Dagur - 26.01.1999, Síða 4

Dagur - 26.01.1999, Síða 4
20-ÞRIDJUDAGV R 26. JANÚAR 1999 Tyagur BRÉF TIL KOLLU Elsku KoIIa. Þetta er búin að vera undarleg vika. Þegar ég vaknaði á mánudagsmorg- un óskaði ég þess, að þetta hefði verið martröð, bara vondur draumur. En svo gekk ég út að glugganum og horfði yfir götuna. Það varð ekki um villzt. Gap- andi húsatóftir, sótsvartir veggir. Súr brunalykt hékk enn í loftinu. A sunnudaginn síðdegis sat ég inni í her- berginu mínu, og allt var svo gott. Ég var að ljúka við bréf til þfn. Ætlaði líka að senda Snæfríði nokkrar línur. Það hafði hlýnað snögglega. Glugginn var opinn. Krakkarnir voru að leika sér fyrir utan. Þá heyrði ég í sírenum. Það heyrist oft í þeim hér í Washington. Rétt á eftir fann ég brunalykt, og sírenuvaelið varð ærandi. Hvar hefur kviknað í? Ég æddi út að glugganum. Horfði á húsið handan við götuna, þrílyft, múrsteinshlaðið með stórum frönskum gluggum. Ég kannaðist við konuna í húsinu. Hún var þýzk og hafði fært mér blóm, þegar við fluttumst í hverfið. Maðurinn hennar vann við ítalska sendiráðið. Jósef og Mímósa I kjallaranum bjuggu Jósef og Mímósa. Þau komu frá Albaníu. Mímósa var kennari. Hún fékk styrk til að stunda framhaldsnám í Bandaríkjunum. Jósef og Teódór litli, sonur þeirra, fóru með henni til nýja landsins. Þetta voru vinir okkar. Ég hafði hjálpað þeim með ýmislegt, þegar þau fluttu inn um jólin. Teódór lék sér stundum við krakkana mína. Þau þrifu húsnæði sendiráðshjónanna og hirtu garðinn þeirra. Fengu að búa frítt í staðinn. Mímósa fékk enga vinnu við hæfi. Kennari frá Albaníu. En þau vildu frekar búa við þessi kjör en snúa heim aftur. Þar biði þeirra bara hungursneyð og vesöld. Albanía er guðs eigið land. Þar er ósnortin náttúrufegurð. Þar vaxa safaríkar appelsínur og heimsins stærstu ólívur. Þar vaxa fegurstu blóm jarðar, mímósur og hortensíur. Þar er sandurinn hvítur og mjúkur. - En samt. Það er skelfilegt að sjá hús brenna. Ég trúði ekki mínum eigin augum. Þetta virtist svo sakleysislegt, smá reykjarstrókur út um kjallaraglugga. En nú sá ég, að það rauk líka upp úr þakinu, og ég heyrði sprengingar inni í húsinu. Brunaliðið óð um allt. Margir bílar. Mikill hávaði. Mímósa, Jósef og Teódór voru úti á götu. Ég sá ekki betur en að þau væru fáklædd á sokkaleistunum. Jósef hélt á syni sínum, sem hjúfraði sig upp í hálsakot. Mímósa fórnaði höndum. Hún var að gráta. Ég horfði á þetta eins og atriði í bíómynd. Ég gat mig hvergi hrært. Ég tók andköf. Skyndilega sá ég eldtungur sprengja sér leið út um stofugluggann á efri hæðinni. Síðan koll af kolli. Loginn stóð út úr öllum glugg- um. A svipstundu var húsið alelda. Þetta fal- lega hús, heimili kynslóða, heimili vina minna. Fuðraði upp. Allt farið. Ég greip kápuna mína og hljóp út á götu. Mímósa hjúfraði sig upp að mér, skjálfandi, með tárin í augunum. „Ég gerði ekkert, Bryndís. Þetta er ekki mér að kenna. Þú verður að trúa mér.“ Mímósa var hrædd. Húsmóðirin hafði ásakað hana. Hún horfði í augun á mér. Þar speglaðist saga heillar þjóðar. Af hveiju verða sumir að þjást svona mikið? „Mímósa hélt áfram að gráta við eldhús- borðið mitt. Hún var svo óhamingjusöm. Við reyndum að hugga hana. Vega- bréfin væri hægt að endurnýja. Hún hristi bara höfuðið. „Alb- anir fá engin vega- bréf. Þjóðin er í upplausn. Öllum er sama um okkur. Við erum einskis metin.“ Bruni í Washington Við stóðum úti á götu. Héldum hvor um aðra. Tvær einar í heiminum. Samt var fullt af fólki. Nágrannar. Þeir sáu okkur ekki. Horfðu bara á brennandi húsið. Ósnortnir. - A meðan var eldurinn að tortíma aleigu þessarar ungu konu. Þjóðíupplausn Þau misstu aleiguna, KoIIa. Hún var að vísu ekki mikil að vöxtum. Föt til að skýla sér, mat til að seðja hungur sitt, rúm til að sofa í. Samt höfðu þau aldrei verið svona rík. Aldrei verið svona sæl og örugg. Þegar eldurinn kviknaði undir glugganum í svefnherberginu, var Mímósa að skrifa heim. Hún ætlaði að skrifa um hamingjuna. Það gafst ekki tími til þess. Þau áttu fótum fjör að launa, skólaus, í náttfötunum. Vegabréfin fuðruðu líka upp i eldinum. Það var sárast. Dvalarleyfin, sem þau voru nýbúin að fá. Mímósa hélt áfram að gráta við eldhúsborðið mitt. Hún var svo óham- ingjusöm. Við reyndum að hugga hana. Vegabréfin væri hægt að endurnýja. Hún hristi bara höfuðið. „Albanir fá engin vega- bréf. Þjóðin er í upplausn. Öllum er sama um okkur. Við erum einskis metin." Og veiztu það, Kolla, að allt þetta, sem hún sagði, hefur komið á daginn. Þau fá engin vegabréf. Stríð er að bresta á. Enginn skiptir sér af þeim - hvorki landar þeirra né vinnuveitendur. Og konan í húsinu var svo ósvífin að koma daginn eftir með tvenn stígvél, sem hún bað Mímósu að bursta! Nú eru þau búin að vera hjá okkur alla þessa viku. Mímósa hefur grátið á öxlinni á mér. Auðvitað var eldurinn ekki hennar sök. En hún ber allar heimsins syndir á herðun- um. Heimurinn er í rúst, líf hennar er í rúst. Og Albanía á sér enga von En við höfum haft heppnina með okkur þessa viku. Lífið er aftur að komast í samt horf. Mímósa og Jósef eru metin að verðleik- um. Það er ekld öllum sama um þau. Það höfum við reynt þessa seinustu daga. Fatn- aður, húsnæði, vinna, jafnvel bráðabirgða- vegabréf. Allt hefur sinn tíma, Kolla. ÖIl él styttir upp að lokum. En þetta var samt und- arleg vika. Elsku Koila mín. Ég sendi þér líklega eng- an pistil í næstu viku. Við verðum í burtu í nokkra daga. En þegar ég kem heim aftur, verð ég eflaust uppfull af hugmyndum. Þín Bryndís Hmenningar LÍFID Lóa Aklísardóttir Jæja, þá hafa „amrísku" mynd- irnar tekið völdin á ný í bíó. Kvikmyndahátíðin búin og maður getur loks Iegið pollró- legur heima í sófa, laus við nag- andi óttann um að vera rnissa af einhverju þarna úti... Að vísu eru nokkrar myndir af Kvikmyndahátíð sem fara í almennar sýningar og ekki skrýtið því myndirnar voru margar mjög vel sóttar og Fest- en m.a.s. sú fjórða vinsælasta á landinu (þ.e. í samkeppni við bandarísku myndirnar). Festen heldur að sjálfsögðu áfram í bíó sem og: Welcome to the Doll- house, Spanish Prisoner, Eve’s Bayou, The Ugly og Velvet Goldmine. La Vita é Belle fer hins vegar ekki í almennar sýn- ingar fyrr en í byrjun mars. Gruppeknald lirekkur skainmt Það er náttúrulega óskiljanlegt að af tveimur dogma myndum hátíðarinnar, Festen og Idiot- erne, skuli sú verða vinsælli (þ.e. Festen) sem horfa á (virkar einhvern veginn öll úr fókus), gerð af ófrægari manni (Thomas Vinterberg?!?!) og hefur ekkert svo hömlulaust myndskeið sem Idioterne þar sem er svo mikið af berum bossum, dillandi brjóstum og reistum göndum að manni fór bara að sundla á tímabili (og snöggþagnaði í annars hávær- um troðfullum salnum, heyrðist ekki tíst í salnum meðan slef- borið gruppeknaldet fór fram). Kannski er það Arni Þórarins- son, kvikmyndagagnrýnandi, sem hefur slíkt ægivald yfir okkur en hann sagði í sjónvarp- inu rétt fyrir hátíðina að Festen væri miklu betri en Idioterne. A.m.k. afsannar þetta kenning- ar manna um að sjáist bijóst sé metaðsókn tryggð (kannski virk- ar jafnan öfugt ef stinnir sköndlar sjást líka). En svo reyndist Idioterne vera frunta- lega góð mynd. Dálítið hæg- geng og skólaverkefnisleg í byrj- un en þegar hún komst á sporið sat maður heillaður undir lát- lausu flakki persóna milli sinn- ar veruleikamanneskju og síns innri „eðjóta." Snilldarhugmynd og framúrskarandi mynd. V___________________________/ Fúlir framsóknarmeim Það er erfitt að tapa eins og glöggt má ráða af við- brögðum þeirra fram- sóknarmanna sem náðu ekki verulegum árangri í prófkjöri Framsóknar- flokksins. Kona sem lenti í sjötta sæti í prófkjöri flokksins í Reykjavík seg- ir að árangur sinn sé góður miðað við að hún hafi verið að keppa við kalla um efstu sætin en gleymir því um leið að tvær konur hrepptu sæti fyrir ofan hana. Það er senni- lega þægilegra að kenna karl- veldinu um það sem miður fer en viðurkenna að kjósendur hafi hafnað manni. Karlmaðurinn í fimmta sæti ætlaði sér mikinn sigur en þegar það áætlunarverk mistókst sleikti hann sárin með því að hreyta ónotum í efsta mann á lista og sagði sigur hans máttleysislegan. Þessi viðbrögð þykja mér ekki lýsa miklum drengskap í garð ráðherra og vara- formanns flokksins sem virðist hafa orðið það eitt á að sigra í prófkjörinu. Margítrekað hefur komið fram í Ijölmiðlum að búið var að smala herskara manna í Framsóknarflokkinn og ein- hveijir hundruðir þeirra voru sérstakir andstæðingar Finns Ingólfssonar. En þegar búið að var að telja upp úr kössunum var eins og enginn myndi eftir þessari smölun og sigurinn var skyndilega talinn naumur. Ég fæ ekki með góðu móti séð að hann hafi verið það. I miðjum greinaskrifum renn- ur skyndilega upp fyrir mér að sennilega er ég að kalla yfir mig reiði félaga minna í samfylking- ararmi með því að taka upp vörn fyrir forystu Framsóknar- flokksins svo ég hætti mér ekki Iengra í þeim efnum, enda komin langt út yfír mitt kratíska MEIMNIIUGAR VAKTIN „Margítrekað hefur komið fram í fjöl- miðlum að búið var að smala herskara manna í Fram- sóknarflokkinn og einhverjir þeirra voru sérstakir and- stæðingar Finns Ingólfssonar. En þegar búið að var að telja upp úr kössunum var eins og enginn myndi eftir þessari smöl- un og sigurinn var skyndilega talinn naumur." verksvið. En ég vona að þeir frambjóðendur í prófkjöri sam- fylkingar, sem ná ekki þeim ár- angri sem þeir hafa gert sér vonir um, fari ekki í sama fúl- lynda farið og tapsárir fram- sóknarmenn.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.