Dagur - 19.01.1999, Qupperneq 3
ÞRIÐJUDAGU R 19. JANÚAR 19 9 9 - 19
MENNINGARLÍFIÐ í LANDINU
L. A
„Við heyrum hvell og síðan brotnuðu rúður. Strax gerðum við okkur fullkomlega grein fyrir því hvað var á ferðinni og voru okkar fyrstu viðbrögð þau að forða okkur sem mest við máttum, “ segir Friðrik
Steingrímsson, bóndi í Birkihlíð. mvndir: brink
Búinn að fá sterka aðvörun
Á þessu stigi er ekki lengur talin snjóflóðahætta í Birkihlíð. ígær komu þangað snjóflóðasérfræðingar frá Veðurstofu
íslands og hér sést Friðrik Steingrímsson á tali við þá. Næst honum er Sigurður Kierean, en fjær Þorsteinn
Sæmundsson.
ÁbúenduríBirkhlíð í
Ljósavatnsskarði þwfa
nú að meta hvort þeir
ætli að búa þaráfram
eftir snjóflóð sem þar
reið yfir um helgina.
Umtalsvert tjón varð
afvöldum þess til að
mynda á heyvinnuvél-
um, enflóðið rétt
sleikti íbúðarhúsið og
skall hurð þannig
nærri hælum.
„Auðvitað skýtur þetta okkur
verulega skelk í bringu. Það
verður jafnframt spurning og
ákvörðun hvort við búum hér
áfram í Birkihlíð. Við erum að
minnsta kosti búin að fá sterka
aðvörun og hljótum í ljósi þess
að velta málunum rækilega fyrir
okkur," segir Friðrik Steingríms-
son, bóndi í Birkihlíð í Ljósa-
vatnsskarðí. Fjölskyldan þar á
bæ varð fyrir þeirri óskemmti-
legu lífsreynslu í eftirmiðdaginn
á laugardag að snjóflóð féll á
íbúðarhúsið, en á því urðu þó
óverulegar skemmdir og engin
slys á mönnum. Það var rétt blá-
hornið á flóðinu sem lenti á
húsinu, en að mati Friðriks var
flóðið um 300 metrar á breidd.
Hreif flóðið með sér véla-
geymslu en við hlið hennar voru
heyvinnuvélar Friðriks. Einnig
lentu í greip flóðsins girðingar
og fleira lauslegt. Fjárhagslegt
tjón er þ\i umtalsvert.
Vissum hvað var á ferðinni
Snjóflóðið féll um kl. 14:30. Að-
dragandinn var enginn. „Við
heyrðum hvell og síðan brotn-
uðu rúður og snjór flæddi inn í
húsið um þær þijár rúður sem
brotnuðu. Á þessu stigi hef ég
engar skemmdir séð á húsinu
nema þessa þrjá brotnu glugga.
Strax gerðum við okkur fullkom-
lega grein fyrir því hvað var á
ferðinni og voru okkar fyrstu
viðbrögð þau að forða okkur
sem mest váð máttum og strax á
fyrstu fimm mínútunum frá því
þetta gerðist vorum við komin
héðan í burtu. Klæddum krakk-
ana í gallana í skyndingu og
ókum burt á þeim eina traktor
okkar sem ekld lenti í flóðinu,
en hann stóð hér heima á bæjar-
hlaðinu," sagði Friðrik, þegar
blaðamenn Dags ræddu við
hann í gærmorgun. - Hann og
Lára Svavarsdóttir, eiginkona
hans, og börn þeirra tvö sem
heima voru þegar þetta gerðist
fóru að bænum Birningsstöðum,
sem er skammt frá, en þar búa
foreldrar Láru og hefur ijöl-
skyldan hafst þar við frá því
þetta gerðist.
„Þau börn okkar sem voru
heima voru Þórhalla, sem er
tæpra tíu ára, og Steinar Karl,
sem er sjö ára. Þórhalla var inni
í stofu þegar snjóflóðið reið \'fir
og fékk þá yfir sig glerbrot en
Steinar var annarsstaðar í hús-
inu og fékk yfir sig snjógusur.
Hann öskraði svolítið þegar
þetta gekk yfir, en annars hafa
krakkarnir tekið þessu afskap-
Iega rólega. En auðvitað á það
svo eftir að koma í Ijós hvernig
þetta hefur farið með krakkana,“
segir Friðrik.
Bæjarstæðið ekki valið af til-
viljim
Þetta er í annað sinn á tiltölu-
lega fáum árum sem búsifjar
verða í Birkihlíð vegna snjó-
flóða. í október 1995, í sömu
hríðinni og þegar hörmungarnar
urðu á Flateyri, féll flóð á inntak
heimarafstöðvar sem er skammt
frá bænum og var þvf rafmagns-
laust í Birkihlíð í nokkra daga.
„Að því leyti vorum við þá niiklu
verr sett en við erum núna, því
nú er nægur hiti og rafmagn í
húsinu. Við getum þess vegna
flutt hinn fljótlega aftur.“
Bærinn í Birkihlíð hefur stað-
ið á núverandi stað allt frá því á
fjórða áratugnum. Sjálfur segist
Friðrik trúa því að þáverandi
ábúendur hafi valið bæjarstæðið
af nokkurri fyrirhyggju með til-
liti til snjóflóðahættu, því flóð
hafi bæði í gegnum tíðina oft
verið að falla úr giljum í fjallinu
beggja vegna bæjarstæðisins, en
aldrei beina stefnu á húsið. Og
aldrei nema nú og fyrir rúmum
þremur árum hafi flóðin náð
niður á jafnsléttu. „Þetta bæjar-
stæði hefur því ekki verið valið
af neinni tiíviljun. Við getum
horft hingað uppeftir fjallinu og
séð að allt eins gat fólk reiknað
með að hér féllu snjóflóð ofan
úr fjallinu," segir Friðik.
Góðui stuðningur nágranna
Þau Friðrik og Lára í Birkihlíð
eru með tiltölulega lítinn bú-
skap, en eru hinsvegar í sam-
starfi um búskapinn á Bimings-
stöðum, þar sem foreldrar Láru
búa, sem áður segir.
„Nágrannar okkar hafa sýnt
okkur góðan stuðning síðustu
daga, það voru raunar þeir sem
höfðu forgöngu um að hingað
væri farið síðdegis á laugardag-
inn til þess að negla fyrir glugga
sem brotnað höfðu og ganga fá
öðru slíku. Þeir voru miklu
viljugri en við að fara hingað eft-
ir það sem á undan var gengið.“
„En síðan er að sjá hvernig
við meðtökum þetta sjálf og
vinnum úr hlutunum. Eg ætla
raunar að setja mig í samband
við fræðinga og kynna mér
þeirra álit á málum hér. En um
leið og hættan er endanlega lið-
in hjá og snjórinn hefur sjatnað
komum \dð aftur; eru þeir ann-
ars ekki að spá hláku þegar líður
á vikuna," sagði Friðrik Stein-
grímsson að síðustu. -SBS.