Dagur - 30.12.1998, Blaðsíða 2
18 - MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 19 9 8
ro^tr
LÍFIÐ í LANDINU
■ SMATT OG STÓRT
UMSJÓN:
BJÖRN
ÞORLÁKSSON
Gerist hvaö?
Jóladagskrá sjónvarpsstöðvanna vekur ætíð
nokkra forvitni. Sitt sýnist hverjum um hvern-
ig nú hafi tekist til. Hlutur barnaefnis hefur
vaxið verulega á síðustu árum sem eflaust er
vel, en innlend dagskrárgerð fyrir bæði böm
og fullorðna mætti vera meiri. Þó var boðið
upp á sýnishorn í Sjónvarpinu tvo daga í röð
Hrafn Gunnlaugsson. um Jólin- Hið síðara var afurð Hrafns Gunn“
_____________ laugssonar, „Þegar það gerist“ og hefur verið
umtalað. Ekki síst titilsins vegna, þar sem
harla Iítið gerðist í þessari mynd. I því Ijósi
telja neikvæðir gagnrýnendur að „Þegar það
gerist ekki“ eða „Þegar það gerist varla“ hefðu
verið betri titlar á þetta verk. Hvað er að ger-
ast?
Jón Baldursson, yfirlæknir á
Slysadeild Borgarspítala.
Afangasigur hjá LA
Glæsileg sýning Leikfélags Akureyrar á Pétri
Gaut hefur á hinn bóginn fengið góða dóma
og má segja að Helgi H., Sveinn R. Einarsson,
Jakob Þór „Gautur“ og aðrir aðstandendur
sýningarinnar hafi unnið stórvirki. Strax í hléi
á frumsýningarkvöldinu bar á því að hrifnir
áhorfendur ræddu hve mikla aðsókn sýningin
myndi hljóta. Stundum fara gæði og vinsældir
ekki saman og þegar bágur fjárhagur Leikfé-
lags Akureyrar á í hlut, er aðsókn sérlega mik-
ilvæg fyrir framvindu mála. Hitt var einnig
skrafað að sýningin væri svo mögnuð að hún
hefði í eitt skipti fyrir öll tryggt leikhúsinu til-
vistarsess til framtíðar. Samkvæmt því hafa lík-
urnar dvínað á að Baltasar Kormákur og félag-
ar í Flugfélaginu Lofti muni taka við rekstri
Samkomuhússins.
GULLKORN
veik fyrir ekta
karlmönnum. En
það er eins og
þeir séu bara til í
bíómyndum.
Sennilega er það
þess vegna sem ég
er ógift.“ Kolbrún
Bergþórsdóttir í
Degi í gær.
Þegar gamagauliö eitt...
Og meira um Gaut. Nokkur atriðanna voru
svo sterk að gæsahúðin flæddi um líkamann.
Laukatriðið fræga er í hópi stærstu atriða
verksins. Salurinn steinlá á meðan Jakob Þór
flysjaði laukinn og svo gott var hljóðið á frum-
sýningu að þótt leikarinn hvíslaði texta sinn,
komst hann allur vel til skila. Aðeins eitt auka-
hljóð barst úr salnum. Garnagaul frá svöngum
manni á 5. bekk. Þegar garnagaulið eitt keppir
við leikarana um athygli, hljóta menn að vera í
góðum málum!
Aiinríki mn áramót
Jón Baldursson, yfirlæknir á ATlllTÍkÍ 6TífÍ&TTl&Tl iieidur eftir heimatilbúnar sprengj-
Slysadeild Borgarspítala, hefur ur, sem eru mun öflugri og í raun
undanfarin 20 ár orðið vitni að mikÍÖ Ó SlySddeÍldUTTl lífshættulegar.
slysum og óhöppum um ára- J
mót og þekkir vel til á því sviði. SÍÚkTShÚSS. UTTL ÚTS,- ^eðferð bnmasára
Hann segir að brunaslys og slys J „Brunasár þarf fyrst og fremst að
vegna blysa og flugelda séu alls TflQt Oíf kCTTlUT bclT ÍTITI k*13 °g því best að stinga hend-
rtlrlrí UoA rnm o 1 rtorí ívort or n A ^ -*■ írmí oAo hoim lÍFamck llfd com í
fólk sem orðið hefur
fyrír margvíslegum
slysum.
SPJALL
verða
ekki það sem algengast er að
komi inn á nýársnótt. „Það sem
mest ber á hér frá miðnætti á
gamlárskvöld og til nýársdags-
morguns, eru slys vegna fyllerís
og ofbeldis, allar mögulegar
myndir af mannvonsku þeirri
sem fylgir ofneyslu brennivíns,"
segir Jón. „Skýringin er einfald-
ega sú að neyslan er margfalt
meiri en um venjulegar helgar
sem er þó mikil og afleiðing-
amar því margfalt meiri. Þegar
drukknir beita þeir allskonar ofheldi, slasa sjálfa
sig og aðra og berja mann og annan, en um
áramót koma þrefalt eða fjórfalt fleiri vegna
þessa en um venjulega helgi. Brunasárin hins-
vegar eru ekki nema eins og tíu talsins á
nýársnótt að jafnaði, þó svo að í fyrra hefðu ára-
mótin verið afbrigðileg. Það helgaðist af því að
einhver óheppinn innflytjandi lenti í því að selja
gölluð blys, sem varð til þess að um 30 handar-
brunar komu inn á slysadeild, sem er mjög
óvanalegt. Og einhver áramótin fyrir nokkrum
árum voru augnslys tíð en það hefur minnkað
mjög. Það eru sem sagt slys vegna drykkju sem
við sjáum mest af hér og þó ég sé ekki fanatísk-
ur á vín, þá þætti mér gott að áfengisdrykkja
væri heldur minni á þessum tíma.“
Því má svo bæta við, að alvarlegustu áverkar,
sem tengjast sprengigleði manna við áramót eru
yfirleitt ekki af völdum venjulegra flugelda
irnar en
eða þeim líkamshluta sem í
hlut á í vatn sem fyrst,“ segir Jón
um meðferð sáranna. „Þó ekki ís-
kalt vatn, heldur hafa það við her-
bergishita eða þar um bil. Sé um
minni sár að ræða, eitthvað sem
skyndiplástur dekkar, þá er best að
beita þeirri aðferð en öll stærri sár
þarf að meðhöndla af sérfræðingi
og þá sérstaklega ef þau eru opin.
Brunasár eru þannig að sársauk-
inn er mestur íyrstu klukkustund-
verður svo viðráðanlegur, en aukist
hann aftur og umhverfí sársins roðnar og hitn-
ar, þá getur verið komin sýking í sárið og nauð-
synlegt að leita til læknis. En brunasár blekkja
oft, því það vessar talsvert úr þeim að öllu
jöfnu.“
Jón segist hvorki geta mælt með eða á móti
notkun Aloa vera plöntunnar sem vinsæl er í
heimahúsum til meðferðar á brunasárum.
„Þetta er dæmigert húsráð, en við notun nú
bara hefðbundnar sótthreinsaðar umbúðir hér,“
segir hann.
Svona gerum við...
Til að hafa áramótin sem slysaminnst er þá for-
múlan þessi: Drekka lítið, ekki meira en svo að
full stjórn sé á athöfnum, hafa gleraugu þegar
kveikt er á rakettum og blysum og fara eftir leið-
beiningum um meðhöndlun þeirra. -VS
■ FRÁ DEGI
Konum líkar vel við þögla menn. Þær
halda að þeir séu að hlusta á þær.
Marcel Archard.
Þetta gerðist 30. desember
• 1703 Iétust 37.000 manns í jarð-
skjálfta í Tókíó í Japan.
• 1809 var lagt bann við því að bera
grímur á dansskemmtunum í Boston
í Bandaríkjunum.
• 1880 var gengið á ís frá Reykjavík út í
Engey og Viðey og þaðan áfram upp á
Kjalarnes.
• 1972 stöðvaði Nixon Bandaríkjafor-
seti sprengjuárásir á Víetnam og boð-
aði friðarviðræður.
• 1978 var Patrick Gervasoni, land-
flótta Frakka, vísað úr landi eftir
miklar deilur.
• 1979 hætti rokkhljómsveitin Emer-
son, Lake og Palmer störfum.
TIL DAGS
Þaufæddust 30. desember
• 1819 fæddist þýski rithöfundurinn
Theodor Fontane.
• 1865 fæddist breski rithöfundurinn
Rudyard Kipling.
• 1905 fæddist franski heimspekingur-
inn Emmanuel Lévinas.
• 1923 fæddist sænska skáldkonan
Sara Lidman.
• 1928 fæddist bandaríski rokkarinn
Bo Diddley.
• 1946 fæddist bandaríska söngkonan
Patti Smith.
Vísa dagsins
Kristján frá Djúpalæk orti þessa vísu sem
getur vel átt við í hraða dagsins í dag.
Og þú munt leita og leita,
hvort langt eða stutt þig her,
að nýrri tækni og töfrum
uns týnir þú sjálfum þér.
Afmælisbam dagsins
Bjarni Thorarensen skáld fæddist
þennan dag árið 1786. Samtíma-
menn hans þekktu hann frekar sem
embættismann en skáld, og köll-
uðu hann assessor eða amtmann.
Hann var dómari í Landsyfirrétti
1811-33 og síðan amtmaður frá
1833 til dauðadags árið 1841. Þótt
kvæði eftir hann hafi birst í blöð-
um og tímaritum voru þau ekki
tekin saman á bók fyrr en 1847,
eða nokkru eftir að hann lést.
Elugnate
Hafíð þið tekið eftir því að stundum vilja
börnin okkar vera hjálpsöm en flækja oft
lífið tilfínnanlega um leið? Ein lítil dama
vildi endilega hjúkra mömmu sinni sem
var með flensu og tók koddann hennar og
hristi, lét hana hafa tímarit til að lesa og
kom svo með tebolla handa henni að
drekka.
„Ósköp ertu indæl,“ sagði þá mamman
um leið og hún fékk sér sopa. „Eg vissi
ekki að þú kynnir að búa til te.“
„Jú,“ svaraði stúlkan. „Ég lét telaufin í
vatnið og sauð upp á því og sigtaði þau svo
frá í bollann. En ég fann ekki sigtið svo ég
notaði bara flugnaspaðann."
„Notaðirðu hvað?!“
„Hafðu ekki áhyggjur mamma, ég notaði
ekki þann nýja, heldur bara þann garnla."