Dagur - 06.01.1999, Blaðsíða 2

Dagur - 06.01.1999, Blaðsíða 2
18 - MIÐVIKUDAGU R 6. JANÚAR 1999 rD^tr LÍFIÐ í LANDINU ■ SMATT OG STÓRT UMSJÓN: BJÖRN ÞORLÁKSSON Heimir Már Pétursson. Davíð Oddsson. GULLKORN Það er góð hug- mynd hjá þeim en það hefur ekkert meira gerst í því.“ Svavar Gestsson, aðspurður í Degi hvort hann sé að taka við stjóra- stöðu í norraenu starfi. Níu ár 1 sambúð Heimir Már Pétursson hefur ákveðið að bjóða sig fram til þingkosninga fyrir svokallaða Sam- fylkingu og hélt sá gamli fréttahaukur blaða- mannafund milli jóla og nýárs þar sem hann tilkynnti ákvörðun sína. Tímasetningin var snjöll. Heimir kann á fjölmiðla og í jólagúrkunni fékk hann góða athygli. Frétt í Mogga, útvarpi og góða umfjöllun í fréttatím- um beggja sjónvarpsstöðvanna. Eitt vakti sérstaka athygli ofanritaðs þegar lífshlaup Heimis Más var rakið í Morgunblað- inu. Þar kom nefnilega fram að hann hefði í 9 ár verið í staðfestri sambúð með ástmanni sín- um og man maður ekki til þess að áður hafi verið tíundað hve lengi frambjóðendur hafi átt í sínum samböndum. Kannski er þetta það sem koma skal: „Jón Jónsson hefur ákveðið að fara fram fyrir Sjálfstæðisflokk á Vestfjörðum. Hann er búinn að vera að dandalast með Siggu Sigurðar í 3 mánuði, en er ólofaður og hefur ljóslega ekki alveg gert upp hug sinn.“ Eða þannig. EkMvelkurútá við Davíð Oddsson kom nokkuð á óvart á gamlárs- dag í áramótaþættinum Kryddsíld á Stöð 2. Páll Magnússon fréttastjóri vitnaði í skoðana- könnun sem sýndi að hugsanlega myndi Sjálf- stæðisflokkurinn ná hreinum meirihluta á Al- þingi og spurði Davíð hvort hann kættist ekki verulega við að sjá svona útkomu. Davíð hélt nú ekki og gaf í skyn að þótt íhaldið næði hreinum þingmeirihluta, væri hæpið að leggja út í ríkisstjórn með svo naumt bakland. Hressilegasta tilsvar þáttarins átti Davíð einnig þegar hann var spurður hvort hann væri nokkuð veikur (lasinn) „Ekki skv. skoð- anakönnunum," var svarið. Ekkiráð nema.... Flugeldafögnuður virðist hafa verið með meira móti um áramótin hvort sem talað er um höf- uðborgarsvæðið, Akureyri eða minni staði. Gott skyggni olli því að mörgum fannst sem dýrðin hefði aldrei verið meiri, en líklega verða áramótin nú fremur aum miðað við þau næstu. Þegar nýtt árþúsund gengur í garð má búast við að himinhvolfin fái fyrst að finna fyrir því. Þetta vita framsæknir sölumenn og hefur ofanritaður heimildir fyrir því að nýir innflytj- endur hyggist blanda sér í flugeldasöluna fyrir árslokin næstu. Þetta Ieiðir einnig hugann að því hvort ekki sé hyggilegt að byija snemma á að selja Islandsferðir fyrir næstu áramót þar sem hægt er að lofa stórkostlegasta flugelda- íylleríi sögunnar. Margir geta þannig séð sér gróða í tímamótunum stóru. „Bárðdælingar eru nokkuð sérstakt fóik. Hér eru þjóð- hagará nánast hverjum bæ,“ segir Svanhildur Her- mannsdóttir. Dreifbýliskona af lífi og sál „Riddarakrossinn var sagður vera fyrir störf að fræðslu- og menningarmálum í dreifbýli. Það var ánægjulegt að mér skyldi hlotnast þessi heiður en einnig var gaman að dreifbýlis- ins skyldi getið í þessu tilliti, en þar hef ég starfað alla tíð,“ segir Svanhildur Hermannsdóttir, skólastjóri Barnaskóla Bárð- dæla. Hún var meðal þeirra sem forseti Islands sæmdi á ný- ársdag heiðursmerki hinnar ís- lensku fálkaorðu. Bráðum fjörutíu ár Svanhildur hefur alla tíð starf- að í heimasveit sinni Bárðar- dal. Hún er fædd á bænum Hlíðskógum en árið 1960 tók hún var skólastjórn í Bárðar- dal. Hin tæpu fjörutíu ár hafa verið viðburðarík og ýmsar breytingar hafa átt sér stað í skólastarfi. Nemendum hefur fækkað í áranna rás, flestir voru þeir skráðir 32 en það var um miðjan átt- unda áratuginn. Heimavist var lengi starfrækt við skólann, eða allt fram til ársins 1991. Nemendur í Barnaskóla Bárðdæla eru í vetur átján talsins og eru þeir á aldrinum 6 til 12 ára. Eftir það tekur Stórutjarnaskóli við. „Hér í daln- um eru engin börn sem eru undir skólaaldri, það er undir sjö ára. Að því leyti er framtíð skólastarfsins hér spurningarmerki um það til dæmis hvort hægt verð- ur á næstu árum að starfrækja skólann með fáum nemendum úr því engir nýir koma inn í staðinn," segir Svanhildur. Hún segist í skólastarfi leggja áherslu á þátt- töku nemenda í listgreinum, til dæmis tónlist, myndmennt, dansi og framsögn. „Þátttaka í þessu starfi styrkir nemenduma félags- lega og eflir þá jafnframt í hinu bóklega nárni." Bárðdælingar sérstakt fólk „Eg er dreifbýlismanneskja af lífi og sál,“ segir Svanhildur Her- mannsdóttir. Hún segist trúa því að mannlíf úti á landi geti vel dafnað, en þá verði fólk reyndar að trúa því sjálft. Mörgu í hinni nei- kvæðu byggðaþróun sé hægt að snúa við ef ekki komi til niður- drepandi neikvæðni. „Bárðdælingar eru nokkuð sér- stakt fólk. Hér eru þjóðhagar á nánast hveijum bæ, karlar eru lagnir við smíðar og konur við hannyrðir. Hér kann fólk líka vel að skemmta sér. Menningar- og félagslíf í Þing- eyjarsýslum hefur verið öflugt alla tíð og ég hef víða starfað á þeim vettvangi. Ofarlega er mér í huga starf Kvennakórsins Lissýar, sem starfar hér í sýslu og hefur kórinn verið menningarauki í héraði." -SBS. SvanhildurHer- mannsdóttirfékk á nýársdag riddara- kross fálkaorðunnar. Hún hefurverið skólastjóri íBárðar- dalíum 40 árog einnig komið aðýmsu menningarstarfi íhéraði. SPJALL ■ FRÁ DEGI Hamingjan vitjar þeirra sem brosa. Japanskt spakmæli Þetta gerðist 6. janúar • 1540 Hinrik VIII giftist Önnu af Cleves, hún var íjórða eiginkona hans • 1838 Samuel Morse sýndi ritsímann í fyrsta skipti opinberlega Þau fæddust 6. janúar • 1838 fæddist þýska tónskáldið Max Bruch. • 1850 fæddist þýski Jafnaðarmaðurinn Eduard Bemstein. • 1878 fæddist bandaríska skáldið Carl Sandburg. Merkisdagurinn 6. janúar I dag er þrettándi dagur jóla. Þrettándinn var áður kallaður opinberunarhátíð til minningar um skírn Jesú Krists, fyrsta TIL DAGS kraftaverk hans og tilbeiðslu vdtringanna þriggja frá Austurlöndum. Rómarkirkjan tíndi smám saman öll virðingarmerki af deginum, önnur en hið síðastnefnda. Jafnframt var farið að telja vitringana eð- alborna og talað um Austurvegskonunga. Þetta var eitt fjölmargra atriða sem Mart- einn Lúter gagnrýndi í helgisiðum kat- ólsku kirkjunnar. I prédikun einni frá ár- inu!531 fer hann háðsyrðum um þessa „þrjá flækinga" en vildi endurhefja þrett- ándann sem minningarhátíð skírnarinnar og gera hann að nýjársdegi. Þrettánda- nótt átti sér Iíka heitið draumnóttin mikla þva að þá átti Austurvegskonunga að hafa dreymt fyrir fæðingu Jesú. Um alþýðutrú má þá annars segja að hið sama hafi gilt um þrettándanótt og nýársnótt, má þar nefna óskastund, útisetu, búrdrífu, að kirkjugarður rísi, kýr tali, selir fari úr hömum sínum, vatn verði að víni og álfar flytja búferlum. Víða um land eru haldn- ar álfabrennur á þessum degi. Saga daganna Afmælisbam dagsins Tómas Guðmundsson tók lögfræði- próf frá Háskóla íslands árið 1926. Hann starfaði sem málflutnings- maður í Reykjavík, á Hagstofu Is- Iands og sem ritstjóri. Hann varð einna fyrstur til að yrkja um Reykjavíkurlífið og hefur verið kallaður borgarskáldið. Hann vakti verulega athygli með annarri kvæðabók sinn Fögru veröld sem kom út 1933. Tómas fæddist á Efri-Brú í Grímsnesi árið 1901 en hann lést árið 1983. Of þungir tarfar! Tveir hreindýraveiðimenn Ieigðu sér flug- vél austur á land. Veiðin gekk vel og þeir skutu sex stóra tarfa. Flugvélin kom á um- sömdum tíma til þess að sækja þá. Þegar þeir höfðu komið farangri sínum fyrir í vélinni mótmælti flugmaðurinn og sagði að þeir yrðu að skilja tvo skrokka eftir. Veiðimennirnir voru ekki ánægðir með það og sögðu að árið áður hefðu þeir leigt sér flugvél af einmitt þessari sömu gerð, þá hafi þeir líka veitt sex tarfa og flugmaður- inn Ieyft þeim að taka þá alla með. Eftir langt og mikið rifriidi lét flugmaðurinn undan. Farmurinn var of þungur og flug- vélin hrapaði í flugtaki. Þegar þeir voru að klifra út úr flakinu spurði annar veiðimað- urinn að því hvort þeir vissu hvar þeir væru. „Eg held það,“ var svarið sem hann fékk, „við erum á svipuðum stað og við hröpuðum á í fyrra.“ l' í .

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.