Dagur - 19.01.1999, Page 5
X^r
ÞRIÐJUDA G UR 19. JANÚAR 1999 - 21
LÍFIÐ í LANDINU
Ung hjón
og ein dóttir
„Strax að giftingarathöfn lokinni gengum við og kirkjugestir saman niður
kirkjutröppurnar frægu,“ segir Guðrún Elfa Skírninsdóttir, sem hér er ásamt
Kjartani Guðmundssyni, eiginmanni sínum. (Ljósmyndast. Páls, Akureyri.)
„Ég er frá Skarði í Dalsmynni og
er næst yngst tíu systkina en
Kjartan er héðan frá Akureyri og
er yngstur sex systkina. Við höf-
um verið saman í níu ár, eða
fljótlega frá því við sáumst fyrst í
Sjallanum,“ segir Guðrún Elfa
Skírninsdóttir á Akureyri. Þann
11. júlí í sumar gaf sr. Pétur
Þórarinsson Guðrúnu og Kjart-
an Guðmundsson saman í
hnapphelduna við hátíðlega at-
höfn í Akureyrarkirkju. Að henni
lokinni var síðan mikil veisla á
Hótel KEA.
„Strax að giftingarathöfn lok-
inni gengum við og kirkjugestir
saman niður kirkjutröppurnar
frægu. Gestirnir fóru inn á Hót-
el KEA og biðu svo eftir okkur
meðan við fórum í myndatöku
hjá Páli í Skipagötunni sem er
þarna rétt hjá. Veislan heppnað-
ist vel og þeir á KEA eiga hrós
skilið hvernig til tókst,“ segir
Guðrún.
Kjartan er rafvirki að mennt og
starfar sem slíkur hjá Rafeyri á
Akureyri. Guðrún Elfa er nemi í
grafískri hönnun við Myndlista-
skólann á Akureyri, en lýkur því
námi nú í vor. Hún segir at-
vinnuleit á Akureyri þá taka við. -
Saman eiga þau Guðrún og Kjart-
an eina dóttur, Ingunni Emblu,
sem er þriggja ára að aldri. -SBS.
■.i'V 11
lD,
Tvær fnrnisýningar
Nú á fimmta degi Kvik-
myndahátíðarinnar verða
tvær myndir frumsýndar.
Bandaríska bíómyndin
Welcome to the Dollhouse
(1995) verður sýnd í Há-
skólabíói en þar segir frá 11
ára gamalli stelpu sem þrátt
f^TÍr einlægar tilraunir til að
vera vinsamleg og hamingju-
söm ung stúlka er misskilin
og jafnvel hötuð af félögum
sínum. Leikstjórinn, Todd
Solondz, segist hafa verið á
hátindi sköpunarkraftsins þegar hann var ellefu ára, ári síðar var
hann hættur að skrífa, lesa og sökkva sé’: ofan í verkefni. Hvað
gerist við 12 ára aldurinn?, spyr hann.
Slátraradrengurinn
Hin frumsýningin er The Butcher boy í Bíóborginni, nýjasta
mynd írska leikstjórans Neil Jordan sem hann gerði eftir sam-
nefndri skáldsögu Patrick MacCabe (1992). Francie Brady er 12
ára gamall og býr við heldur óskemmtilegar íjölskylduaðstæður,
pabbinn dreldkur og mamman á barmi geðveiki. Og honum er
kennt um allt. Eftir að Francie fær vinnu hjá slátrara hverfur
hann æ sterkar inn í draumaveröldina sem hann hafði skapað sér
og afleiðingarnar eru skelfilegar.
Síðasta sýning er á tveimur myndum hátíðarinnar í dag. Báðar
eru þær sýndar i Háskólabíó, Out of the Present og íranska
myndin Gabbeh.
Nýj ar reglur iiiu merk-
ingar á kjötvörum
SVOJMA
ER LIFID
Pjetur St.
flrason
skrifar
©
Pjetur
svarar
í símann!
Ertu með ráð,
þarftu að spyrja,
viltu gefa eða
skipta?
Pjetur svarar í
símann kl. 9—12.
Síminn er
563 1626 (beint)
eða 800 7080.
Póstfang:
Þverholt 14 Rvk.
eða Strandgötu 31
Akureyri.
Netfang:
ritstjori@dagur.is
Nýlega kom út bæklingur um
kjöt og kjötvörur sem á að
skýra út fyrir neytendum
merkingar þessara vara. í
sumar setti landbúnarráðu-
neytið reglugerð um merking-
ar og í byrjun desember sl.
tóku ákvæði reglugerðarinnar
um innihaldslýsingar gildí, en
í byrjun júní verða framleið-
endur kjötvara skyldugir til að
merkja þær með lýsingu á
næringargildi. Markmiðið
með reglugerðinni er að
koma á ákveðnum vinnuregl-
um í kjötiðnaði og að auð-
velda neytendum að átta sig á
samsetningu mismunandi
vara.
Bæklingunum verður
dreift í matavöruverslunum,
hann á að liggja frammi all-
staðar þar sem kjöt er selt.
Ólafur H. Erlingsson, mark-
aðsfulltrúi hjá Framleiðslu-
ráði Landbúnaðarins, segir
það hafa tekið 10 ár að koma
reglugerðinni á fram-
færi.
„Það er svona verið
að samræma nafngiftir
þannig að neytandinn
geti treyst því að hann
kaupi það sem stendur
á umbúðunum. Það er
oft verið að taka tillit
til hefða í þessu.
Þannig að saltkjöt má
ekki vera neitt annað
en saltað lambakjöt og
skinka á að vera svína-
kjöt.“ Ólafur segir að áður
hafi verið brögð að því að ver-
ið væri að selja fólki blöndu
af svínakjöti og folaldakjöti
sem skinku.
„Það er gott fyrir ímyndina
að hafa svona reglur, það er
náttúrulega ekki gott fyrir
ímyndina ef verið er að selja
nautahakk sem er bætt með
vatni eða soja, sem hefur
komið fyrir,“ segir Ólafur.
Skinka er eingöngu svina-
kjöt
Stærsta breytingin er með
skinkuna en samkvæmt
reglugerðinni er óleyfilegt að
kalla brauðálegg sldnku nema
það innihaldi eingöngu svína-
kjöt. Skinku er síðan skipt í
gæðaflokka eftir hlutfalli
magurs kjöts.
Lúxusskinka er saltað,
beinlaust og e.t.v. reykt svína-
læri, sem inniheldur a.m.k.
95% magurt kjöt.
Skinka er heiti á vöru sem
verður að innihalda a.m.k.
80% magurt kjöt. Slík skinka
getur innihaldið allt að 18%
af viðbættu vatni.
Brauðskinka verður að
innihalda a.m.k. 65% magurt
kjöt. Slík skinka getur inni-
‘b: O L
( : O '*
' ’ ©ýv &
haldið allt að 18% af við-
bættu vatni.
Bayonnesskinka er hins
vegar saltaður og reyktur
beinlaus vöðvi úr svínalæri
með puru.
■ HVflfl ER Á SEYDI?
TÓNLEIKARÖÐ FRANCIS POULENC í IÐNÓ
Tónlist Francis Poulenc er
lagræn og oft mjög gáska-
full. Hann samdi óperur,
balletta, kirkjutónlist,
kammerverk, konserta,
smáverk og fjölmarga söng-
lagaflokka.
I kvöld þriðjudagskvöld
verða þriðju tónleikarnir af
fjórum í röð tónleika og há-
tíðar sem haldin er í Iðnó
vegna þess að 100 ár eru
liðin frá fæðingu Francis
Poulenc tónskálds og helj-
ast þeir kl. 20.30. Margir
kunnir tónlistarmenn sjá
um flutninginn.
Tónlistarhús Kópavogs
Miðvikudagskvöldið 22. janúar verða
tónleikar í Salnum á vegum Myrkra
músíkdaga og verða flutt verk eftir Atla
Heimi Sveinsson. Flytjendur eru: Guð-
rún Birgisdóttir, Martial Mardeau, Kol-
beinn Bjarnason, Áshildur Haraldsdóttir
og Atli Heimir Sveinsson og heíjast tón-
leikarnir kl. 20.30.
Hagsaga og félagssaga
Gísli Gunnarsson flytur erindi á vegum
Sagnfræðingafélags Islands á hádegis-
fundi í dag sem hann nefnir: „Hagsaga
og félagssaga". Fundurinn er haldinn í
fundarsal Þjóðarbókhlöðunnar 2. hæð og
hefst kl. 12.05.
Samningsveð og ábyrgðir
Námskeið á vegum Endurmenntunar-
stofnunar H.í. um samningsveð og
ábyrgðir verður miðvikudaginn 20. janú-
ar til föstudagsins 22. janúar kl. 16.00-
19.00. Kennarar eru Þorgeir Örlygsson
prófessor og Benedikt Bogason skrif-
stofustjóri í dómsmálaráðuneytinu.
Arbæjarsafn
Leiðsögn verður um Arbæjarsafn
fimmtudaginn 21. janúar kl. 13.00.
Islenska óperan
Sýning á Hinum fullkomna jafningja í
flutningi Felix Bergssonar verður í ís-
lensku Óperunni miðvikudagskvöld kl.
20.00.
Þjóðólfur 150 ára
Sýningunni til minningar um að 150 ár
eru liðin frá því að Þjóðólfur, fyrsta nú-
tímalega fréttablaðið á íslandi, hóf
göngu sína Iýkur 31. janúar í forsal Þjóð-
deildar í Þjóðarbókhlöðunni.
Félag eldri borgara í Þorraseli
Opið í dag frá kl. 13.00-17.00. Leikfimi
kl. 12.20, handavinna, perlusaumur og
silkimálun kl. 13.30. Spilað alkort kl.
13.30. Kaffi og meðlæti 15-16.
Félag eldri borgara Ásgarði, Glæsibæ
Handavinna og silkimálun kl. 9.00. Skák
kl. 13.00. Kaffistofan opin frá kl. 10.00-
13.00. Ráðstefna á vegum framkvæmda-
nefndar Árs aldraðra um mál aldraðra,
verður í Ásgarði 20. janúar kl. 15.00, að-
gangur og kaffiveitingar ókeypis. Allir
velkomnir.