Dagur - 15.01.1999, Side 4

Dagur - 15.01.1999, Side 4
20-FÖSTVDAGUR 15. JANÚAR 1999 LÍFIÐ í LANDINU L Einhver hlægilegasta en þó um leið sorglegasta frétt sem ég hef séð í ís- lensku blaði um hríð var í Morgunblaðinu á þriðju- daginn var. Hún var stutt svo ég ætla að lesa hana í heilu lagi. „Enn sprengt í Haga- skóla,“ var fyrirsögnin, og fréttin var svona: „Hvell- hetta var sprengd á sal- erni drengja í Hagaskóla í Reykjavík um hádegi í gær. Brunavarnarkerfi skólans fór í gang, en truflun varð þó ekki á skólastarfi. Drengurinn sem sprengdi Iokaði sig inni á salerninu með GSM-síma og hringdi í nokkrar fréttastofur til að tilkynna um ástandið í þeirri von að hleypa starfi skól- ans í uppnám. Hins vegar var stundaskrá fylgt og kennsla fór fram með eðlilegum hætti í skólanum í gær.“ Þetta er einhvern veginn ekki hægt að sjá fyrir sér án þess að fá beinlínis tár í augun. Drengurinn sem gengur ákveðn- um skrefum inná klósettið, loksins er komið að því, stóru stundinni í lífi hans, nú láta fæturnir að stjóm og andardrátt- urinn er djúpur, en í allan morgun hefur hann titrað svolítið, alltaf inná milli, og gripið andann á lofti, þegar hann hefur hugsað til þess, afreksins sem hann ætlar að vinna, og hann hefur gáð margoft hvort það sé ekki örugglega nóg á batterí- unum á GSM-símanum hans, þessum GSM-síma sem hingað til hefur verið eina táknið um að hann sé maður með mönn- um, og hann hefur hringt stundum oft á dag í vini síni til að Iáta þá vita að það væri einmitt hann sem væri að hringja, og nú mun GSM-síminn verða honum ómissandi við þetta afreksverk sem hann ætlar að vinna, og er ekki örugglega nóg á batteríunum, síminn í hleðslu allt gær- kvöld svo það færi nú örugglega ekkert úr- skeiðis þegar stóra stundin rynni upp, og hann stefnir á ldósettið, og svei mér ef hann þarf ekki fyrst að pissa, spennan skiljiði, og hann lýkur því af, örlítil spenna aftur farin að færast í kroppinn, stóra stundin alveg að renna upp skiljiði, en hann er samt kúl, og loks er hann búinn að pissa, og hann læsir sig inni á klósett- inu, andar djúpt, nú verður ekki aftur snúið, það er svo gott að ekki verði aftur snúið, hálfnað verk þá hafíð er, einhvers staðar djúpt niðrí sálinni var hann örlítið smeykur við að hann myndi kannski ekki þora, að hann myndi flýja af hólmi á síð- ustu stundu, en það mun þá ekki gerast, hann er búinn að loka á eftir sér klósett- inu, þetta er í alvöru, og hann er alvöru, hann er kúl, hann bælir niður skjálftann og dregur upp sprengjuna, sprengjuna sem skilur á milli hans og aumingjanna, sem engu þora, aumingjanna sem láta bara leiða sig eins og lömb og eru ekkert kúl, en hann er kúl, og hann gáir í flýti hvort hann sé ekki örugglega með GSM- símann með sér og GSM-síminn er auð- vitað á sínum stað í vasanum, hann varpar öndinni léttar og horfir á sprengjuna í höndum sér, verst hvað hún er lítil, þetta er eiginlega ekki annað en hvellhetta, það er synd, verst hann skyldi eyða öllum stóru flugeldunum í vitleysu eftir áramót- in, senda þá bara upp í loftið þegar hann hefði getað sprengt þá hér inni í skólan- um, eins og hinir töffararnir, en samt kemst hann núna í þeirra flokk, hann verður sko kúl þegar þetta er afstaðið, hann er að mótmæla og lýsa frati, verst hvað sprengjan er lítil, en samt er þetta afreksverkið hans, og hann er að mót- mæla og lýsa frati, hann veit ekki alveg á hvað, en þeir skulu finna fyrir honum, þessir kerfiskallar, hann er að lýsa frati, og hann hefur gabbað þá alla, þessa aum- ingja, þeir vita ekki um töffarann sem býr innra með honum, þó hann tarðist ekki mikill fyrir mann að sjá svona utan frá, meirað segja GSM-síminn dugði ekki til Iengdar til að honum væri sýnd virðing, en nú skal hann sýna þeim, honum hlær hugur í bijósti, hvað ætli þeir segi þegar öll blöðin verða komin á vettvang og sjón- varpsstöðvarnar og löggan og allt orðið vitlaust, þá verður sko fjör og blóðið renn- ur hraðar um æðarnar, þá ætlar hann að glotta og aka til öxlunum eins og hann hefur séð í bíó að menn gera þegar þeir UMBÚDA- LAUST „...hvað ætli þeir segi þegar öll biöðin verða komin á vettvang og sjónvarþsstöðvarnar og löggan og allt orðið vit- laust, þá verður sko fjör og blóðið rennur hraðar um æðarnar, þá ætlar hann að glotta og aka til öxlunum eins og hann hefur séð í bíó að menn gera þegar þeir eru kúl„..“ Kúkuni á kerfið! eru kúl, og hann gáir eitt andartak hvort það sé ekki alveg örugglega nóg á batterí- unum á GSM-símanum og auðvitað ætlar GSM-síminn ekki að bregðast honum á stóru stundinni, verst hvað sprengjan er lítil, ef hún væri stærri gæti hann kannski kastað henni inná kennarastofu og aldeil- is mótmælt og Iýst frati, hann veit ekki al- veg á hvað því hann er bara unglingur, en það er eitthvert kerfí sem veit ekki að hann er kúl en þarf að vita það, eða kannski myndi hann ekki alveg þora að kasta inná kennarastofu, því hefur enginn þorað, sama hversu kúl þeir hafa verið, en ef sprengjan væri stærri gæti hann kastað henni inní hópinn á göngunum, þá yrði nú allt vitlaust, guð, hvað allt yrði vitlaust og hvað hann yrði þá kúl, ekki að leiða hugann að því að einhver gæti slasast því hann væri að mótmæla og lýsa frati á kerfið, kannski skrýtið þegar hann hugsar útí það að mótmæla og lýsa frati með því að Iáta jafnöldrum sínum bregða, og kannski slasa þá einhveija, en þá er best að hugsa ekki útí það, því þeir eru kúl sem gerðu það, það er ekkert hægt að neita því að þeir séu kúl, og nú bætist hann í flokk með þeim, hann sjálfur, og það verður allt vitlaust og hann ætlar bara að glotta, og svo fær hann sér lögfræðing og kúkar á kerfíð, ef þeir ætla að gera honum eitthvað, þessir aumingjar, og þá held ég verði nú gaman að lifa þegar GSM-síminn hringir og hann getur sagt vinum sínum það sé lögfræðingurinn hans að diskussa keisið, og þeir lögfræð- ingurinn kúka saman á kerfíð með stjórn- sýslukærum og allskonar öðru kúl stöffi, og verst hvað sprengjan er lítil, en hún mun samt koma að gagni, það verður ör- ugglega allt vitlaust, og það verður hann sem gerir allt vitlaust, hann er búinn að Iæsa á eftir sér klósettinu, stóra stundin er alveg að renna upp, skyldu þeir senda víkingasveitina og láta umkringja klósett- ið, þá fyrst yrði nú kúl fjör, maður, og þá myndi hann glotta, þegar hann yrði um síðir leiddur út í handjárnum, maður Iif- andi, hvað hann myndi glotta og allir myndu horfa á hann og vita að hann væri kúl og búinn að kúka á kerfíð, en sprengj- an kannski ekki alveg nógu stór til þess þeir sendi víkingasveitina, en alla vega nógu stór til að það komi minnsta kosti þrír fjórir löggubílar með sírenur á fullu, og allt verður vitlaust, og skólinn í upp- námi, og það verður hann sem veldur því, hann sem er að mótmæla, því þetta er sko pólitík, þó það sé engin ömurleg flokkapólitík, langt yfir svoleiðis hafinn, og það er örugglega nóg á batteríunum á GSM-símanum og hann dregur úr pússi sínu miðann með símanúmerunum sem hann er búinn að skrifa upp, það eru símanúmer á fréttastofunum sem munu flykkjast á staðinn og segja langar fréttir af þessu, hvernig hann kúkaði á kerfíð, hann sem allir héldu að væri bara einhver aumingi eins og hinir aumingjarnir, en hann er kúl og hann sér símanúmerin greinilega þó sumir tölustafirnir séu farnir að leka út undir fingrum hans, er hann þá svona sveittur, en það er í lagi, það mun aldrei vitnast, hann segir aldrei neinum frá því, þegar hann segir vinum sínum frá þessu seinna, hvernig fréttastofurnar ruku upp til handa og fóta þegar hann hringdi, og ætti hann að flytja einhveija yfirlýsingu kannski, en það er nú líklega of flókið mál, og auk þess verður hann að fara að sprengja, það gæti einhver farið að koma inn á klósettið og uppgötvað að hann væri þarna læstur inni, það gæti orðið neyðar- legt og hún má ekki verða neyðarleg, þessi stóra stund, og hann hringir og hann fær samband og það er mesta furða hvað röddin er stöðug því eitthvað er farið að titra oní maga, en þeir heyra það áreiðan- lega ekki, þessir fféttamenn sem nú fara að flykkjast á staðinn með löggunni, þegar allt verður vitlaust, og hann er furðu ör- uggur í röddinni og þetta er ég og ég ætla að sprengja og ég skal sko sprengja og ég ætla að kúka á kerfíð, þessi mannréttinda- brot skiljiði, þeir kíkja í töskuna manns til að gá hvort maður sé með sprengju, og banna manni meirað segja að fara út, mannréttindabrot, skiljiði, svona er sko kerfíð og það er farið illa með mann, en maður er kúl og ég ætla að sprengja og fá mér svo lögfræðing og hringja í hann oft og diskussa keisið og mér datt í hug svona að Iáta ykkur vita svo þið getið komið á staðinn og dekkað það þegar allt verður vitlaust, þegar löggan kemur og eltist við mig, en þeir skulu sko aldrei fá að vita hver gerði það, hver var að sprengja, og löggan verður alveg í öngum sínum á göngunum en það skal sko ekki komast upp um hann, að vísu veit hann þá ekki hvers vegna hann ætti þá að fá sér Iög- fræðing og hringja oft í hann, það er eins og þetta fari ekki alveg saman, en það mun allt leysast þegar hann sprengir, verst hvað sprengjan er lítil, og einhvem veginn virðast fréttamennirnir ekki alveg nógu uppnæmir, eins og þeir fatti ekki alvöru málsins, að það er hann sem er að hringja og hann er með sprengju, og hann er með GSM-símann sinn læstur inná klósetti með sprengju og þetta er í sjálfum Haga- skólanum og geriði það, komiði nú æð- andi, það verður alveg örugglega allt vit- laust, löggan og svona, og krakkarnir allir á nálum og kennarafíflin og skólastjóra- auminginn uppá háa sé, og víkingasveitin örugglega mætt að Ieita að fleiri sprengj- um, verst hvað sprengjan er lítil, en geriði það, komiði samt, það voruð nú þið sem sýnduð okkur fyrst í alvöru fram á hvað við erum kúl hérna í Hagaskóla, þetta er sko í Hagaskóla, og ég skal reyna að redda stærri sprengju á morgun, bara ef þið komið, og nú er komið að því, nú veit hann að fréttamennirnir eru lagðir af stað hlaupandi, þó þeir létu eins og ekkert væri, og nú ber hann eld að sprengjunni, hún er nottla ansi lítil, en samt verður allt vitlaust og hann verður kúl, það skjálfa á honum hnén þegar hann hugsar til þess hvað hann verður kúl, verst hann skuli bara vera inná klósetti, verst hann skyldi ekki þora með sprengjuna inná kennara- stofu, þá fyrst hefði nú allt orðið vitlaust, en þetta verður að duga, þó hér hafí hann oft komið bara til að pissa, en nú ætlar hann sko að sprengja og það verður allt vitlaust, og nú ber hann eldinn að sprengjunni, og þarna kviknar á sprengj- unni, það fer um hann sæluhrollur en hann verður að koma sér út áður en sprengjan springur, svo enginn viti nú það sé hann, það má enginn vita það sé hann, nema náttúrlega vinir hans, hann ætlar að hringja í þá og segja þeim það og svo hringja þeir í fullt af krökkum í öðrum hverfum og segja þeim að það hafí verið hann og hann hafí sprengt sprengju og gert allt vitlaust í Hagaskóla og kúkað á kerfið og aldeilis sýnt þessum aumingjum, og nú æðir hann út af klósettinu og nú springur sprengjan, verst hvað hvellurinn er lítill, og verst að löggan sé ekki komin og blöðin og sjónvarpið, hann hefði svo gjarnan viljað komast í sjónvarpið, þó eng- inn megi náttúrlega vita það hafi verið hann sem gerði það, og hvellurinn bara búinn og hann hafði einhvern veginn von- að að hvellurinn yrði einhvern veginn lengri og eitthvað myndi skjálfa, verst hann skyldi hafa klárað alla stóru flug- eldana í einhverja vitleysu um áramótin, er þetta þá bara allt búið, og það er ein- hvern veginn eins og ekkert hafi gerst, en jú, þarna fer loksins brunakerfið í gang og þarna kemur húsvörðurinn, kemur þá bara húsvörðurinn en hvorki Iöggan né blöðin né sjónvarpið, á hann að trúa því það verði þá ekki allt vitlaust, á hann að trúa því að það sé bara allt eins og áður, og hvernig á hann nú að komast í sjón- varpið og hvert á hann að hringja og hvað á hann að segja, og á hann virkilega að trúa því að þó hann hafi fyrir augnabliki verið læstur inná klósetti með sprengju og GSM-síma og í beinu sambandi við alla fjölmiðla landsins og tilbúinn að kljást við víkingasveitina og leggja fram stjórnsýslu- kæru þá eigi hann núna bara að fara í tíma og þarna kemur Jóna Hansen öslandi og það er þá danska og hann svo önnum kafinn í gær að undirbúa stóru stundina í lífí sínu að hann gleymdi alveg þessum óreglulegu sögnum, og sú á eftir að skammast - djöfussins maður! Pistill Illuga var fluttur í morgunútvarpi Rásar 2 í gær.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.