Dagur - 29.12.1998, Side 13
ÞRIÐJUDAGV R 29. DESEMBER 1998 - 13
ÍÞRÓTTIR
Fyrsta tap Middlesbrough á
heimavelli í íjórtán mánuði
Vegard Heggem fagnar eftir að hafa skorað þriðja mark Liverpool gegn
Middlesbrough á Riverside Stadium á laugardaginn, þegar Liverpool vann
Middlesbrough 3- 7 7 fyrsta tapleik Boro á heimavelli í fjórtán mánuði.
Chelsea með jólafor-
ystuua. Fyrsti sigur
Manchester í sjö leikj-
um. Blackburu tap-
laust á heimavelli.
Overmars bjargaði
audliti Arsenal.
Newcastle heillum
horfið.
Fjórtán mánaða velgengni Midd-
lesbrough á heimavelli sfnum,
Riverside, fékk óvæntan endi
þegar Liverpool kom í jólaheim-
sóknina. Gestirnir voru mun
betri í öllum sínum aðgerðum og
unnu sætan sigur. Norsld varnar-
maðurinn Vegard Heggem sýndi
loksins af hverju hann var keypt-
ur frá Rosenborg með glæsi-
marki sem hann skoraði eftir að
hafa gabbað alla Rorovörnina
upp úr skónum. Hans fyrsta
mark fyrir Liverpool er orðin
staðreynd.
Eftir jólaumferðina var það
Chelsea sem fagnaði toppsæti
úrvalsdeildarinnar. Frábært
mark frá Tore Andre Flo færði
Chelsea forystuna í leiknum við
Southampton á The Dell og
Poyet gulltryggði sigurinn í upp-
hafi seinni hálfleiks. Ar og dagar
eru síðan Chelsea hefur sýnt
jafn mikinn stöðugleika í topp-
baráttunni og seinni hluta
haustsins og ljóst að Vialli er
langt kominn með réttu upp-
skriftina að meistaraliði leiktíð-
arinnar. Vel gert hjá honum í
Ijósi þeirrar miklu gagnrýni er
hann varð fyrir í upphafi vegna
sífelldra mannabreytinga á Iið-
inu frá einum leik til annars.
Aston Villa hafði möguleika á
að halda toppsætinu með stigi
gegn Blackburn á Eawood Park.
Svo fór ekki og lærisveinar Brian
Kidd hirtu öll stigin. Blackburn
hefur ekki tapað leik á heima-
velli sínum síðan Kidd tók við
stjórninni. Með sigrinum á Villa
þokaði liðið sér úr fallsæti í
fyrsta sinn í langan tíma. Mark-
maður ViIIa, Oakes, var rekinn af
leikvelli eftir 11 mínútna leik í
seinni hálfleik. Dómarinn taldi
að hann hefði gripið boltann fyr-
ir utan vítateiginn. Sjónvarpið
afsannaði kenningu dómarans
og reiknað er með að málið dragi
dilk á eftir sér.
Loksins sigur hjá United
Manchester United vann sinn
fyrsta sigur í sjö leikjum gegn
getulitlu og lánlausu liði Nott-
ingham Forest. United þurfti
engan stórleik en David Beck-
ham gerði það sem gera þurfti og
bjó til öll mörkin með frábærum
fyrirgjöfum. Varnarjaxlinn
Ronny Johnsen er allur að koma
til eftir meiðslin sem hrjáð hafa
hann í haust og skoraði tvö
fyrstu mörk United áður en
Ryan Giggs rak smiðshöggið á
langþráðan sigur heimamanna.
Forest sleikir sár sín eftir 16 Ieiki
án sigurs og væntingar forráða-
manna liðsins um gott gengi á
leiktíðinni eru roknar út í veður
og vind. Fallbaráttan verður
hlutskipti þeirra í ár.
Marc Overmars bjargaði and-
liti Arsenal með marki á sjöundu
mínútu, gegn West Ham á High-
bury. Emanuel Petit var allt í öllu
hjá meisturunum og það var
fyrst og fremst stórleikur hans
sem færði heimamönnum kraft-
inn sem til þurfti að innbyrða
sigurinn.
I hinum Lundúnaslagnum
lagði Wimbledon Charlton 2 - 1.
Charlton náði þó forystu í leikn-
um með marki Redfern, ein-
hverju glæsilegasta marki leiktíð-
arinnar til þessa, en gleðin var
skammvinn og sjötta tapið í röð
staðreynd er yfir lauk.
Meðalmennskan uppmáluð
Tottenham náði í þrjú stig til
Coventry, þökk sé varnarmann-
inum Sol Campbell sem skoraði
sigurmarkið. A sama tíma náði
Leicester í öll stigin sem í boði
voru í Sheffield. Þar fékk Tony
Cotty sannkallaða jólasendingu
er hann komst inn í laflausan
skalla, frá varnarmanni til mark-
manns, og sá gamli nýtti sér gjöf-
ina til fullnustu og skoraði sigur-
markið. Hvorugur þessara leikja
hafði upp á neitt að bjóða sem
knattspyrnuáhugamenn sækjast
eftir. Meðalmennskan var alls-
ráðandi. Jafnteflisleikurinn á
Goodison Park, þar sem Everton
og Derby gerðu markalaust jafn-
tefli, náði ekki einu sinni meðal-
mennskustimplinum. Hann er
einfaldlega steindauður.
Martröð í Newcastle
Ruud Gullitt brást reiður við á
blaðamannafundi eftir 0-3 tap-
leik Newcastle gegn Leeds á St.
Jamses Park og sagði blaðamenn
eyðileggja mikið fyrir Newcastle
með sífelldum skrifum um
„krísu“ hjá liðinu. „Það er engin
krísa hér. Það ert bara þú sem ert
að reyna að búa til krísu. Þó við
töpum einum leik er ekki hægt
að tala um neina martröð," sagði
Gullit. Hollendingurinn hefur
ekki haft þau áhrif á Newcastle
sem vonast var til þegar hann tók
við eftir brottrekstur Kenny Dal-
glish. Liðið sígur enn niður
stigatöfluna og nálgast nú fall-
baráttuna illræmdu. Leikmenn
eru hundóánægðir og margir
vilja yfirgefa skútuna sem fyrst.
Á sama tíma og Ruud GuIIitt á
í erfiðleikum hrósa starfsbræður
hans hjá Leeds og Blackburn,
David O’Leary og Bryan Kidd,
góðu gengi. Báðir tóku þeir \ið
liðum sinum á erfiðum tímum í
haust. Báðir hafa ráðið vel við
starfið. Hvorugur þeirra stökk af
stað með stórar yfirlýsingar um
glæsibolta og gott gengi. Þeir
láta verkin tala. Nokkuð sem
Rud Gullitt ætti að fara að temja
sér. — GÞÖ
ÍÞR Ó T TA VIÐTALIÐ
Kvemtalið Bekkelaget flaggskip félagsins
Ingi Þór
Guðmundsson
leikmaðtir með Bekkelaget
í Noregi
Ingi Þór Guðmundsson,
handknnttleiksmaður úr
Víkingi,fórí víking til
Noregs. Nú leikurhann
með Bekkelaget í norsku 2.
deildinni og stefnir á ís-
landsferð með liðið næsta
haust.
- Hafa íslenskir handbolta-
strúkar eftir einhverju að sækj-
ast i Noregi?
„Jú þeir hafa ýmislegt að sækja
hingað. Stóru félögin eru að
borga þokkalegustu laun og út-
vega mönnum íbúð og bíl þannig
að það getur verið gott að leika
handbolta í Noregi. Bestu liðin
hérna eru svipuð að getu og
bestu Iiðin á íslandi og því getur
verið skemmtileg tilbreyting að
koma hingað og spila.
Eg er náttúrulega bara í 2.
deildinni þar sem æfingar eru
ekki nærri eins miklar og í 1.
deild. Það var bara út af náminu
sem ég fór í aðra deildina. Það
var einfaldlega enginn tími fyrir
1. deildarhandbolta með skólan-
((
um.
- Þú ert þá ekki í atvinnu-
mennsku?
„Nei, ég er í fullri vinnu og geri
þetta fyrst og fremst ánægjunnar
vegna. Hins vegar fékk ég þræl-
gott atvinnutilboð áður en ég fór
út sumarið 1994. Svo þegar ég
kom á staðinn til að skrifa undir
samninginn kom í ljós að félagið
skuldaði milljónir og fór á haus-
inn skömmu síðar. Þá fór ég í lið
sem heitir Oppsal og var með því
til 1996. Þaðan fór ég í Kjelsás
og spilaði með þeim þar til síð-
astliðið vor. Þá ætlaði ég reyndar
að hætta í boltanum. Svo var það
vinur minn, Ieikmaður með
Bekkelaget, sem bað mig að
koma með sér á æfingu fyrir
stuttu. Eftir æfinguna bað þjálf-
arinn mig að koma og gerast
leikmaður með liðinu. Maður
slær ekki hendinni á móti því að
leika með Bekkelaget."
- Þetta er stór klúbbur þó
karlaliðið leiki í 2. deildinni
núna?
„Þetta er einn stærsti íþrótta-
klúbbur í Noregi. Það eru miklir
peningar sem þetta félag hefur
úr að moða og metnaðurinn er
mikill. Staða okkar í deildinni nú
er ekki merkileg. Við erum í
neðri hlutanum. Við höfum ver-
ið ótrúlega óheppnir með
meiðsli og til dæmis í þennan
leik sem þú varst að horfa á núna
vantaði Ijóra fastamenn úr lið-
inu. Það réttlætir þó ekki tíu
marka tap fyrir toppliði deildar-
innar. Það gekk einfaldlega ekk-
ert upp sem við reyndum. Eg er
hundóánægður með minn leik.
Maður brenndi af alltof mörgum
færum. Þetta er bara annar leik-
urinn sem ég leik með liðinu og
ég var að vona að hann yrði eins
og sá fyrsti þar sem allt gekk
upp. Þá skoraði ég fimm mörk og
var með 100% nýtingu."
- Er kvennaliðið flaggskip fé-
lagsins?
„Kvennaliðið hér er yfirburða
lið í Noregi. Besta handknatt-
leikskona heims, Daninn Anja
Andersen, er þar allt í öllu og
mikið snýst í kringum hana. Hún
ein dregur fjölda áhorfenda á
hvern leik, sérstaklega þegar lið-
ið leikur á útivelli. Hún er ótrú-
leg íþróttakona og „sponsorar“
elta hana hvert fótmál. Hvar sem
hún kemur er alltaf eitthvað að
gerast í kringum hana.“
- Þú sagðir að karlar gætu
lært margt af henni?
„Það er alveg á hreinu. Stelp-
urnar eru á æfingu hér á undan
okkur og ég kem oft klukkutíma
fyrr á æfinguna bara til þess að
fylgjast með henni. Tækni henn-
ar er með ólíkindum og það eru
margir sem líkja henni sem
íþróttamanneskju við körfubolta-
snillinginn Michael Jordan. Hún
hefur allt sem til þarf. Hún er
stór, sterk, liðug og hefur frábært
keppnisskap. Fyrir utan völlinn
hefur hún mikil áhrif hjá félag-
inu. Hún stjórnar öllu uppbygg-
ingarstarfi hjá yngri stelpunum
og er bara manneskja sem mark
er tekið á.“
- Liðið mun stefna á æfinga-
ferð til íslands næsta haust?
„Já, það er meiningin að fara
til Islands næsta haust í æfinga-
ferð. Þessir strákar hérna þurfa
að æfa eins og gert er heima.
Hér er bara æft í salnum þrisvar
í viku sem þykir ekki mikið á Is-
landi þó í 2. deild sé. Það er ör-
ugglega ein ástæðan fyrir mikl-
um meiðslum hjá liðinu hve
menn eru í lélegri æfingu. Það er
stórhættulegt." - GÞö