Dagur - 09.01.1999, Qupperneq 8
VIII -LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 19 9 9
rD^tr
Andlát
Anna Gísladóttir
Droplaugarstöðum, áður til
heimilis á Vífilsgötu 18, lést á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur þriðju-
daginn 5. janúar.
Álfliildur Erla Gestsdóttir
Heiðarholti 18, Keflavík, lést á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur 5. janú-
ar.
Ásta Fjeldsted
Jökulgrunni 3, Reykjavík, andað-
ist á heimili sínu míðvikudaginn
23. desember.
Bergþór Óskarsson
Strönd, Rangárvöllum, lést á
jóladag, 25. desember.
Bertha María Guðmundsson
Egilsgötu 24, lést á Vífilsstaða-
spítala fimmtudaginn 26. nóv-
ember.
Birna Sigurbjörnsdóttir
Reynimel 26, Reykjavík, lést á
Landakotsspítala laugardaginn
19. desember.
Bjarnfríður Pálsdóttir
lést á Sólvangi mánudaginn 7.
desember sl.
Bjarni Guðmundsson
verkstjóri, frá Hesteyri, lést á
Hrafnistu í Reykjavík mánudag-
inn 4. janúar.
Björg Aðalheiður Jónsdóttir
Hlíðarenda, ísafirði, andaðist á
sjúkrahúsinu á ísafirði mánudag-
inn 21. desember.
Bogi Þorsteinsson
fyrrv. yfirflugumferðarstjóri,
Hjallavegi 7, Njarðvík, lést á
Landspítalanum fimmtudaginn
17. desember.
Elías Þorkelsson
frá Nýjabæ í Meðallandi lést á
hjúkrunarheimilínu á Klaustur-
hólum miðvikudaginn 23. des-
ember.
Guðmundur Axelsson
lést á Landspítalanum fimmtu-
daginn 17. desember.
Guðrún Guðlaugsdóttir
er látin.
Halldóra Sigríður Ólafsdóttir
frá Stökkum, Rauðasandi, Stiga-
hlíð 20, lést á Droplaugarstöðum
sunnudaginn 20. desember.
Jóhann N. Jóhannesson
Blönduhlíð 12, Reykjavík, Iést á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur þriðju-
daginn 5. janúar.
Jóhanna Björnsdóttir
Ytra-Fjalli, lést föstudaginn 18.
desember.
Jón Hermannsson
fyrrverandi Ioftskeytamaður,
Hlíðarvegi 46, ísafirði, lést á
Landspítalanum mánudaginn 4.
janúar.
Karl B. Jónsson
Bólstaðarhlíð 42, Reykjavík, lést
á Landspítalanum fimmtudaginn
17. desember.
Klara Sigurðardóttir
Hólmgarði 62, Reykjavík, lést á
Landspítalanum Iaugardaginn
26. desember sl.
Málfríður Óskarsdóttir
Sigtúni 31, Reykjavík, lést
sunnudaginn 3. janúar.
Regína Hansen Sigurjónsson
Sléttuvegi 13, Reykjavík, lést
föstudaginn 11. desember sl.
Sigríður Tyrfingsdóttir
Litlu-Tungu, lést á Sjúkrahúsi
Selfoss fimmtudaginn 17. des-
ember sl.
Sigurbergur Magnússon
frá Steinum, Baugstjöm 22, Sel-
fossí, andaðist á Sjúkrahúsi Suð-
urlands 18. desember.
Sigurbjörg Guðmundsdóttír
ffá Dæli í Fnjóskadal, til heimil-
is í Lerkilundi 8, Akureyri, lést
þriðjudaginn 22. desember.
Siguijón Þóroddsson
verslunarmaður andaðist á
Hrafnistu í Reykjavík.
Sveinn Pétur Björnsson
Skálarhlíð, Siglufirði, áður til
heimilis á Hverfisgötu 29, varð
bráðkvaddur föstudaginn 18.
desember.
Valur Sigurbjarnarson
vistheimilinu Víðinesi, áður
Skúlagötu 68, Reykjavík, lést á
landspítalanum mánudaginn 21.
desember sl.
WiIIy Blumenstein
lést á Sjúkrahúsi Akraness
sunnudaginn 20. desember.
Þorsteinn Þorsteinsson
Engjavegi 77, Seifossi, lést á
Sjúkrahjfti Vestmannaeyja
mánudajinn 4. janúar.
Þóra Árnadóttir
Bárugötu 5, er látin.
MINNINGARGREINAR
■ÉÍM—
Kirkjustarfíflands-
byggðinni __________
Guðsþjónustur sunnudaginn 10. janúar
Eyrarbakkakirkja
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Sóknarprestur.
Akureyrarkirkja
Guðsþjónusta kl. 14. Sopi og spjall eftir
messu. Sr. Svavar A. Jónsson, messar.
Glerárkirkja
Messa kl. 14. Sr. Gunnlaugur Garðarsson.
KFUM og KFUK, Sunnuhlíð
Almenn samkoma kl. 17. Ræðumaður sr.
Guðmundur Guðmundsson. Verið velkomin.
Hjálpræðisherinn Hvannavöllum 10
Sunnudagaskóli kl. 11.
Almenn samkoma kl. 17.
Unglingasamkoma kl. 20.
Heimilasamband, fundur fyrir konur mánu-
dag kl. 15.
Kirkjustarf á Höfuðborg-
arsvæðinu
Messutilkynningar fyrir Reykjavíkur-
prófastdæmi eystra
Árbæjarkirkja
Guðsþjónusta kl. 11, sr. Árni Eyjólfsson hér-
aðsprestur annast guðsþjónustuna, organ-
leikari Pavel Smid.
Barnaguðsþjónusta kl. 13.00. Foreldrar og
aðrir vandamenn boðnir velkomnir með
börnunum. Prestarnir.
Breiðholtskirkja
Barnaguðsþjónusta kl. 11
Messa kl. 11. Altarisganga. Organisti Daníel
Jónasson. Gísli Jónasson.
Digraneskirkja
Kl. 11 orgelandakt, ritningalestur og bæn í
umsjá Kjartans Sigurjónssonar organista.
Fella- og Hólakirkja
Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Guðmundur
Karl Ágústsson. Organisti Lenka Mátévoá.
Barnaguðsþjónusta á sama tíma. Umsjón:
Hanna Þórey Guðmundsdóttir og Ragnar
Schram. Prestarnir.
Grafarvogskirkja
Sunnudagaskóli í Grafarvogskirkju kl. 11.
Prestur sr. Anna Sigríður Pálsdóttir, umsjón
Hjörtur og Rúna.
Sunnudagaskóli í Engjaskóla kl. 11. Prestur
sr. Vigfús Þór Árnason, umsjón Ágúst og
Signý.
Guðsþjónusta í Grafarvogskirkju kl. 14.
Prestur sr. Sigurður Arnarson, organisti
Hörður Bragason, Kór Grafarvogskirkju
syngur.
Hjallakirkja
Almenn guðsþjónusta kl. 11. Sr. Iris Krist-
jánsdóttir þjónar. Félagar úr Kór Hjallakirkju
leiða safnaðarsöng.
Barnaguðsþjónusta kl. 13. Við minnum á
bæna- og kyrrðarstund á þriðjudag kl. 18.
Prestarnir.
Kópavogskírkja
Barnastarf í Safnaðarheimilinu Borgum kl.
11. Guðsþjónusta kl. 11. Kór Kópavogs-
kirkju syngur, organisti Kári Þormar. Ægir Fr.
Sigurgeirsson
Seljakirkja
Barnaguðsþjónusta kl. 11, nýjar bækur af-
hentar.
Guðsþjónusta kl. 14, sr. Ágúst Einarsson
predikar, organisti Gróa Hreinsdóttir. Sókn-
arprestur.
Messutilkynningar fyrir Reykjavíkur
prófastsdæmi vestra.
Áskirkja
Barnaguðsþjónusta kl. 11:00.
Guðsþjónusta kl. 14:00. Kaffi eftir messu.
Árni Bergur Sigurbjörnsson.
Bústaðakirkja
Barnaguðsþjónusta kl. 11:00. Fjölbreytt
dagskrá fyrir alla fjölskylduna.
Guðsþjónusta kl. 14:00. Organisti Örn
Falkner. Pálmi Matthíasson.
Dómkirkjan
Messa kl. 11:00. Altarisganga. Prestur Jak-
ob Á. Hjálmarsson. Organleikari Marteinn
H. Friðriksson. Að lokinni messu verður
fundur Safnaðarfélags Dómkirkjunnar í
safnaðarheimilinu. Rósa Þorsteinsdóttir
starfsmaður Stofnunar Árna Magnússonar
kynnir geisladiskinn Raddir, sem hefur að
geyma kveðskap og söng úr gögnum
safnsins.
Elliheimilið Grund
Guðsþjónusta kl. 10:15.
Grensáskirkja
Barnastarf kl. 11:00. Munið kirkjubílinn!
Guðsþjónusta kl. 11:00. Kirkjukór Grensás-
kirkju syngur. Organisti Árni Arinbjarnarson.
Sr. Ólafur Jóhannsson.
Hallgrímskirkja
Messa og barnastarf kl. 11:00. Organisti
Hörður Áskelsson. Sr. Sigurður Pálsson.
Eftir messu kl. 12:15 verður opnuð sýning á
málverkum eftir Þorbjörgu Höskuldsdóttur á
vegum Listvinafélags Hallgrimskirkju.
Landspítalinn
Messa kl. 10:00. Sr. Ingileif Malmberg.
Háteigskirkja
Barnaguðsþjónusta kl. 11:00. Bryndís Val-
björnsdóttir.
Messa kl. 14:00. Organisti Jakob Hallgríms-
son. Sr. María Ágústsdóttir.
Langholtskirkja
Kirkja Guðbrands biskups.
Fjölskylduguðsþjónusta í Litla sal safnaðar-
heimilis kl. 11:00. Haukur Ingi Jónasson,
guðfræðingur, predikar. Sögustund fyrir
börnin i umsjón Lenu Rósar Matthíasdóttur.
prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson. Organisti
Jón Stefánsson. Kaffisopi eftir guðsþjón-
ustu.
Laugarneskirkja
Messa og sunnudagaskóli kl. 11:00. Org-
anisti Gunnar Gunnarsson. Prestur sr. Bjarni
Karlsson. Eftir messu: Hugflæði um safnað-
arstarf á vorönn.
Neskirkja
Barnasamkoma kl. 11:00. Starf fyrir 8-9 ára
á sama tíma. Opið hús frá kl. 10:00.
Guðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Frank M. Hall-
dórsson.
Seltjarnarneskirkja
Messa kl. 11:00. Prestur sr. Guðný Hall-
grímsdóttir. Organisti Kristín G. Jónsdóttir.
Barnastarf á sama tíma.
J-----------^
ORÐ DAGSINS
462 1840
K___________r
Hvað er á seyði?
TónBeikar, sýningar,
fyrirlestrar o.s.frv...
Sendu okkur upplýsingar á netfangi, í símbréfi eða hringdu.
ritstjori@dagur.is / fax 460 6171 / sími 460 6100
Útvörður upplýsinga
Jörgína Dórófhea
Jónsdóttir
Um Jörgínu Dórótheu Jónsdótt-
ur (Dóru), sem Iést í sjúkrahús-
inu á Húsavík þann 29. desem-
ber 1998 og var jarðsungin frá
Húsavíkurkirkju 8. janúar 1999.
Enn þá gefst oss árið nýtt
út hið gamla er runnið.
Nú skal þakka og þakka hlýtt
þeim sem vel hafa unnið.
Þannig var ort í „pósíbók"
Dóru, móðursystur okkar, af ein-
hverjum sem hún hafði liðsinnt
þegar veikindi steðjuðu að heim-
ili hans.
Dóra, eins og hún var ætíð
kölluð, var næstyngst tíu systk-
ina á Höskuldsstöðum í
Reykjadal, 27. september
1906. Foreldrar hennar voru
hjónin Jón Olgeirsson bóndi
og Kristín Sigríður Kristjáns-
dóttir húsmóðir. Systkini
hennar eru nú öll Iátin en þau
voru: Björg fædd 31. janúar
1890 í Vallakoti, Anna fædd
15. janúar 1891 á Breiðumýri,
Asgeir fæddur 17. mars 1893 í
Laugaseli, Elín Petrína fædd
27. júlí 1895 í Laugaseli,
Hermína fædd á Stóru-Laug-
um 18. apríl 1897, Ásrún fædd
3. mars 1900 á Höskuldsstöð-
um, Olgeir Hinriksson fæddur
5. maí 1902 á Höskuldsstöð-
um, Sigfríður fædd 10. júlí
1904 á Höskuldsstöðum og
Jakobína fædd 26. september
1908 á Höskuldsstöðum.
Dóra ólst upp á Höskuldsstöð-
um og átti þar heima fram yfir
þrítugt. Hún lærði snemma að
lesa og skrifa og eflaust hefur
hún notið einhverrar farskóla-
kennslu, en einkum voru það þó
eldri systkini hennar, Asgeir og
He'mína, og faðir hennar, Jón,
sem kenndu henni. Uppvöxtur-
inn var að mörgu leyti erfiður,
móðir hennar heilsulítil og
heimilið fátækt. Með sparsemi
og aðgát björguðust búrekstur-
inn og heimilishaldið. Maturinn
var hollur og góður og börnin
sultu aldrei. Silungurinn í Vest-
mannsvatni átti sinn þátt í því
auk þess sem hann hefur eflaust
stuðlað að langlífi þeirra systkin-
anna sem flest náðu því að kom-
ast á ní- eða tíræðisaldur. A
heimilinu var mikið sungið, bæði
af sálmum og veraldlegum lög-
um. Dóra tók mikinn þátt í þess-
um söng, sísyngjandi og
síraulandi, og kunni mikil býsn
af sálmum og ljóðum.
Meðan Dóra átti heima á
Höskuldsstöðum voru ekki
sjúkrahús eða heimilishjálp.
Dóra fór mikið á milli þeirra
heimila þar sem mest var hjálpar
þörf og vann þar sem var fársjúkt
fólk og sængurkonur sem þá
fæddu auðvitað börnin heima og
oft við afar erfiðar aðstæður.
Hún þvoði þvotta, hjúkraði og sá
um’ heimilin meðan nauðsyn
krafði. Hvergi var rafmagn á
þessum árum, jafnvel takmarkað
af vatni innanhúss, og erfitt fyrir
nútímafólk að gera sér grein fyr-
ir aðstæðunum. Launin voru
stundum ekki síður þakklæti og
ævilöng vinátta heldur en pen-
ingar eða annað sem metið verð-
ur til fjár með auðveldum hætti.
Um það vitnar vísan að ofan.
Árið 1940 fluttist Dóra í Lyng-
brekku þar sem hún bjó að
•mestu leyti •. næstu sex árin.
Hermína systir hennar hafði þá
misst eiginmann sinn og tók
Dóra að sér að sjá um heimilið,
börnin og búið með Hermínu.
Börn Hermínu voru þá eins, átta
og tíu ára gömul.
Á Lyngbrekkuárunum kynntist
Dóra eiginmanni sínum, Helga
Björnssyni, sem þar var vinnu-
maður. Þau giftust og eignuðust
dreng sem dó í fæðingu. Dóra
saknaði hans afar sárt. Nokkru
eftir það fluttu þau Helgi til
Húsavíkur þar sem þau bjuggu
síðan. Dóra vann þar ýmis störf,
t.d. við þvotta og heimilishjálp,
en einnig starfaði hún víða við
heyskap á sumrum. Þá prjónaði
Dóra mikið, t.d. leista og vettl-
inga sem sjómenn á Húsavík
gátu keypt hjá henni hvenær
sem þá vantaði.
Höskuldsstaðasystkinin héldu
alltaf miklu og góðu sambandi
hvert við annað. Dóra heimsótti
því oft systkini sín hvort sem
bjuggu í Reykjadal eða Mývatns-
sveit eða á Akureyri, og allir
hlökkuðu mikið til. Hún var því
góður gestur á heimilum okkar
þar sem henni fylgdi mikil gleði
sem bæði við og börn okkar nutu
til fulls og reyndar öll önnur
börn sem henni kynntust. Við
erum Dóru afar þakklát fyrir þau
hollu uppeldisáhrif sem hún
hafði með nærveru sinni og virð-
ingu sem hún bar fyrir öllum í
kringum sig.
Þann 2. maí 1981 flutti Dóra í
dvalarheimili aldraðra á Húsa-
vík, Hvamm, þar sem hún deildi
íbúð með Sigfríði systur sinni,
enda var Helgi þá látinn, og í
febrúar 1994 hafði heilsu henn-
ar hrakað svo mikið að hún
dvaldi eftir það í sjúkrahúsinu
þar sem hún lést.
Eftir að minnið fór að hverfa
var Dóra alltaf á leiðinni heim í
Höskuldsstaði. Síðustu árin var
hún þó örugglega oft að hugsa
um einhverja aðra heima en
þann, sem við lifum í, því að hún
talaði um stað þar sem hún vildi
hitta vini sem farnir voru á und-
an henni. Hún lýsti því jafnvel
vandlega hverja hún ætti von á
að hitta og við hvaða aðstæður.
Dóra var fyrir löngu búin að
ákveða að við jarðarför sína ætti
að syngja mikið og hafa mikið af
blómum og væri nóg að lesa ritn-
ingargrein sem hefst svona:
„Drottinn er minn hirðir...“
Gerður, Stefán, Svanhildur,
Þórey.