Dagur - 26.01.1999, Side 8
Lífís Lífeyrissöfnun
Tvöfalt öryggi
tvöföld ástæða
Þú getur tvinnað saman á hagkvæman hátt 2,2% lífeyrissparnað og tryggingar tengdar lífi og heilsu
% Lífeyrissöfnun
Lífís Lífeyrissöfnun er sérstaklega ætluð til varðveislu og ávöxtunar viðbótar-
lífeyrissparnaðar. Af sparnaðinum er hvorki greiddur fjármagnstekjuskattur né
eignaskattur. Hér gefst nýtt tækifæri til hagkvæms sparnaðar þar sem framlag
þitt er dregið frá tekjuskattsstofni og þú nýtur skattfríðinda.
Þú velur þá fjárfestingarstefnu sem þér hentar og Lífís sér um að fjárfesta fyrir
mánaðarlegt iðgjald i samræmi við það.
Þér bjóðast þrjár meginleiðir:
Líflínan
Líflínan er fyrirhafnarlaus og þægileg leið. Hún felst í því að flytja fjárfestingu
viðskiptavinar sjálfvirkt á milli fyrirfram skilgreindra söfnunarleiða sem henta
mismunandi æviskeiðum.
Söfnunarleiðir
Söfnunarleiðirnar eru fjórar. Hver leið hentar tilteknu æviskeiði, en með þeim er
stefnt að hámarksávöxtun við lágmarksáhættu með hliðsjón af aldri þínum og
tímalengd fjárfestingar.
Eigin samsetning
Þú velur þína eigin samsetningu úr fjölmörgum innlendum og erlendum Lífís
sjóðum og verðbréfasöfnum.
Útgefandi Lffís Lífeyrissöfnunar er Líftryggingafélag Islands hf. og traustir bakhjariar þess eru:
0 ^ ^vif
LANDSBRÉFHF. ^ ^ VÍTSVGÍISaUÍLV: ISLIVBSIIF
• Tryggingar
1 Lífís Lífeyrissöfnun getur þú notið líftryggingar eða líf- og örorkutryggingar. Það
er góður kostur fyrir þá sem vilja vera vel tryggðir. Tryggingarnar eru valkostur
sem þú getur þætt við lífeyrissöfnunina ef þú kýst.
Líftrygging
Þú getur valið um þrjá flokka líftryggingafjárhæða: eina, tvær eða þrjár milljónir
króna. Iðgjald líftryggingarinnar er hagstætt og er greitt mánaðarlega.
Örorkutrygging
Hægt er að semja um örorkutryggingu samhliða vörslu lífeyrissþarnaðar, þar sem
bætur eru greiddar ef slys eða sjúkdómur leiðir til varanlegrar örorku sem er 40%
eða meiri. Þú getur valið um fjórar fjárhæðir örorkubóta: eina, tvær, þrjár eða fjórar
milljónir króna.
Hringdu í þjónustusíma VÍS 560 5000 og fáðu nánari upplýsingar.
Þú getur einnig fengið upplýsingar um Lífís Lífeyrissöfnun á skrifstofum VÍS,
í útibúum Landsbanka íslands, hjá Fjárvangi og Landsbréfum eða á heimasíðu
Lífís www.lif.is
Fjárhagsvernd fyrír Iffið