
Samkvæmt fréttabréfi Verðbréfaþingsins jókst heildarmarkaðsvirðið
um 149 milljarða frá síðustu áramótum. Nýskráning skulda- og hluta-
bréfa vó þar þyngst en einnig hækkaði verð skuldabréfa vegna lækkandi
markaðsvaxta að því er fram kemur í fréttabréfinu. Verð hlutabréfa hef-
ur hins vegar hækkað óverulega á árinu.
var til
Leitum
Kristján sigraöi í leikritasamkeppni
Kristján Þórður Hramsson sigraði í leikritasamkeppni sem efnt v
þegar Iðnó opnaði á nýjan Ieik síðastliðið vor með verki sínu
að ungri stúlku".
I öðru sæti var leikrit Hallgrims Helgasonar „Þúsund eyja sósu,“ og í
því þriðja „Sameiginlegur vinur," eftir Bjarna Bjamason.
Mjög góð þátttaka var í samkeppninni og bárust alls 56 leikrit eftir
42 höfunda.
Urslit voru kynnt á hátíðarsýningu á Rommí í Iðnó í gærkvöld.
Verðlaunaverkin þtjú verða öll sýnd í Hádegisleikhúsi Iðnó, sem
hleypt verður af stokkunum innan skamms.
Á annan tug húsa undir
„Það er á annan tug núsa undir í leit okkar að húsnæði fyrir nýja Nettó-
verslun á Reykjavíkursvæðinu. Hinsvegar er mjög lítið framboð af eign-
um sem em í raun og veru áhugaverðar fyrir okkur,“ segir Sigmundur
E. Ofeigsson, forstöðumaður verslunarsviðs KEA, í samtali við Dag.
Hann segir húseignir þessar vera víðsvegar um höfuðborgarsvæðið, en
sem kunnugt er urðu KEA menn að gefa spilin uppá nýtt í húsnæðis-
málum sínum í borginni þegar hafnarstjóm Reykjavíkur hafnaði að fé-
lagið setti á fót verslun við Geirsgötu, þar sem fiskverkun Jóns As-
björnssonar er nú til húsa. — SBS
Nú er sótt að þingmanninum Ólafi Erni Haraldssyni.
Legg verk mín í
dom kjósenda
Ólafur Öm Haraldsson
alþingismaður segir
það ekki koma sér á
óvart að Alfreð Þor-
steinsson ætli að taka
þátt í prófkjörinu.
Sú ákvörðun Alfreðs Þorsteins-
sonar að gefa kost á sér í prófkjöri
framsóknarmanna í Reykjavík,
vegna alþingiskosninganna, og
sækjast eftir 2. sæti listans, hefur
valdið fjaðrafoki hjá sumum fram-
sóknarmönnum í borginni. En
hvað segir Olafur Orn Haraldsson
alþingismaður sem skipaði þetta
sæti síðast og sækist eftir því
áfram’?
„Það er eðlilegur og lýðræðis-
Iegur réttur hvers og eins að bjóða
sig fram til þessara starfa. Eg get
nú ekki sagt að fréttin í Degi hafi
komið mér á óvart því farið var að
orða þennan möguleika í fjölmiðl-
um strax í haust. En varðandi
prófkjörið og þá keppni sem þar
er komin upp lít ég óhræddur til
minna eigin starfa. Ég tel mig
hafa verið í góðu sambandi við
kjósendur flokksins í Reykjavík.
Ég hef til að mynda boðað þá til
margra hádegisfunda um hin ólík-
ustu efni á kjörtímabilinu og
sinnt fjölmörgum málefnum sem
hafa verið brýn fyrir Reykvíkinga.
Ég mun því láta verkin tala,“ sagði
Ólafur Órn.
Hann bendir á að hver sá sem
býður sig fram til starfa í stjórn-
málum eigi ekki neitt ákveðið
sæti. Það sé fólkið sem ákveður
hvort menn sitja eða falla, því
stjórnmálamenn eru fyrst og
fremst fulltrúar fólksins sem kýs
þá. Hann segist áfram sækjast eft-
ir því við framsóknarmenn í
Reykjavík að þeir kjósi sig til
starfa. Og varðandi starfið í
Reykjavík skipti það miklu máli að
samstarf þeirra Finns Ingólfsson-
ar hafi verið mjög gott.
„Þá skiptir það Iíka máli í þessu
sambandi að Finnur hefur lýst
yfir eindregnum stuðningi við mig
í prófkjörinu,“ sagði Ólafur Örn
Haraldsson.
Þrjár konur
I gær lýsti Arnþrúður Karlsdóttir
því formlega yfir að hún hygðist
sækjast eftir einu af efstu þremur
sætunum á listanum. Arnþrúður
var í þriðja sæti síðast og kvaðst í
samtali við Dag vera sátt við það
hlutskipti. Um helgina gaf Jónína
Bjartmarz, lögfræðingur og for-
maður Samtakanna Heimilis og
skóla, út yfirlýsingu um að hún
gæfi kost á sér í prófkjörið. Auk
þeirra tveggja hefur Vigdís Hauks-
dóttir fyrir allnokkru gefið kost á
sér í þriðja sætið. Reglur flokksins
um kynjakvóta samkvæmt jafn-
réttisáætlun Framsóknarflokksins
gera það að verkum að í tveimur
af íjórum efstu sætum eiga að
vera konur.
Prófkjör framsóknarmanna í
Reykjavík fer fram um miðjan jan-
úar. - s.DÓR
Halda bara 4 krónuin af
yfirvinnu-tíkaHmiun
Barnabætur eru nú allar tekjutengdar og byrja að
skerðast við mjög lágar tekjur, eða um 95.000
krónur hjá hjónum.
Bamafólk getur orðið
fast í láglaimagildru
því mögulegt yfir-
vúiniLkaup rýmar um
60% áður en það
kemst í budduua.
„Það er fögur hugsjón sem liggur
að baki tekjutengingum í skatt-
kerfinu. Sá vandi fylgir hins vegar
tekjutengingum að þær eru svo
mildar og hefjast við svo lágar tekj-
ur að það getur reynst erfitt að
auka tekjurnar," segir Edda Rós
Karlsdóttir, hagfræðingur ASI.
Orðum sínum til skýringar tekur
tekur hún dæmi af hjónum með 2
böm og húsnæðislán á „framfæri".
Hjón með 2 böm með til dæmis
160 þús. króna og 260 þús. kr.
mánaðartekjur auka ráðstöfunar-
tekjur sínar einungis um 4.100
krónur við hveijar 10.000 krónur
sem þeim tekst að afla sér t.d. með
aukavinnu. Hins vegar mundu
hjón með 360-460 þús. kr. tekjur
halda eftir 5.600 krónum af hvetj-
um 10.000 krónum.
Oft lítið eftir
ÖIl þessi hjón sjá á
eftir um 4.500 krón-
um af hverjum
10.000 í skattinn,
lífeyrissjóðinn og
stéttarfélagið. En
þar til viðbótar
missa „lágtekjufor-
eldrarnir" um 1.500
krónur vegna lækk-
unar á bamabótum
og vaxtabótum, fyrir
hverjar 10.000 kr.
sem þeim tekst að
vinna sér inn til við-
bótar. Þyrftu þau
þar á ofan að kaupa
barnagæslu til að
geta stundað auka-
vinnuna gæti af-
gangurinn af 10.000-kallinum
orðið hreint ótrúlega lítill. Þar við
bætist að skerðing barna- og vaxta-
bótanna verður ekki fyrr en ári síð-
ar, þar sem þær miðast jafnan við
tekjur ársins á undan. Þannig að
minnki aukavinnan aftur á næsta
ári eru það ekki bara tekjurnar sem
Iækka heldur bætumar líka.
Fleiri böm = ineiri skerðing
Barnabætur eru nú allar tekju-
tengdar og bytja að skerðast við
mjög Iágar tekjur, eða um 95.000
krónur hjá hjónum (47.500 hjá
einstæðu foreldri). Fyrir hveijar
1.000 krónur sem fólk vinnur sér
inn til viðbótar þessum launum
skerðast barnabætur; um 50 kr.
vegna eins barns, um 90 kr. vegna
tveggja bama og um 110 krónur
séu börnin þijú eða fleiri. - HEl