Dagur - 15.01.1999, Side 9

Dagur - 15.01.1999, Side 9
FÖSTUDAGUR 1S. JANÚAR 1999 - 2S Xfc^wr. LÍFIÐ í LANDINU Karólína Lamb, eiginkona William Lamb, síðarforsæt- isráðherra Breta, vartuttugu ogsjö ára þegarhún kynntist Byron lávarði. Ástarævintýri þeirra varð aðalumræðuefnið í veislusölum aðolsmanna á Bretlandi og kostaði Karólínu hjónabandið, æruna oggeð- heilsuna. Það gætti snemma ójafnvægis í skapgerð Karólínu Pensonby, dóttur Bessborough lá- varðs og konu hans. Læknir var kvaddur til og kvað upp þann úrskurð að litla stúlkan þyldi illa álag og því bæri að forðast að setja henni hömlur. Henni var því veitt fullkom- ið frelsi og varð fjörmikil, hvatvís, bamsleg og taugabiluð ung kona sem tók ekki minnsta tillit til siðareglna samfélagsins. Hún var tvítug þegar hún giftist Willi- am Lamb, auðugum og glæsilegum manni sem ætlaði sér frama í stjórnmál- um. Þau hjón eignuðust son, Agústus. Hann erfði fegurð föður sfns en var van- gefinn og öðlaðist aldrei meiri þroska en sjö ára harn. Þráhyggjukennd ást Hjónaband Karólínu og Williams var hamingjusamt í byrjun. Þegar Karólína var tuttugu og sjö ára gömul las hún Ijóðabálk Byrons Childe Harold sem gerði skáldið að mestu bókmenntastjörnu Englands. Hún skrifaði honum nafnlaust aðdáendabréf og sá hann fyrst á dansleik. Hún féll í stafi yfir fegurð hans og skrif- aði í dagbók sína: „Mad, bad and danger- ous to know.“ Skömmu síðar voru þau kynnt hvort fyrir öðru hjá vinafólki og urðu sam- stundis nær óaðskiljanleg. Karólína var á valdi þessarar nýju ástar og hirti ekki um að leyna henni. Hann skrifaði henni: „Þú veist að mér hefur ætíð fundist þú vera greindasta, geðþekkasta, einkennilegasta, torskildasta, hættulegasta, mest heillandi vera sem nú er á lífi.“ Ast Byrons entist ekki nema í nokkra mánuði. Því var öðruvísi farið með Karó- línu. Ast hennar varð að þráhyggju og átti eftir að leiða hana í glötun. Ef hún vissi af Byron í samkvæmi sem henni hafði ekki verið boðið í beið hún hans fyrir utan. Eftir eitt slíkt samkvæmi sást til hennar þar sem hún hljóp á eftir vagni Byrons og henti sér inn í hann. Hún tók að vakta allar athafnir hans og réð mann- eskju til að njósna um hann á heimili hans. Eitt sinn dulbjó hún sig sem sölu- mann og hélt að heimili hans. Þegar henni var vísað til Byrons féll hún að fót- um hans og tók síðan að rífa af sér dular- gervið. Þegar vinur Byrons bað hana að fara greip hún hníf og gerði tilraun til að skaða sig. Annað sinn sendi hún Byron skapahár sín í pósti og fór fram á að hann sendi henni sín. Alræmd persóna Ástarævintýri Byrons og Karólínu fór ekki leynt og það fór ekki framhjá eiginmanni hennar að hún var honum ótrú en hann tók framferði hennar með jafnaðargeði. Hann var ekki ástríðumaður og Ieitaðist eftir að hafa reglu á hlutunum. Hann virðist hafa gætt þess að halda eigin til- finningum í jafnvægi og brást við af yfir- vegun. Honum var ljóst að andlegt ástand eiginkonu sinnar var í hættu og fór með hana í frí til Irlands. Hún skrifaði Byron frá Irlandi til að tjá honum ást sína. Svar ákefð og á fyrstu hjónabandsárum sínum. Þegar hún átti ekki ýkja langt eftir ólifað spurði hún kunningja sinn: „Hver held- urðu að sé besti maður sem ég hef kynnst?“ „Byron,“ var svarið. „Nei,“ sagði Karólína, „William Larnb." I einu af síð- ustu bréfum sínum raðaði hún þeim ein- staklingum sem hún hafði elskað heitast f tölusett sæti. Hún setti WiIIiam Lamb fyrstan, þá móður sína, síðan Byron, son sinn setti hún í fjórða sæti og í það fimmta bróður sinn. Karólína Lamb lést árið 1928 rúmlega fertug. I nafnlausri minningargrein sem birtist í bresku dagblaði og talið er að eig- inmaður hennar WiIIiam Lamb hafi skrif- að var að finna þessi orð sem lýsa skiln- ingi og fyrirgefningu vegna ástar hennar til Byrons: „Heimurinn sýnir ástkonum skálda miskunnsemi, og kannski ekki að ófyrirsynju því tilfinningar þeirra má að nokkru réttlæta og þær byggja ekki ein- göngu á ást til einstaklingsins heldur eru hlut af ímyndunarafli... Æskuár þessarar hæfileikaríku og hjartahlýju veru gáfu fögur fyrirheit; vonir sem urðu að engu á fullorðinsárum hennar.“ William Lamb varð forsætisráðherra Breta á árunum 1834-1841. Ári eftir að hann lét af embætti fékk hann hjartaáfall Karólína Lamb. Þegar Byron hafnaði henni rambaði hún á barmi geðveiki og ofsótti elsk- huga sinn afmiklu kappi. hans var: „Skemmtu þér. En láttu mig í friði.“ Skömmu síðar gerði hún tilraun til að skera sig á háls með rakvélablaði. Byron skrifaði tengdamóður Karólínu sem var trúnaðarvinkona hans og sagði: „Eg er farinn að halda að hún sé raunveru- lega geðbiluð, annars væri mér ómögulegt að þola það sem ég hef þurft að umbera af hennar hálfu.“ Hann neitaði að hitta Karó- línu og sagði: „Eg veit ekki hveija ég á eftir að elska en fram að síðustu stundu lífs míns mun ég hata þessa konu.“ Þau hittust á dansleik í London og skiptust á nokkrum orðum. Viðstaddir tóku skyndilega eftir því að Karólína var með hníf í hendi og kjóll hennar var al- blóðugur. Ekki er vitað hvort hún ætlaði að skaða sig eða Byron. Ekki löngu síðar skrifaði Karólína skáldsöguna Glenarvan á tveimur vikum. Byron var greinileg fyrirmynd aðalsögu- hetjunnar sem gerðist bæði sek um morð og mannrán. Kunningjar Karólfnu komust að því sér til hrellingar að einnig þeir voru fyrirmyndir að persónum í bók- inni. Karólína Lamb var orðin al- ræmdasta persónan í samkvæmislífi Lundúnaborgar. „Hann kramdi hjarta mitt“ Eftir að Byron yfirgaf Karólínu hrakaði líkamlegri og andlegri heilsu hennar mjög. Hún fékk æðisköst og þá fékk eng- inn við hana ráðið og almennt var álitið að hún væri orðin geðveik. Byron hélt til Grikklands og barðist þar í frelsisstríði Grikkja og þar lét hann Iíf sitt, þijátíu og sex ára gamall. Nóttina áður en hann lést dreymdi hann Karólínu í fyrsta sinn síðan þau skildu og hún stökk ffam úr rúminu æpandi af skelfingu. Hún sagði ævisagnaritara Byrons: „Eg elskaði hann meir en dyggðina, trúna, meira en allar framtíðarhorfur. Hann kramdi hjarta mitt en samt elska ég hann.“ Geðheilsu hennar hrakaði nú á þann veg að eiginmaður hennar, sem sýnt hafði framferði konu sinnar ómælda þolin- Byron. I byrjun var hann heillaður af Karólínu en sagði síðan: „Ég veit ekki hverja ég á eftir að elska en fram að síðustu stundu lífs míns mun ég hata þessa konu.“ mæði, treysti sér ekki til að búa með henni lengur. En þótt hann kysi að slíta sambúðinni yfirgaf hann hana ekki. Þau bjuggu aðskilin þar til hún lést en svo mikiil samgangur var á milli þeirra að það var eins og ekkert hefði breyst. Karólína gerði sér grein fyrir þ\i' að sá maður sem hún hafði verið verst var sá maður sem hafði elskað hana heitast. Hún tók nú að unna honum af sömu og var eftir það rúinn heilsu og ekki full- komlega með sjálfum sér eftir það. Hann lést árið 1848, tæplega sjötugur. Hann saknaði ætíð konu sinnar. „Þrátt fyrir allt var hún mér meira virði en nokkur annar var eða á eftir að verða,“ sagði hann eitt sinn og mörgum árum eftir lát hennar heyrðist hann spyrja þunglyndislega með djúpum söknuði: „Skyldi ég eiga eftir að hitta hana í öðrum heimi.“

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.