Dagur - 13.02.1999, Qupperneq 6
VI -LAUGARDAGUR 13. FERRÚAR 1999
rDMpir
MINNINGARGREINAR
Ingólfur Stefánsson og
Ingibjorg Guðmundsdóttir
Nú eru þau bæði horfin af svið-
inu hjónin á Sundlaugaveginum.
Okkur, vinum og kunningjum, er
tamast að kenna þau svo, Ingi-
björgu og Ingólf. Þar stóð heimili
þeirra nærfellt hálfa öld, allnærri
Sundlaugunum sem öll fjölskyld-
an dáði í verki.
Ingólfur var Austfirðingur,
fæddur á Berunesi við Reyðar-
fjörð 17. ágúst 1915. Foreldrar
hans voru Asdís Sigurðardóttir
húsfreyja og Stefán Magnússon
bóndi þar. Var Ingólfur yngstur
sex systkina. Hann fluttist með
foreldrum sínum yfir á Eskitjörð
1917 þar sem faðir hans stund-
aði útgerð og verslunarstörf. Þar
naut Ingólfur barnafræðslu hjá
Arnfinni Jónssyni skólastjóra.
Fjölskyldan fluttist síðan til
Reykjavíkur 1930.
A Eskifirði er stutt sjávargatan,
raunar allt mannlíf á malar-
kambi, og hraustir strákar komn-
ir á sjó fyrr en varði. Ingólfur hélt
sitt strik, réðst á togara 17 ára,
innritaðist í Stýrimannaskóla Is-
lands 1937 og lauk þaðan prófi
1939.
Ingibjörg var að vestan, fædd
12. júní 1917 að Hrauni í Keldu-
dal við Dýrafjörð. Foreldrar
hennar voru Guðrún Björnsdótt-
ir húsfreyja og ljósmóðir og Guð-
mundur Guðmundsson bóndi og
skútuskipstjóri, seinna segla-
saumari og togarasjómaður. Ingi-
björg var næstyngst fimm systk-
ina. Einnig ólst upp með þeim
systursonur Guðrúnar. Hjónin á
Hrauni fluttu til Þingeyrar 1921
þar sem Ingibjörg átti sín upp-
vaxtarár og gekk í barnaskóla
þorpsins.
Fjölskyldan fluttist til Reykja-
víkur 1933. Um haustið fór Ingi-
björg til náms við Héraðsskólann
á Laugarvatni og lauk burtfarar-
prófi þaðan vorið 1935. Næstu
árin stundaði hún ýmsa vinnu í
höfuðborginni. Nú er að segja frá
því að ungt fólk kynnist og fellir
hugi saman.
Ingibjörg Guðmundsdóttir og
Ingólfur Stefánsson gengu í
hjónaband á vordögum 1940.
Þremur árum seinna festu þau
kaup á íbúð á Rauðarárstíg 11.
Og fáum árum síðar keyptu þau
hæð í nýbyggðu húsi nr. 24 við
Sundlaugarveg þar sem stóð
heimili þeirra upp frá því.
Svo hafa mál skipast að allt frá
því að Ingólfur og Ingibjörg festu
sér íbúð á Rauðarárstíg og æ síð-
an bjuggu í sama húsi og þau
önnur hjón, Guðrún Gísladóttir
og Friðgeir Grímsson. Með þessu
fólki tókst órofa vinátta, byggð á
gagnkvæmri tillitssemi og virð-
ingu. Það hygg ég mála sannast
að frá upphafi var heimili Ingólfs
og Ingibjargar á Sundlaugavegi
24 allt í senn, rausnargarður, at-
hvarf stórfjölskyldunnar og skiln-
ingur og varmur gróðrarreitur
vaxandi ungviði. - Allt þetta kem-
ur líka glöggt fram í kveðjuorðum
yngri kynslóðanna við fráfall
beggja.
Ingibjörg og Ingólfur eignuð-
ust fimm syni. Elstur er Emil,
fæddur 14. apríl 1942, prent-
smiður, kvæntur Jónínu G. Har-
aldsdóttur. Börn þeirra eru Guð-
rún Björk, Laufey Andrea og
Haraldur. Sonur Emils er Þor-
steinn. - Næstur í aldursröð er
Guðmundur, fæddur 24. septem-
ber 1943, tæknifræðingur,
kvæntur Sigríði Einarsdóttur.
Þeirra börn eru Guðmundur,
Rósa og María. Þá kemur Stefán,
fæddur 12. maí 1946, skriftvéla-
virki, kvæntur Guðrúnu Ragn-
arsdóttur. Börn þeirra eru Ragn-
ar Ingi, Ingibjörg, Ingólfur, Mar-
grét Þórunn og Stefán Gestur. -
Þorsteinn var fæddur 28. október
1949, íþróttakennari, kvæntur
Ingu Harðardóttur. Sviplegt frá-
fall hans í blóma lífsins var mik-
ið áfall. Hann lést 11. ágúst
1974. Kristinn er yngstur, fædd-
ur 18. maí 1951, tæknifræðing-
ur, kvæntur Birnu Kr. Svavars-
dóttur. Börn þeirra eru Svava,
Ásdís og Sigurbjörn. Af þriðju
kynslóðinni eru níu börn í heim-
inn borin þegar þetta er skrifað á
þorra 1999.
Hjónin á Sundlaugaveginum
áttu að baki merkan starfsferil og
farsælan.
Ingólfur Stefánsson steig öld-
una, á togurum lengst af. Fyrst á
Sviða í Hafnarfirði frá 1932.
Hann sigldi öll stríðsárin og réðst
eftir stríðslok á „nýsköpunartog-
arana“. Hann varð skipstjóri á
Agli rauða í Neskaupstað 1949
og á Goðanesinu þar 1953.
Næsta ár var hann um hríð skip-
stjóri á bv. Mars og síðan á Skúla
Magnússyni í Reykjavík þar til
hann hætti sjómennsku 1958.
Næstu árin vann Ingólfur við
Aburðarverksmiðjuna í Gufunesi
og var um hríð verkstjóri hjá
Fiskmiðstöðinni hf.
Árið 1964 hófst nýtt starfs-
tímabil á æviferli Ingólfs Stefáns-
sonar. Vinur hans og samstarfs-
maður, Guðjón A. Kristjánsson,
segir svo frá:
„Ingólfur tók við starfi sem
framkvæmdastjóri Farmanna- og
fiskimannasambands Islands
1968, en þar áður hafði hann
verið starfsmaður FFSÍ frá 1964,
ásamt því að vera starfsmaður
Skipstjóra- og stýrimannafélags-
ins Oldunnar. Ingólfur var mikil-
virkur félagsmálamaður. Hann
var árrisull og vann oft lengi
frameftir, enda verkefni oft mikil
á vegum FFSÍ við kjarasamninga,
erindrekstur, bréfaskriftir og
nefndastörf. Ingólfur starfaði í
íjölda nefnda, stjórna og ráða þá
rúmlega tvo áratugi sem hann
starfaði fyrir FFSÍ:“
Sjötugur að aldri lét Ingólfur
Stefánsson af störfum sem fram-
kvæmdastjóri Farmanna og fiski-
mannasambandsins. En áhugi
hans fyrir útvegsmálum og vel-
ferð sjómannastéttarinnar
fölskvaðist ekki. Til dæmis skrif-
aði hann þætti um sjávarútvegs-
mál fyrir DV til æviloka síðasti
pistillinn birtist eftir sviplegt frá-
fall hans.
Ingibjörg Guðmundsdóttir
hafði ærið að starfa við stækk-
andi heimilið meðan húsbóndinn
var langdvölum á sjónum og öll
umönnun, svo út á við sem
heima fyrir, hvíldi á herðum
ungrar húsfreyju. Vitanlega
breyttist aðstaða Ingibjargar þeg-
ar Ingólfur kom í land. En hann
vann jafnan langan vinnudag - og
synirnir orðnir fimm og allir
heima. Það var því ekki fyrr en
seinna að um hægðist að þvi
marki að húsfreyja tæki að svip-
ast um eftir nýjum störfum. Að-
hlynning sjúkra var henni hug-
stæð, þar vék hún að og næg var
þörfin fyrir hlýjar hendur.
Þar er skemmst frá að segja að
árið 1966 útskrifuðust, fyrstu
sjúkraliðarnir á Islandi og í þeim
hópi var Ingibjörg Guðmunds-
dóttir. Hún starfaði um hríð á
Slysavarðstofunni en vann lengst
sem sjúkraliði á barnageðdeild
Hringsins eftir að hún var stofn-
uð. Síðustu starfsárin vann hún á
öldrunardeild Landspítalans.
Ingibjörg var áhugasöm um fé-
lagsmál sjúkraliða, var í stjórn fé-
lags þeirra um tíma og kjörin
heiðursfélagi.
„Starfslok" hjónanna á Sund-
laugaveginum virtust ekki láta
eftir sig neitt tómarúm þar á bæ.
Tómstundaiðja, gróðurinn í garð-
inum, Ieikhúsferðir, félagslíf,
ferðir í önnur lönd og síðast en
ekki síst stórljölskyldan sem fyrr
getur komu í veg fyrir það. Og því
fremur að hjónin voru, enn sem
fýrr, samhent um hvaðeina. Fjöl-
skyldan stóra breyttist vitanlega í
áranna rás. Nokkrir höfðu safn-
ast til feðra sinna og yngra fólk-
inu hafði Ijölgað margfalt og því
varð tíðförult á Sundlaugaveginn
til afa og ömmu. Ennþá var líf og
fjör á Sundlaugaveginum.
„Efri árin“ þeirra Ingibjargar
og Ingólfs urðu ekki næsta mörg.
Ingólfur hafði kennt heilsu-
brests, verið undir læknishendi,
en annars farið fram sem ekkert
hefði í skorist. Ferðalög til fjar-
lægra landa voru þeim hjónum
yndisauki. Andlát Ingólfs bar að á
heimleið úr einni slíkri för. Hann
varð bráðkvaddur vestan hafs 1.
mars 1993.
Nokkru áður en fráfall Ingólfs
bar að höndum tók Ingibjörg að
kenna þess sjúkdóms sem lýsir
sér m.a. í skertu minni og hæfni
til sjálfsbjargar. A meðan Ingólfs
naut við kom þetta síður að sök.
En sjúkleiki hennar sótti á og
brátt hlaut Ingibjörg að yfirgefa
vettvang á Sundlaugavegi 24.
Síðustu árin naut hún aðhlynn-
ingar á Skjóli og þar Iést hún 16.
janúar 1999.
Við Margrét kona mín áttum
því láni að fagna að vera í vin-
fengi við fjölskyldu Ingibjargar og
Ingólfs. Tildrög voru þau að við
Imba vorum skólasystkini frá
Laugarvatni (þar voru fáir nefnd-
ir fullu nafni. En raunar var heiti
Ingibjargar ætíð stytt svo í íjöl-
skyldu hennar). I Héraðsskólan-
um var Imba frábær nemandi og
traustur skólaþegn í allan máta.
Vegna misræmis í einkunnargjöf
fyrir handavinnu pilta og stúlkna
náði hún ekki hæstu einkunn á
burtfararprófi. En ekki man ég
lengur hvort hana skorti 0,1 eða
0,01 til að ná 9,45 sem þá var
hæsta einkunnin!
Við Imba héldum kunnings-
skapnum sem sfðan færðist yfir á
fjölskyldur okkar svo úr varð
órofa vinátta. „Viðskiptin" urðu
gagnkvæm. Þrír drengjanna á
Sundlaugaveginum áttu sumar-
dvöl á Brekku, Guðmundur eitt
sumar, Kristinn fleiri og Þor-
steinn níu auk eins vetrar sem
hann var hjá mér f barnaskóla í
Mjóafirði. - Á hinn bóginn var
Anna, dóttir okkar Margrétar, á
Sundlaugaveginum fyrsta skóla-
vetur sinn f Reykjavík. Reyndar
höfðum við Margrét einnig dval-
ist þar nokkrar vikur í þann
mund sem Anna leit fyrst dagsins
ljós vel fimmtán árum áður! Við
hjónin nutum þess líka að vera
heimagangar hjá Ingólfi og Ingi-
björgu nær helst sem við dvöld-
umst í Reykjavík vegna starfa
minna þar. Voru þau hlunnindi
raunar óborganleg. Olli hvort
tveggja, allavega kringumstæður
komufólksins í borginni og glað-
værðin og hlýjan á hinu trausta
heimili.
Minningar frá þessum sam-
skiptum verða ekki raktar hér.
Þau höfðu meðal annars í för
með sér kynni af mörgu af-
bragðsfólki þegar við Margrét,
alls óskyldar manneskjur, sátum
fjölskylduboðin hjá Ingólfi og
Ingibjörgu. Sem dæmi nefni ég
foreldra Ingibjargar, Guðmund
og Guðrúnu, á gullbrúðkaups-
degi þeirra, eftirminnileg bæði,
hýr í bragði og traust. Eg man
hvað ég dáðist að ávarpsorðum
Guðrúnar sem hún flutti af ör-
yggi og auðkenndust af hófsemd
og mikilli yfirsýn.
Við Margrét minnumst hjón-
anna á Sundlaugaveginum, Ing-
ólfs og Ingibjargar, með innilegu
þakklæti og biðjum blessunar
þeim og þeirra nánustu, Iífs og
Iiðnum.
Vilhjálmur Hjálmarsson
Hjartans þakkir færum við öllum þeim fjölmörgu sem sýndu
okkur samúð og hlýhug í orði og verki við andlát og útför eig-
inmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa, bróður og mágs
BERGSTEINS L. GUNNARSSONAR
Kasthvammi,
Laxárdal
Aðalbjörg Jónasdóttir,
Gunnar Tr. Bergsteinsson. Valgerður E. Aðalsteinsdóttir,
Halla Bergsteinsdóttir,
Jónas Bergsteinsson, Linda Björk Hreiðarsdóttir,
Bjarni Bergsteinsson, Sigríður Þorbergsdóttir,
barnabörn,
Kristín Gunnarsdóttir, Helgi Björnsson.
TXRARSTq
wrr- a *
/SI.ANOe
Markmið Útfararstofu islands er að veita trausta og persónulega þjónustu.
Aðstandendur geta leitað útfararstjóra hvenaar sólarhrings sem er.
Útfararstofa íslands er aðstandendum innan handar um alla þá þætti er hafa
ber i huga er dauðsfall ber að. Útfararstjórar Útfararstofu íslands búa yfir
mikilli reynslu og hafa starfað við útfararþjónustu um árabíl.
Útfararstofa íslands sér um:
Útfararstjóri tekur að sér umsjón útfarar í samráði við
prest og aðstandendur.
Flytja hinn látna af dánarstað I líkhús.
Aðstoða við val á kistu og líkklæðum.
Undirbúa lík hins látna í kistu og snyrta ef
með þarf.
Útfararstofa íslands útvegar:
Prest.
Dánarvottorð.
Stað og stund fyrir kistulagningu og útför.
legstað I kirkjugarði.
Organista, sönghópa, eínsöngvara, einleikara
og/eða annað listafólk.
Kistuskreytingu og fána.
Blóm og kransa.
Sálmaskrá og aðstoðar víð val á sálmum.
Líkbrennsluheimild.
Duftker ef Ifkbrennsla á sér stað.
Sal fyrir erfidrykkju.
Kross og skilti á leiðl.
Legstein.
Flutning á kistu út á land eða utan af landi.
Flutning á kistu til landsios og frá landinu.
Svem'r Einarsson,
útfararstjóri
Sverrir Olsen.
útfararstjóri
Útfararstofa íslands - Suðurhlfð 35-105 Reykjavík.
Sími 581 3300 - allan sólarhringinn.