Dagur - 29.12.1998, Side 11
ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1998 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Það eru daprír dagar hjá forystuliði demókrata í Washington, Gore varaforseti, Clinton, Gephardt flokksleiðtogi í
fulltrúadeildinni og frú Hillary eru súr á svip eftir að hafa hlustað á úrskurð fulltrúadeildarinnar um ákæru á hend-
ur forsetanum. En repúblikanar bíða einnig hvern ósigurinn á fætur öðrum í því hatramma stríði sem nú fer fram
í Washington.
Höfuóborg í
vígáham
sett. Þar ríkir góðæri sem aldrei
fyrr, atvinnuleysi er hverfandi, al-
máttugur dollarinn stendur vel og
hlutabréfamarkaðurinn blómstr-
ar. Forsetinn nýtur alls þessa,
enda eru hann og fylgismenn dug-
legir að þakka sér árgæskuna og
þá velmegun sem henni fylgir.
Þjóðin er því ánægð með sinn
glæsilega og valdamikla forseta og
reiðubúin að fyrirgefa honum
smávægilegar yfirsjónir og þykir
hart að honum vegið að ósekju.
Þetta kom greinilega fram í þing-
kosningunum sem fram fóru í
haust þar sem demókratar juku
fylgi sitt á kostnað repúblikana,
sem eftir sem áður halda meiri-
hluta sínum í báðum deildum
þingsins. Litið var á þau úrslit
sem greinilegan stuðning við for-
setann. Skoðanakannanir hafa
einnig bent í þá átt, þar sem al-
menningur álítur að framhjáhald
þjóðhöfðingja sem annarra sé
einkamál, sem öðrum koma ekki
við. Það ætlar seint að síast inn í
höfuðin á Ameríkönum, sem
mörgum öðrum, að Clinton er
ekki ásakaður um ástarævintýri
sín og hjúskaparbrot, heldur fyrir
að hafa skrökvað fyrir dómstólum
og að þjóð sinni. Mætti í því sam-
bandi minnast þess, að á sínum
tíma var Nixon aldrei kærður fyrir
að bijótast inn í Watergatebygg-
inguna, heldur fyrir að hafa
skrökvað til um vitneskju sína eft-
ir að innbrotið komst í hámæli.
Hann sagði af sér áður en full-
trúadeildin fékk færi á að ákæra
hann. Fjöldi starfsmanna hans
hlutu þunga dóma, þar á meðal
sjálfur dómsmálaráðherrann.
Repúblikönum sámar að Clint-
on virðist ætla að komast upp með
það, sem þeirra forseti var for-
dæmdur og smánaður fyrir. En
kjósendur og almenningsálitið er
hliðhollt hórkarlinum og eigin-
kona hans lætur vel að honum á
almannafæri og brosir breiðar en
nokkru sinni fyrr.
Stríðið í Washington heldur
áfram, þar sem áhrifamestu menn
Bandaríkjanna eigast við og skaða
hvorir aðra hver sem betur getur.
Eru þeir á góðri leið með að rústa
veldi höfuðborgarinnar samtímis
því að veldi Bandaríkjanna og
hugmyndafræði auðvaldsins fer
sigurgöngu um veröldina.
DDUR
LAFSSON
SKRIFAR
Þegar síðasta ár aldarinnar rennur
upp eru Bandaríkin ótvírætt öfl-
ugasta ríki heimsins og í veraldar-
sögunni eru ekki dæmi um stór-
veldi sem jafnast á við mátt og
áhrif risaveldisins. Hernaðarlega
og efnahagslega bera Bandaríkin
höfuð og herðar yfir önnur Iönd
og sú hugmyndafræði sem þau
eru grundvölluð á, er viðurkennd
sem keppikefli og framtíðarsýn
miður þróaðra og misjafnlega
máttvana ríkja.
Um skeið höfðu Sovétríkin
nokkra burði til að keppa við
Bandaríkin um leiðtogahlutverk-
ið, en hengdu sig í eigin snöru og
eru nú að burðast við að koma sér
upp brúklegum kapítalisma með
hörmulegum árangri og eru ekki
lengur samkeppnisfær.
Samtímis þvi, að risaveldið
eflist og stendur með meiri blóma
en nokkru sinni fyrr, er æðsta
stjóm ríkisins í hers höndum og er
engu líkara en að borgarastyijöld
geisi í höfuðborginni. Forsetinn,
sem er valdamesti maður heims,
er svo heillum horfinn, að vel
heppnað árásarstríð á íjandsam-
legan óvin, dugir ekki til að leiða
athyglina frá því stríði sem háð er
í Washington, þar sem andstæð-
ingar forsetans stefria að því að
hrekja hann frá völdum en hann
verst, ófimlega að vísu, og lætur
sig ekki fyrr en í fulla hnefana. En
pólitískir andstæðingar hans falla
hver um annan þveran. Newt
Gingrich, leiðtogi repúblikana á
þingi og einn ákafasti andstæðing-
ur forsetans, sagði af sér og dró
sig út úr pólitík eftir að flokkur
hans tapaði nokkrum þingsætum í
kosningum sem áttu að vera sig-
urganga eftir að hafa lúskrað á
Clinton og flokksmönnum hans.
Eftirmaður hans í embætti,
Livingston sem taka átti við leið-
togahlutverkinu, sagði einnig af
sér þingmennsku, þegar fréttist að
klámhundur í Hollywood ætlaði
að koma upp um að hann hafi
ekki ávallt verið eiginkonu sinni
trúr.
Óburðugt vopnaskak
Svona snúast vopnin í höndum
andstæðinga Clintons, sem viður-
kennir framhjáhald og á í hinu
mesta basli með að réttlæta það,
að hann laug eiðsvarinn fyrir rétti
og gerði Iítið úr ástarsambandi
sem hann sannanlega átti við
stúlku, sem hann afneitaði með
Repúblíkömiin sámar
að Clinton virðist
ætla að komast upp
með það sem þeirra
forseti var fordæmd-
ur og smánaður fyrir.
öllu, en viðurkenndi síðar, að hafa
gamnað sér með í skrifstofu emb-
ættis síns.
Andstæðingar forsetans í full-
trúadeild þingsins neituðu að
samþykkja á hann vítur og taka af-
sökunarbeiðni hans gilda. Þetta
jafhgildir því að deildin lítur á for-
seta Bandaríkjanna sem ótíndan
afbrotamann sem fyrirgert hefur
því trausti sem honum hefur verið
sýnt. Samþykkt var að ákæra hann
fyrir meinsæri og að hafa misnot-
að aðstöðu sína til að koma í veg
fyrir framgang réttvísinnar. Málið
fer nú til öldungadeildarinnar, þar
sem ákærunni verður nær örugg-
lega vísað frá, þar sem tvo þriðju
atkvæða þarf til að samþykkja
ákæruna.
Málið verður tekið fyrir eftir
áramótin og verður annað hvort
hespað í gegn með hraði eða
þvælt og togað eins og um mál-
flutning verði að ræða, og mun
það þá örugglega skaða forseta-
embættið enn meira en orðið er,
en það getur allt eins farið illa
með andstæðinga Clintons, eins
og dæmin sanna úr fulltrúadeild-
Argæska heimsveldis
Velgengni Bandaríkjanna undir
lok aldarinnar sýnast lítil takmörk
Tveir tölvuþrjótar hljóta dauðadóma
KINA - Tveir kínverskir tölvuþrjótar hafa verið dæmdir til dauða.
Höfðu þeir brotist inn í tölvukerfi banka, þar sem annar þeirra hafði
unnið áður, og flutt sem svarar um 600 þúsund krónum inn á banka-
reikninga sem þeir höfðu aðgang að. Höfðu þeir þegar eytt þriðjungi
íjárins. Þeir geta áfrýjað dómunum, en undantekningarlitið eru þeir
staðfestir og þeim síðan fullnægt þegar í stað.
Eiirn áttburauna látiun
BANDARIKIN - Einn áttburanna sem fæddust fyrir jól lést á sunnu-
dagsmorgun. Það er sá Iéttasti áttburanna sem Iést, en bæði hjarta og
lungu gáfu sig.
Ró að nýju í Kosovo
JÚGÓSLAVÍA - Ró var komin á að
nýju í Kosovo-héraði í gær eftir að
Serbar og Albanir höfðu barist í
nokkra daga. Bardagarnir á sunnu-
dag voru þeir hörðustu í tvo mánuði
og létu sex manns þá lífið, flestir
þeirra Serbar. Einn af eftirlitsmönn-
um Öryggis- og samvinnustofnunar
Evrópu (ÖSE) sagði í viðtali ríð út-
varpsstöð í Belgrað að ástandið í
Kosovo væri ekki jafn alvarlegt og
fjölmiðlar hafa Iátið í veðri vaka.
Bæði Serbar og Kosovo-Albanir hafi
framið vopnahlésbrot.
Sexburar fæddir í Kína
KÍNA - 33 ára gömul kona í Kína hefur fætt sexbura, en tveir þeirra
létust strax eftir fæðingu vegna Iungnabilunar. Ástand hinna íjögurra
er sagt vera stöðugt. Móðirin hafði ekki gengist undir neina ófrjósem-
isaðgerð.
Frá Kosovo-héraði.
Átök í Irak
IRAK - Bandarískar herþotur skutu
á herstöðvar í norðurhluta Iraks í
gær. Að sögn bandarískra stjórn-
valda var verið að svara árásum
Iraka. Bandarísku herþoturnar,
sem staðsettar eru í Tyrklandi, voru
á eftirlitsflugi yfir flugbannsvæð-
inu í Irak þegar skotið var á þær
flugskeytum frá jörðu niðri, en
flugskeytin misstu marks. Irösk
stjórnvöld sögðu hins vegar að
vestrænar herþotur hefðu gert
árásir á loftvarnarstöð í norður-
hluta íraks með þeim afleiðingum
að Qórir íraskir hermenn létust og
sjö aðrir særðust. Breska varnar-
málaráðuneytið sagði breskar her-
þotur ekki hafa tekið þátt í þessum
átökum.
Fjoldamorð í Alsír
ALSÍR - Fjölmiðlar í Alsír skýrðu frá því í gær að 15 manns hafi ver-
ið myrt, þar af átta börn. Þetta eru alvarlegustu ofbeldisverkin sem
orðið hafa í föstumánuði múslima, ramadan, þetta árið, en undanfar-
in ár hafa fregnir af Ijöldamorðum aukist mjög í þessum mánuði.
Kosið verður í Alsír í apríl næstkomandi.
Lögregla skýtur á bændur
INDONESIA - Lögreglan í Indónesíu skaut í gær á nokkur hundruð
bændur sem höfðu lagt undir sig ríkisrekið plantekrubú á eyjunni
Súmatra. Vitni sögðu marga hafa særst og engar aðvaranir hafi verið
gefnar áður en skotið var. Bændurnir segja aðgerðir sínar vera til að
mótmæla því að ríkið hafi sölsað undir sig jarðir þeirra án þess að
bætur kæmu fyrir.
Danir njósna um múslima
DANMÖRK - Danska leyniþjónustan, PET, hefur fylgst með múslim-
um í Danmörku í samvinnu við bandarísku leyniþjónustuna CIA í því
skyni að leita uppi fylgismenn saúdiarabíska hryðjuverkamannsins
Osama bin Laden, sem nú er eftirsóttasti hryðjuverkamaður heims,
að því er Ritzau-fréttastofan skýrði frá. Múslimar í Danmörku segja
njósnir þessar hafa staðið yfir árum saman og fréttir þessar komi
þeim því ekki á óvart.
300.000 á flótta í Angóla
ANGÓLA - 300 þúsund manns eru nú á flótta vegna stríðsátakanna
í Angóla þar sem UNITA-hreyfingin berst \ið hermenn ríkisstjórnar-
innar. UNITA-liðar gerðu harðar árásir á bæinn Cuito yfir jólin og eru
þau átök þau mestu sem orðið hafa í borgarastríðinu sem geisað hef-
ur í 23 ár. Stjórnvöld segja UNITA-hreyfinguna aldrei hafa verið
sterkari en nú.
Hermenn Saddams Husseins áttu
enn í átökum við Bandaríkjamenn í
gær.