Dagur - 15.01.1999, Síða 2
18-FÖSTUDAGUR ÍS. JANÚAR 1999
Dagtur
LÍFIÐ t LANDINU
i.
ÞAD ER KOMIN HELGI
Hvaö
ætlarþúað
gera?
Heimsóknir til
frambjóðenda
„Eg verð á föstudag og að minnsta kosti eitt-
hvað fram eftir laugardegi norður á Akureyri
á fundi auðlindanefndarinnar svonefndu, sem
starfar undir formennsku Jóhannesar Norð-
dal,“ segir Margrét Frímannsdóttir, formaður
Alþýðubandalagsins.
„Eg kem suður síðdegis á laugardaginn og
„fyndislegu umhverfi," þá ætlaði ég að gefa mér tíma til þess að
segir Margrét heimsækja þá þátttakendur sem gefa kost á
Frímannsdóttir. sér fyrir hönd Alþýðubandalagsins í prófkjöri
_________ Samfylkingarinnar og eru að opna sínar kosn-
ingaskrifstofur um helgina. Vilhjámur og
Bryndís á laugardag og Árni Þór á sunnudag.
En annars ætla ég að vera heima á Stokkseyri
einsog kostur gefst og eiga þar góðar stundir í
alveg yndislegu umhverfi.“
„Notaiegt frí, “ segir
Ingunn Guðmunds-
dóttir.
„Aiitaf vinna um helg-
ar,“ segirsr. Baldur
Kristjánsson.
Dreymir rólegheit
„Um heigina læt ég mig dreyma um að eiga
rólegt og notalegt frí,“ segir Ingunn Guð-
mundsdóttir, forseti bæjarstjórnar Arborgar.
„Tveggja ára gömul ömmustelpa er að koma
til mín, en síðan ætla ég líka að hafa það hér
rólegt með syni mínum, Sigurði Rúnari, sem
er tíu ára. Og þegar við höfum það rólegt þá
gerum við nákvæmlega það sem okkur sýnist;
náum okkur kannski í spólu og jafnvel tekst
honum að draga mig með sér í sund. - Og síð-
an eru helgarnar líka ágætar til þess að ná í
skottið á sér í þeim húsverkum sem maður
kemst ekki í yfir vikuna," segir Ingunn.
Gifting og skím
„Það er búið að biðja mig um að gifta og skíra
á laugardaginn," segir sr. Baldur Kristjánsson,
prestur í Þorlákshöfn.
„Einsog títt er hjá okkur prestum þá er ég
alltaf að vinna um helgar, og fyrir utan þetta
sem ég nefndi þá þarf ég líka að annast
sunnudagaskóla fyrir yngstu börnin. Gaman
væri ef ég kæmist eitthvað í bridds á föstu-
dagskvöld og gæti líka átt einhverja samveru
með dóttur minni. Síðan liggja líka hér á
borðinu hjá mér tvær bækur mikilla stílsnill-
inga, Morgunþula í stráum eftir Thor og
Sérðu það sem ég sé eftir Þórarin Eldjárn.
Ræður mínar verða sjálfsagt miklu betri við
lestur bóka á borð við þær," segir Baldur.
Eftir fjarveru í háift annað ár er Bogi Ágústsson aftur kominn á vaktina í Sjón-
varpinu. Er kominn með ný gleraugu og vel kiipptur sem er nokkuð annað en
iubbinn mikii og gleraugun stóru sem hann var með í gamla daga. Fréttastofa
Sjónvarpsins hefur verið starfsvettvangur Boga síðustu tuttugu árin eða svo og
er það flestra mat að þar hafi hann staðið plikt sína með prýði.
LÍF OG LI8T
Málfarið mergjað
„Eg var að
Ijúka við
nýjustu bók
Thors Vil-
hjálmsson-
ar, Morgunþula í stráum. Mér
fannst gaman að bókinni, sér-
staklega þegar á hana leið.
Málfarið er mergjað og glæsi-
legt einsog yfirleitt er er í bók-
um Thors,“ segir Þröstur
Olafsson, framkvæmdastjóri
Sinfónínuhljómsveitar íslands.
„Nú er ég að lesa nýjustu bók
Guðbergs Bergssonar, Einsog
steinninn sem hafið fágar.
AUtaf er Guðbergur jafn góð-
ur, hann gefur okkur hlutdeild
í bernsku sinni og segir í þess-
ari bók með heillandi hætti,
bæði sem barn og þroskaður rithöfundur, frá
dulmögnun bernskunnar í litlu sjávarþorpi úti á
landi. Það er saga sem margir eiga hlutdeild í.“
Kantötur Bachs
„Eg er að fara í gegnum kant-
ötur Bachs, það er markmið
sem ég setti mér nýlega jafn-
vel þó ég þekki þær fyrir. En
síðast var ég að hlusta á fjórðu sinfóníu Mah-
lers, sem er aðgengilegra verk en margar aðrar
sinfóníur hans. Enda talsvert styttri en hinar. Ég
hlusta talsvert mikið á sígilda tónlist og hef gert
alla tíð. Það er engin krafa um slíkt í mfnu
starfi, þó erfitt væri að sinna því svo vel sé nema
hafa einhverja þekkingu á sígildri tónlist. Þekkja
að minnsta kosti mun á Bach og Beethoven."
Síðasta mynd Kurosava
„Sfðast horfði ég á síðustu
mynd japanska kvikmyndaleik-
stjórans Kurosava og snýst hún
um afstöðu Japana til kjam-
orkusprengjunnar sem varpað
var á Nagasagi. Þráðurinn var frásögn af jap-
anskri fjölskyldu sem komst að því að hún ætti
frænda á Hawai sem kvæntur væri bandaríski
konu. Fylgja þessu tilfinningaleg átök og blekk-
ing, sem kemur til vegna sársauka Japana í garð
Bandaríkjamanna fyrir að hafa varpað sprengj-
unni en jafnframt er undirlægjuhætti hinna ný-
ríku vel lýst. Eg varð fyrir vonbrigðum með
myndina, fannst hún hálfvæmin. Ég horfi ekki
mikið á myndbönd, hef hreinlega ekki tíma til
þess og læt því bækur og geisladiska duga.“ -SBS.
■ fra degi til dags
Hafa skal gott ráð, þótt úr refsbelg
komi
Þorskfirðinga saga
Þetta gerðist 15. janúar
• 1535 Iýsti Hinrik áttundi sig yfirmann
Englandskirkju.
• 1809 kom Jorgen Jorgensen fyrst til Is-
lands og dvaldi þá í tvo mánuði, en
kom aftur um sumarið og „stjórnaði" þá
landinu um hundadagana.
• 1895 var Svanavatnið eftir Tsjaíkovskf
frumsýnt í Sankti Pétursborg.
• 1922 var Irska íríríkið myndað og
Michael Collins tók við forsætisráð-
herraembætti þar.
• 1983 var Bandalag jafnaðarmanna
stofnað.
• 1993 var ítalski mafíuleiðtoginn Sal-
vatore Riina handtekinn.
Þau fæddust 15. janúar
| • 1809 fæddist franski róttæþlingurinn
Piérre-Joseph Proudhon.
• 1850 fæddist rúmanska skáldið Mihail
Eminescu.
• 1900 fæddist breski heimspekingurinn
R.B. Braithwaite.
• 1902 fæddist Valur Gíslason leikari.
• 1906 fæddist gríski skipakóngurinn
Aristóteles Sókrates Ónassis.
• 1909 fæddist bandaríski djasstrommu-
Ieikarinn Gene Krupa.
• 1914 fæddist breski sagnfræðingurinn
Hugh Trevor-Roper.
Vísa dagsins
Vísa dagsins er persnesk drykkjuvfsa:
Ég mætti t gærkvöld gömlunt fyllirafti
sem græna flösku að vörum bar og lapti
ég sagði: „Þú ert svín!" en dóninn hló:
„Hæ, súptu á, vinur minn,
og haltu kjafti."
Afmælisbam dagsins
Einhver alfrægasti baráttumaður
fyrir réttindum svartra í Bandaríkj-
unum, doktor Martin Luther King
yngri, fæddist í Atlanta og hefði
orðið sjötugur í dag. Ræðan sem
hann flutti 28. ágúst 1963, um
draum sinn um óskorað frelsi
svartra til jafns við hvíta, tryggði
honum óskipta athygli umheimsins.
Hann féll fyrir launmorðingja þann
4. apríl 1968. Árið 1986 var fæð-
ingardagur Kings, 15. janúar, gerð-
ur að opinberum hátíðisdegi í
Bandaríkjunum.
Ótímabært sáðlát!
Jónas og Magga voru við það að skilja.
Þau ákváðu að fara til hjónabandsráð-
gjafa og sjá hvað hann gæti gert fyrir
þau. Ráðgjafinn spurði þau hvað væri
aðal vandamálið. Magga svaraði strax:
„Hann þjáist af ótfmabæru sáðláti!"
Ráðgjafinn sneri sér þá til Jónasar og
spurði: „Er þetta rétt, Jónas minn?“
Og Jónas svaraði: „Ja, kannski ekki al-
veg. Það er hún sem þjáist, ekki ég.“
Veffang dagsins
Áhugamenn um Finnland, finnskt þjóðlíf
og finnska menningu ættu endilega að
líta á vefsetur sem nefnist Virtual Fin-
land og er að finna á http://virtual.fin-
land.fi ,