Dagur - 05.01.1999, Side 2

Dagur - 05.01.1999, Side 2
2 - ÞRIÐJUDAGU R S. JANÚAR 1999 Da^wtr AKUREYRI NORÐURLAND Vöxtur byggða gnmdvallarmál „Það þarfnýja hugsun, baráttugleði og trú á Akureyri og fólkið sem þar býr, “ segir Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri. Hér á eftir fara kaflar lir uýársávarpi Krist- jáns Þórs Júlíussonar bæjarstjóra Akureyrar sem flutt var á Aksjón á nýársdag. Eg óska ykkur öllum gleðilegs nýárs með þeirri von að þetta ár megi verða Akureyringum farsælt og bera í skauti sínu eitthvað gott okkur öllum til handa. I ljósi fjölbreytileika mannlegs lífs veit ég að þessi dagur sækir misjafnt að. Nýárskveðjur berast milli manna í dag, þó vissulega hvíli skuggi nú sem endranær yfir mörgu húsi, og uggur eða kvíði búi í brjóstum margra vegna sorgar eða þrenginga. Kveðjan um gleðilegt nýár er óháð því sem yfir hefur gengið og felur í sér gleði og þökk fyrir að fá enn að lifa og starfa, ánægju með það að fá enn að taka þátt í lífsgöng- unni og eiga samfýlgd vina vísa. Velsæld og vitund Sveitarfélög eru, hvert í sínu lagi, einingar þar sem fjölskrúðugt mannlíf blómstrar. Þau byggja tilveru sínu aðallega á tveim þátt- um, annars vegar efnalegri vel- sæld og hins vegar vitundinni um sjálfan sig. Vöxtur byggðanna er eitt af sjálfstæðismálum þjóðar- innar því ef við ætlum að nýta kosti landsins verður að efla bú- setu sem víðast svo fjölbreytni dafni í andlegu- og veraldlegu Iífi. Það er fleira en eldur úr iðr- um jarðar, jarðskjálftar, snjóflóð og skriðuföll sem eytt hefur byggð á Islandi, þótt á annan hátt sé. A undangengnum ára- tugum hafa flutningar fólks inn- anlands, einkum til suðvestur- hluta landsins, komið hart niður á mörgum byggðarlögum og haft í för með sér töluverðar þreng- ingar, bæði efnahagslegar og fé- lagslegar, svo ekki sé minnst á persónulegan sársauka sem þess- ari þróun fylgir. Þó vil ég undir- strika að það stoðar lítt að byggja Iandið af óraunhæfri rómantfk eða sögulegri tilfinningasemi og þótt þetta tímabil megi kenna með öðrum þræði við eyðingu lands, má ekki gleymast að á sama tíma hafa verið numin önn- ur lönd í gróanda á mörgum svið- um. I dag er flestum Ijóst að hér á Iandi getum við gert ótal margt annað en rækta gras, ala búpen- ing og sækja sjóinn og nú eru einstaklingar og fyrirtæki, vítt um Iand, að fikra sig inn á nýjar brautir. Vissulega er fólk misjafn- Iega sókndjarft, eins og gengur, en dirfskan ræðst þó iðulega af því hvort „gott er í ári eða ilít“. Oft fer saman þegar vel árar til sjávar og sveita að samhljóða álit manna er að „Byggðin þeirra" sé hin besta í víðri veröld. I slæmu árferði vill barlómurinn hins veg- ar bera bjartsýnina ofurliði. Síðustu misserin hefur borið nokkuð á því að landsbyggðar- fólki finnist ekki ára vel til sjávar- ins og mikið ber í umræðunni á bölvi og ragni. Slíkar upphrópan- ir bera að mínu mati vott um ákveðna uppgjöf og örvæntingu, frammi fyrir miklum vanda. Ekki skal það dregið undan að við sigl- um í dag krappan sjó en vísasti vegurinn til glötunar Iiggur í því að leggja árar í bát. Bæj axstj ómarkosningarnar I bæjarstjórnarkosningunum í vor tókust frambjóðendur flokk- anna á um þær áherslur sem þeir vildu leggja í störfum sínum fyrir bæjarfélagið næstu fjögur árin. I þeirri baráttu takast á þau öfl sem í bæjarfélaginu búa og bæj- arbúar endurspegla með atkvæði sínu. Bæjarstjórn Akureyrar er skipuð hópi fólks sem er tilbúið til þess að vinna að framgangi bæjarfélagsins. Þeir flokkar sem nú mynda meirihluta í bæjar- stjórn Akureyrar, Sjálfstæðis- flokkurinn og Akureyrarlistinn, lýstu því yfir í aðdraganda kosn- inganna að þeir væru tilbúnir til þess að skapa ný tækifæri til sóknar fyrir Akureyri. Það verk er hafið og að sjálfsögðu mun það taka sinn tíma en fleira þarf til en 11 einstaklinga í bæjar- stjórn. Það þarf nýja hugsun, baráttugleði og trú á Akureyri og fólkið sem þar býr. A þeim grunni verða einstaklingar, fyrirtæki og helstu stofnanir bæjarfélagsins ásamt bæjarstjórn, að taka hönd- um saman og vinna að því að skipa bænum okkar þann sess sem hann á skilið. Tækifæri til vaxtar liggja víða en þó hygg ég að á 21. öldinni muni tækifæri byggðanna liggja í því að hugvit verði einhver dýrmætasta auð- lind næstu aldar. Þau samfélög sem ráða yfir auðlindum og nýta þær hafa alla tíð og munu ætíð verða í fararbroddi. Saga Islendinga er um margt einstök. Því veldur m.a. fámenn- ið og einnig hitt, að upphaf hennar er svo nálægt okkur í tíma. Ef við lítum nú í eigin barm þá komumst við að raun um að daglega ber fyrir augu menn, muni og ýmis atvik, sem minna okkur á liðinn tíma, og tungutakið, - hugsunin, eiga einnig sín sérkenni. Það er ein af skyldum hvers samfélags að virða og efla vitund fólks um þau verð- mæti, gömul og ný, sem við höf- um hlotið í arf. Þessi arfur gerir okkur kleift að takast á við nú- tímann og jafnframt búa í haginn undir framtíðina. Rækt við heimabyggð Framtíðin byggir m.a. á þekkingu genginna kynslóða, hvort heldur við leitum náttúrusteina á fjöll- um eða glímum við upplýsinga- flæði nútímans. Það hlýtur því að vera kappsmál hverjum þeim sem ann sinni heimabyggð að Ieggja rækt við sögu hennar og nýta sér þá þekkingu sem þar er fyrir hendi. Þau tengsl sem fólk hefur við uppruna sinn er dýr- gripur sem má ekki glatast því óvíst er að það finni annan slíkan á lífsleiðinni. Góðir áheyrendur. Eg þakka ykkur samfylgdina á liðnu ári og ber fram persónulegar þakkir mínar fyrir traust og hlýhug sem ég hef notið af hálfu fjölmargra manna. Osk mín er sú að þetta ár sem senn verður „meðal dag- anna hér að baki“ megi verða til þess að efla Akureyringa og Ey- firðinga alla til átaka við framtíð- ina. Eg óska ykkur öllum árs og friðar. Gleðilegt nýár. Vínartónlelkar á Akureyri á 100 ára ártíð Strauss Einsöng syngur sópransöngkonan Gnðrún Ingimarsdótt- ir, sem m.a. hefur sungið með Johann Strauss hljómsveit- inni í Wiesbaden. Karlakór Akureyrar-Geysir held- ur Vínartónleika næstkomandi laugardag og sunnudag í íþrótta- skemmunni á Akureyri ldukkan 17.00 báða dagana undir stjórn Roars Kvam en við píanóið verð- ur Richard Simm. Með kórnum leikur Hljómsveit Akureyrar en einsöngvari er sópransöngkonan Guðrún Ingimarsdóttir, sem lauk námi hjá hinni þekktu koloratúr- söngkonu Sylvíu Geszty vorið 1998. Guðrún hefur auk fjölda tónleika, m.a. í óperunni í Múnchen, tekið þátt í mörgum óperuuppfærslum, m.a. í Wales, þar sem hún söng hlutverk Romildu í Zerxes eftir Handel og hlutverk Despinu í Cosi fan tutte með fílharmoníuhljómsveitinni í Baden Wúrtemberg. Guðrún kemur reglulega fram með Jo- hann Strauss hljómsveitinni í Wiesbaden. Vinartónleikarnir eru haldnir á Karlakór Akureyrar-Geysir heldur Vínartónleika næstkomandi laugardag og sunnudag f íþróttaskemmunni á Akureyri klukkan 17.00 báða dagana. Johann Strauss yngri samdi nær 200 valsa sem voru eins og fíngerðar perlur á festi, mjög fjöl- breytilegar og með ábúðarmikl- um inngangi og eftirspili. Ein- kennilegt er að Dóná svo blá var upphaflega kórverk og hlaut slæmar viðtökur. Það var ekki fyrr en hann breytti henni í sér- lega glæstan hljómsveitarvals sem hún sló í gegn og hefur orð- ið ímynd glæsibrags Vínarborgar. Aðrir frægustu valsar hans eru Listamannalíf; Vín, víf og söngur, Raddir vorsins og Keisaravalsinn. A efnisskrá tónleikanna í Iþrótta- skemmunni eru m.a. atriði úr Leðurblökunni og Sígaunabar- óninum, Keisaravals og Dóná svo blá og Radetzky-vals eftir Johann Strauss eldri. C,G 100 ára ártíð Valsakóngsins Jo- hanns Strauss sem lést 3. júní 1899. Hann háði valsaeinvígi við föður sinn og voru flestir sam- mála um að hann hefði þar haft betur. Eftir fráfall hans tók hann við danshljómsveit hans og gerði að stórhljómsveit sem lék fyrir dansleikjum, sem þóttu afar tign- arlegir og glæsilegir. Hann samdi einnig óperur, og eru þekktastar Leðurblakan, Nótt í Feneyjum og Sígaunabaróninn. Hæstiréttur gaf þingmönnum falleinkunn og ekki í fyrsta sinn. Hann er borðleggjandi árangur- inn af vinnu þingmanna, sem eru alltof margir. Mistökin virðast fyl- gja verkum þeirra og eiga þeir sök á mörgum annmörkum sem eru á Iífinu í landinu. Nú þegar þeir eru tilneyddir að vinna Iagasmíð sína uppá nýtt verður fróðlegt sjá hvemig til tekst. Ekki er ástæða að fenginni reynslu til að vera bjartsýnn á árangurinn af þeim tilraunum til úrbóta. Þeir skópu grundvöll öfundar í fiskveiði- stjórnunarkerfið þegar þeir heim- iluðu sölu á fiskveiðiheimildum og verður fróðlegt að sjá hvort þeim tekst að eyða honum með nýrri lagasmíð. SKOÐANIR BRYNJÓLFS Eim fengu þeir fíilleinknnn

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.