Dagur - 15.01.1999, Side 11
i
Xfc^wr.
FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1999 - 27
LIFIÐ I LANDINU
MEINHORNIÐ
• Fátt daglegra
nauðsynja er
óhentugra en
sápustykki. Um
aldir hafa þau
skroppið úr
höndum manna
og flogið í
grandalaus and-
lit nærstaddra,
ellegar menn
hafa stigið á
þau í baðkörum
og sturtubotn-
um og
stórslasast eða
drepist. Sápu-
stykki eru stór-
hættuleg eins
og dæmin
sanna. Furðu-
legt er að vís-
indamenn skuli
ekki hafa fundið
upp ósleip
sápustykki, til
dæmis sand-
kornasápur, sem
eru blanda sápu
og sands. Þau
mætti nota í
tvennum til-
gangi, til að þvo
sér en einnig til
að sarga sigg af
iljum og fín-
pússa vörtur og
kartneglur.
• Óþolandi er
að þrátt fyrir
áratuga leit og
milljarða
billjóna í kostn-
að, skuli ekki
enn vera búið
að finna annað
Iíf í alheiminum
en það sem
þrífst á þessum
hundaskítsút-
nárahnetti,
jörðinni. Réttast
væri að hætta
þessari tilgangs-
lausu eftir-
grennslan og
,eggía pening-
ana í eitthvað
þarfara. Til
dæmis í leit að
Iífshamingjunni
eða framleiðslu
á ósleipum
sápustykkjum.
FOLKSIIMS
„Ef og þegar ekki veröur hægt að nýta íþróttavöllinn sem slíkan, væri nær að prýða völlinn
með fallegum gróðri og blómum og þægilegum bekkjum til að tylla sér á."
Ég mótmæli!
SOFFIA ÞORVALDSDOTTIR
SKRIFAR
Nú get ég ekki lengur orða bundist ef
enn ein hörmungin á að ganga yfir mið-
bæ Akureyrar með því að taka eina
græna blettinn undir stórmarkað.
Eg spyr: A að gera miðbæinn að alls-
herjar steinsteypu og malbiki? Nú er
nóg komið. Ef menn halda að það sé
leiðin til að Iífga upp á miðbæinn að
fólk komi að stórmarkaði í bílum, fari út
með sína plastpoka og keyri heim, þá er
það alger misskilningur.
Það væri nær að gera þetta Iífvana
torg eitthvað meira aðlaðandi. Það virð-
ist vera stefnan að skilja hvergi eftir
opin svæði. Sem dæmi má nefna það
tiltæki að byggja steinsteypubákn fyrir
sunnan Búnaðarbankann.
Ef og þegar ekki verður hægt að nýta
íþróttavöllinn sem slíkan, væri nær að
prýða völlinn með fallegum gróðri og
blómum og þægilegum bekkjum til að
tylla sér á. Það væri bænum til sóma.
Eg vona að bæjarbúar láti þetta ekki
yfir sig ganga og mótmæli. Nóg er kom-
ið af mistökum.
Vemdfyrir
hverj a?
Strandgötu 31, 600, Akureyri
Þverholti 14,105 Reykjavík
Sími umsjónarmanns
lesendasíðu:
460 6122
Netfang: ritstjori@dagur.is
Símbréf: 460 6171/551 6270
Óskað er eftir að bréf til
blaðsins séu að jafnaði hálf til
ein vélrituð blaðsíða, 1000-1200
tölvuslög. Dagur áskilur sér rétt
til að stytta lengri bréf.
ATHUGASEMD FANGA VEGNA
UMFJÖLLUNAR UM FANGA í DEGI í
DESEMBER 1998
Vernd fyrir hverja? Er mögulegt að verið
sé að vernda stefnu yfirvalda f fangelsis-
málum. Fangelsishjálpin Vernd á sér
öflugan talsmann sem jafnframt er um-
sjónarmaður eina einkarekna fangelsis-
ins á Islandi, ekki er ólíklegt að hags-
munir fangahjálpar og fengelsisrekstrar
skarist. Ekki hefur borið mikið á því að
Vernd gagnrýni refsistefnu þá sem er
ríkjandi í fangelsismálum í landinu.
I nýlegum sjónvarpsþætti lét fram-
kvæmdastjóri fangahjálpar-
innar Verndar þau ummæli
falla að alger einangrun frá
aðstandendum væri nothæf
leið til að draga úr vímu-
efnanotkun í fangelsum.
Ekki sé ég mikla fangahjálp í
svona ummælum. Gæti
hugsast að það myndi vera
meiri hjálp í að bjóða sjúk-
um alkahólistum aðstoð við
komu í fangelsi en ekki við
brottför eins og nú er gert.
Einnig er rétt að það komi
fram að fangar hafa sama
rétt til reynslulausna hvort
sem þeir eru fuliir eða ófull-
úttektartímanum. Fyrir þá sem
framkv.stj. Verndar kallar mestu glæpa-
menn á Iandinu er erfitt að finna SÉR
talsímann þar sem sá sem hefur titilinn
framkv.stj. fangahjálparinnar Verndar
kemur oftar en ekki fram eins og vel
launaður talsmaður fangelsismálastofn-
unar. ÖIIu tómstundastarfi er hafnað í
lengstu lög á þeim forsendum að í
tengslum við hráefnisöflun sé hægt að
afla fíkniefna eða nota sem vopn, það er
almennt talið að aðgerðarleysi auki lýk-
ur á fíkniefnaneyslu. En ef til vill er það
liður í refsivistinni að eyðileggja þá ein-
staklinga sem eru dæmdir í fangelsi
með því að gera vímuna svo mikilvægan
þátt í refsivistinni.
Eftirfarandi eru nokkrar athugasemd-
ir við opinber ummæli vegna dóms og
fangelsismála:
„Dómsmálaráðherra sagði héraðs-
dómara vera sleggjudómara". Samt
erum við fangelsaðir af þeim.
„Settur ríkissaksóknari sagði að þá
mætti dæma fyrir afbrot sem ekki væru
kórdrengir'. Má semsagt dæma bakara
fyrir smið?
„Fangelsismálastjóri sagði hráefnis-
skort í fangelsum vegna lélegrar
frammistöðu dómstóla."
Er útilokað að fólk sé heiðarlegt?
Flestir ef ekki allir þeir sem komið hafa
í fjölmiðlum á vegum fangelsismála-
stofnunar (þar með talinn framkv.stj.
Verndar) vegna málefna fanga hafa sagt
ósatt. Kannski við fangar þurfum ekki
heiðarlega umljöllun eða eru yfirmenn
fangelsismála hafnir )fir sannleikann?
Refsifangi
VEÐUR
Veðrið í dag...
Norðaustan kaldi eöa stinniugskaldi með snjókomu
suðaustanlands í fyrramálið, en síðan vaxandi vindur.
Alíhvasst eða hvasst norðvestan til og eins austan til á
landinu síðdegis. Snjókoma víðast á Austurlandi og
éljagangur á Vestfjörðum og úti við sjóinn norðan til.
Minnkandi frost.
ffiti 0 til 5 stig
Veðurspárit skv. tölvuspá ECMWF 08.01. 1999.
Línurit: Lofthiti, spágildi fyrir miðnætti og hádegi.
Súlurit: Úrkoma, uppsöfnuð í 12 klst.
Vindörvar: Vindur blæs inn að punkti. Vindhraði er
táknaður með skástrikum; heilt strik táknar 5 m/s
en hálft 2.5 m/s. Þríhymingur táknar 25 m/s.
rci Akurnps
Pri NM>
% / E f\\
. pS) Bolunqarvlk
fC) Hvoiav^Bir
„íz;
Sin Mán
\
r í
ti) Rauíarhöfn mrr
í
— i ■ i
/ífití ssi \
—Ahyrgyn ,
~xr
s \ n
\ í N \.
rc> BBnduás
\ !
■■I....1.U, m
S •
í t, l / s\ l
i j
:±rl 1 ■ITV
^ WtA SS.S tk\
. PG) Kirkjutopjarktauatui
/W\U >/l\
,rs___
J / %
W/í í
fC) Stórhótöi mm rC) StykkishOlmur mm
i . { i
\—L
| i ■ f ■ m\ m NjTfvT'
s U in M F m Pio L 1U 8un U m M M
\ ^
í
VeðurhorfiiT næstu daga
Línuritin sýna fjögurra daga veðurhorfúr á
hverjum stað. Línan sýnir hitastig,
súluritið 12 tíma úrkomu.
Færð á vegum
Hálka á Hellisheiði, í Þrengslum og i Ámessýslu og
uppsveitum. Þæfingsfærð er um MosfeUsheiði og
Kjósaskarðsveg, en þungfært um Geldingadraga. Einnig er
þungfært frá Bjarkarlundi og í KoUafjörð á Vestfjörðum.
Víða er hálka á þjóðvegum landsins, að öðru leyti er góð
vetrarfærð.
66*
SEXTIU
OG
SEX
NORÐUR