Dagur - 26.01.1999, Side 2
18 — ÞRIÐJUDAGUR 26. JAXÚAR 1999
LÍFIÐ í LANDINU
L. A
■ SMflTT OG STÓRT
UMSJÓN:
SIGURDÓR
SIGURDÓRSSON
Hjálmar Jónsson.
GULLKORN
„Einu sinni keypti
ég mynd hjá Gall-
erí Borg, fór með
hana út og seldi
íslenskri konu,
sem fór með hana
heim og reyndi að
selja Gallerí Borg
aftur. Það græddi
enginn á þeim
viðskiptum nema
ég.“
Jónas Freydal,
vitni í yfirstand-
andi listaverkaföls-
unarmáli, í viðtali
við DV.
Veiðisöguhúsið
Skáldið og skógarbóndinn Hákon Aðalsteins-
son kom til borgarinnar í síðustu viku þeirra
erinda að leita leiða til þess að byggja skála að
Húsum í Fljótsdal, þar sem hann býr og rekur
bændagistingu og ferðaþjónustu ásamt Sig-
rúnu konu sinni. Nýi skálinn á að verða dag-
stofa fyrir gesti, þar sem hægt verði að spjalla
saman í rólegu umhvefi. Einkum hugsar Há-
kon sér að veiðimenn, sem gista að Húsum,
geti komið þarna saman og farið yfir atburði
dagsins. Segist Hákon því ætla að byggja
„veiðisöguhús." Þegar Hákon kom suður leit-
aði hann aðstoðar vinar sins, hagyrðingsins
Hjálmars Jónassonar alþinigsmanns, um leið-
sögn í gegnum frumskóg kerfisins eftir fjár-
hagslegri fyrirgreiðslu. Fyrst héldu þeir félagar
til Leifs Jóhannessonar hjá Lánasjóði land-
búnaðarins. Hann tók þeim vel, bauð í nefið
og spurði almæltra tíðinda. Að því búnu var
kannað hvort möguleikar væru á fyrirgreiðslu
samkvæmt reglum sjóðsins. Leit það nógu vel
út til þess að mögulegt yrði að byggja veiði-
söguhúsið næsta sumar. Þegar út var komið
orti Hákon:
Ekki þarf að hneigja hné
né hnika veði.
Leifur hændtnn lónarfé
með Ijúfu geði.
Hjálmar svaraði:
Inn til Leifs í Idnahöll
læðist eins og músin.
Brúðum verður byggt við öll
Brekkugerðishúsin.
Þá sagði Hákon:
Brátt til verkafer égfús
frjáls í vorhltðunni.
Veiðisögu - veglegt - hús
verður reist afgrunni.
Landsbyggðastefnan
Þessu næst hugðust þeir félagar Ieita til Fram-
leiðnisjóðs um hugsanlega fyrirgreiðslu. Þá
kom í ljós að sjóðurinn er fluttur upp í Borgar-
nes. Þá orti Hjálmar:
Landsbyggðastefnan er glettin og góð
með graðhestum, svínum og hænum.
Nú finnum við ekki framleiðnisjóð
hann erfluttur héðan úr bænum.
Var nú Iagt kapp á að finna Egil Jónsson al-
þingismann frá Seljavöllum, sem er stjórnar-
maður í Framleiðnisjóði. en stjórnin sat þá á
fundi upp í Borgarnesiþ Þá orti Hákon í kaffi-
stofu Alþingis:
Löngum blekkir lúmskur spegill
lífið hér á jörð.
Nú er kominn annar Egill
upp í Borgarfjörð.
Síðan orti Hákon til Egils á Borg, það sem
kalla má væga ógnun:
Mínar beiðnir stórra styrkja
styðja þarf af rausn
svo hann þurfi ekki að yrkja
aðra höfuðlausn.
Þórunn Svein-
björnsdóttir, for-
maður Sóknar, sem
núna er aðeins til
sem kennitala eftir
sameiningu við þrjú
önnur stéttarfélög
og stofnun Efíingar.
Sagan geymist áfram
Þórunn segir að það séu heil-
miklar tilfinningar tengdar því að
yfirgefa sinn vinnustað. „Auðvit-
að fylgir því mikil vinna við að
flokka gögn og koma sér fyrir.
Maður er búinn að fara núna á
Iaugardagsmorgnum í gegnum
skjöl, flokka og koma þeim fyrir.“
Þórunn hefur verið formaður
Sóknar í ellefu ár en nú er saga
starfsmannafélagsins Sóknar á
„Maður notarsvom
tækifæri til þess ad taka
beturtil ípappírunum
hja sér, “ segirÞórunn
Sveinbjömsdóttir,for-
maðurSóknar, sem
enda með sameingu stéttarfélaga f[ufH skrifstofu SÍTia UTU Þórunn
og stofnun Eflingar. „Starfs-
áramótin úrSkipholti
hafa dreiftst dálítið mikið frá því
að vera kannski fjórir, fimm ein-
staklingar að vinna, sem hafa
þurft að kunna skil á öllum mála-
flokkum. Við höfum orðið að vera
slíkir sérfræðingar í smæðinni en
núna getum við hinsvegar búið til
einstaklinga sem sinna bara
hvetju verkefni eða málaflokki.
Þeir fá þá betri þekkingargrunn
og frið til að vinna verkin," segir
mannafélagið Sókn er ekki til
nema sem kennitala meðan verið
er að ljúka reikningslegu bók-
haldi fyrir síðasta ár. Við eigum
eftir að halda aðalfundi í vor og
þá verður félagið væntanlega lagt
niður. Það er til að nafninu til í
dag af því við eigum eftir að
ganga frá. Félagið á sér aftur á
móti merka sögu sem verður vit-
anlega til áfram.“
50a í Skipholt 50d, eða
yfir eitt bílastæði.
SPJflLL
Voru sérfiræðingar í smæðinni
Þórunn telur fræðslumálin mikilvægan mála-
flokk og að eftir sameiningu stéttarfélaganna
opnist möguleikar þar. Hún segir í undirbúngi
að gera fræðsluátak fyrir trúnarðarmenn. Hún
sér mikla hagsmuni fólgna í stærðinni hún segir
að væntanlega verði meira tillit tekið stórs félags
en lítils.
„Við samruna sjóða getum við veitt fólki meiri
réttindi og um leið einbeitt okkur hvert um sig
að ákveðnum málaflokkum. Starfskraftarnir
Málin einfaldast
Það er skoðun Þórúnnar að allt
verkafólk eigi samleið, kjarabar-
átta þess sé náskyld hvort sem
viðsemjandi þeirra er Vinnuveit-
endasambandið eða hið opinbera.
„Fjármálaráðuneytið er með yfir
fjörutíu mismunandi kjara-
samninga. Við svona sameiningu
ætti það að einfaldast. Af hverju
ættu kjör starfsmanna í mötu-
neytum hjá ríkinu að vera mis-
í hvaða stéttarfélagi fólk er í?
jöfn eftir því
Þannig er það í dag.
Ræstingarfólk var í tveimur stéttarfélögum
eftir því hjá hverjum það vann, en núna breytist
þetta, þegar stéttarfélögin sameinst. Það er
brýnast að samræma réttindi fólks og í mörgum
tilfellum er orlofsrétturinn misjafii, veikinda-
rétturinn misjafn, réttindarmál í þessum mála-
flokki eru í raun ansi mörg,“ segir Þórunn.
-PJESTA
■ FRÁ DEGI TIL DflGS
„Hrukkumar eiga bara að sýna hvar
áður var bros.“ Mark Twain
Þau fæddust 26. janúar
• 1763 fæddist franski byltingarhershöfð-
inginn Jean-Baptiste Bernadotte, sem
síðan flutti til Svíþjóðar og varð á end-
anum konungur bæði Svíþjóðar og
Noregs, og hét þá Karl Jóhann.
• 1862 fæddist Ólafur Davíðsson nátt-
úrufræðingur.
• 1880 fæddist bandaríski hershöfðing-
inn Douglas MacArthur.
• 1904 fæddist írski stjórnmálamaðurinn
Seán MacBride, sem hlaut friðarverð-
laun Nóbels árið 1974.
• 1908 fæddist franski fiðlarinn Stép-
hane Grappelli.
• 1918 fæddist Nicolae Ceausescu, sem
var æðstráðandi í Rúmeníu þar til hon-
um var steypt af stóli og myrtur í bylt-
ingu árið 1989.
»<i »-i fi-rUnr‘f: H
Þetta gerðist 26. janúar
• 1531 varð mikill jarðskjálfti í Lissabon
og létust 30.000 manns.
• 1866 fékk Isafjörður kaupstaðarrétt-
indi.
• 1894 var Hið íslenska kvenfélag stofn-
að í Reykjavík.
• 1906 var verkamannafélagið Dagsbrún
stofnað.
• 1932 sökk breskur kafbátur í Ermar-
sundi, og létust þar 60 manns.
• 1934 undirrituðu PóIIand og Þýskaland
10 ára samning um að ráðast ekki hvort
á annað.
Vísan
Vísa dagsins er að sjálfsögðu tileinkuð
Þorranum, en hana orti Sverrir Mey-
vantsson:
Margir blóta tnikið og þora
mest þeir blóta feður vora
halda uppi hefð og gríni
með hdkarli og brennivíni.
Afmælisbam dagsins
Paul Newman fæddist árið 1925 í
Shaker Heights, sem er úthverfi
borgarinnar Cleveland í Ohio,
Bandaríkjunum. Þetta bláeyga
kvennagull er því orðið 74 ára.
Newman var í hópi ungra leikara
sem létu sterklega að sér kveða í
Hollywood á árunum kringum 1960.
Frá því þá hefur hann leikið í hverri
úrvalsmyndinni af annarri allt fram á
þennan dag, og var sex sinnum til-
nefndur til Óskarsverðlauna áður en
hann hlaut þau Ioks árið 1986.
Brandarinn
Jónas tók þátt f opna breska meistaramót-
inu og gekk bara þokkalega þó kylfu-
sveinninn hans væri með hiksta. Hann var
kominn á síðustu holuna og um það bil að
vinna mótið en hitti ekki holuna. Hann
endaði í þrítugasta sæti. Hann varð ægi-
lega reiður, æddi að kylfusveininum og
sagði: „Sko bara, hvað hikstarnir þínir létu
mig gera! Þeir eru búnir að skemma alveg
fyrir mér leikinn!“
„En ég hikstaði ekkert núna,“ sagði kylf-
usveinninn.
„Ég veit það,“ urraði Jónas, „en ég reikn-
aði með hikstanum!"
Veffang dagsins
Góð ráð um ýmislegt milli himins og jarð-
ar, en þó aðallega um tölvur er að finna til
dæmis á www.tipworld.com og www.-
dummies.com/tips
m
Fttnrt-r