Dagur - 23.01.1999, Page 6
6 - LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1999
rD^tr
ÞJÓÐMÁL
_____ _______
Útgáfufélag: dagsprent
Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson
Ritstjóri: elías snæland jónsson
Aðstoðarritstjóri: birgir guðmundsson
Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson
Skrifstofur: strandgötu 3i, akureyri,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
Símar: 460 6ioo OG soo 7080
Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is
Áskriftargjald m. vsk.: i.soo KR. Á mánuði
Lausasöluverð: tso kr. og 200 kr. helgarblað
Grænt númer: soo 7080
Símbréf auglýsingadeildar: 460 6161
Símar auglýsingadeildar: creykjavíK)563-1615 Ámundi Ámundason
(AKUREYR 1)460-6191 G. Ómar Pétursson
OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir
Netfang auglýsingadeildar: omar@dagur.is
Símbréf ritstjórnar: 460 6171(akureyrí) 551 6270 (reykjavík)
Fiimur fer í próf
í íyrsta lagi
Þrátt fyrir kurteisislegt og yfirvegað yfirbragð er umtalsverður
broddur í ummælunum sem höfð eru eftir Alfreð Þorsteins-
syni um Finn Ingólfsson í Degi í gær. Alfreð telur sigur Finns
svo nauman að menn hljóti að setja spurningarmerki við for-
ustuhlutverk hans í kjördæminu, „því hér er um ráðherra og
varaformann flokksins að ræða“. Jafnframt gangrýnir Alfreð
varaformann flokksins fyrir óheiðarlega baráttu með því að
þingmenn flokksins hafi svarist í bandalag strax í upphafi próf-
kjörsbaráttunnar og því í raun eyðilagt prófkjörið fyrir öðrum.
í örðu lagi
í þessum ummælum Alfreðs endurómar sú skarpa skipting
sem varð milli manna og fylkinga í þessu prófkjöri. Allir helstu
forustumenn flokksins í kjördæminu voru þarna beint eða
óbeint að takast á. Atkvæðatölurnar sýna að bæði var sótt að
Finni Ingólfssyni í fyrsta sætinu og Olafi Erni í öðru sætinu.
Ljóst er að Alfreð var studdur af ýmsum helstu sveitarstjórnar-
mönnum flokksins í Reykjavík þannig að segja má að flokks-
deildin í höfuðborginni hafi klofnað með óvenju harkalegum
hætti. Enn einu sinni ætlar prófkjör í Reykjavík að reynast
framsóknarmönnum erfitt.
1 þriðja lagi
Tími sátta er framundan hjá reykvískum framsóknarmönnum
rétt eins og öðrum sem eru að koma út úr prófkjöri. Þrátt fyr-
ir allt stefnir í að menn muni stilla upp ágætlega sterkum og
íjölbreytilegum lista. Flokkurinn vann jú mann í síðustu kosn-
ingum með þá Finn og Ólaf Örn á toppnum. Og Jónía Bjart-
marz mun hiklaust styrkja listann. En það þarf mjög sterka
forustu til að leiða fylkingarnar saman á ný til öflugrar kosn-
ingabaráttu. Þar reynir á hvert svarið verður við hinni óþægi-
legu spurningu Alfreðs: Er 60% stuðningur til marks um að
forustusta Finns í Reykjavík sé nægilega sterk? Úr því verður
Finnur sjálfur að skera á næstu vikum og mánuðum.
Birgir Guðmimdsson
Laimráð í Vonbrigðaskarði
Garri er mikill kvikmyndaað-
dáandi og hefur í gegnum tíð-
ina séð mörg Iistræn stórvirki
á þessu sviði, myndir á borð
við Síðasti bærinn í dalnum,
Casablanca og Hvíti víkingur-
inn. En Garri hefur Iíka séð
þúsundir af nauðaómerkileg-
um myndum sem hann gróf
strax vísvitandi í gleymskunnar
djúp. Ein af þessum myndum
frá æskudögum Garra situr þó
enn í kollinum á honum, eða
reyndar titill myndarinnar
fremur en innihaldið. Þessi
mynd var gerð eftir sögu vin-
sælasa rithöfundar á ísíandi á
þeim tíma, Alistair
McLean og skart-
aði andlitsfim-
leikamanninum
Charles Bronson í
aðalhlutverki.
Garri man fátt af
efni myndarinnar,
sem var útjaskaður
vestri af einhveiju
tagi, en titill henn-
ar hefur greypst í
minnið. Myndin hét sem sé
Launráð í Vonbrigðaskarði.
Fallkandídatar
Titill myndarinnar kemur
nefnilega ævinlega upp í huga
Garra að nýafstöðnum próf-
kjörum og skoðanakönnunum
í pólitíkinni á Islandi. Þegar
fallkandídatarnir mæta í fjöl-
miðlum til þess að skýra og
skilgreina lélegt gengi sitt. Og
í langflestum tilvikum er sem
þeir sitji í Vonbrigðaskarði og
lýsi launráðunum sem þeim
voru brugguð af flokksfélögum
sínum í prófkjörinu. Og raun-
ar á þetta einnig við eftir kosn-
ingar þegar forystumenn
taplistanna eru að tína til af-
sakanir sem yfirleitt snúast um
launráð af einhveiju tagi.
Fallkandídatar?
Fóla-bandalagið
Nýafstaðin prófkjör eru engin
undantekning hvað þetta varð-
ar. Arnþrúður Karlsdóttir og
Alfreð Þorsteinsson hafa bæði
talað um samsæri ellegar sam-
blástur þingmannanna Finns
og Olafs heimskautafara, sem
hafi í raun ráðið þ\á að þau
fóru halloka í prófkjörinu,
fremur en sú staðreynd að
fleiri kusu að kjósa Finn og
Óla (Fóla-bandalagið) en Arn-
þrúði og Alfreð (AA-bandalag-
ið).
Alfreð og Arnþrúður sitja
sem sé fallin í Vonbrigða-
skarði, eins og
Charles Bronson í
myndinni góðu, og
barma sé yfir laun-
ráðum félaga sinna.
Og það er morgun-
ljóst að fleiri fall-
kandídatar eiga eft-
ir að sitja í sama
skarði og kvarta yfir
launráðum á næstu
vikum.
Garri, sem er óflokksbund-
inn í flestum flokkum, kann
eiginlega ekki við þessar enda-
lausu launráðaskýringar þeirra
sem ekki ná að eigin dómi
ásættanlegum árangri í for-
valsprófkjörum. Karlmann-
legra er (og kvenmannlegra
einnig, svo fyllsta jafnréttis sé
gætt) að sætta sig við niður-
stöðuna, bíta í skjaldarrendur,
safna liði og hefja undirbúning
fyrir næstu orustu. En fyrst og
fremst auðvitað að fara að
huga að heppilegum launráð-
um sem reynslan hefur sýnt að
duga best í pólitískum
hanaslag á íslandi. Þannig að
það verði einhverjir aðrir sem
þurfa að sitja í Vonbrigða-
skarði í næsta prófkjöri.
-GARRI.
ELÍAS
SNÆLAND
JÓNSSON
skrifar
Oft hefur verið mikill hamagang-
ur í prófkjörum Framsóknar-
flokksins í Reykjavík. Sú varð
líka reyndin núna. Þótt þing-
menn flokksins í kjördæminu
hafi haldið velli, er margt for-
vitnilegt við niðurstöðuna.
Alfreð Þorsteinsson, borgar-
fulltrúi, sem stefndi hátt en lenti
í fimmta sæti, var fljótur að
benda á það þegar úrslitin Iágu
fyrir í fyrrakvöld, að varaformað-
ur flokksins og oddviti hans f
höfuðborginni hafði aðeins feng-
ið 57.1% atkvæða í fyrsta sætið.
Sundurliðun á þvf hvernig at-
kvæðin skiptust á frambjóðendur
eftir sætum er birt á öðrum stað
í Degi í dag. Þar sést að Alfreð
fékk 421 atkvæði í fyrsta sætið
og Arnþrúður Karlsdóttir 221.
Finnur fékk hins vegar „aðeins"
996 atkvæði af 1.745.
Foringj ahollus t a
Þetta er að sjálfsögðu allt önnur
og lakari útkoma fyrir varafor-
Formgjar höfðu það
mann flokksins en flokksforystan
hefði kosið, ekki síst þar sem
Finni veitti ekki af sterkri út-
komu eftir pólitískar hremming-
ar síðasta árs.
Enda vakti það
litla kátínu þar
á bæ þegar Al-
freð ákvað að
leggja til atlögu
við þingmenn-
ina.
Finnur og
Ólafur Örn
höfðu frá upp-
hafi með sér
opinskátt kosn-
ingabandalag.
Greinilega sést
á tölunum að
það bandalag
hefur haldið;
Finnur fékk
þannig 996 at-
kvæði í fyrsta sætið, eins og áður
segir, en Ólafur Örn svipað, eða
930 atkvæði, í annað sætið.
Auðvitað var það mikil bjartsýni
af Alfreð að ætla sér að steypa
sitjandi þingmanni, ekki síst þar
sem slíkt var ljóslega gegn ein-
dregnum vilja
flokksforystunn-
ar. Það gengur
ekki í jafn for-
ingjahollum
flokki og Fram-
sókn hefur Iöng-
um verið.
í andstöðu við
forystuna
Forvitnilegt er
að bera saman
útkomu Alfreðs í
Reykjavík og
Jakobs Björns-
sonar, fyrrum
bæjarstjóra Ak-
ureyringa, í próf-
kjöri framsókn-
armanna í Norðurlandskjördæmi
eystra. Hann setti líka markið
afar hátt: barðist fyrir því að ná
leiðtogasætinu í kjördæminu,
sem margir töldu eðlilegt að Val-
gerður Sverrisdóttir, þingmaður
kjördæmisins til margra ára, tæki
í arf eftir Guðmund Bjarnason,
umhverfisráðherra.
Utkoma Alfreðs og Jakobs er
að mörgu leyti sambærileg; báðir
stefndu hátt en lentu í vonlausu
sæti.
Athygli hefur vakið að þeir for-
ystumenn í sveitarstjórnum, sem
buðu sig fram í prófkjörum fram-
sóknarmanna, fengu ekki braut-
argengi - það er Alfreð, Jakob og
Herdís Sæmundardóttir í Norð-
urlandi vestra. Sumir Iesa út úr
því skilaboð til sveitarstjórnar-
manna. Líklegri er þó sú nær-
tæka skýring að í öllum tilvikum
áttu þessir frambjóðendur í
reynd í átökum við æðstu for-
ystumenn Framsóknarflokksins.
Það hefur aldrei reynst vænlegt
til frama innan flokksins.
Finnur Ingólfsson: fékk 57.1% í
fyrsta saetið í Reykjavík.
spuríisi
svaraö
Hvemigfinnst þér
nafniðEfling - stéttarfé-
lag?
Pétur Pét-
ursson,
þulur.
„Alveg hræði-
legt. Við hjón-
in fengum
áfall þegar við
heyrðum þetta
nafn og þá
menn sem
gera þetta kalla ég útfararstjóra
Dagsbrúnar. Félagið hefur alveg
verið höggvið niður í rót og þetta
var félag sem naut hvarvetna
virðingar í þjóðfélaginu, meðal
annars langt inn í raðir atvinnu-
rekenda. - I dag eru ríkjandi hn-
ingnunartímar í þjóðfélaginu og
dansað er í kringum gullkálfinn
Arons, þann sem Gamla-testa-
mentið segir frá að hafi komið til
skjalanna þegar Móses hvarf frá.
Aron snéri lýðnum til fylgis við
frjálshyggju og því spyr ég hvers-
vegna þeir menn sem nú vikja frá
Dagsbrúnarnafninu kalli hið
nýja félag ekki Eignarhaldsfélag-
ið.“
Haraldur Bóasson,
formaðurUng-
menmfélagsins
Eflitig í Reykja-
dal.
„Fyrst þegar
ég heyrði þetta
varð ég hugsi í
smástund og
fór að velta
fyrir mér hvort
við ættum að skoða hvort við
hefðum einhvem sérrétt á naf-
inu. En ég tel reyndar þegar ég
hugsa málið betur að þennan
rétt höfum við ekki, þannig að
nú er bara að brosa yfir þessu.
Almennt talað finnst mér Efling
vera afar gott nafn, sem hefur
mikla merkingu."
Guðmundur Gunnarsson,
fomtaðurRafión-
aðarsambands
íslands.
„Þetta nafn
virkar vel á
mig. Það Iýsir
vel markmið-
um verkalýðs-
hreyfingarinn-
ar og ég held
líka að menn hafi dottið niður á
ágætt nafn því varla hefði verið
hægt að nota eitthvert af þessum
nöfnum sem menn völdu hér á
árum áður, til dæmis Dagsbrún
eða Framsókn. Eg held að menn
hafi sem sagt dottið niður á
nokkuð góða Iausn í þessu
nafnamáli."
Ómar Valdi-
marsson,
blaðamaður.
„Efling - stétt-
arfélag finnst
mér heldur
gott nafn, en
Dagsbrún er
frábært nafn.
Auðvitað hefði félagið átt að
heita Dagsbrún, en það er óger-
legt af tilfinningalegum ástæð-
um. Vonandi verður þetta gott
félag sem dugar vel til síns
brúks.“