Dagur - 26.01.1999, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1999 - 21
Xfc^wr.
LÍFIÐ í LANDINU
Brúðkaupsnótt
1 Vaðlareit
„Það kom aldrei annað til greina en að giftingin færi fram í Akureyrarkirkju, “
segir Aðalbjörg Skúladóttir, sem hér er ásamt Þórði Friðrikssyni, eiginmanni
sínum. [Mynd: Ljósmyndast. Páls, Akureyri.)
„Á brúðkaupsnóttina sváfum við
í sumarbústað sem foreldrar
mínir eiga í Vaðlareit, hér hand-
an við Pollinn. Brúðkaupsferð-
ina eigum við eftir og þá er
draumurinn að fara annað hvort
til heitu landanna eða til Edin-
borgar. Þangað fórum við haust-
ið 1997 og við opinberuðum
einmitt í því ferðalagi," segir Að-
alheiður Skúladóttir á Akureyri.
Þann 22. ágúst sl. sumar gaf sr.
Pétur Þórarinsson í Laufási Að-
alheiði og Þórð Friðriksson sam-
an, en þau er búsett á Akureyri.
Þórður starfar sem nætur-
vörður hjá Securitas á Akureyri
en Aðalheiður sem Ieiðbeinandi
við Lundarskóla. Hún er sjúkra-
liði og nuddari að mennt, en
starfar nú við það sem er
menntun hennar með öllu
óskylt. En hún kann starfinu vel
og segir vel koma til greina að
leggja kennslustörf fyrir sig í
framtíðinni. „Við Þórður erum
búin að vera saman í Ijögur ár.
Við erum barnlaus enn, en hann
á fyrir tvo stráka,“ segir Aðal-
heiður, sem er frá Akureyri. Eig-
inmaður hennar er frá Brekku í
Eyjaljarðarsveit.
„Það kom aldrei annað til
greina en að giftingin færi fram í
Akureyrarkirkju. Og síðan vild-
um við fá sveitaprest, af því
Þórður er úr sveit, og þá völdum
við séra Pétur. Honum tókst
afar vel upp við þessa athöfn og
gestirnir töluðu margir um hve
ræðan hans við athöfnina hefði
verið falleg." -SBS.
Hreinn Skúli og
Kolbrún Lilja
Gefin voru saman í Grenivíkur-
kirkju þann 13. júní sl. sumar af
séra Pétri Þórarinssyni þau
Hreinn Skúli Erardsson og Kol-
brún Lilja Kolbeinsdóttir. Heim-
ili þeirra er í Tjarnarlundi 13k á
Akureyri. (Mynd: Ljósmyndast.
Páls, Akureyri.)
Svava og Hilntar
Gefin voru saman í heilagt
hjónaband í Akureyrarkirkju
þann 6. júní sl. sumar, af séra
Svavari Alfreð Jónssyni, þau
Svava Sigurðardóttir og Hilmar
Sæmundsson. Heimili þeirra er
að Skarðshlíð 32 á Akureyri.
(Mynd: Ljósmyndast. Páls, Ak-
ureyri.)
Margrét Huld og
PaU
Gefin voru saman í heilagt
hjónaband í Bessastaðakirkju
þann 8. ágúst sl. sumar, af séra
Hans Markúsi Hafsteinsssyni,
þau Margrét Huld Guðmunds-
dóttir og Páll Sigurðsson. Heim-
ili þeirra er í Hraunbæ 172 í
Reykjavík. (Ljósmyndast. Mynd,
Hafnarfirði.)
Þegar lokað er á nefið
árnanni
SVOJUA
ER LIFIÐ
Pjetur St.
Arason
skrifar
©
Pjetur
svarar
í símann!
Ertu með ráð,
þarfitu að spyija,
viltu gefa eða
skipta?
Pjetur svarar í
símann kl. 9—12.
Síminn er
563 1626 (beint)
eða 800 7080.
Póstfang:
Þverholt 14 Rvk.
eða Strandgötu 31
Akureyri.
Netfang:
ritstjori@dagur.is
Allir þekkja þá tilfinningu að
vera að stússast í bænum við
útréttingar og eiga kannski
eftir að heimsækja eina opin-
bera stofnun fyrir lokun.
Kíkja aðeins inní tískuverslun
á leiðinni og allt í einu er
klukkan orðin átta mínútur í
Ijögur og bankinn alveg að
loka. I búðinni er falleg
skyrta og maður lendir í því
að verða að þjóta.
Pósthúsum er almennt
lokað hálf fimm. Það er þó
stundum að dyraverðir, búð-
areigendur og aðrir hleypa
viðskiptavinunum inn af misk-
unnsemi sinni þegar þeir eru
að loka dyrum sínum. Stund-
um mætir maður hinsvegar
fólki í dyrunum á leiðinni út
og lendir þá í kreppu því hvað
ef maður hefði keypt skyrt-
una og stæði þarna sjálfur í
sporum þessa aumingja fólks.
Afgreiðslutími kjörbúða
hefur verið að lengjast. I eina
tíð keyrðu Reykvíkingar til
Hafnafjarðar um helgar til
þess að versla því búðum var
lokað klukkan sex á föstu-
dagskvöldum.
Nú eru breyttir tímar og
klukkuverslanir eru opnaðar
um miðjan morgun en eru
opnar langt fram á kvöld,
bensínstöðvar eru með sólar-
hringsvakt, það er af sem
áður var, og menn geta keypt
sitt kruðerí á kvöldin og um
helgar.
Það er mjög í tísku að í
samræmi við íslenska hefð að
vitna til þess sem gerist í út-
löndum, og ég man eftir því
að móðir mín sagði mér það
að í Þýskalandi hætti fólk að
afgreiða þegar verslunum,
skrifstofum og öðrum slíkum
hlutum er lokað.
Það væri mjög til fyrir-
myndar og mikil kurteisi við
starfsfólkið að menn mæti
tímanlega í verslanir og skrif-
stofur og Ijúki erindum sín-
um áður en klukkan glymur.
Rermibraut á stól
Lesandi hringdi og
vildi vita hvort ein-
hver hefði byrjað á
rennibraut á stól og
lagt það síðan til
hliðar. Ef svo væri
bauðst hún til þess
að taka við verkinu.
Hún heitir Ingígerð-
ur Einarsdóttir og á
heima á Akureyri.
Hún er í síma 462
7037.
jfti? í i. 7 >i: i
■ HVAfl ER Á SEYfll?
SAMAVIKA í NORRÆNA HÚSINU
í dag kl. 18.00 verður boðið uppá nám-
skeið í samískum bandvefnaði. Bima
Halldórsdóttir sýnir aðferðir við að fingur-
vefja mittisbönd. Þá mun Laila Spiik frá
Norðurbotni verða með ýmislegt forvitni-
legt í farteskinu, s.s. samísk listhandverk
og samíska rétti, sem gestum býðst að
smakka á.
Til Samavikunnar hefur verið boðið
fræðimönnum frá Finnlandi, Noregi og
Svíþjóð til þess að Ijalla um þjóðhætti,
sögu og menningu og verða málefni líð-
andi stundar rædd við íslenska sérfræð-
inga. Fyrirlestrar verða haldnir í fundarsal
Norræna hússins frá mánudegi til föstudags og heíjast þeir kl. 20.00 alla dagana. I
kvöld verður fjallað um húsagerð Sama og ræðast við Kjell Oksendal sendikennari,
Óli Hilmar Jónsson arkitekt og Kristín Jónsdóttir arkitekt. Samar og íslendingar eru
einu þjóðirnar sem notuðu torf til húsagerðar allt frá upphafi byggðar.
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Poulenc hátíð f Iðnó
Lokatónleikar tónleikaraðar sem tileink-
aðar eru Francis Poulenc verða í kvöld í
Iðnó og hefjast kl. 20.30. Á efnisskránni
verða sex verk: Sónata fyrir tvö klarinett,
Sónata fyrir selló og píanó, Le bastiaire,
fyrir baritón og píanó, Sónata fyrir fiðlu
og píanó, Sónata fyrir ldarínett og píanó,
og Mouvements Perpétuels fyrir flautu,
ópó, klarínett, fagott, hom, fiðlu, víólu,
selló og kontrabassa.
Francis Poulenc var eitt vinsælasta tón-
skáld Frakka á þessari öld. Tónlist hans
einkennist af grípandi laglínum, er full af
glensi og gamni.
Samfylking eða Sjálfstæðisflokkurinn á
Sólón
I kvöld k. 20.30 eigast þeir Mörður Árna-
son íslenskufræðingur og varaþingmaður
og Hannes Hólmsteinn Gissurarson pró-
fessor við á opnum kappræðufundi á Sól-
on Islandus. Umræðuefnið er „Samfylk-
ing eða Sjálfstæðisflokkurinn“, þess er
vænst að gestir leggi orð í belg.
Stefhumót á Gauki á Stöng
Stefhumót er heiti á tónleikaröð sem tón-
listartímaritið Undirtónar stendur fyrir.
Þar munu hljómsveitirnar Ensími, Botn-
leðja og plötusnúðurinn DJ Bomm Boom
leiða saman hesta sína . Stefnumótið
hefst stundvíslega í kvöld ld. 22.00.
Félag eldri borgara Ásgarði, Glæsibæ
Handavinna og silkimálun kl. 9.00,
kennari Kristín Hjaltadóttir. Skák 13.00 -
17.00. Sungið og dansað kl. 15.00 -
17.00. Stjórnandi Unnur Arngrímsdóttir.
Framsögn kl. 16.15 - 17.45, kennari
Bjarni Ingvarsson. Kaffistofan er opin kl.
10.00-13.00
Félag eldri borgara, Gullmára 13,
Kópavogi
Jóga í félagsmiðstöðinni alla þriðjudaga
kl. 10.00 til kl. 11.00. Línudans í Gull-
smára í dag frá kl. 17.00-18.00.
Tómbóla til styrktar Listaháskóla
Tombóla verður haldin í gallerí „Nema
hvað!" Skólavarörðustíg 22c, dagana 27.
til 31. janúar, opið frá kl. 12.00 til 18.00.
Tombólan opnar fyrir boðsgesti þriðju-
daginn 26. janúar kl. 20.00. Enjgin núll.
Allur ágóði rennur Listaháskóla Islands.