Dagur - 22.01.1999, Side 11
Xfc^wr
LÍFIÐ í LANDINU
R A D D I R
FÓLKSIIMS
MEINHORNIÐ
• Meinhyrning-
ur verslar í Hag-
kaup á Akureyri
nánast undan-
tekningalaust og
vill koma því til
skila til „ráða-
manna Hag-
kaups“ að það
þarf að vanda
betur innkaupin
fyrir verslunina.
I fyrsta lagi eru
vörur látnar
ldárast úr hill-
um, því aftur og
aftur grípur mh.
í tómt op í hill-
unni af ein-
hverri vöru sem
er á innkaupa-
listanum, spyr
þá næsta starfs-
mann hvort var-
an sé ekki til, og
er svarið ævin-
lega það sama
„ekki til en
væntanleg“. I
öðru lagi eru
allt of oft út-
runnar vörur í
hillunum. Þetta
er alveg óþol-
andi og algjör
óþarfi og man
mh. ekki eftir að
hafa rekist á
slíka óþjónustu í
verslunum Hag-
kaups í Rvk. I
þriðja lagi er úr-
valið t.d. í kven-
og karlafata-
horninu gjör-
samlega út-
brunnið, svo
ekki sé nú talað
um gæði þess-
ara fataleppa
sem eru slík að
halda mætti að
„draslinu" eða
öllu heldur af-
göngunum sem
enginn vill
kaupa væru
bara sendir
norður yfir
heiðar, nógu
gott utan á
norðanmenn?
Mh. skorar á
„ráðamenn Hag-
kaups“ að end-
urskoða „stand-
ard“ verslun-
arinnar á Ak. og
bjóða fólki fjöl-
breyttara úrval
af „nýrri“ gæða-
vöru og koma í
veg fyrir galtóm-
ar hillur.
„Núverandi leikhús bæjarins er sjötugt að aldri, byggt af Góðtemplurum árið 1906, og gekk
lengi undir nafninu „Gúttó".
Ekki er ráð
nema í tíma
sé tekið
JON KRISTINSSON
SKRIFAR
Strandgötu 31, 600, Akureyri
Þverholti 14,105 Reykjavík
Sími umsjónarmanns
lesendasíðu:
460 6122
Netfang: ritstjorí@dagur.is
Símbréf: 460 6171/551 6270
Óskað er eftir að bréf til
blaðsins séu að jafnaði hálf til
ein vélrituð blaðsíða, 1000-1200
tölvuslög. Dagur áskilur sér rétt
til að stytta lengri bréf.
I leikskrá Leikfélags Akureyrar árið
1977, kemst ég meðal annars þannig að
orði, er ég ræddi um Ieikhúsið:
Leikhúsið
„Núverandi Ieikhús bæjarins er sjö-
tugt að aldri, byggt af Góðtemplurum
árið 1906, og gekk Iengi undir nafninu
„Gúttó“.
Síðar varð Akureyarbær eigandi húss-
ins, og um áratugaskeið var það aðal-
samkomuhús bæjarins, og leikhús allt
til þessa dags. Þetta aldna hús reis á
mörkum bæjarhlutanna tveggja, Akur-
eyrar og Oddeyrar, sem á þeim árum
voru greinilega aðskildir í vitund bæjar-
búa, var stórbygging og bæjarprýði, og
er enn. Innan veggja þessa húss hefur
Leikfélag AkurejTar alið allan sinn ald-
ur, og ekki annað fyrirsjáanlegt en svo
verði enn um ófyrirsjáanlega framtíð.
Einhversstaðar í skipulagi bæjarins er
þó gert ráð fyrir nýrri leikhúsbyggingu,
en hvar veit ég ekki. Væri þó fyllsta
ástæða til þess að byggingunni væri
ákveðinn hentugur staður. Slík bygging
þarf að hafa rúmt um sig, þægilega að-
keyrslu og næg bílastæði. Sal Ieikhúss-
ins mætti auk leiksýninga, nota til
hljómleika og ráðstefnuhalds, þó ekki sé
tímabært að ræða slíka möguleika á
_________ þessu stigi.
En meðan enn er ekki far-
ið að huga að nýrri leikhús-
byggingu sýnist ekki óeðli-
legt að árlega sé varið fjár-
upphæð, sem væri eins og
hluti vaxta, vegna byggingar
nýs leikhúss, til endurbóta
og nauðsynlegs viðhalds
þessu aldna húsi. Síðan ætti
bæjarstjórn að taka á fjár-
hagsáætlun árlega ákveðna
fjárupphæð til byggingar nýs
leikhúss. Það er ekki ráð
nema í tíma sé tekið, og
þetta mál tekið raunhæfum
tökum.“
Þannig var hugsað árið 1977. Síðan
eru liðin rúm 20 ár og enn er verið að
reyna að bregðast við kröfum tímans, í
þessu gamla húsi.
Nýlega voru ný sæti sett í salinn, og
hann málaður smekklegum litum. En
stór galli er á gjöf Njarðar. Salurinn,
sem 1977 tók 260 manns í sæti, rúmar
nú innan við 200 manns. Það útilokar
að nokkur leiksýning geti borið sig, og
er atvinnuleikhúsi algjörlega ósamboð-
ið.
Aðstaðan utanhúss er í sama máta, úr
takt við tímann. Árið 1906 var bílaöldin
enn ekki runnin upp, og því þurfti ekki
á neinum bílastæðum að halda. Nú er
krafan önnur. Aðstaðan við leikhúsið
hefur enga möguleika til að uppfylla
kröfur tímans að þessu leyti, svo viðun-
andi sé.
Breyttir tímar
Eins og fram kemur hér að framan, vor-
um við sem í forsvari vorum fyrir L.A.
árið 1977, búin að gera okkur grein fyr-
ir því, að tímabært væri að finna Ieik-
húsinu hentugan stað í hjarta bæjarins.
Svo vel vill til, að sá staður sem við þá
horfðum helst til, er enn fyrir hendi, þó
aðeins hafi hann verið skertur, en það
er svæðið sunnan Strandgötunnar, þar
sem Slysavarnafélagið byggði. Þar vest-
ur af gæti risið veglegt leikhús og tón-
listarsalur undir sama þaki, og bílastæði
næg.
Nú er lag
Nú berast þær fréttir að ríkisstjórnin
hafi ákveðið að byggja fimm menningar-
hús víða um landið, og er Akureyri einn
þeirra staða. Þetta tækifæri þarf Akur-
eyrarbær að nýta sér, ná samkomulagi
við ríkisvaldið um fjármagn til slíkrar
menningarbyggingar, sem hér er til um-
ræðu. Hér þarf að vinna markvisst og
hratt. Nú er lag. Látum verkin tala.
Áhugafólk um tónlist og leiklist, hvert
er ykkar viðhorf?
Veðrið í dag...
Austlæg átt, allhvöss við austurströndina fram eftir degi,
en víða kaldi annars staðar. Slydda S Ounnan- og
Suðvestanlands, skýjað með köílum norðan til, en smáél
við austurströndina. Frost 0 til 5 stig Norðan- og
Austanlands, en frostlaust suðvestantil.
Blönduós
_ fC) mm
0- -5- l - ES ■
F m Fös Lau Mán Þri Mið l v*-—• ; • s j . Egilsstaðir
. fC) mm
5- o- -5- B - . B ■ . . ■ -
-5-f-——™-r“—T*"—— I —“n----------------J-(
Flm Föe Lau Mán Pri Mlö
Akureyri
5T o- 1 -
°Fin 1 Fös Lau Mán Þri M.Í ^ ^ N% V J ] Bolungarvík
rci mm
5- o- -5-
í f 1J J
Reykjavík Kirkjubæjarklaustur
íZTA Veðurspárit 21.1.1999
Línurit: Lofthiti, spágildi fyrir miðnætti og hádegi.
Súlurit: Úrkoma, uppsöfnuð i 12 klst.
Vindörvar: Vindur blæs inn að punkti. Vindhraði er táknaður
með skástrikum; heilt strik táknar 5 m/s en hálft 2.5 m/s.
Þríhyrningur táknar 25 m/s.
k
Dæmi: » táknar norðvestanátt, 7.5 m/s.
Færð á vegum
Fært er orðið til Siglufjarðar. Snjókoma og skafrenningur
er á flestum heiðarvegum á Norður- og Austurlandi.
í öðrum landshlutum er allgóð vetrarfærð.
I