Dagur - 19.01.1999, Blaðsíða 2

Dagur - 19.01.1999, Blaðsíða 2
18 — ÞRIDJUDAGUR 19. JANÚAR 1999 ro^ir LIFIÐ I LANDINU ■ SMATT OG STÓRT UMSJÓN: SIGURDÓR SIGURDÓRSSON Ússur Skarphéðinsson. Endurhæfíngin Alþingismenn Suðurlandskjördæmis og Reykjaneskjördæmis fóru eitt sinn í ferðalag til að skoða Suðurstrandarveg en hann tengir kjördæmin saman. Leiðsögumaður í ferðinni var Bjarni Jónsson, oddviti Olfushrepps, Þegar ekið var fram hjá Hlíðardalsskóla hafði hann á orði að þangað hefði margur maðurinn sótt menntun sína og bætti síðan við að einn af þeim væri kratinn Ossur Skarphéðinsson, sem hefði sjálfur lýst því yfir opinberlega að í þess- um skóla hefði hann verið „beygður til manns.“ Þá heyrist í Guðna Ágústssyni alþing- ismanni aftur í rútunni: ,/Etli væri ekki hægt að koma Ossuri þangað í endurhæfingu?" Þessi saga er úr bóldnni Hæstvirtur forseti. Að kanna vald sitt Þegar Viktoría Englandsdrottning var ung var hún stöðugt undir eftirliti afar strangrar fóstru. Sú bannaði henni m.a. að drekka te og lesa blaðið Times, þar sem þar kynnu að finn- ast einhver orð sem ekki hæfðu hirðinni. Dag- inn eftir að Viktoría settist í hásætið bauð hún einum þjóninum að færa sér bolla af te og nýjasta eintakið af Times. Þessu var að sjálf- sögðu hlýtt tafarlaust. Drottningin lét sam- stundis fara út með þetta aftur og sagði bros- andi við viðstadda sem allir voru undrandi. „Mig Iangaði aðeins til að sjá hvort ég í raun- inni ræð einhverju!" „Hann er öðruvísi en annað fólk.“ Unnur Steinsson um Hrafn Gunn- laugsson leikstjóra myndarinnar „Þeg- ar það gerist“ í við- tali í DV. Fyrirsögniii Það er löngu frægt að ef eitthvað fer miður á Akureyri er það ævinlega tekið fram ef um ut- anbæjarmann er að ræða. Einu sinni kom ut- anbæjarmaður þar að á Akureyri sem hundur hafði ráðist á lítinn dreng. Maðurinn brá við hart, náði hundinum af barninu og kyrkti hann í greip sinn. Blaðamaður af staðarblaði varð vitni að þessu og óskaði manninum til hamingju með afrekið og sagði að aðal fyrir- sögnin á morgun yrði: „Akureyringur bjargar ungum dreng með því að bana grimmum hundi.“ Hundabaninn þakkaði fyrir en sagði að hann væri ekki Akureyringur heldur að- komumaður. „Ahaa,“ sagði blaðamaðurinn „þá verður fyrirsögin svona: Aðkomumaður drepur gæludýr Akureryinga." Léttlyndi Eiríkur Einarsson frá Réttarholti hefur verið í góðu skapi þegar hann orti þessa vísu: Best er að drekka brennivín í bæði mál, og líta á allt sem leik og grín aflífi og sál. Þorsteinn Sæberg, skólastjóri Árbæj- arskóla, segir það viðurkenningu fyrir skólann að hafa verið valinn til að taka þátt í verkefn- inu þróunarskóla á sviði upplýsinga- menntar. „Fyrst og fremst Yiðurkenmng“ Þróunarskólunum er ætlað að vera leiðandi í notkun upplýs- ingatækni í skólastarfi. Verkefnið stendur til ársins 2002 og til þess veitir Menntamálaráðuneytið 48 milljónum. Skólarnir sex sem valdir voru til þess að vera sér- stakir þróunarskólar á sviði upp- lýsingatækni eru: Árabæjarskóli í Reykjavík, Barnaskólinn á Eyrar- bakka og Stokkseyri, Varma- landsskóli í Borgarfirði, Fjöl- brautaskóli Suðurlands á Selfossi og Menntaskólinn á Akureyri, en auk þeirra eru Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, sveitarfélagið Ar- borg, Borgarbyggð og Hvítársíðu- hreppur aðilar að verkefninu. Þorsteinn Sæberg, skólastjóri Árbæjarskóla í Reykjavík, segir að hlutverk skólanna sé Ijórþætt. Þeir eigi að móta aðferðir til að beita upplýsingatækni við nám og kennslu. Þeir eigi að þjálfa starfsfólk í notkun tækninnar. í þriðja lagi eigi skólarnir að miðla öðrum skólum og kennurum af reynslu sinni og þekkingu á sviðið upplýsingatækni. í Ijórða lagi sé skólun- um ætlað að veita ráðgjöf við hönnun og til- raunir með kennsluhugbúnað. Þorsteinn segir að auk þessa muni þróunar- skólarnir taka við kennaranemum í æfinga- kennslu, þ.e. þeim nemum sem leggja áherslu á upplýsingatækni í námi sínu. Hann segir þetta fyrst og fremst vera viðurkenningu fyrir skólann. „Þetta er viðurkenning á því sem við höfum ver- ið að gera í gegnum tíðina og eins hvatning fyrir framtíðina. Þetta er ekkert annað en viðurkenning og traust fyrst og fremst.“ Foreldrafálagið safnaði fyrir tölvuin - Hvemig er skólinn í stakk búinn til þess að taka að sér þetta hlut- verk? „Við erum með tvo tölvukenn- ara í fullu starfi auk tölvuumsjón- armanns. Þannig að ég er mjög vel í stakk búinn hvað starfs- mannahald varðar til þess að takast á við þetta verkefni. Hluti af þessu er að skólinn verður að tækjavæðast mjög vel núna í tengslum við þetta. Inn í skólana kemur fjármagn frá menntamála- ráðuneytinu og hluti af því getur auðvitað farið beint til þess að efla tækjakost þessara stofn- anna.“ - Árbæjarskóli er með 800 nemendur, í skólan- um eru tvö tölvuver, þau eru væntanlega vel nýtt? „Tölvustofurnar í Arbæjarskóla eru nýttar um 70 stundir á viku. Annað tölvuverið er nánast til komið hér vegna áhuga foreldra sem söfnuðu hér peningum og gáfu fé til þess að við gætum verið með tvö tölvuver. Kannski er það líka ástæðan fyrir því að þessi skóli var valinn." - PJESTA Á dögunum varund- irrítaður samningur um sérstakan þróun- arskóla á sviði upp- lýsingamenntar. Þor- steinn Sæberg, skóla- stjórí íÁrbæjarskóla, segir að skólamir eigi að miðla öðmm skól- um afreynslu sinni. SPJALL ■ FRÁ DEGI TIL DAGS Sá elskar börnin sín sem agar þau. Orðskvíðir Salómons Þetta gerðist 19. janúar • 1798 fæddist franski heimspekingurinn Auguste Comte. • 1809 fæddist bandaríski rithöfundur- inn Edgar Allan Poe. • 1839 fæddist franski málarinn Paul Cézanne. • 1892 fæddist Ólafur Thors forsætisráð- herra. • 1920 fæddist Pérez de Cuellar, fyrrver- andi framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna (1982-91). • 1921 fæddist bandaríski spennusagna- höfundurinn Patricia Highsmith. • 1957 fæddist Hilmar Oddsson kvik- myndagerðarmaður. Þetta gerðist 19. janúar • 1806 hertóku Bretar Góðrarvonarhöfða í Suður-Afríku. • 1840 var Suðurheimskautslandið upp- götvað. • 1903 strandaði þýski togarinn Friedrich Albert á Skeiðarársandi. • 1942 réðst japanski herinn á Burma. • 1957 varði Kristján Eldjárn doktorsrit- gerð sína um kuml og haugfé. • 1966 var Indira Gandhi kosinn forsæt- isráðherra á Indlandi. Vísan Vísa dagsins er eftir Pál Ólafsson: Ntí er ekki völ á vísu, vegna þess égfinn að kvæðadísin dregur hnísur - djöfids ómyndin. Aítnælisbam dagsins 75 ára er í dag Arni Tryggvason, sem verið hefur einn ástsælasti leikari landsins mestallan seinni helming aldarinnar og þar að auki gert út trillu í Hrísey. Leikferill Árna hófst hjá Leikfélagi Reykjavíkur árið 1947. Hann var fastráðinn leikari við Þjóð- leikhúsið 1961-89 og hefur af og til skotið upp kollinum í ýmsum hlut- verkum á síðari árum. Dagur óskar honum til hamingju með afmælið. „Ekki vera reiður..." Lært í skóla lífsins Sex ára snáði kom til móður sinnar vegna þess að litla systir hans reif í hárið á honum. „Ekki vera reiður við litlu systur þ£na“, sagði mamma hans, „hún veit ekki að það sé sárt þegar rifið er í hárið á manni.“ Nokkru seinna heyrist óp úr barnaher- berginu og móðirin fer og rannsiakar mál- ið, og finnur hvítvoðungirin hágrátandi á gólfinu og snáðinn er hróðugur við hliðina á henni. „Eg er búinn að kenna henni.“ Veffang dagsins Index on Censorship nefnist tímarit og vefsetur sem helgar sig bannfærðum eða ritskoðuðum bókum og textum af ýmsu tagi. Á vefsetrinu ér að finna ýmislegt les- efni sem stjórnvöldum víða um heim hefur þótt óæskilegt að almenningur kæmist í. Slóðin er www.oneworId.org/index_oc/- index.html

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.