Alþýðublaðið - 05.02.1967, Síða 3
Sunnudags Alþýðublaðið -- 5. febrúar 1967
3
CJRVALS saltkjöt
BAUNIR - GULRÓFUR
KJÖTBÚÐ SUÐURVERS,
homi Stigahlíðar og Hamrahlíðar.
Sími 35645. — Geymið auglýsinguna.
ÚRVALS SALTKJÖT
Kaupið þar sem úrvalið er mest.
Úrvals saltkjöt
Skólasýning Ásgrímssafns
Fjórða skólasýningin í Ásgríms-
safni verður opnuð í dag. Eins og
á fyrri sýningum safnsins er að-
aluppistaðan myndir úr íslend-
ingasögum og þjóðsögum, en þær
voru Ásgrími Jónssyni hugleikið
viðfanígsefni alla tíð.
Safnið hefur leitazt við að gera
þessa sýningu sem fjölbreyttasta,
en sýnd eru verk gerð með olíu-
litum, vatnslitum, penna og blý-
anti. Einnig sýnir Ásgrímssafn
nokkrar ófullgerðar mýndir, en þá
nýbreytni tók safnið upp sl. 'ár, og
vill með því gefa nemendum kost
á að sjá hvernig Ásgrímur byggði
upp myndir sínar.
Tilraun Ásgrímssafns með sér-
Hvergeröingar sýna Deler-
íum Búbónis í Lindarbæ
staka sýningu, sem einkum er
ætluð skólafólki, virðist njóta vax
andi vinsælda. Hafa ýmsir skólar
sýnt mikinn áhu'ga á þessum sýn-.
ingum, og stuðlað að því, að nem-
endur fái tómstund'frá námi til
þess að skoða listaýþrkagjöf Ás-
gríms Jónssonar og lieimili hans.
Ásgrímssafn, Bérgstaðastræti
74, er öllum opið sunnudaga,
þriðjudaga og fimmtudaga frá kl.
1.30-4. Aðgangur ókeypis.
Skólar geta pantað sér tíma hjá
forstöðukonu safnsins í síma
14090.
Kaupið þar sem úrvalið er mest.
t
Eins og kunnugt er af fréttum, i
sýnir Leikfélag Hveragerðis ,,De-1
lerium Búbónis“ eftir Jónas og
Jón Múla Árnasyni um þessar
rriundir við mjög mikla aðsókn og
góðar undirtektir. Þegar hafa ver-
ið hafðar 8 sýningar í Hveragerði,
1 á Selfossi, 3 á Hellu fyrir fullu
húsi, (þar var upphaflega ekki
gert ráð fyrir nema-einni), og 1
á Borg í Grímsnesi. í kvöld er svo
sýning í Aratungu í Biskupstung-
um.
Bókmenntaverð-
laun blaðanna
aíhent í dag
Bókmenntaverðlaun blað-
anna verða afhent í fyrsta
skipti í Átthagasal Hótel
Sögu kl. 5 í dag. Rithöfund-
ar og annað bókmenntafólk
er velkomið að vera viðstatt.
— Verðlaunagripurinn, sem
afhentur verður er smíðað-
ur af Jóhannesi Jóhannessyni.
Annað kvöld (mánud.) verður
svo sýning í LINDARBÆ í Reykja
vík, og er þegar uppselt á þá sýn-
ingu.
Gísli Halldórsson hefur annazt
leikstjórn og er þetta þriðja verk-
j efnið, sem hann sviðsetur fyrir
Hvergerðinga. Er félaginu mikill
fengur að fá að njóta aðstoðar
hans og kunnáttu.
Með hlutverk í leiknum fara:
Gestur Eyjólfsson (Ægir Ó. Ægis),
Guðjón H. Björnsson (Jafnvægis-
málaráðh.), Aðalbjörg M. Jóhanns
dóttir (Pálína Æ>gis), Hólmfríður
Kristmannsdóttir (Guðrún Ægis),
Bjarni E. Sigurðsson (Leifur Ró-
berts), Valgarð Runólfsson (Ein-
ar í Einiberjarunni), Óttar Guð-
mundsson (Unndór Andmar),
Vilma Magnúsdóttir (Sigga vinnu-
kona), Ragnar G. Guðjónsson
(Gunnar Hámundarson).
Eins og þegar er fram komið
ferðast Leikfélag Hveragerðis
nokkuð um nágrennið með sýning-
ar sínar, og er nú verið að undir-
búa sýningar vestan heiðar. Þá
er og hafinn undirbúningur að
næsta verkefni félagsins, sem
verður leikrit er aldrei hefur áð-
ur verið sýnt hér á landi.
Þorsteinn RE 303 landaði í gær 1600 tunnum af síld í Reykjavík. Þessi afli fékkst í einu kasti austur •*
af Vestmannaeyjum í fyrradag. Skipstjóri á Þorsteini er Guðbjörn Þorsteinsson. Nokkrir aðrir bátar
fengu síidarafla á sömu slóðum og lönduðu þeir í Vestmannaeyjum.