Dagur - 15.01.1999, Síða 10
26 -FÖSTUDA GUR 15.JANÚAR 1999
LÍFIÐ í LANDINU
DAGBOK
■ ALMANAK
FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 15. dag-
ur ársins - 350 dagar eftir - 2. vika.
Sólris kl. 10.55. Sólarlag kl. 16.19.
Dagurinn lengist um 6 mínútur.
■ APOTEK
Kvöld-, nætur- og helgidagavarsla
apóteka í Reykjavík í Háaleitis
apóteki. Lyfja, Lágmúia 5. Opið alla
daga vikunnar frá kl. 09-24. Upplýs-
ingar um læknis- og lyfjaþjónustu eru
gefnar í síma 551 8888.
Neyðarvakt Tannlæknafélags íslands
er starfrækt um helgar og á stórhátíð-
um. Símsvari 681041.
HAFNARFJÖRÐUR: Apótek Norður-
bæjar, Miðvangi 41, er opið mánud,-
föstud. kl. 9-19, laugard. kl. 10-14,
sunnud., helgidaga og almenna frí-
daga kl. 10-14 til skiptis við Hafnar-
fjarðarapótek. Upplýsingar í símsvara
nr. 565 5550.
AKUREYRI: Apótekin skiptar.t á að
hafa vakt eina viku í senn. i
vaktapóteki er opið frá kl. 9.00 til kl.
19.00 og um helgar er opið frá kl.
13.00 til'kl. 17.00 bæði laugardag og
sunnudag. Þessa viku er vaktin í
Stjörnu apóteki og opið verður þar
um næstu helgi. Þegar helgidagar
eru svo sem jól og páskar, þá sér það
apótek sem á vaktvikuna um að hafa
opið 2 klukkutíma í senn frá kl. 15.00
til 17.00. Bakvöktum hefur verið hætt
í báðum apótekunum.
APÓTEK KEFLAVÍKUR: Opið virka
daga frá kl. 9.00-19.00. Laugard.,
helgidaga og almenna fridaga kl.
10.00-12.00.
_^-pn^«5afó!kið -
Útlitsbreytiiig Cher
Cher í alþekktu
hlutverki, sem
djarfklædd söng■
kona á sviði.
Söng- og leikkonan Cher
tók miklum breytingum
við gerð nýjustu myndar
sinnar Te með Mussol-
ini. Leikstjóri myndar-
innar er Franco Zeffirelli
og hún byggir á ævi hans
sjálfs. Joan Plowright,
Maggie Smith og Judi
Dench leika í myndinni
auk Cher sem leikur
listaverkasafnarann Elsu
Morgenthal.
Cher bar nýlega til
baka fréttir þess efnis að
hún hygðist sitja nakin
fyrir hjá Playboy. „Ef ég
hefði ætlað að gera það
hefði ég gert það fyrir
löngu,“ segir hún. „Dag-
ar mínir sem nektarfyrir-
sætu eru liðnir."
Cher hefur losað sig
við húðflúr sem hún hef-
ur borið árum saman.
„Eg er orðin hundleið á
þeim,“ segir hún. „Við
Janis Joplin vorum fyrst-
ar til að fá okkur húð-
flúr. Þau voru uppreisn-
artákn. Nú er hver ein-
asta fyrirsæta með þau.“
Cher í nýjasta hlutverki sínu.
APÓTEK VESTMANNAEYJA: Opið
virka daga frá kl. 8.00-18.00. Lokað í
hádeginu milli kl. 12.30-14.00.
SELFOSS: Selfoss apótek er opið til kl.
18.30. Opið er á laugardögum og
sunnudögum kl. 10.00-12.00.
AKRANES: Apótek bæjarins er opið
virka daga til kl. 18.30. Á laugard. kl.
10.00-13.00 og sunnud. kl. 13.00-
14.00.
GARÐABÆR; Apótekið er opið rúm-
helga daga kl. 9.00-18.30, en laugar-
daga kl. 11.00-14.00.
■ KROSSGÁTAN
Lárétt: 1 menn 5 samsinna 7 myndaði 9 frá
10 oft 12 skurður 14 jarðsprunga 16
hreinn 17 köld 18 annríki 19 fljótfærni
Lóðrétt: 1 bundin 2 kvæði 3 yfirhafnir 4
kúga 6 veiðir 8 gamansamur 11 merkur
13 meiða 15 heysæti
LAUSN Á SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 form 5 jarða 7 Ijós 9 ið 10 dalar 12
ræll 14 pús 16 fúi 17 agnir 18 ári 19 lak
Lóðrétt: 1 foid 2 rjól 3 masar 4 æði 6 aðili 8
janúar 11 ræfil 13 lúra 15 agi
■ GENGIfl
Gengisskráning Seðiabanka ísiands
14. janúar 1999
Fundarg.
Dollari 69,31000
Sterlp. 114,37000
Kan.doll. 45,26000
Dönskkr. 10,89400
Norsk kr. 9,27200
Sænsk kr. 8,89400
Finn.mark 13,63800
Fr. franki 12,36200
Belg.frank. 2,01020
Sv.franki 50,82000
Holl.gyll. 36,80000
Þý. mark 41,46000
Ít.líra ,04188
Aust.sch. 5,89300
Port.esc. ,40450
Sp.peseti ,48740
Jap.jen ,62250
írskt pund 102,96000
XDR 97,82000
XEU 81,09000
GRD ,24880
Kaupg. Sölug.
69,12000 69,50000
114,07000 114,67000
45,11000 45,41000
10,86300 10,92500
9,24500 9,29900
8,86800 8,92000
13,59800 13,67800
12,32600 12,39800
2,00380 2,01660
50,68000 50,96000
36,69000 36,91000
41,35000 41,57000
,04174 ,04202
5,87400 5,91200
,40320 ,40590
,48580 ,48900
,62050 ,62450
102,64000 103,28000
97,52000 98,12000
80,84000 81,34000
,24800 ,24960
MYNDASOGUR
KUBBUR
HERSIR
ANDRÉS ÖND
DYRAGARÐURINN
'te
, m % i:
!••*. .,*.\ ,4. .
ST JÖRNDSPA
Vatnsberinn
Þú verður á
báðum áttum í
dag en valið er
einfalt. Á föstu-
dögum er alltaf rétt að fara í
suður og til vinstri. Nærðu
því?
Fiskarnir
Þú verður hrók-
ur alls fagnaðar
í teiti sem blás-
ið verður til í
kvöld og skorar 30 stig í sósí-
al lífinu. Þú ert langbestur
þar.
Hrúturinn
Þú færð þér
Nesquick í dag.
Nautið
Þú tekur þátt í
spurninga-
keppni í kvöld
en þykist vita
miklu minna en þú raunveru-
lega gerir til að skyggja ekki
á aðra. Þetta er ekki líklegt til
árangurs en afar drengilegt.
Tvíburarnir
Þú fylgist með
prófkjöri um
helgina og
verður pólitískt
þenkjandi í dag vegna máls-
ins. Eru þetta annars ekki allt
saman asnar, Guðjón?
Krabbinn
Þú eignast ekki
barn í dag en
annað sjá him-
intunglin ekki!
spilunum.
Ljónið
Amma þín hefur
samband í dag.
Það er ekki síst
fréttnæmt ef
hún er ekki lengur þessa
heims en allt getur sem sagt
gerst.
Meyjan
Þú verður
Schweinhund í
dag.
Vogin
Þú ferð i ríkið í
dag og prófar
nýja týpu af
áströlsku rauð-
víni. Þá segir afgreiðslumað-
urinn: „Oj, rauðvín. Mér finnst
hundasúrur miklu betri.“
Sporðdrekinn
Þú verður fíre
og flamme í
dag og nýtur
blessunar æðri
krafta. E.t.v. er hægt að
græða eitthvað á þessu.
Bogmaðurinn
Þú verður
sperrileggur í
dag.
Steingeitin
Geitin lærir að
skrifa ¥99 í dag
sem er krafta-
verk miðað við
greindarstig
þessa fólks. Sannarlega til
lukku.
juizái
i