Dagur - 29.12.1998, Page 7
X
X^MT_
ÞJOÐMAL
8w t HaáÍMi’j?.an ,«.s f_B
ÞSIDJUDAGUR 29. DESEMBER 1998 - 7
Öldinokkar
IJALLPÓR
ASGRIMS-
SON
UTANRÍKISRÁÐHERRA
SKRIFAR
Af tuttugustu öldinni lifir aðeins
eitt ár, en um næstu áramót mun
heimsbyggðin gervöll fagna nýju
árþúsundi.
Þetta hefur verið öld stórstíg-
ustu framfara mannkynssögunnar
og hún hefur verið okkur Islend-
ingum mjög happasæl í flestu til-
liti. Framfarir og velsæld hér á
Iandi hafa verið með ólíkindum
og velmegun hefur lengi verið
mikil og aldrei meiri en síðustu ár.
Ekki hefur þó öldin verið öllu
mannkyni til blessunar. Víst er að
ýmis skilyrði eru til staðar til að
láta aldagamlan draum um mann-
sæmandi líf til handa öllum jarð-
arbúum rætast, þó íjarlægt sé að
sá draumur verði að veruleika.
Velmegun og skyldur
Ennþá hefur ekki tekist að koma
á þeim vinnubrögðum, hvorki við
stjórn einstakra landa né heims-
ins alls, að sá draumur rætist.
Mörgu er um að kenna, ekki síst
vanþroska þeirra sem betur mega
sín. Þó aldrei verði hægt að hafa
heilar þjóðir og lönd á framfæri
alþjóðasamfélagsins, þá hvílir sú
skylda á velmegandi þjóðum að
hjálpa því fólki til sjálfsbjargar,
sem hefur setið eftir.
Þessi skylda verður æ ríkari eft-
ir því sem velmegun eykst hjá þró-
uðum ríkjum og neyðin verður
sárari hjá öðrum. Sálarheill
heimsins er í húfi.
Islendingar hafa Iagt sín Ióð á
vogarskálarnar með öflugri þró-
unarhjálp, og hún hefur raunar
verið töluvert aukin á þessu kjör-
tímabili. Sömuleiðis sýnir al-
menningur hug sinn aftur og aft-
ur í verki, þegar eftir er leitað, við
að styðja ýmis félagasamtök til
dáða á landsvæðum sem hörm-
ungar hafa duniðNjjfir.
Vargöld líka
Oldin sem bráðum kveður á fáar
Iíkar í hörmungum, ófriði, kúgun
og misrétti. Tvær heimsstyijaldir
skóku undirstöður alls mánnlífs
og menningar jarðarinnar og ymis
voðaverk voru unnin í skugga vit-
firringarinnar.
Hroðaleg grimmdarverk voru
meira að segja unnin fyrir aðeins
fáum árum, þegar hundruð þús-
unda manna voru myrt í Rúanda.
Það var mikill álitshnekkir fyrir
alþjóðasamfélagið, að ekki skyldi
takast að koma í veg fyrir blóð-
baðið, sem fór fram nánast fyrir
opnum tjöldum. Ofriður og stað-
bundin átök virðast aldrei ætla að
taka enda, og grimmdin í fyrrver-
andi ríkjum Júgóslavíu, Irak og
víðar er þyngri en tárum taki.
Hálfgalna harðstjóra sem kúga
heilar þjóðir og ræna almenningi
öllum möguleikum til mannsæm-
andi lífs er að finna allt of víða.
Sumir þeirra stofna öryggi stórra
landsvæða og jafnvel heilla
heimshluta í voða.
öld mengimar
Aukinni velmegun hefur fylgt
mengun, sem stofnar möguleik-
um komandi kynslóða heims í
hættu og er með öllu óumflýjan-
legt að bregðast við.
„Menntun þjóðarinnar hefur orðið almenn og er jafngóð því besta sem gerist með öðrum þjóðum, enda eru framfarirnar ekki síst aukinni og betri
menntun að þakka. Mannauðurinn er tvímælalaust ein mikilvægasta auðlind okkar," segir Halldór Ásgrímsson í grein sinni.
Margar þjóðir hafa safnað gríð-
arlegum auði með hamslausri
ágengni við eigin náttúru og ann-
arra og hafa ekki hikað við notkun
mengandi efna í Iífsgæðasókn
sinni. Þessi ríki þurfa fremur en
önnur, að taka sér tak í þessuin
efnum. Lán okkar íslendinga er
mikið, að eiga hreinar og endur-
nýjanlegar orkulindir til að knýja
orkuver okkar og kynda híbýli.
Það verður að telja heiminum
happ að nokkur lönd, þ.á m. ís-
land, geta boðið fram hreina orku
til starfsemi sem myndi valda
mikilli mengun, ef aðrir lakari
orkugjafar væru notaðir.
Hvorttveggja er að íslensk orka
losar Iandsmenn við mengun að
mestu og síðan hitt að öllum ber
saman um að það sé hagstætt fyr-
ir heimsbyggðina alla að nauðsyn-
leg iðnaðarframleiðsla noti hreina
og endurnýjanlega orkugjafa alls-
staðar sem því verður við komið.
Eiturlyf og glæpir
Glæpir og ógn eiturlyfja virða
engin landamæri og við því al-
þjóðlega vandamáli duga aðeins
alþjóðlegar lausnir. Seinni hluta
aldarinnar hafa afbrot og eitur-
lyfjaneysla farið hraðvaxandi og er
hún orðin mikið böl víða um
heim. Ekki hefur Island sloppið
óskaddað frá þessari þróun, þó
víða sé ástand mun verra en hér.
Ríkisstjórnin hefur beitt sér fyr-
ir ýmsum aðgerðum bæði á sviði
forvarna og löggæslu á þessu kjör-
tímabili og má í því sambandi
nefna lofsvert framtak heilbrigðis-
ráðherra, sem stofnaði til sam-
starfsverkefnis sveitarfélaga, SÁÁ
og ráðuneytisins um forvarnir.
Uppljóstranir síðustu daga um
stórkostlegt eiturlyfjasmygl sýnir
ljóslega hvaða þýðingu öflugt eft-
irlit hefur. Ljóst er að betur verð-
ur að gera á næstu árum því harka
iilmennanna, sem selja eitrið,
verður sífellt meiri.
Auðltndir og framfarir
Öldin hefur verið gjafmild okkur
íslendingum, en strax um alda-
mótin síðustu vænkaðist hagur
okkar, einkum með breyttri tækni,
fyrst vélbátum og sfðar miklum
framförum í fiskvinnslu og í land-
búnaði.
Flestallar framfarir aldarinnar
má rekja til bættra möguleika
landsmanna til að nýta auðlindir
sínar bæði í sjó og á landi. Einnig
orku í fallvötnum og jarðvarma.
Með skynsamlegri nýtingu
auðlinda okkar getum við átt far-
sælt líf í Iandinu um Ianga fram-
tíð. Slíkt er því aðeins mögulegt
að umgengni við auðlindir og
náttúru sé ætíð með varfærni og
virðingu, og meiri sátt þarf að
nást milli sjónarmiða þeirra sem
deila í þessum málum.
Enginn vafi leikur á að slíkri
sátt má ná, ef tvö grundvallar-
atriði eru virt. Annars vegar
hljóta landsmenn að nýta auð-
Iindir sínar til að hægt sé að lifa
hér mannsæmandi lífi og tryggja
komandi kynslóðum lífskjör, sem
duga til að halda uppi menntua,
velmegun og velferð í Iandinu. Á
hinn bóginn þarf að taka tillit til
náttúruverndarsjónarmiða, virð-
ingar og tilfinninga landsmanna
gagnvart landinu sjálfu.
Hvorugan málstaðinn má reka
af ósanngirni og stífni, enda aug-
Ijóst að sátt hlýtur að fela í sér að
hvorugur aðili máls nær að knýja
ýtrustu sjónarmið sín fram.
Gjöfular auðlindir hafsins
Stjórnunarkerfi fiskveiða, sem
verið hefur við lýði hér á landi á
undanförnum árum hefur vakið
verðskuldaða athygli erlendis hjá
þeim, sem komnir eru í vandræði
vegna rányrkju á eigin fiskimið-
um. Margir vilja hafa þetta kerfi
til fyrirmyndar við lausn sinna
mála. Fáir mæla því gegn, að
reynsla okkar af stjórn fiskveiða
hefur breytt afkomu sjávarútvegs
til hins betra og hin öfluga staða
hans er forsendan undir stórbætt-
um hag landsmanna. Kerfið hefur
hins vegar verið nokkuð umdeilt
hér á landi alla tíð, eða a.m.k. ein-
stakir þættir þess, enda er um að
ræða sjálfan grundvöll efnahags-
mála þjóðarinnar.
Nýlega féll í Hæstarétti dómur,
sem gerir það að verkum að rétt
er að taka fiskveiðistjórnunarlög-
in til endurskoðunar. Það hefur
alltaf verið ljóst að þessi lög þurfa
stöðugt að vera í endurskoðun.
Nokkrar lagfæringar verður að
gera fljótt, en tíma verða menn að
taka sér til frekari breytinga. Mik-
ið er í húfi. Nauðsynlegt er að
hafa í huga að nánast allt efna-
hagslif landsins hvílir á skynsam-
legri stjórn fiskveiða. Breytingar
verður að gera þannig að tryggt sé
að ekki valdi efnahagslegu hruni,
gríðarlegri byggðaröskun og at-
vinnuleysi, um Ieið og allar breyt-
ingar verða að vera í samræmi við
stjórnarskrá landsins og réttlætis-
kennd almennings.
Vonir eru bundnar við störf
auðlindanefndar, sem Alþingi
skipaði fyrir nokkru, og er von-
andi að tillögur hennar stuðli að
sátt í samfélaginu um þessi mikil-
vægu mál.
Ekki má heldur gleyma því að
þegar kvótakerfið var tekið upp
blasti við mikill vandi í sjávarút-
vegi og fiskvinnslu og er fróðlegt
að skoða blaðafréttir af afkomu
sjávarútvegs frá þeim tíma. Orðin
gjaldþrot og hrun voru í annarri
hvorri línu. Það ber að ganga
fram af varfærni í þessu máli og
varast óábyrgan málflutning
manna sem hafa allt á hornum
sér, en engar raunhæfar lausnir.
Bjartsýni ríldr
Þegar allt er skoðað er þessi öld
ein samfelld framfaraganga ís-
lensku þjóðarinnar, þar sem nán-
ast allt hefur breyst til hins betra,
þegar á heildina er litið.
Menntun þjóðarinnar hefur
orðið almenn og er jafngóð því
besta sem gerist með öðrum þjóð-
um, enda eru framfarirnar ekki
síst aukinni og betri menntun að
þakka. Mannauðurinn er tví-
mælalaust ein mikilvægasta auð-
lind okkar.
Heilsugæsla hefur gjörbreyst og
tekist hefur að útrýma helstu vá-
gestum sem áður voru landlægir.
Velferð og samhjálp gerist óvíða
betri, og nú hefur tekist að treysta
grunninn undir því kerfi, sem
landsmenn geta treyst á til fram-
búðar.
Menningar- og listalíf hefur
verið blómlegt og margir af lista-
mönnum okkar hafa vakið heims-
athygli.
En mestu skiptir að þjóðin er í
Iok aldarinnar full af bjartsýni,
þreki og trú á sjálfa sig og framtíð
sína í Iandinu.
Eg óska landsmönnum öllum
árs og friðar og velfarnaðar á nýju
ári.
Þeim sem hafa lent í and-
streymi og sorg óska ég bjartari
daga.