Dagur - 09.02.1999, Blaðsíða 6
ÞJÓÐMÁL
Útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjóri: elías snæland jónsson
Aðstoðarritstjóri: birgir guðmundsson
Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson
Skrifstofur: strandgötu 3i, akureyri,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
Símar: 460 6100 og 800 7080
Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is
Áskriftargjald m. vsk.: 1.800 kr. á mánuði
Lausasöluverð: ibo kr. og 200 kr. helgarblað
Grænt númer: 800 7080
Símbréf auglýsingadeildar: 460 6161
Símar auglýsingadelldar: creykjavíK)563-1615 Ámundi Amundason
(AKUREYRI)460-6191 G. Ómar Pétursson
OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir
Netfang auglýsingadeildar: omar@dagur.is
Simbréf ritstjórnar: 460 617KAKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK)
Lengst til vinstri
í fyrsta lagi
Uppstokkun íslenskra stjórnmála hélt áfram um helgina. Mik-
ill fjöldi tók þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar á Reykjanesi.
Úrslitin voru að langmestu leyti eins og kunnugir höfðu spáð
fyrir. Merkustu tíðindin voru annars vegar hin mikla þátttaka
almennings og hins vegar öflug útkoma kvenna. Rannveig
Guðmundsdóttir flaug inn í fyrsta sætið og í fimm efstu sæt-
um eru þijár konur. Hlutur kvenna er því ekki síður góður í
Reykjanesi en í höfuðborginni. Þessi niðurstaða ætti að kveða
niður þær raddir sem sífellt halda því fram að prófkjör séu
slæm aðferð fyrir konur til að komast ofarlega á lista. Reynsla
síðustu vikna sýnir allt annað.
í öðru lagi
Á sama tíma var nýr stjómmálaflokkur til vinstri formlega
stofnaður. Ljóst er að Vinstrihreyfingin - grænt framboð er
stefnulega séð skilgetið afkvæmi vinstriarms Alþýðubandalags-
ins. I yfirlýsingu stofnfundarins er lögð áhersla á jöfnuð og fé-
lagslegt réttlæti, róttæka umhverfísvernd og utanríkisstefnu
sem sker sig í meginatriðum frá stefnumörkun annarra flokka,
svo sem með algjörri andstöðu við aðlögun að Evrópusam-
bandinu og kröfu um brottför hersins og úrsögn úr NATO.
í þriðja lagi
Spurningin um sameign á auðlindum lands og sjávar og aðferð-
ir og leiðir við nýtingu hálendisins verður fyrirferðarmikil í
kosningabaráttu vorsins. Enginn þarf að efast um afstöðu
Vinstrihreyfingarinnar til þeirra mála; hún er mjög afdráttar-
laus. Þannig er lagst gegn „mengandi stóriðju og stórvirkjunum
sem valda mikilli röskun á náttúru landsins" og þess krafist að
hálendinu verði breytt í „stóra þjóðgarða og friðlönd." Einnig
að teknir verði upp svokallaðir grænir þjóðhagsreikningar og
skattkerfinu beitt í þágu náttúruverndar. Með þessum og öðr-
um stefnumálum markar hinn nýi flokkur sig lengst til vinstri
í stjórnmálunum. Eftir er að koma í ljós hvort það sé vænlegt
til árangurs í kosningum á þessum tímum miðjustjórnmálanna.
Elías Snæland Jónsson
Sigurvegaramir
Menn fagna víða sigri í próf-
kjörum eftir helgina. Rannveig
Guðmundsdóttir stendur uppi
sem sigurvegari í prófkjöri
Samfylkingarinnar á Reykja-
nesi og heldur þar með uppi
orðspori sínu að vera enginn
eftirbátur Jóhönnu fjandvin-
konu sinnar í pólitík. Rann-
veig tók að sér að fylla það
skarð sem Jóhanna skildi eftir
þegar hún yfirgaf Alþýðuflokk-
inn á sínum tíma, og Rannveig
fyllti Iíka það skarð sem Jó-
hanna skildi eftir í ríkisstjórn-
inni með því að gerast félags-
málaráðherra. Garri sá á
myndum frá sigur-
hátíðinni í Reykjavík
að þær Jóhanna og
Rannveig voru nú
orðnar mildar vin-
konur, og því ekki
nema eðlilegt að
þær tvær standi nú
uppi sem leiðtogar
Samfylkingarinnar í
tveimur stærstu
kjördæmunum, án
þess þó að þær séu
raunverulega viður-
kenndar sem leiðtogar Sam-
fylkingarinnar í heild.
Ami vauu
En það eru fleiri sigurvegarar í
prófkjörum en þær Jóhanna og
Rannveig. Árni Johnsen sigr-
aði líka í sínu prófkjöri um
helgina. Hann sigraði meira að
segja með afar sannfærandi
hætti. Og sigur Sjálfstæðis-
flokksins í prófkjörinu fólst -
ekki síður en sigur Samfylk-
ingarinnar í R-kjördæmunum
- einmitt í því hversu gríðarleg
þátttakan var. Garri hefur hins
vegar ekki heyrt sjálfstæðis-
menn draga þessa augljósu
ályktun af þessari miklu þátt-
tö' — -
V
Sjálfstæðisflokksins hefur stig-
ið fram og bent á að einmitt
þessi þátttaka sé til marks um
styrka stöðu flokksins og gott
ástand í þjóðarbúskapnum. I
þessu felst hinn miklu munur
á forustu Sjálfstæðisflokksins
og forustu Samfylkingarinnar.
Samfylkingin er tilbúin til að
viðurkenna sigra Rannveigar
og Jóhönnu, en Sjálfstæðis-
flokkurinn vill ekki spila upp
sigur Árna Johnsen.
Haldið niðri
Garra sýnist ástæðan einföld.
Forustan sem er fyr-
ir í Sjálfstæðis-
flokknum er sterk og
er fljót að bæla niður
alla hugsanlega ógn-
un við sig. Forustan í
Samfylkingunni er
veik og ekld búin að
festa sig almennilega
í sessi. Þess vegna er
hún heldur ekki eins
fljót að bregðast við
nýjum keppinautum.
Engu að síður hafa
hvorki þær Jóhanna né Rann-
veig fengið það í gegn að þær
verði ótvíræðir leiðtogar hreyf-
ingarinnar á landsvísu. Alveg
sama gildir með Árna, sem eft-
ir sinn mikla sigur í fjölmennu
prófkjöri ætti að eiga rétt á að
ganga beint inn í aðal forustu-
sveit Sjálfstæðisflokksins og
verða ráðherra. En það er al-
veg óvíst hvort svo muni verða
eins og viðbrögð forustunnar
hafa verið. Þannig á þetta sig-
urvegaratríó ýmislegt sameig-
inlegt. Þau eru elskuð af þjóð-
inni en haldið niðri af for-
mönnum flokka sinna. GARRl
JÓHANNES
SIGURJÓNS-
SON
skrifar
Nýjungar í menningu og listum
eru jafnan kærkomnar, ekki síst
róttækar nýjungar eins og brydd-
að er upp á í Gerðubergi þessa
dagana. Um er að ræða röð
myndlistarsýninga þar sem leik-
menn velja Iistamenn og verk á
sýningu og byggja valið eingöngu
á eigin smekk undir kjörorðinu
„Þetta vil ég sjá“. Sem sé sýning-
ar á persónulegum smekk við-
komandi Ieikmanna fremur en á
hefðbundinni myndlist.
Fyrstur leikmanna til að ríða á
vaðið er Kári Stefánsson. Kári er
sannur leikmaður sem segist
ekki hafa hundsvit á listum og
velji fyrst og fremst það sem
honum finnst fallegt. Og þar í
liggur kannski hin róttæka nýj-
ung í Iistalffi Iandsmanna.
Isma-el
Myndlistarsýningar eru yfirleitt
Smekklegar list-
sýningar
annað tveggja settar upp af lista-
mönnunum sjálfum, séu þeir
núlifandi, eða af listfræðingum
séu listamennirnir ekki lengur á
dögum. Þetta hefur ekki gefið
góða raun. Listamenn eru ekki
frekar en aðrir dóm-
bærir á eigið ágæti og
gæði eigin verka. Og
Iistfræðingarnir eru
bundnir af formal-
isma, mínimalisma,
fúnksjónalisma, mek-
anisma og ýmsum
öðrum hismis-ismum
og því gjarnan á allt
öðru píani en þeir
ismasnauðu fávitar
sem sýningar sækja og
vilja bara sjá eitthvað
fallegt og spennandi.
Af þessum sökum hafa sýning-
argestir oft ekki náð jarðsam-
bandi við myndlistina og öfugt.
En verður vonandi breyting á nú
þegar búið er að finna upp
Gerðubergsleiðina í myndlist,
þar sem leikmenn velja og sýna
eitthvað sem þeim finnst fallegt
og fellur örugglega betur við flís-
arrassinn almúgans
en sýningar lista-
manna og listfræð-
inga.
...að baki Káxa
Nú bíða menn bara
spenntir eftir því
hvaða Ieikmaður fær
næst að velja verk á
sýningu í Gerðubergi,
hvaða Björn lúrir þar
að baki Kára. Að vísu
er það dálitlum vand-
kvæðum bundið að
velja leikmann að þessu sinni því
Kári hefur þegar markað
ákveðna stefnu sem auðvitað
verður að fylgja. Hann valdi sem
sé verk eftir stjúptengdaföður
sinn, skólabróður sinn og fíar-
skyldan ættingja sinn úr hópi
Brettinga. Þannig að þeir íslend-
ingar sem ekki eiga vini og
frændur í hópi listamanna, eru
þar með útilokaðir úr leik-
mannahópnum í Gerðubergi.
En vonandi verða það ekki ein-
ungis forstjórar og framámenn í
þjóðfélaginu sem fá að velja
Iistaverk í þessa sýningarröð,
heldur einnig undirmálslýður á
borð við blaðamenn, sjómenn og
fiskverkafólk. Að öðrum kosti er
hætt við að fátt verði mynda eft-
ir vinsæla alþýðulistamenn á
borð við Hauk Clausen, Bjarna
Jónsson og Jakob Hafstein í
Gerðubergi á næstunni.
spuiíot
svanraid
Ergagnrýni Páls Skúla-
sonar háskólarektors á
fjolmiðla og þá einkum
á sjónvarp á rökum
reist?
Karl Gaiðaxsson
aðstoðaifréttastjóri Stöðvar 2:
„Mér finnst
þetta að mörgu
íeyti vera rétt
hjá honum. Það
er að segja að
sjónvarpið er
þannig miðill að
það á erfitt að
fara ofan í kjölinn á fréttamál-
um. Það getur ekki fjallað eins
ítarlega um þau eins og t.d. dag-
blöð. Eðli miðilsins er eiginlega
þannig og þá einkum í fréttum
að fara ekki mjög djúpt ofan í
mál. Hinsvegar er það hægt í sér-
stökum þáttum. Eg held samt að
íslenskar sjónvarpsstöðvar standi
sig ekkert verr í þessum málum
en erlendar, nema síður sé.“
Bogi Ágústsson
fréttastjóri Sjónvarpsins:
„Þetta eru bara
hans skoðanir
og ég ætla ekki
að segja eitt eða
neitt um það.“
Sigurveig Jónsdóttir
npplýsingafuiltnii.
„Ég fylgist nú
aðallega með
innlendum fjöl-
miðlurn og
myndi ekki taka
svona djúpt í ár-
inni gagnvart
þeim. Hins veg-
ar finnst mér að þeir séu ekki
nægilega meðvitaðir um vald sitt
og ábyrgð. Það vantar oft heildar-
sýn og mér finnst að í vaxandi
mæli sé byggt á sjónarmiði við-
mælenda, án þess að kafað sé í
málin og þau skoðuð sjálfstætt
þannig að maður fái heildar-
myndina. Oft er það svo að ef
enginn vill segja neitt þá er eng-
in umíjöllun. Síðan finnst mér
oft koma fyrir að andstæð sjónar-
mið séu birt sitthvorn daginn.
Með þannig afgreiðslu fær fólk
ófullnægjandi upplýsingar til að
mynda sér skoðun. Þó margt sé
vel gert tel ég sem sagt ýmislegt
skorta á og hluti af skýringunni
er fámenni á fréttastofunum, þar
sem vantar bæði fólk og sérhæf-
ingu.“
Þómnn Sveinbjamardóttir
blaðakona og stjómmáiajtæðingur.
»Ég hygg að há-
skólarektor hafi
nokkuð til síns
máls. Nútíma-
fjölmiðlun gerir
nokkrar kröfur
til þeirra sem
við hana starfa
og því miður reynist sumum fjöl-
miðlum erfitt að standast þær.
Þeir grípa þá til hraðsuðunnar og
slæmra vinnubragða. Slíkt ber
hvorki vott um virðingu fyrir við-
fangsefninu né neytendum sem
hugsandi verum. Einnig fannst
mér tímabær ábending rektors
um að öll berum við ábyrgð á
sjálfum okkur í þessum efnum."