Dagur - 15.01.1999, Page 5
FÖSTUDAGUR 1S. JANÚAR 1999 - 21
LEIKHÚS
KVIKMYNDIR
TÓNLIST
SKEMMTANIR
Möguleikhúsið erað
frumsýna leikritið
Hafrún á sunnudag-
inn þarsem þaralykt
blandast rafmagnsgít-
arleik og þjóðsagnaver-
um...
Hópur í Möguleikhúsinu, Vala
Þórsdóttir leikkona, Kristján
Eldjárn gítarleikari, Katrfn Þor-
valdsdóttir leikmynda- og bún-
ingahönnuður og Pétur Eggerz
Ieikstjóri, valdi sér þrjár íslensk-
ar þjóðsögur sem tengjast haf-
inu og ákváðu að gera úr því
sýningu. „Svo sprelluðum við,
fífluðumst og rugluðum með
sögurnar og bjuggum til eins-
konar leikgerðir út frá þessum
sögum í spuna," segir Vaía Þórs-
dóttir sem leikur allnokkur hlut-
verk í sýningunni. „Ég leik þó
nokkra karla, svona frekar lura-
lega durga og íslenskar hetjur,
einhverjar konur líka en ekki
eins margar, og svo sæverur, sel
og hafskessu.“
Enginn þj óðsagnadrungi
Sögurnar sem valdar voru til að
spinna upp sýningu eru Sigurð-
ur í Skoruvík, Selastúlkan og
Hafskessan.
- Þið segist búa til útgúfu setn
hæfi stað og stund, eruð þið að
færa sögumar til nútímans?
„Ekki beinlínis en við setjum
þetta ekki heldur upp á hefð-
bundinn hátt. Það er ekki þjóð-
sagnadrungi yfir þessu. Við
Kristján erum ekki alvarleg á
svipinn að fjalla um þjóðsögur á
sviðinu. Það sem er kannski nú-
tímalegt við þetta er að við fífl-
umst dálítið og gefum öllum
persónum líf, bæði þessum haf-
verum og fólkinu í landi. Svo er
samspilið milli mín sem leikara
og Kristjáns sem rafmagnsgítar-
leikara mjög náið á sviðinu -
Kristján er ekkert falinn, hann
er í sviðsmyndinni sem er svolít-
ið nýtt.“
Fyrir 8 ára og eldri
Ekki nóg með að rafmagnsgítar-
leikari taki stóran þátt í sýning-
unni heldur er leikmyndin m.a.
gerð úr þara, svo skilningarvitin
ættu að hafa nóg fyrir stafni á
sýningunni, með salta þaralykt-
ina í nösunum, rafmagnsgítar-
hljómana í eyrunum...
En auk þess er leikritið sjálft
ekki einfaldað til að það hæfi
yngstu aldurshópunum enda er
það kynnt sem leikrit fyrir átta
ára og eldri. „Þetta er mikill lát-
bragðsleikur og við erum að
vinna með minni úr þjóðsögun-
um og þá þarf maður vissan
skilning og þroska. Fóstursonur
minn, sem er sex ára, kom á
sýninguna og hann skildi allt
þannig lagað en þetta var samt
svolítið flókið fyrir hann. Við
skiljum nefnilega dálítið mikið
eftir fyrir ímyndunaraflið og litlu
krakkarnir hafa ekki sömu þolin-
mæði í það. Sýningin er ekki
matreidd ofan í áhorfendur,"
sagði Vala og þurfti svo að þeysa
inn á svið þar sem var að hefjast
rennsli fyrir nemendur úr
Grandaskóla.
Sögurnar sem valdar voru til að spinna upp sýningu eru Sigurður í Skoruvík,
Selastúlkan og Hafskessan.
Rökkurkóriiin
með tónleika
Rökkurkórinn í Skaga-
firði heldur tónleika í
safnaðarsal Glerár-
kirkju áAkureyri ogað
Breiðumýrí íReykja-
dal á sunnudag.
Rökkurkórinn í Skagafirði á
tuttugu ára afmæli á þessu
starfsári og tónleikahald verður
með meira móti. Stefnt er að ut-
anlandsferð kórsins í sumar.
Lagaval hjá kórnum er fjöl-
breytt og skemmtilegt, eftir inn-
Ienda og erlenda höfunda.
Rökkurkórinn er blandaður kór
sem æfir tvisvar í viku í Mið-
garði í Varmahlíð og eru félagar
Tónleikar kórsins verða í Safnaðarsal Glerárkirkju sunnudaginn 17. janúar
klukkan 15.00 og að Breiðumýri í Reykjadal á sunnudagskvöld klukkan 21.00.
Efnisskráin er fjölbreytt, kórsöngur, einsöngur, tvísöngur, kvennasönghópur.
um sextíu talsins, víðsvegar að
úr Skagafirði.
Stjórnandi kórsins er Sveinn
Arnason frá Víðimel og hefur
hann verið stjórnandi lengst af í
þessi tuttugu ár. Undirleikari er
Pál Szabo tónlistarkennari á
Sauðárkróki sem ættaður er frá
Ungveijalandi. Hann hefur
starfað með kórnum undanfarin
tvö ár.
Tónleikar kórsins verða í
Safnaðarsal Glerárkirkju sunnu-
daginn 17. janúar klukkan
15.00 og að Breiðumýri í
Reykjadal á sunnudagskvöld
klukkan 21.00. Efnisskráin er
fjölbreytt, kórsöngur, einsöngur,
tvísöngur, kvennasönghópur.
Einnig eru fyrirhugaðir tónleikar
í Ólafsfirði og á Dalvík í Iok
mánaðarins en þeir verða aug-
lýstir nánar síðar. HI
■UMHELGINA
ívan grinimi nr. 2
Síðari hluti kvikmyndarinnar
um Ivan grimma verður sýnd-
ur í bíósal MÍR að Vatnsstíg
10 á sunnudaginn ld. 15. Það
var Lettinn Sergei Eisenstein,
sá víðfrægi kvikmyndagerðar-
maður (m.a. Beitiskipið
Pótemkin) sem leikstýrði
myndinni á 5. áratugnum
þegar ofsóknaræði Stalíns var
komið á það stig að ekki var
hægt að gera bíómyndir án
þess að taka tillit til viðhorfa
stalinista um hvernig sýna
ætti hetjur Rússaveldis en
Ivan grimmi varð Rússakeis-
ari aðeins 17 ára gamall árið
1547. Þessi síðari hluti
myndarinnar var gagnrýndur
harðlega og var Eisenstein
m.a. kallaður á fund Stalíns,
Molotovs og Zdanovs árið
1946 til að ræða þá galla sem
þremenningarnir töldu vera á
myndinni. Eisenstein lést
árið 1948 en síðari hlutinn
var ekki sýndur í Sovétríkjun-
um fyrr en tíu árum síðar. Að-
gangur er ókeypis og myndin
er með enskum texta.
Myrtór músík-
dagar
Tólf tónleikar
verða að þessu
sinni á Myrkum
músíkdögum
sem standa til
25. janúar. A
vegum þeirra
verður dag-
skrá helguð
Jóni Leifs í
Gerðubergi á
morgun í tilefni af því að 100
ár eru liðin frá fæðingu Jóns.
Dagskráin hefst. kl. 16 á
morgun með tónleikum
Blásarakvintetts Reykjavíkur,
sem starfað hefur óslitið síð-
an 1981 og lagt sig sérstak-
lega eftir því að flytja verk ís-
lenskra tónskálda. Efnisskrá-
in á morgun ber þess merki
því þar verða verk eftir Jón
Leifs, Pál P. Pálsson og Jón
Ásgeirsson auk John Cage og
Diana Burell.
Málþiiigumjón
Leifs
I framhaldi af tónleikunum
verður haldið málþing um
Jón Leifs, sem hefst kl. 17.30
og stendur til sjö um kvöldið.
Til stendur að fjalla um Jón
frá þremur sjónarhornum,
Jón Leifs sem tónskáld, bar-
áttumann og manninn sjálf-
an. Rætt verður um tónlist
hans, félagsmálstörf, hags-
munabaráttu og áhrif hans á
íslenska tónlist og menningu.
Þeir sem einkum munu bera
uppi umræðuna
eru Atli Heimir
Sveinsson, Hjálm-
ar H. Ragnarsson,
Sigurður A.
Magnússon og
Örn Magnússon
en Ævar Kjart-
ansson útvarps-
maður stýrir
samkundunni.