Dagur - 06.01.1999, Blaðsíða 5

Dagur - 06.01.1999, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 6. J A N Ú A R 1999 - 21 Xte^MT' BRÚÐKA UPSLÍFIÐ í LANDINU Puttamatur 1 giftingarveislu „Okkar framtíðaráform eru þau að vera hér á Akureyri, enda líður okkur vel hér í nágrennl við vini og ættingja, “ segir Ágústa Kristfn Björnsdóttir, sem hér sést ásamt Sigurði Vilhelm Steinarssyni eiginmanni sínum. ( Ljósm: Þór Gísla, Akureyri.J „Við vildum gifta okkur í lítilli kirkju. Maðurinn minn hafði unnið út í Laufási við að gera upp gamla bæinn þar og þekkti þannig sr. Pétur og síðan var það Jón Helgi bróðir hans sem fermdi mig, meðan hann var prestur á Dalvík. En nú er hann fluttur suður og því lá beinast við að leita til Péturs í Laufási," segir Agústa Kristín Björnsdóttir á Akureyri. Þann 15. ágúst í fyrrasumar gengu hún og Sigurður Vilhelm Steinarsson saman í heilagt hjónaband. Þau eru búsett á Ak- ureyri, þar sem hann starfar sem verktaki við smíðar en hún sem framreiðslumaður á Lindinni við Leiruveg. „Við erum búin að vera saman hér í tvö ár og því var kominn tími á giftingu. Okk- ar framtíðaráform eru þau að vera hér á Akureyri, enda líður okkur vel hér í nágrenni við vini og ættingja. Síðan munum við líka eignast okkar lyrsta barn í sumar, það er að segja ef allt gengur vel,“ segir Agústa. Hún segir að brúðkaupsdag- urinn í sumar skilji eftir sig góð- ar minningar. Fjöldi fólks hafi árnað þeim þá allra heilla - og það góða fólk hafi svo komið til veislu, sem var haldin að sam- komu lokinni í Lóni, félags- heimili Karlakórs Akureyrar, þar sem á boðstólum var puttamatur einsog hann gerist bestur. -SBS. Jón Hrannar og GígjaRut Gefin voru saman í heilagt hjónaband í Akureyrarkirkju þann 15. ágúst sl. sumar, af séra Birgi Snæbjörnssyni, þau Jón Hrannar Einarsson og Gígja Rut Ingvarsdóttir. Heimili þeirra er á Akureyri. (Ljósm: Þór Gísla, Akureyri.) Hallgrímur og Dagmar Gefin voru saman í heilagt hjónaband í Akureyrarkirkju þann 29. ágúst sl. sumar, af séra Sighvati Karlsssyni, þau Hall- grímur Hreiðarsson og Dagmar Kristjánsdóttir. Heimili þeirra er á Akureyri. (Ljósm: Þór Gísla, Akureyri.) Einar og íris Dögg Gefin voru saman í heilagt hjónaband í Akureyrarkirkju þann 22. ágúst sl. sumar, af séra Ornólfi Jóhannesi Olafssyni, þau Einar Georgsson og Iris Dögg Ingadóttir. Heimili þeirra er á Akureyri. (Ljósm: Þór Gísla, Ak- ureyri.) Að hrista af sér slenið SVOjMA ER LIFIÐ Pátur St. flrason skrifar Pétur svarar í símann! Ertu með ráð, þarftu að spyrja, viltu gefa eða skipta? Pétur svarar í símann kl. 9—12. Síminn er 563 1626 (beint) eða 800 7080. Póstfang: Þverholt 14 Rvk. eða Strandgötu 31 Akureyri. Netfang: ritstjori@dagur.is Eftir að hafa safnað orku um jól og áramót, Iegið í híði og gætt sér á forðanum sem var sankað að sér í desember, þá vakna margir upp við vondan draum. Þeir hafa endurholdg- ast í þeim skilningi orðsins að það hold sem búið var að ganga af sér á búðarápinu í desember kom á ný á kroppinn. Þeir Iíkamspartar sem voru orðnir dálítið stinnir fengu á ný á sig poka. Gamlir keppir komu á ný á maga, rass og læri. Matur er mannsins megin. Þó ekki í of miklu magni því ekki viljum við halda keppunum við. Það eru vitaskuld fleiri valkostir við kjötmeti jólanna en þverskorin ýsa með kartöfl- um og floti. Fyrir nokkrum árum voru í sjónvarpinu þættir sem báru heitið Að hrista af sér slenið. Þeir voru minnir mig sýndir í janúarbvrjun. Þeim tíma þegar fólk er að jafna sig eftir alla spennu jólanna. Einni líkamsræktarkonu frétti ég af suður með sjó sem hafði losað sig við ævintýranlegt magn af holdi. Hún borðaði samt sem áður sex máltíðir á dag. Hennar herferð gegn end- urholdguninni gekk að mestu út á brennslu, að brenna burt holdinu. Ráðin gegn endurhoidgun eru hreyfing og mataræði. Manneldisráð var með herferð fyrir nokkru þar sem rekinn var áróður fyrir neyslu ávaxta og græmetis. Grænmetisfæða er gott ráð lil að stemma stigu við endurholdgun í kjölfar jólasteikurinnar. HVAfl ER Á SEYfll? ÁLFAR OG HULDUFÓLK f ÖSKJUHLÍÐ í dag er þrettándinn, þrettándi og síðasti dagur jóla. Sagt er að álfar og huldufólk flytjist búferlum á þrettándanum og skjótist á milli steina og kletta. Glöggir gætu því hugsanlega komið auga á litskrúð- ugt fólk úr huldum heimum í kvöld, en þá gengst Ferðafélag íslands fyrir Þrettándagöngu og blysför um álfabyggðir í Oskjuhlíð. Gengið verður frá Perlunni klukkan 19:00. Blys verða seld áður en gangan hefst. Blysförin endar á álfabrennu Vals, en kveikt verður í henni klukkan 19:30. HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitar ís- lands Föstudagsköldið 8. janúar heldur Sinfón- íuhljómsveit Islands sína árlegu Vínartón- leika. Þeir verða í Laugardalshöllinni og hefjast klukkan 20.00. Laugardaginn 9. janúar verða svo tónleikarnir endurteknir klukkan 17. 00. Þrettándabrenna HK Handknattleiksfélag Kópavogs stendur fyrir Þrettándabrennu í Fagralundi í Foss- vogsdal. Safnast verður saman ldukkan 18:30 í Fagralundi og gengið að brenn- unni. Búist er við að í göngunni verði álf- ar og púkar á ferð. Kór Snælandsskóla syngur og að lokum verður flugeldasýn- ing. Hafnargönguhópurinn Gengið verður á milli félagsmiðstöðva í kvöld og lagt af stað frá Hafnarhúsinu vestanverðu kl. 20. Allir eru velkomnir í ferð með Hafnargönguhópnum. Myndlistasýning í Galleríi Horninu Fimmtudagskvöldið 7. janúar opnar Ólaf- ur Jökull, öðru nafni Dæsus einkasýningu í Gallerí Horninu, Hafnarstræti 15. á sýningunni eru ný olíumálverk í súreal- ískum anda og ber hún yfirskriftina „Ur einu í allt.“ Sýningin stendur til 21. janú- ar og verður opin alla daga kl. 11 - 24. „Minni gleymskunnar Einar Már Guðvarðarson sýnir tvær ljós- myndir af íslenskri bakgarðsnáttúru og níu höggmyndir f stein í Grylju Listasafns ASl við Freyjugötu, 9. -24. janúar. Inntak sýningarinnar er leitin í minni gleymsk- unnar í sambandi manns og steins. Listasafn ASI er opið þriðjudaga til sunnudaga kl. 14.00 - 18.00 „Heimar“ Laugardaginn 9. janúar opnar Helga Egilsdóttir málverkasýningu í Ásmundar- sal, Listasafns ASÍ. Hún sýnir sex olíu- málverk sem öll eru unnin á þessu ári. Þetta er áttunda einkasýning Helgu. LANDIÐ Egilsstaðir Sinfóníuhljómsveit Islands leikur á Vín- artónleikum sunnudaginn 10. janúar. Biskupstungnahreppur Laugardaginn 9. janúar ld. 14.00 verður hátíð í Reykholti í Biskupstungnahreppi. Tilefnið er vígsla á nýju Iþróttahúsi. Akureyri Vínartónleikar á 100 ára ártíð Strauss Karlakór Akureyrar-Geysir heldur Vínar- tónleika í Iþróttaskemmunni n.k. laugar- dag og sunnudag kl. 17. Einsöngvari með kórnum er Guðrún Ingimarsdóttir sópr- an, stjórnandi Roar Kvam og píanóundir- leikari er Richard Simm.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.